Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2013, Page 13
Umræða 13Miðvikudagur 31. júlí 2013
Jóhanna Einarsdóttir Hvað
myndir þú telja hóflegar
launahækkanir í komandi
kjarasamningum?
Gylfi Arnbjörnsson Jóhanna,
almennt séð tel ég mikilvægt að
tryggja þurfi ákveðið samhengi á
milli launahækkana, gengisstöðug
leika og verðbólgu. Nú hafa
stjórn endur íslenskra fyrirtækja hins
vegar mótað nokkuð rýmri hækkun
sín vegna sem Kjararáð úrskurðaði
fyrir stjórnendur hjá ríkinu og ætli
það leggi ekki línuna!
Salvar Sigurðarson Hver eru
lærdómsríkustu mistökin sem
þú manst eftir að hafa gert á
ferlinum?
Gylfi Arnbjörnsson Já, þegar
stórt er spurt! Ætli það sé ekki
svona eftir á að hyggja að hafa ekki
hvatt til uppsagna kjarasamninga
í nóvember 2005 til að stoppa þá
verandi ríkisstjórn af í einhverri þeirri
vitlausustu efnahagsstefnu sem
mótuð hefur verið á Vesturlöndum!
Þór Agnarsson Er ekki eðlilegt
að krafan um að laun verði
verðtryggð til móts við lán
verði forgangs krafa í komandi
kjarasamningum
Gylfi Arnbjörnsson Nei, ef við
viljum auka kaupmátt launa verða
launahækkanir að vera meiri en
sem nemur verðbólgu. Því mun
„verðtrygging launa“ þýða minni
launahækkanir en það sem við
teljum ásættanlegt!
Pétur Jónsson Er ekki
heppilegast að láta kjaradóm
ákveða laun opinberra
starfsmanna almennt séð?
Gylfi Arnbjörnsson Nei, ég er
staðfastlega þeirrar skoðunar að
launahækkanir eigi að vera niður
staða af félagslegu samningaferli
þar sem starfsmenn hafa beina
aðkomu að umfjöllun og framvindu.
Þó einhver rök séu fyrir Kjararáði
gagnvart einstaka hópum tel ég allt
of marga falla þar undir!
Auðunn Valsson Telur þú
eðlilegt að forseti ASÍ sé
yfirlýstur stuðningsmaður
ákveðins stjórnmálaflokks? Á hann ekki
að vera hlutlaus í opinberu starfi í þágu
almennings?
Gylfi Arnbjörnsson Það er ekkert
að því að forseti ASÍ og aðrir séu
þátttakendur í okkar lýðræðislega
ferli – það er líka heiðarlegra að
það sé þekkt frekar en láta sem
viðkomandi sé eitthvað hlutlaus
þegar hann er það ekki.
Björn Torfason ASÍ hefur
ályktað að hagsmunum
launþega sé best borgið innan
ESB. Af hverju halda talsmenn
stéttarfélaga eiginlega aldrei fram
þessum málstað, treysta menn sér ekki
til þess?
Gylfi Arnbjörnsson Það er reyndar
víðtæk hefð fyrir því að fjalla um
svona mál á vettvangi heildarsam
takanna, bæði ASÍ og landssam
bandanna, en ekki á vettvangi
félaganna þó sum þeirra hafi
reyndar ályktað um málið. Varðandi
afstöðu ASÍ þá er þetta ekki svona
afdráttarlaus afstaða því við
skilgreindum ákveðin samninga
markmið sem algjörra forsendu fyrir
því að hægt væri að gerast aðilar
að ESB. Um þessi markmið í sjávar
útvegi, landbúnaði, byggðamálum
og vinnumarkaðsmálum hefur ekki
verið samið!
Sesselja Traustadóttir Sæll
Gylfi. Ég horfi svolítið í
samgöngur á Íslandi. Einkum
virkar samgöngur, ganga, hjóla og
almenningsvagna. Nú er talið að 30%
útgjalda meðalheimilis snúi að kostnaði
vegna samgangna. Töluvert meira en í
mat. Hver er hugur ykkar innan ASÍ til
þessa málaflokks? Hafið þið t.d. skoðað
samgöngusamninga og mótað afstöðu
til þeirra gagnvart kjarasamningagerð?
Og hafið þið einhvern tíma gefið ykkur á
tal við Strætó og reynt að greina hvort
einhver merkjanlega samlegðaráhrif
gætu bætt kjör í landinu?
Gylfi Arnbjörnsson Já, þetta er
góð ábending hjá þér Sesselja.
Við höfum reyndar í tengslum við
stefnumótun í umhverfismálum í
vaxandi mæli verið að ræða þessi
mál bæði hér heima og í Norrænu
samstarfi okkar, m.a. hvernig við
getum notað kjarasamninga til
þess að ýta undir jákvæða þróun í
þessum efnum. Eitt af því sem er
vandamál með Strætó er að áætl
unin miðast t.d. lítið við það hvenær
vinna hefst á morgnanna og eins
hvar stórir vinnustaðir eru.
Bergljót Aðalsteinsdóttir Nú
varst þú ekki ánægður með
störf síðustu ríkisstjórnar. En
hvað finnst þér þá um orð núverandi
fjármálaráðherra um kælingu
hagkerfis? Varla telst sú aðgerð auka
kaupmátt eða atvinnu?
Gylfi Arnbjörnsson Já, ég tók eftir
þessu hjá Bjarna, það er reyndar
ekki langt síðan hann taldi hér
allt botnfrosið og ég verð nú að
viðurkenna að þó sólin hafi aðeins
látið sjá sig í síðustu viku væri synd
að segja að hér væri mikil ofhitun.
Atvinnuleysi jókst t.d. í júní m.v.
síðasta ár! Ætli þetta sé ekki hluti
af hefðbundnum barlóm vegna
undirbúnings kjarasamninga!
Ingvar Guðmundsson Hvers
vegna varst þú á móti því að
verðtrygging væri fest í þeirri
stöðu sem hún var í janúar 2008.? Þú
varst formaður nefndar sem fjallaði um
það mál.
Gylfi Arnbjörnsson Það var vegna
þess að ef slík lög yrðu sett væri
ljóst að ríkissjóður yrði ábyrgur
gagnvart eigendum slíkra skulda
bréfa og ég taldi og tel mig ekki geta
staðið að tillögu um að nota 240
milljarða króna af skattfé til að að
stoða ríkasta fólkið í landinu sem
ekki á í miklum vandræðum með
að standa undir sínum lánum. Vildi
frekar beina aðgerðum að venjulegu
launafólki og ungu fjölskyldufólki
með sértækum aðgerðum!
Pétur Jónsson Þar sem þú ert
að berjast fyrir launþega til að
auka kaupmátt þeirra. Telur þú
afnám verðtryggingar ekki vera
lykilatriði í að bæta hag heimilanna?
Lækka útgjöld og gera fjölskyldum
kleift að gera langtímaplön. Munt þú
beita þér fyrir slíku?
Gylfi Arnbjörnsson Jú, algjörlega
sammála en þá verðum við líka að
vera viss um að þeir nafnvextir sem
taka við séu greiðanlegir, en ef nafn
vextir fara mikið yfir 5% þarf fólk að
fá greiðsludreifingu á vextina til að
geta staðið undir greiðslubyrði. ASÍ
hefur lagt fram tillögur að nýju hús
næðislánakerfi sem einmitt byggir
á óverðtryggðum vöxtum og vænti
þess að núverandi ríkisstjórn vinni
að því að koma því í framkvæmd!
Jóhann Sigurbjörnsson Telur
þú að 90% lán ÍLS hafi aukið á
verðbólgu ?
Gylfi Arnbjörnsson Já, algjörlega
sannfærður um það, ásamt því þá
ákvað Íbúðalánasjóður að fara inn
á hefðbundið lánasvið bankanna
sem þeir svöruðu með því að fara
inn á svið ÍLS. Af þessu hlaust mikil
þensla sem Seðlabankinn hefði átt
að bregðast við með því að minnka
peningamagn í umferð en gerði
ekki!
Jóhann Sigurbjörnsson Telur
þú að tekjuviðmið : húsa leigu
bóta, vaxtabóta, LÍN lána,
barnabóta o.s.frv. séu of lág og ef svo er,
hvað á að gera í því í komandi
kjaraviðræðum ?
Gylfi Arnbjörnsson Ég er þeirrar
skoðunar að óhjákvæmilegt sé að
tekjutengja bætur hins opinbera en
tel að hér á landi hafi verið gengið
allt of langt í málinu, bæði hvað
varðar umfang tekjutengingar
og hversu snemma þær byrja að
skerða, Yfirleitt er búið að skerða
allar bætur u.þ.b. þegar fólk
kemst í meðaltekjur á meðan hin
Norðurlöndin byrja að skerða við
meðaltekjur og láta það fjara út ofar
á tekjuskalanum.
Björn Grétar Sveinsson Er
ekki kominn tími til að slíta
faðmlaginu við samtök
atvinnulífsins og sýna meira frumkvæði
hreyfingarinnar?
Gylfi Arnbjörnsson Ekki veit ég
hvað þú átt við félagi, það er ekki
nýlunda að heildarsamtökin hafi
náð saman í atvinnumálum og
vinnumarkaðsmálum en ég held að
það sé fátt annað sem við höfum
sameiginlega sýn á.
Fundarstjóri Næsta spurning
snýr að komandi kjaraviðræð
um:
Jóhanna Einarsdóttir Á að
gera samninga tvö þrjú ár fram
í tímann eða skammtíma
samninga?
Gylfi Arnbjörnsson Ég tel yfir
gnæfandi líkur á því að samið verði
til skemmri tíma á meðan við sjáum
hvað verður úr stefnu ríkisstjórnar
innar í efnahags og peningamálum.
Það er vart hægt að leggja í lengri
samning í þeirri miklu óvissu sem
ríkir, en um þetta eru aðildarfélög
ASÍ að fjalla og myndin mun skýrast
þegar líður á september.
Þór Agnarsson Fyndist þér
ekki eðlilegt að forseti ASI væri
kosinn af öllum félagsmönnum
í beinni kosningu?
Gylfi Arnbjörnsson Nei ég teldi
það mikið óráð. ASÍ er ekki stéttar
félag heldur samstarfsvettvangur
aðildarfélaga sinna. Formlegt
umboð ASÍ er takmarkað við það
sem sátt er um meðal aðildarfélag
anna. Það er ekki líklegt til árangurs
að veita forseta ASÍ ríkara umboð
en það sem oddvitar einstakra
aðildarfélaga hafa því slíkt kanna ð
leiða til ágreinings.
Jóhann Sigurbjörnsson
Myndir þú segja að krafa
launafólks í landinu í næstu
kjaraviðræðum væru: að hækka
persónuafslátt, að koma á almennilegu
húsnæðiskerfi (leiga/kaup) og að
lágmarkslaun verði bundin við þá tölu
sem velferðaráðuneytið gefur upp
(250þ fyrir utan húsnæðiskostnað) ?
Gylfi Arnbjörnsson Ég ætla ekki
að tjá mig um það að svo stöddu,
það er aðildarfélaganna og félags
manna þeirra að móta kröfugerð og
sú vinna er þegar komin á skrið og
mun birtast í september/október.
Þangað til eru þetta vangaveltur
sem vert er að huga að.
Jóna JónsdóttirAf hverju hafa
ekki orðið launahækkanir þar
sem þjóðarsáttin er löngu farin.
Og af hverju eru formenn verkalýðsfélag
ana og þú sem forseti ASÍ með margföld
laun verkamannsins? Hefur þú aldrei
hugsað um það að lækka við þig launin.?
Af hverju heyrist lítið frá ykkur þegar að
allir þessir kaupaukar eru virkjaðir hjá
bönkunum aftur núna og þetta er eins og
var fyrir hrun er það eðlilegt að
bankamönnum sé hampað á kostnað
þeirra sem misst hafa híbýli sín ?
Gylfi Arnbjörnsson Sæl Jóna. Við
reyndar styttum kjarasamninginn
til að geta fyrr hafið viðræður
um launahækkanir. Laun mín og
forystumanna eru heildartekjur
en ekki bara grunnlaun þannig að
það er nú ekki alveg sanngjarnt
að miða við verkamannataxta. Ég
lækkaði ekki í launum en tók á mig
meiri vinnu með því að ráða ekki í
stöðu framkvæmdastjóra og ég
hef nú mikið gagnrýnt launakerfi
bankanna!
Astridur Jonsdottir Telur þú
að væntanleg lækkun lána
sem lofað var í aðdraganda
alþingiskosninganna muni skila sér í
auknum kaupmætti og bættum hag
heimilanna til langtíma?
Gylfi Arnbjörnsson Ég óttast að
þessi gjörningur, sem aðallega
mun falla þeim tekjuhæstu og
eignamestu í skaut skv. rannsókn
Seðlabankans, muni ýta undir
innflutning sem aftur getur leitt
til lækkunar á gengi krónunnar og
aukinnar verðbólgu og er ég þá
ekki að gera ráð fyrir því að þetta
verði fjármagnað með skatta
lækkunum! Ef það gerist mun
almenningur ekki njóta mikils af
þessu annað en meiri verðbólgu
og lægri kaupmáttar. Þetta
eru þessar köldu staðreyndir
hagfræðinnar sem fylgja gjarnan í
kjölfarið.
Hermundur Sigurdsson
Sælir. Finnst þér ekkert
skjóta skökku við að laun þín
og annarra toppa í verkalýðshreyf
ingunni séu á við 34föld verka
mannalaun? Væri ekki gott að nota
laun ykkar sem viðmið í næstu
kjaraviðræðum?
Gylfi Arnbjörnsson Sæl Her
mundur. Heildartekjur mínar eru
um 2,5föld meðaltekjur félags
manna ASÍ. Mótun kröfugerðar er
í gangi og það er félagsmanna að
móta línuna en ég veit ekki hvort
þetta hefur komið til tals sem
viðmiðun.
Árni Sigurðsson Myndi
verðbólguvandinn nokkurn
tíman hverfa án þess að
bankar og lífeyrissjóðir græði á hárri
verðbólgu? Er ekki réttlátara að þeir
sem hafa ráðin finni sársaukann?
Gylfi Arnbjörnsson Ég held að
það sé nú þannig að bankar hafa
sínar tekjur af mismun innlána og
útlána. Ef sparifjáreigendur sætta
sig við neikvæða raunvexti geta
bankar veitt lán með neikvæðum
raunvöxtum (sem eru þó hærri en
innlánsvextirnir) og „grætt“ áfram.
Lífeyrissjóðir fara hins vegar illa út
úr verðbólgu því allar skuld
bindingar þeirra (sem eru lífeyris
réttindi okkar) eru verðtryggðar en
bara u.þ.b helmingur eigna þeirra.
Því er best fyrir þá að hafa lága
verðbólgu!
Þór Agnarsson Finnst þér
eðlilegt að það séu tveir
gjaldmiðlar í gangi í landinu,
þ.e.a.s. óverðtryggður á launum en verð
tryggður á lánum og hvað ætlar þú að
gera í því?
Gylfi Arnbjörnsson Nei, það er
mjög óeðlilegt. Ég held að það
sé vaxandi þrýstingur innan
verkalýðshreyfingarinnar að
fá stöðugan gjaldmiðil og
höfum við horft til evrunnar og
aðildar að ESB (ef okkur tekst
að semja um sjávarútvegs og
landbúnaðarmál). Ef ekki munu
mörg félög horfa til þess að fara
svipaða leið og CCP og semja um
evrulaun eða dollaralaun, en í
febrúar 2008 var samið um slíka
viðmiðun milli ASÍ og SA!
Jóhann Sigurbjörnsson
Kæmi til greina að gera
kröfu um að húsnæðismálin
verði leyst fyrir áramót (eigðu /
leigðu) og fleira en annars verði ekki
samið ?
Gylfi Arnbjörnsson Það á
eftir að koma í ljós en þing ASÍ
ályktaði mjög sterkt um bæði
almenna húsnæðislánakerfið og
félagslega leigukerfið í október
á síðasta ári. Nú er boltinn hjá
aðildarfélögunum eins og ég
sagði áðan.
Magnus Jonsson Er ekki
hagkvæmara að hafa einn
lífeyrissjóð fyrir alla með
sömu skilyrði og tryggingar ?
Gylfi Arnbjörnsson Nei ég held
að slíkur sjóður hefði allt of mikil
áhrif og völd! Ég hef talið að hér
ættu að vera kannski 35 sjóðir á
almenna vinnumarkaðinum auk
opinberu sjóðanna. Slíkt myndi
tryggja breiðari aðkomu og sýn á
fjármálamarkaðinn.
Pétur Jónsson Takk fyrir
svarið varðandi Kjaradóm.
En er kjaradómur ekki að
skila sínum ,,skjólstæðingum'' hærri
launahækkunum en verkalýðshreyf
ingin er að skaffa sínum hópi?
Gylfi Arnbjörnsson Ég er
ekki viss um það, vandinn við
Kjararáð (heitið Kjaradómur var
lagt af fyrir nokkrum árum) er að
ákvarðanirnar koma ávallt eftirá.
Árni Guðjón Hversu mikinn
tíma ætlar ASI að veita nýrri
ríkisstjórn til að standa við
gefin loforð gagnvart heimilunum í
landinu, 1 2 3 eða 4 ár ?
Gylfi Arnbjörnsson Ég held að
almenningur muni þegar í haust
sýna ákveðna óþolinmæði gagn
vart efndum kosningaloforða. Í
þríhliða samráðinu er umræða
um að nota næsta árið til að láta
reyna á samstarfið og stefnuna
þannig að haustið 2014 verði
betur ljóst hvernig gengur.
Jóhann Sigurbjörnsson Ef
samfélagið á lítið fjármagn
til skiptanna þegar kemur að
launafólki í landinu. Hvernig stendur
þá á því að ríki, fjármálafyrirtæki,
sjávarútvegsfyrirtæki og stærstu
verslunarkeðjurnar á Íslandi hafa
hækkað laun stjórnenda um tugi
prósenta, er ekki verið að „hlunn
fara“ launafólk og segja ekki allan
sannleikann ?
Gylfi Arnbjörnsson Já, ég held
að launafólk hljóti að taka
þetta sem fyrirmynd í haust við
mótun kröfugerðar. Stjórnir og
stjórnendur fyrirtækja geta varla
ætlast til þess að starfsmenn
þeirra líti þetta eitthvað öðrum
augum!
Jóhann Sigurbjörnsson
Finnst þér verkalýðsbarátt
an á Íslandi vera vanmáttug.
Þarf hún ekki að fara að brýna
sverðin í næstu kjaraviðræðum
miðað við launin sem hafa hækkað
um 20 prósent hjá ríkinu og þeirri
staðreynd að verðlag hefur hækkað
um 64 prósent frá hruni ?
Gylfi Arnbjörnsson Ég held
reyndar að íslensk verkalýðs
hreyfing hafi staðið sig mjög vel
undanfarin ár í sínu hlutverki. Ísland
er þannig eina landið í heiminum
sem tókst að verja kaupmátt
lægstu launa í þessari kreppu, þó
meðallaunin hafi vissulega lækkað
að verðgildi. Hins vegar kann það vel
að vera að á verkfallsvopnið reyni
og við því verðum við alltaf að vera
viðbúin!
Nafn: Gylfi Arnbjörnsson
Aldur: 55 ára
Starf: Forseti ASÍ
Samið til skamms tíma
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, á Beinni línu. Óttast loforð um skuldaniðurfellingu.