Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2013, Qupperneq 16
Dýrast á Þjóðhátíð í Eyjum
16 Neytendur 31. júlí 2013 Miðvikudagur
algengt verð 251,6 kr. 260,7 kr.
algengt verð 252,7 kr. 248,7 kr.
höfuðborgarsvæðið 252,6 kr. 248,6 kr.
algengt verð 252,90 kr. 248,9 kr.
algengt verð 254,8 kr. 248,9 kr.
Melabraut 25 252,7 kr. 248,7 kr.
Eldsneytisverð 30. júlí
Bensín Dísilolía
Flottur réttur
á góðu verði
n Lofið fær veitingastaðurinn
Borgin en viðskiptavinur var
ánægður með þá þjón
ustu og mat sem hann
fékk. „Á Borginni er
hægt að fá frábæran
hádegismat sem
kallast Fjarkinn.
Þetta er flottur
réttur á góðu
verði og við feng
um frábæra þjón
ustu,“ segir við
komandi.
Sniðgenginn
hjólreiða-
kappi
n Óánægður viðskiptavinur Strætó
bs. lýsti sig verulega hlunnfarinn í
samskiptum sínum við vagnstjóra
fyrirtækisins. Viðskiptavinurinn var
með hjól meðferðis á dögunum og
ætlaði að fara með það í vagninn
eins og jafnan er leyft, enda þurfti
hann að fara langa leið. Vagnstjór
inn meinaði honum hins vegar
inngöngu. „Það voru fjórir í vagn
inum og hellings gólfpláss, þetta
var algjörlega fáránlegt,“ segir við
skiptavinurinn. „Ég var búinn að
bíða í tuttugu mínútur eftir honum
og þá var mér sagt að bíða í hálf
tíma í viðbót eftir næsta.“
Viðskiptavinurinn segir það skjóta
skökku við að duttlungar bílstjór
anna ráði því hvort taka megi hjól
um borð. „Á ég bara að treysta
á það að bílstjórinn verði í góðu
skapi næst þegar ég ætla í strætó?,“
spyr viðskiptavinurinn.
DV fékk viðbrögð hjá Herði Gísla
syni, aðstoðarframkvæmdastjóra
Strætó bs. en hann sagði að í þessu
tilfelli hafi verið barnavagn í því
rými sem hjólið gat
verið. „Reglurnar
eru þær að við tök
um hjól í vagnana
á meðan það er
pláss. Vagnstjórinn
mat það þannig
að hann yrði að vísa
manninum á næsta bíl.
Annars hefði hjólið ver
ið í ganginum og honum
fannst það ekki boðlegt.“
Lof og last
Sendið lof eða last á neytendur@dv.is
D
ýrasta útihátíðin í ár er Þjóð
hátíð í Vestmannaeyjum
en ódýrast er að fara á Fjöl
skylduhátíðina að Úlfljóts
vatni. Þá eru nokkrar bæjar
hátíðir þar sem ekki er rukkað fyrir
mætingu heldur einungis einstaka
atburði, svo sem tónleika og böll.
Fjölmargar útihátíðir verða
haldnar um næstu helgi og eru þær
afar fjölbreyttar. DV hefur tekið
saman upplýsingar um þær helstu og
hvað það kostar að sækja þær.
Ein með öllu á Akureyri
Þessi fjölskylduhátíð hefur verið fjöl
menn síðustu ár en á milli 12 og 15
þúsund manns hafa lagt leið sína
til Akureyrar um verslunarmanna
helgina. Dagskráin byrjar á miðviku
dagskvöld og stendur fram á mánu
dag. 18 ára aldurstakmark eru á
tjaldstæðunum á Akureyri.
Verð: Ekki er greitt fyrir aðgang að
hátíðinni en greiða þarf inn á eins
taka viðburði.
Verð á tjaldstæði fyrir fullorðna:
700–1.000 krónur
Verð fyrir börn: Frítt fyrir 13 ára
og yngri
Dagskrá: Fjölmörg atriði eru á dag
skránni, meðal annars: útitónleikar,
Kirkjutröppuhlaupið, Óskalagatón
leikar í Akureyrarkirkju, góðgerðar
uppboð á Muffins í Lystigarðin
um (Mömmur og Muffins), hið eina
sanna 80´s Dynheimaball, Leik
hópurinn Lotta, Ævintýraland að
Hömrum, siglingar á pollinum, þar á
meðal sigling með Húna II, Tívolí, Go
Kart, Paint Ball, söngkeppni barn
anna og ýmislegt fleira.
Innipúkinn í Reykjavík
Innipúkinn er haldinn í 12. sinn
um helgina og tónleikar fara fram
á Faktorý, Fellagörðum og KEX
hostel, föstudags og laugardags
kvöld. 18 ára aldurstakmark.
Verð Passi: 4.900 krónur
Einnig veður hægt að kaupa miða
á stakt kvöld, bæði á midi.is og við
dyr á 3.000 krónur.
Dagskrá: Á föstudegi spila Gísli
Pálmi, Valdimar, Prins Póló, Steed
Lord, Skelkur í bringu og á laugar
degi spila Botnleðja, Geiri Sæm,
Ylja, Agent Fresco, Grísalappalísa
Mýrarboltinn á Ísafirði
Mýrarboltamótið er haldið ár hvert
á Ísafirði en þá er keppt í fótbolta í
drullusvaði. Vinahópar geta tekið sig
saman og myndað lið og einstakl
ingar taka þátt með skrapliðum
svokölluðum. 18 ára aldurstakmark
er í þátttöku og á böllin en börnum
er leyft að taka þátt í drulluteygjunni.
Verð: Þátttökuarmband: 9.500
krónur Innifalið í því er þátttaka í
mýrarboltamótinu, aðgangur að öll
um böllunum sem eru á Ísafirði um
verslunarmannahelgina, aðgangur
að lokahófinu á sunnudagskvöldinu.
Frítt í rútu til og frá Tungudal til
klukkan 18:00 en eftir það kostar 500
krónur.
Ballarmband: 7.500 krónur
Innifalið í því er aðgangur að öllum
dúndurböllunum sem eru á Ísafirði
um verslunarmannahelgina.
Aðgangur að lokahófinu á sunnu
dagskvöldinu.
Frítt í rútu til og frá Tungudal til
klukkan 18:00. Eftir það kostar 500
krónur
Stakt ball: 3.000 krónur
Dagskrá: Á föstudeginum er skrán
ingarkvöld, peppskemmtun og ball,
ókeypis fyrir þátttakendur. Laugar
dagurinn fer í keppnina sjálfa en úr
slitakeppnin fer fram á sunnudegin
um. Laugardags og sunnudagskvöld
eru böll en þeir sem spila eru Jónas
Sig og ritvélar framtíðarinnar, Retro
Stefson og Sniglabandið.
Neistaflug á Neskaupstað
Hátíðin Neistaflug verður haldin í
21. skiptið og er áherslan í ár að fjöl
skyldan skemmti sér saman. Dag
skráin hefst á fimmtudag með Aust
urlandsmóti í drullubolta og endar á
sunnudegi með flugeldasýningu og
balli með Sálinni. 18 ára aldurstak
mark er á böllin.
Verð: Enginn sérstakur aðgangs
eyrir nema á þá tónleika og böll sem
haldin verða. Verðið er frá 1.500–
2.500 krónur. Verð á tjaldstæði er
1.000 krónur.
Dagskrá: Það verður mikið um
að vera á Neskaupstað um verslun
armannahelgina en má þar nefna
strandblakmót, brunaslöngubolta,
söngvakeppni á milli hverfa, barða
nes hlaup og golfmót. Þá verða
Gunni og Felix, Bjarni töframaður og
Skoppa og Skrítla á staðnum. Eyþór
Ingi og hljómsveit halda tónleika fyr
ir 16 og eldri á föstudeginum en Sú
ellen, Einar Ágúst og Hálfdan spila
fyrir 18 ára og eldri sama kvöld. Aðrar
hljómsveitir sem spila eru til dæmis,
Buff, Dúndurfréttir og Sálin.
Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum
Það þarf vart að kynna Þjóðhátíð en
hún hefur verið haldin nánast sam
fellt síðan 1874. Íþróttir voru í fyrstu
mjög áberandi í dagskrá hátíðarinnar
og var bjargsig til dæmis sýnt á hverri
þjóðhátíð í rúm sjötíu ár. Hún hefur
þróast í eina metnaðarfyllstu tónlist
arhátíð landsins og þjóðhátíðarlag er
fastur liður en þá er samið nýtt lag og
tileinkað hverri hátíð. Þjóðhátíðin
hefst föstudaginn 2. ágúst og er ekk
ert aldurstakmark.
Verð: Verð á Þjóðhátíð: 18.900
krónur, Verð í forsölu: 16.900 krón
ur Stakur sunnudagsmiði í dalinn:
11.900 krónur Börn á 13. aldursári og
yngri fá ókeypis aðgang. Ellilífeyris
þegar fá ókeypis aðgang, miðast við
fæðingarár.
Dagskrá: Fjölbreytt atriði eru á
dagskrá fyrir alla fjölskylduna til
dæmis söngvakeppni barna, Brúðu
bíllinn, Sveppi og Villi. Fjölmargir
tónlistarmenn stíga á svið: Buff, Páll
Óskar, Eyþór Ingi, Bjartmar, Ingó og
veðurguðirnir, Retro Stefson, Stebbi
og Eyfi, Ásgeir Trausti, Jónas Sig og
ritvélar framtíðarinnar, Rottweiler
hundarnir og Á móti sól. Brenn
an verður á sínum stað á föstudags
kvöldið og flugeldasýningin á laugar
dagskvöldið.
n Ódýrast á Fjölskylduhelgi á Úlfljótsvatni n Útihátíðir um allt land um verslunarmannahelgina n Ókeypis á bæjarhátíðir n Vímulausar hátíðir víða
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is