Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2013, Page 17
Dýrast á Þjóðhátíð í Eyjum
Neytendur 1716 Neytendur Miðvikudagur 31. júlí 2013
n Ódýrast á Fjölskylduhelgi á Úlfljótsvatni n Útihátíðir um allt land um verslunarmannahelgina n Ókeypis á bæjarhátíðir n Vímulausar hátíðir víða
Edrúhátíð Laugalandi
Edrúhátíð SÁÁ fer nú fram í ann-
að skiptið á Laugalandi í Holtum í
Rangárvallasýslu. Dagskráin verður
andleg, líkamleg og skemmtileg þar
sem nóg verður að gerast fyrir alla. 12
spora fundir, hugleiðsla, úti- og inn-
itónleikar, brenna, jóga, dans, göng-
ur, barnaball, barnalistasmiðja svo
eitthvað sé nefnt. Ekkert aldurstak-
mark er á hátíðina og öll vímuefna-
notkun er bönnuð á svæðinu.
Verð Helgarpassi: 6.000 krónur
Dagpassi: 2.500 krónur Ókeypis fyrir
14 ára og yngri.
Dagskrá Sérstaklega er hugað að
þörfum barnanna á Edrúhátíðinni
en þau geta dansað, sungið, knúsað
og skapað listaverk. Þá verður bingó,
barnaball, lautarferð og fótboltamót,
svo eitthvað sé nefnt.
Fyrir fullorðna verður ýmislegt á
boðstólum, til dæmis Magnús og Jó-
hann, Eyjólfur Kristjánsson, Daníel
Ágúst, Dimma, Hljómsveitin EVA,
Sniglabandið, Ellen Kristjáns og
Berglind Björk. Þá verður æðruleys-
ismessa á sunnudeginum.n
Fjölskylduhelgi á Úlfljótsvatni
Fjölskylduskemmtun og ölvun ekki
leyfð á svæðinu.
Dagskrárpassi: 2.000 krónur
Sæludagar í Vatnaskógi
Fjölskylduhátíð, vímulaus valkostur.
Verð: 4.500 krónur
Ókeypis fyrir börn 12 og yngri
Dagsheimsókn: 2.500 krónur
Unglingalandsmót UMFÍ
Höfn í Hornafirði. Haldið í 16. sinn
og keppt í fjölmörgum greinum.
Keppnisgjald: 6.000 krónur á kepp-
anda.
Síldarævintýrið á Siglufirði
Fjölskylduhátíð þar sem hægt er
að finna ýmiss konar viðeigandi
skemmtun fyrir unga jafnt sem
aldna. Ókeypis og ekkert aldurstak-
mark.
Svona sparar
þú í útilegunni
Fyllið bílinn Ekki ferðast einn í bíl.
Deilið ykkur á bíla og borgið saman bensín.
Það kostar ekkert að fá afsláttarlykla
hjá bensínstöðvunum. Nýttu þér allan
mögulegan afslátt sem býðst.
Pakkaðu rétt í bílinn Það er
mikilvægt að pakka öllu rétt til að minnka
farangursplássið. Með þessu er meira
pláss fyrir farþega og því fleiri sem bensín-
kostnaðurinn deilist á.
Smyrðu nesti Verslaðu í lágvöru-
verðsverslun og útbúðu nesti fyrir ferðina.
Ef þú ert að fara með vinum eða fjölskyldu
er gott ráð að versla saman í matinn.
Það er ekkert vit í því að allir komi með
tómatsósu, ost, brauð og smjör. Það er
mikið hagkvæmara að versla fyrir hópinn
saman og deila kostnaðinum.
Vertu með máltíðirnar á
hreinu Skipuleggðu hvað verður í
matinn, hvern dag og verslaðu með það
í huga. Reyndu að komast hjá því að
kaupa skyndibita á bensínstöðvum eða
sölutjöldum.
Slepptu útihátíðinni Fáðu vina-
hópinn saman í útilegu á ódýru tjaldstæði.
Útbúið ykkar eigin útihátíð með skemmti-
atriðum, söng og gleði. Farið í ratleiki, búið
til spurningakeppni eða haldið kubb-mót.
Það þarf örlítið hugmyndaflug og þið eruð
komin með þessa fínu ör-útihátíð. Ávallt
skal þó ganga vel um og taka allt rusl
eftir sig.
Diskar, hnífapör og glös Ekki
kaupa einnota. Taktu heiman frá þér
diska, glös og hnífapör og vaskaðu þau
upp. Það sparar pening auk þess sem það
er umhverfisvænna.
Aðrar hátíðir um
verslunarmannahelgina
Stemning Fjölmargir Íslendingar
fara á útihátíðir um verslunarmanna-
helgina enda myndast oft þar góð
stemning.
Mynd: Srphoto@frodi.iS Srphoto@frodi.iS
Góð ráð fyrir
útileguna
Haltu á þér hita með litlu
tjaldi sem er rétt tjaldað
Í bókinni Góða ferð – handbók
um útivist er að finna fjölmörg
góð ráð um útivist og eftirfar-
andi ráð er gott að hafa í huga
þegar haldið er á útihátíðina:
Tjaldið
Lítil tjöld
eru hlýrri
en stór,
svo lengi
sem loft-
ið í svefn-
tjaldinu fær
að hitna af út-
geislun tjaldgesta og ef loft-
skiptum er haldið í algjöru
lágmarki getur orðið ágætlega
hlýtt í litlu tjaldi. Ef tjald er hins
vegar of stórt, því illa tjaldað
eða rennilásum ekki haldið lok-
uðum náum við ekki að hita
upp svefntjaldið.
Svefnpokinn
Mikilvægt er að reima hettuna
að andlitinu og nota hálskrag-
ann sem er saumaður inn í alla
góða poka. Klæðnaður skiptir
einnig miklu máli en mörg lög
af fatnaði koma í veg fyrir að
svefnpokinn virki eins og hann
á að gera. Ef pokinn er þokka-
legur er best að vera í síðum
ullarnærfötum. Einnig er gott
að hafa alltaf hreina og þurra
ullarsokka til að fara í áður en
skriðið er í pokann.
Dýnan
Dýna sem
einangrar
þig vel frá
jörðinni
getur
gjörbreytt
tjaldúti-
legunni þinni.
Vindsængur gera lítið gagn en
til þess gerðar einangrunar-
dýnur koma í veg fyrir að jörðin
dragi til sín hita frá þér yfir
nóttina. Þær eru annað hvort úr
frauðplasti eða uppblásanlegar.
Líkaminn
Það er erfitt að hita upp kald-
an líkama í svefnpoka. Það er
hins vegar lítið mál að halda
heitum líkama heitum. Borð-
aðu eða drekktu eitthvað heitt
fyrir svefninn, farðu í rösk-
lega göngu eða hlauptu hring í
kringum tjaldið en gættu þess
að svitna ekki. Farðu líka á kló-
settið áður. Full blaðra eykur
líkur á kulda.
Útilegan
Ráð til að halda á sér hita og fá góðan
svefn. Mynd: Siggi StorMur