Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2013, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2013, Síða 18
U ndanúrslitin í Borgunarbik- ar karla hefjast á fimmtu- dagskvöld þegar Stjarnan og KR mætast. Í hinum leikn- um mætast Fram og Breiða- blik en sá leikur fer fram á sunnudag – aldrei þessu vant um verslunar- mannahelgina. Stjarnan og KR hafa bæði leikið vel í sumar og eru í bull- andi baráttu um Íslandsmeistaratit- ilinn. KR er í öðru sæti deildarinnar með 28 stig en Stjarnan í því þriðja með 27 stig. Þetta eru liðin sem mættust einmitt í úrslitum bikarsins í fyrra en þá fóru KR-ingar með sig- ur af hólmi, 2–1, í hörkuleik. DV sló á þráðinn til Kristjáns Guðmundsson- ar, þjálfara Keflavíkur, og fékk hann til að spá í spilin fyrir leikinn. Stemningin með Stjörnunni „Þetta verður hörku leikur,“ segir Kristján um viðureign Stjörnunn- ar og KR. „Liðin mættust í síðustu viku þar sem Stjarnan vann sannfær- andi og ég hef trú á að Stjarnan taki það með sér sem þeir gerðu í þeim leik inn í bikarleikinn,“ segir Krist- ján en Stjarnan fór með öruggan sig- ur af hólmi, 3–1, í þeim leik. Krist- ján segir að það sé afar jákvætt fyrir Stjörnuna að fá heimaleik enda hafi Stjörnumenn nánast verið ósigrandi á Samsung-vellinum. „Ég held að Stjarnan hafi yfirhöndina eftir sig- urinn í síðasta leik og stemningin er meiri í kringum þá en KR-ingana síð- ustu vikurnar. Þess vegna held ég að Stjarnan vinni þennan leik.“ Leikjaálagið á KR-liðið hefur ver- ið mikið síðustu vikurnar vegna þátttöku liðsins í forkeppni Evrópu- deildarinnar og segir Kristján að það hafi sagt til sín í síðustu leikjum. „Það er ein af ástæðunum fyrir því að þeir hafa verið að gefa eftir.“ Aðspurður hvort Stjarnan muni, ef þeir ná að vinna KR í bikarnum, vinna deildina segir Kristján: „Ég hef alveg trú á að Stjarnan fari mjög langt með að vinna deildina. Eftir sigurinn á KR í deildinni sendu þeir ákveðin skilaboð til annarra liða.“ Mikið álag á Blikum Í seinni leiknum mætast sem fyrr segir Fram og Breiðablik. Blikar hafa verið á mikilli siglingu í deildinni og eru með 26 stig í fjórða sætinu, að- eins þremur stigum frá toppsætinu. Fram siglir nokkuð lygnan sjó um miðja deild þar sem liðið er með 15 stig í 7. sætinu. „Stemningin er með Blikum og þeir hafa staðist öll próf í síðustu leikjum. Þeim hefur tek- ist að dreifa álaginu vel og eru með stóran og sterkan leikmannahóp,“ segir Kristján og bætir við að það verði forvitnilegt að sjá hvort leik- ur í Kasakstan á fimmtudag muni hafa áhrif á Blikaliðið þegar í leik- inn á sunnudag kemur. Blikar mæta Aktobe í Kasakstan í þriðju umferð forkeppni Evrópudeildarinnar á fimmtudag. „En ef ég horfi á leikina hjá þessum liðum að undanförnu þá eru Blikarnir sigurstranglegri. Ég hef samt trú á því að Fram-liðið muni gíra sig svakalega upp fyrir þennan leik. Ef þeim tekst að búa til mikla stemningu þá eiga þeir möguleika á móti Blikunum. Þetta verður gríðar- lega jafn leikur og Framarar eiga séns þó þeir hafi hikstað í síðustu leikj- um.“ Góður úrslitaleikur Aðspurður hvort hann eigi sér ein- hvern draumaleik í úrslitum segir Kristján: „Það getur verið Stjarnan– Breiðablik, Garðabær gegn Kópa- vogi. Þau lið eru farin að líta á hvort annað sem andstæðinga. Svo getur það verið Fram og KR – þessi hefð- bundni Reykjavíkurslagur. Mér sýnist á öllu að úrslitaleikurinn verði mjög góður sama hvaða lið fara áfram. n 18 Sport 31. júlí 2013 Miðvikudagur Möguleikar Arons n Sóknarlína Bandaríkjanna er komin nokkuð til ára sinna S ú ákvörðun Arons Jóhanns- sonar, framherja AZ Alkma- ar i Hollandi, að velja banda- ríska landsliðið fram yfir það íslenska hefur vakið mikla umræðu. Hafa menn spurt sig hvort Aron eigi meiri möguleika á að komast í bandaríska landsliðið en það ís- lenska. Séu þeir framherjar skoðað- ir, sem fyrir eru í báðum liðum, er ljóst að Aron, 22 ára, hefði alltaf þurft að hafa talsvert fyrir því að komast í bæði lið. Kolbeinn Sigþórsson og Alfreð Finnbogason hafa verið aðalfram- herjar Íslands undanfarin misseri. Báðir eru þeir fastamenn í sterkum liðum í Hollandi; Kolbeinn hjá Ajax og Alfreð hjá Heerenveen. Á síðustu leiktíð var Alfreð næstmarkahæsti leikmaður deildarinnar og Kolbeini tókst að skora 10 mörk í 19 leikjum þrátt fyrir að hafa glímt við meiðsli stóran hluta tímabilsins. Árangur þeirra með landsliðinu er einnig til fyrirmyndar. Kolbeinn hefur skorað 8 mörk í 14 leikjum en Alfreð 4 mörk í 15 leikjum. Hafa verður í huga að í flestum þessara leikja hefur Alfreð komið inn á sem varamaður. Framlína bandaríska liðsins er komin nokkuð til ára sinna. Í raun er Jozy Altidore, 23 ára, sá eini sem ætti að eiga nokkuð fast sæti í liði Banda- ríkjanna næstu árin, en hann var einmitt samherji Arons hjá AZ Alk- maar í fyrra. Meðal annarra fram- herja hjá bandaríska liðinu má nefna Landon Donovan, 31 árs, Clint Dempsey, 30 ára og Eddie Johnson, 29 ára. Allir eiga þeir fjölmarga leiki að baki fyrir Bandaríkin. Þá hefur Chris Wondolowski spilað 15 leiki fyrir Bandaríkin og skorað 6 mörk, en hann er orðinn þrítugur. Will Bru- in, framherji Houston Dynamo, á tvo leiki að baki með landsliðinu en hann er 23 ára. Þá lék Alan Gordon, 31 árs framherji San Jose Earthquakes, sinn fyrsta landsleik á dögunum. Í fljótu bragði eru ekki margir ungir og efnilegir bandarískir fram- herjar sem farnir eru að banka á dyr landsliðsins. Jose Villareal, 19 ára leikmaður LA Galaxy, þykir þó mikið efni en hann hefur raðað inn mörk- um með U20 ára landsliði Bandaríkj- anna. Haldi Aron áfram að skora fyr- ir AZ Alkmaar, líkt og hann hefur gert á undirbúningstímabilinu, er nokk- uð ljóst að hans bíða tækifæri und- ir stjórn Jurgen Klinsmann á næstu misserum. n einar@dv.is Einar Þór Sigurðsson blaðamaður skrifar einar@dv.is Breiðablik og Stjarnan líkleg n Undanúrslit í Borgunarbikarnum n Stemningin með Blikum og Stjörnunni „Þetta verður gríðarlega jafn leikur Hörkuleikur Leikir Stjörnunnar og KR hafa verið góð skemmtun. Það er engin ástæða til að ætla að annað verði uppi á teningunum á fimmtudag. Mynd: 2013 © PreSSPHotoS.Biz (HBK) Flottur úrslitaleikur Kristján segir að það sé alveg sama hvernig undanúrslitin fara. Úrslitaleikurinn verði alltaf flottur. Mynd: dV eHF / SiGtryGGur Ari Valdi Bandaríkin Aron hefur svo sannar- lega mikla hæfileika. Því miður munu Íslendingar ekki njóta þeirra. United snýr sér að Modric Lítið hefur gengið hjá Manchester United að fá til sín öfluga miðju- menn í sumar. Liðið virðist hafa gefist upp á að landa Cesc Fabre- gas frá Barcelona og virðist nú ætla að beina spjótum sínum að Luka Modric hjá Real Madrid. The Times greinir frá því að United sé að undirbúa 25 milljóna punda til- boð í Modric. Króatinn öflugi sem lék svo vel með Tottenham hefur átt erfitt með að festa sig í sessi hjá Real Madrid og oftar en ekki vermt tréverkið í mikilvægum leikjum. Hann gaf það til kynna í vetur að hann gæti vel hugsað sér að leika aftur á Englandi. Það sem gæti þó sett strik í reikninginn fyrir United er sú staðreynd að Carlo Ancelotti er tekinn við Real Madrid og er Modric sagður tilbúinn að berj- ast fyrir sæti sínu undir stjórn nýs þjálfara. Keppa í 600 metra hlaupi Flest bendir til þess að tvær skær- ustu hlaupastjörnur heims, sprett- hlauparinn Usain Bolt og lang- hlauparinn Mo Farah, muni keppa sín á milli í 600 metra hlaupi. Það var Farah, gullverðlaunahafi í 5.000 og 10.000 metra hlaupi frá Ólympíuleikunum í London í fyrra, sem skoraði á Bolt. Hlaup- ið verður í þágu góðgerðarmála og, ef allt gengur eftir, má búast við hörkukeppni þar sem báð- ir hlauparar eru vanir öðrum vegalengdum. Samkvæmt frétt Reuters á aðeins eftir að ganga frá nokkrum smáatriðum varðandi hlaupið. Þrátt fyrir það er nú þegar hægt að veðja á hlaupið og sam- kvæmt veðbönkum þykir Farah sigurstranglegri. Anton nærri Íslandsmeti Anton Sveinn McKee var grát- lega nálægt Íslandsmeti sínu í 800 metra skriðsundi á HM í Barcelona á þriðjudag. Anton synti á tíman- um 8:08,70 en Íslandsmet hans er 8:08,09. „Ég byrjaði vel og leið vel í lauginni en svo þyngdist þetta. En ég læt þetta ekkert pirra mig,“ sagði Anton í viðtali á vef Sund- sambands Íslands eftir sundið á þriðjudag. Anton á eftir að synda tvær greinar á mótinu, 200 metra bringusund á fimmtudag og svo 400 metra fjórsund á sunnu- dag. Eygló Ósk Gústafsdóttir var nokkuð frá sínu besta í 200 metra skriðsundi en hún keppti einnig á þriðjudag. Hún varð í 34. sæti af 45 keppendum og kom í mark á tím- anum 2:04,66. Íslandsmet hennar í greininni er 2:02,44 frá því á Smá- þjóðaleikunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.