Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2013, Blaðsíða 26
26 Fólk 31. júlí 2013 Miðvikudagur
Wood og Bell orðin foreldrar
n Eignuðust dreng á mánudaginn n Kynntust árið 2005
S
tjörnuhjónin Evan Rachel
Wood og Jamie Bell eignuð-
ust dreng síðasta mánudag.
Þetta er fyrsta barn þeirra
beggja og heilsast bæði móður og
barni vel. Í janúar síðast liðnum
tilkynntu hjónin að þau ættu von á
barni og hafa verið iðin við að deila
upplifun sinni af meðgöngunni
með aðdáendum á samskiptasíð-
unni Twitter.
Bell og Wood kynntust árið
2005 við tökur á myndbandi við
lagið Wake Me Up When Septem-
ber Ends með bandarísku hljóm-
sveitinni Green Day. Upp frá því
hófu þau ástarsamband og ekki
leið á löngu þar til þau höfðu
látið húðflúra upphafsstaf hvors
annars á líkama sína. Sambandið
entist þó ekki lengur en í ár því
þau slitu samvistum í lok árs 2006.
Fimm árum síðar, sumarið 2011,
tóku þau upp þráðinn og giftu sig
í október 2012. Í millitíðinni átti
Wood í eftir minnilegu ástarsam-
bandi við dauðarokkarann Mari-
lyn Manson og var meðal annars
trúlofuð honum um nokkurra
mánaða skeið.
Hinn breski Bell er hvað þekkt-
astur fyrir hlutverk sitt sem Billy
Elliot í samnefndri kvikmynd en
hann hefur einnig leikið í stór-
myndum á borð við King Kong,
Jumper og The Adventures of
Tintin. Wood er hins vegar þekkt
fyrir myndirnar The Wrestler,
Thirteen og vampíruþættina True
Blood auk þess sem hún hlaut
Golden Globe-verðlaun fyrir
þættina Mildred Pierce. n
Hamingjusöm Parið gifti
sig í október á síðasta ári og
hefur nú eignast sitt fyrsta
barn. Mynd: 2005 GEtty IMaGEs
Kannabis í
tónleikarútu
Kanadíska ungstirnið Justin Bieber
veldur sífellt meiri usla með degi
hverjum. Á sunnudag fannst nokk-
uð magn kannabisefna sem og
áhöld til vímuefnanotkunar í tón-
leikarútu söngvarans er hún var
stoppuð á landamærum Banda-
ríkjanna og Kanada. Lögreglan
sektaði rútubílstjórann en aðrir
farþegar sluppu með skrekkinn.
Svaf aldrei hjá henni
n Robin Gibb úr Bee Gees, lét eft-
ir sig auðæfi þegar hann lést úr
krabbameini, á síðasta ári, 62 ára
gamall. Hann giftist tvisvar sinn-
um á lífsleiðinni og eignaðist fjög-
ur börn með þremur konum. Ein
þeirra vann hjá Robin og eigin-
konu hans sem húshjálp og var
hún hjákona hans um tíma. Ekki
eru allir fjölskyldumeðlimir sáttir
við erfðaskrána. Eitt barna Robins
segir að faðir sinn hafi aldrei
sængað hjá henni. „Pabbi hefði
valið sér einhverja laglegri til þess
að sofa hjá,“ sagði sonur hans, RJ,
samkvæmt The Daily Mail.
Óþekkjanleg
n Lady Gaga
mætti pen á
góðgerðar-
samkomuna
Watermill Cent-
er Summer sem
haldin var nú um
helgina. Hún var lítið förðuð og
klædd í látlausan svartan kjól
sem verður að teljast óvanalegt af
henni og skartaði hún aflituðum
augabrúnum.
Opnaði sig á Tvitter
n Lea Michele þakkaði aðdáend-
um sínum í gegn-
um Twitter fyrir
dyggan stuðning
á þessum erfiðu
tímum. Rúmar
tvær vikur eru
liðnar síðan kær-
asti hennar, Glee
stjarnan Cory Monteith,
fannst látinn á hótelherbergi sínu.
Þénar um
fjóra
milljarða
á ári
n Leikkonan
angelina Jolie þénaði um einum
og hálfum milljarði meira á síð-
asta ári en árið 2011. Þessi upp-
hæð gerir hana að hæst launuðu
leikkonu í Hollywood.
stjörnu
fréttir
Íris Björk
Jónsdóttir
Kærði nauðgunar-
hótanir á twitter
Hörn Heiðarsdóttir
blaðamaður skrifar horn@dv.is
n Skorað á Twitter að bæta tilkynningahnappi í forritið
B
laðakonan, femínistinn
og baráttukonan Caroline
Criado-Perez hefur hlotið
fjöldann allan af morð- og
nauðgunarhótunum eft-
ir að hún hóf að berjast fyrir því að
andlit breska rithöfundarins Jane
Austen yrði sett á breskan peninga-
seðil. Nýlega ákvað Seðlabanki Eng-
lands að skipta Elizabeth Fry út fyr-
ir Winston Churchill á nýjum fimm
punda seðli en þar með yrði engin
kona á breskum peningaseðli, að
Elísabetu Bretadrottningu undan-
skilinni. Þessu mótmælti Criado-
Perez og kom meðal annars á fót
undirskriftasöfnun þar sem yfir 35
þúsund manns skrifuðu undir og
kröfðust þess að Austen yrði sett á
einhvern af þeim peningaseðlum
sem væntanlegir eru. Baráttan skil-
aði sér því að í síðustu viku var til-
kynnt að Austen muni koma til með
að prýða tíu punda seðil sem settur
verður í umferð árið 2017.
Búnar að kæra
Criado-Perez tilkynnti hótanirn-
ar til lögreglu og í síðustu viku var
maður á þrítugsaldri handtek-
inn í Manchester fyrir svívirðingar
í hennar garð. Málið hefur vakið
mikla athygli í Bretlandi en Stella
Creasy, þingkona breska Verka-
mannaflokksins, hefur stutt Criado-
Perez opinberlega og í kjölfarið
hlotið fjölmargar ógeðfelldar hót-
anir í sama dúr. Hún tók saman brot
af þeim hótunum sem henni hafa
borist á Twitter og skrifaði um árás-
irnar á bloggsíðu sinni.
„Ef þið sendið mér nauðgunar-
hótanir, hálfvitarnir ykkar, mun ég
tilkynna ykkur til lögreglunnar og
ganga úr skugga um að það verði
eitthvað gert í málunum,“ skrifaði
Creasy meðal annars á vefsíðu sína.
Hún hefur þegar tilkynnt hótanirn-
ar til lögreglu.
„Það er óþolandi að það sem
þú færð fyrir að verja konur séu 24
klukkustundir af nauðgunarhótun-
um á dag. Við erum að sýna að með
því að standa saman getum við haft
mikil áhrif,“ segir enn fremur.
Þúsundir skrifað undir
Samskiptasíðan Twitter stefnir nú á
að bjóða upp á þann valmöguleika
að notendur geti tilkynnt einstök
„tíst“ og þannig látið fjarlægja þau
af síðunni. Sá möguleiki er þegar
til staðar fyrir iPhone en talsmað-
ur fyrirtækisins tilkynnti í vikunni
að nú stæði til að bjóða upp á slíkt
fyrir síma með Android-stýrikerfi
sem og internetið. Mikið hefur ver-
ið þrýst á Twitter að bjóða upp á
þennan valmöguleika undanfarn-
ar vikur og hefur nú verið efnt til
undirskriftasöfnunar á netinu þar
sem fyrirtækið er hvatt til að taka
afstöðu gegn ofbeldishótunum og
öðrum svívirðingum á samskiptavef
sínum. Nú þegar hafa hátt í 87 þús-
und manns skrifað undir. n
Creasy og
Criado-Perez
Þingkonan og
blaðamaðurinn en
þeim hefur ítrekað
verið hótað dauða
og nauðgunum á
Twitter.
Baráttukona Barátta Criado-
Perez skilaði tilskildum árangri.
Jane austen Yfir 35
þúsund manns skrif-
uðu undir áskorun til
Seðlabanka Englands
að láta Austen prýða
peningaseðil.