Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1917, Page 11
Verstunarskýrslur 1914
9
Verðupphæð þeirra vörutegunda, sem taldar eru í yfirliti þessu,
nemur alls (að meðtaldri viðbótinni við það, sem skýrslnr hafa
fengist um); aðflult 9 815 579 kr., útflutt 14 726 625 kr., samtals
24 542 204, en það sem vantar á þessa upphæð i skýrslunum og
orðið hefur að bæta við á eftir til þess að koma þeim heim við
tollreikningana, nemur alls:
aöflutt.................... 1 327 201 kr. eða 13.6°/o
útflutt.................... 5 628 122 — — 38.2-
Samtals.. 6 955 323 kr. eöa 28.3°/o
Af þeim vörum, sem hjer er um að ræða, hefur þá vantað
skýrslur um nœrri 7 milj. krónu virði eða rúmlega % hluta. Næsta ár
á undan (1913) voru heimturnar á skýrslum um þessar vörur heldur
skárri, því að ekki vantaði þá nema um 24%. Á aðfluttu vörunum
voru þó heimturnar heldur lakari (16%), en aftur á móti mun betri
á útfluttu vörunni.
Aðrar vörur en þær, sem hjer hafa verið taldar, voru annað-
hvort tollfrjálsar, svo sem útfluttar landbúnaðarafurðic, eða þeim er
slegið saman í stóra flokka í tollreikningunum, sem ekki er unt að
bera saman við það, sem upp er gefið i skýrslunum, svo sem 2., 3.
og 6. flokkur vörutollsins. En það er næsta sennilegt, að vanhöldin
sjeu ekki miklu minni þar heldur en á þeim vörum, sem bornar
hafa orðið saman við tollreikningana. Ef svo er má búast við, að
eftir leiðrjeltinguna, sem gerð hefur verið á skýrslunum og skýrt
hefur verið frá hjer að framan, vanti enn þá um 3 miljóna króna
virði. Það virðist að minsta kosti ótvírætt, að mikið muni vanta,
en með því að sæmilegan grundvöll vantar til þess að ákveða þá
upphæð nánar, er ekki gerð nein tilraun lil þess hjer að leiðrjetta
skýrslurnar að því er þessar vöri}tegundir snertir.
. Samanburður sá, sem lijer hefur verið gerður, sýnir að versl-
unarskýrslunum er harla mikið ábótavant. I Verslunarskýrslum 1913
bls. 9* var vikið að þessu og þess getið, að einkum mundi inn-
heimtu skýrslnanna vera allmikið áfátt sumstaðar, og samanburður-
inn hjer að framan virðist ekki benda á neina verulega framför í
því efni. Enda þótt eitthvað af því, sem í verslunarskýrslurnar
vantar, kunni að stafa af því, að sumir skýrslugefendur tilfæri af
vangá eða viljandi of lítið inn- eða úlflutt og þótt hagstofan sje
þess fullviss, að sumir innheimtumennirnir geri sjer alt far um að
vanda innheimtuna sem mest, getur hún samt ekki verið í vafa um,
að allmikið vanti á, að allir innheimtumenn hafi sýnt þann áhuga,
heldur hljóti sumir þeirra að hafa gengið slælega fram í innheimt-
b