Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1917, Blaðsíða 13
▼erslunarskýrslur 1914
11*
Síðustu árin hefur verð aðfluttrar og útflúttrar vöru nurnið
því sem hjer segir:
Aðflutt Útflutt Útfl. umfram aðfl. Útfl. og aöfl. samtals
Importation Kxportation Exp.-.-lmp. Imp.+Exp.
1000 kr. 1000 kr. 1000 kr. 1000 kr.
1909.... 9 876 13129 3 253 23 005
1910.... 11323 14 406 3 083 25 729
1911.... 14123 15 691 1 568 29 814
1912.... 15 347 16558 1211 31 905
1913.... 16 718 19128 2 410 35 846
1914.... 18 111 20 830 2 721 38 941
Aðflutt og útflutt peningamynt er talin með siðasta árið, en
ekki árin á undan. Yfirlit yfir verslunarviðskiftin við útlönd 1895—
1908 er i Verslunarskýrslum 1913 bls. 10*—11*.
Verslunarviðskiftin við útlönd metin til peninga hafa verið
meiri árið 1914 heldur en nokkurt undanfarið ár. Námu þau alls
(aðflutt ~og útflutt) 38.9 milj. kr. Er það rúml. 3 milj. kr. meira
heldur en næsta ár á undan, 1913. Af aukningu viðskiftaveltunnar
frá 1913 til 1914 fellur 1.4 milj. kr. á aðfluttu vöruna, en 1.7 milj.
kr. á útfluttu vöruna.
Aukningin á verðmagni aðfluttu vörunnar stafar að nokkru
leyti af því, að með er talin aðflutt peningamynt (gull og silfur),
sem ekki hefur verið talin með undanfarin ár, en af henni var inn-
flutt árið 1914 260 þús. kr. Verðhækkun á kornvörum veldur líka
framundir Vs milj. kr. aukningu á verðmagni aðfluttu vörunnar, en
að öðru leyti mun hún mestmegnis stafa af auknum aðflutningum
bæði af matvörum, svo sem kornvörum, kartöflum og smjörlíki, og
ennfremur af kolum og salti. Að því er útfluttu vöruna snertir stafar
hækkunin á verðmagni hennar 1914 mestmegnis frá síldinni, því að
verðmagn hennar er 1.4 milj. kr. meira 1914 heldur en 1913. Stafar
hjerumbil helmingur þeirrar upphæðar af auknum útflutningi, en
helmingurinn af hærra verði.
Á yfirlitinu hjer á undan um aðfluttar og útfluttar vörur sjest,
að útfluttu vörurnar hafa undanfarin ár æfinlega verið meira virði
heldur en aðfluttu vörurnar. Af þessu má samt ekki draga þá álykt-
un, að landsmenn hafi á hverju ári auk aðfluttu vörunnar haft af-
gang af viðskiftunum við útlönd, sem þeir hafi getað lagt upp.
Þegar aðfluttu og útfluttu vörunni er jafnað saman, verður að
hafa það hugfast, að öllu meiri likur eru til, að aðflutta varan sje
oflágt talin i verslunarskýrslunum heldur en útflutta varan, vegna
þess að mestur hluti útfluttu vörunnar er sjávarafurðir, sem svarað
er af útflutningstolli, og má því leiðrjetta skýrslurnar um þær eftir