Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1940, Blaðsíða 24
22*
Verslunarskýrslur 1938
Sauðargærur voru stundum áður aðeins gefnar upp í þyngd, en ekki
tölu. Hefur þá þyngdinni verið breytt í tölu þannig, að gert hefur verið
ráð fyrir, að hver gæra söltuð vegi að meðaltali 2 kg.
Áður var mikill útflutningur af lifandi hrossum, en sá útflutningur
hefur mikið minkað. 1906—10 voru flutt út 3 876 hross árlega að meðal-
tali, en 1931—35 ekki nema 896. Árið 1934 voru flutt út 936 hross, 978
árið 1935, 565 árið 1936, 537 árið 1937 og 371 árið 1938.
Undir flokkinn „Ýmislegt“ falla þær vörur, sem ekki eiga
heima annarsstaðar, svo sem útlendar vörur, skip, bækur, frímerki o. fl.
í 6. yfirliti (bls. 21*) eru útflutningsvörurnar flokkaðar eftir notkun og
vinstustigi. Er það gert eftir fyrirmynd Þjóðabandalagsins alveg á sama hátt
eins og 3. vfirlit um innfluttu vörurnar. í útflutningnum eru neysluvör-
urnar yfirgnæfandi, 37 milj. kr. árið 1938, enda fer bæði fiskurinn og
kjötið í 8. flokk. Framleiðsluvörur voru 22 milj. kr. árið 1938. Þar af er
lýsið í 5. flokki, ull og skinn í 3. flokki, fiskmjöl i 2. flokki, en hross
í 7. flokki (a) og skip i sama flokki (c). Um % af öllum útflutningnum
1938 teljast hrávörur, en aðeins % lítt unnar vörur, en fullunnar vörur
aðeins rúml. 1%.
Þess var getið hér að framan (bls. 47*), að frá 1937 til 1938 hefði
vöruverðið lækkað á útflutningsvörunum að meðaltali um 6.8%. Þessi
lækkun hefur þó ekki komið jafnt á allar útflutningsvörnrnar. Þegar vör-
unum er skift eftir þvi, frá atvinnuvegum þær stafa, eins og gert er í
4. yfirliti, þá hefnr hækkun og lækkun vöruverðsins við sölu út úr land-
inu 1937—38 verið í hverjum flokki eins og hér segir:
Veröhækkun + eða
verðlækkun (—) 1937—38
Afurðir af fiskveiðum ........................... — 4 °/°
— - veiðiskap og hlunnindum ............. -)- 19 —
— - hvalveiðum .......................... -j- 10 —
— landbúnaði ............................ — 15 —
Aðrar vörur .................................. + 1 —
Allar útfiutningsvörur — 7 °/o
Það eru þannig landbúnaðarvörurnar, sem tiltölulega mest hafa fallið
í verði. Mest hefur verðfallið verið á ullinni, um 40% frá árinu á undan.
Á söltuðum sauðargærum hefur það verið 14%, á frysta kjötinu 8%, en
saltkjötið hefur selst fyrir heldur hærra verð en árið áður.
Af fiskafurðunum hefur verðfallið verið mest á sildarlýsinu, um
38% frá árinu á undan, á hrognum hefur það verið 12% og þorskalýsinu
10%, en hinsvegar hefur verðið á fiski og síld og síldar- og fiskmjöli verið
heldur hærra heldur en árið á undan.