Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1943, Síða 17
Vcrslunarskýrslur 1041
15
Innflutningur á f r a ni 1 e i 6 s 1 u t æ k j u m, sem talin eru í 7. fI. í
2. yfirliti, hefur að verðmagni töluvert meir en tvöfaldast frá næsta ári á
undan, var 14.i milj. kr. árið 1941, en 6.4 milj. kr. árið á undan. Mestur
hlutinn al' þessum vörum eru vélar, skip og önnur flutningstæki, fyrir 12.o
milj. kr. árið 1941, en fvrir ri'unar 2 milj. kr. voru ýmsar járn- og málm-
vörur (verkfæri o. fl.).
Innflutningur á neysluvörum öðrum en matvörum (9. og 10.
fl. í 2. yfirliti) hefur töluvert meir en þrefaldast að verðmagni árið 1941
frá árinu á undan. Nam innflutningur þessara vara 7.o milj. kr. árið 1940
en 25.o milj. kr. árið 1941. Stafar þessi hækkun að langmestu leyti af stór-
auknum innflutningi, þrátt fvrir nokkra verðhækkun (rúmk 20%). í 9.
fl. eru taldir óvaranlegir munir til notkunar. Er það einkum fatnaðar-
vörur, en ennfremur lyf, hækur og hlöð, leikföng og margt fleira. 1 10.
fl. eru aftur á móti taldir varanlegir munir til notkunar, svo sem ýmisleg
búsáhöld, reiðhjól og fólksbilar og aðrir slikir hlutir, sem lengi eiga að
endast.
í 2. yfirliti (bls. 9*) eru vörurnar einnig flokkaðar eftir vinslu-
stigi eða í hrávörur, lítt unnar vörur og fullunnar vörur. Hrávörur telj-
ast afurðir af náttúruframleiðslu (landbúnaði, fiskveiðum, námugrefti
o. s. frv.), sem ekki hafa fengið neina verulega aðvinslu, en geta þó sumar
hverjar verið hæfar til neyslu. Sama máli er að gegna um ýmsar lítt unn-
ar vörur, sem fengið hafa nokkra aðvinslu, þó að þær, eins og hrávör-
urnar, séu einkum notaðar til framleiðslu. Samkvæmt yfiríitinu hafa
1941 nál. % innfluttu varanna (að verðmæti) verið fullunnar vörur,
rúml. % lítt unnar vörur og rúml. V- hrávörur. Árið 1941 hefur innflutn-
ingur af hrávörum hækkað frá árinu á undan um l.s milj. kr., af lítt unn-
um vörum um 13.5 milj. kr. og af fullunnum vörum um 41.« milj. kr. Verð-
hækkun hefur aðeins að litlu leyti verið þessa valdandi. Hefur hún verið
mest á fullunnmn vörum (16%), nokkru minni á hrávörum (11%), en
minst á hálfunnum vörum (7%). Al' hrávörunum hefur innfutnings-
magnið verið svipað eins og árið áður, en af hálfunnum vörum hefur það
vaxið um meir en 50% og af fullunnum vörum næstum tvöfaldast (hækk-
að um nál. 90%).
3. Útfluttar vörutegundir.
Exportation des marchandises.
1 töflu III B (bls. 41—45) er skýrt frá útflutningi á hverri einstakri
vörutegund frá landinu í heikl sinni. Eru vörurnar þar flokkaðar eftir
skyldleika þeirra á sama hátt sem innfluttu vörurnar, og eru yfirlit yfir
þá flokkaskiftingu í töflu I og II (bls. 1—3).