Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2013, Side 4
4 Fréttir 20. mars 2013 Miðvikudagur
Ekki króna upp í kröfur á Baugsfélag
n 37 milljarða gjaldþrot Unity Investments
E
ngar eignir og ekki króna fékkst
upp í tæplega 37 milljarða króna
kröfur í þrotabú fjárfestinga
félagsins Unity Investments ehf.
sem var í eigu Baugs Group, FL Group
og breska kaupsýslumannsins Kevin
Stanford.
Félagið, sem var stofnað árið 2006,
var aðallega í því að kaupa hluta
bréf í smásölufyrirtækjum sem voru
með beinum eða óbeinum hætti í
eigu Baugs í Bretlandi eins og French
Connection og Woolworths. Baugur
og FL Group áttu hvort sinn 37,5 pró
senta hlut í Unity en Stanford átti 25
prósent. Félagið var, eins og svo mörg
önnur tengd Baugi ,skráð með lög
heimili í því mikla Baugsvígi, Tún
götu 6.
Unity Investments var úrskurðað
gjaldþrota þann 3. október 2012
en skiptum á þrotabúinu lauk 28.
febrúar síðastliðinn. Lýstar kröfur í
búið námu 36.783.701.654 krónum en
sem fyrr segir fékkst ekki króna upp í
þær kröfur né fundust nokkrar eign
ir í búinu.
Samkvæmt síðasta ársreikningi
félagsins fyrir árið 2007 virðist það
ár hafa reynst félaginu afar þung
bært. Það fór úr því að hagnast um
tæpar 700 milljónir punda árið
2006 í að tapa 115 milljónum punda
árið 2007 eða sem nemur rúmlega
21,8 milljörðum króna að núvirði.
Skráðir stjórnarmenn í félaginu sam
kvæmt ársreikningnum voru þeir Jón
Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri FL
Group, og Stefán Hilmar Hilmarsson,
fyrrverandi fjármálastjóri Baugs. Eitt
dótturfélag í 100 prósenta eigu Unity
Investments var skráð. Unity One var
stofnað í lok febrúar 2007 og sam
kvæmt fyrsta og eina ársreikningi þess
dótturfélags tapaði það 47 milljónum
punda það ár og var loks úrskurðað
gjaldþrota 19. desember 2012. n
mikael@dv.is
Bannað að fjalla
um skilnað skúla
n Útgáfufyrirtækið var með samning við WOW air vegna flugblaðs
R
itstjóra tímaritsins Séð og
heyrt, Björk Eiðsdóttur, mun
hafa verið bannað að fjalla
um skilnað Skúla Mogensen
fjárfestis þegar frá honum
var greint í byrjun þessa árs. Þetta
herma heimildir DV. Útgáfufélag Séð
og heyrt, Birtíngur, gefur út flugblað
fyrir ferðaskrifstofu Skúla, WOW air,
en gaf áður út sams konar blað fyrir
Iceland Express. Birtíngur hefur því
fjárhagslega hagsmuni af viðskiptum
sínum við WOW air.
Blaðið heitir Wow Magazine. Tón
listarmaðurinn Ásgeir Trausti prýðir
nýjasta tölublað Wow Magazine.
Blaðið er að finna í þotunum sem
ferðaskrifstofan notar í farþegaflutn
ingum sínum til og frá Íslandi sem og
á heimasíðu WOW air.
Vill ekki ræða starfslokin
Björk Eiðsdóttir sagði upp starfi
sínu sem ritstjóri Séð og heyrt í lok
febrúar síðastliðinn af ótilgreindum
ástæðum. Í samtali við DV þann 27.
febrúar staðfesti Björk að hún hefði
sagt upp störfum; „Jú, það passar“
– en vildi ekki greina frá því „að svo
stöddu“ af hverju hún hætti sem rit
stjóri blaðsins.
DV hafði samband við Björk til
að spyrja hana hvort það væri rétt
að henni hefði verið bannað að fjalla
um skilnað Skúla Mogensen í Séð og
heyrt. Björk neitaði að ræða um mál
ið og starfslok sín við blaðið. Heim
ildir DV fyrir þessum afskiptum af
umfjöllun Séð og heyrt um Skúla
Mogesen eru hins vegar traustar þó
Björk neiti að ræða málið við blaðið.
Miklar sögusagnir
Síðastliðnar vikur hafa miklar sögur
gengið um málið. Ein sagan er á þá
leið að búið hafi verið að prenta tölu
blað Séð og heyrt þar sem fjallað var
um skilnað Skúla Mogensen á forsíð
unni og að fjárfestirinn hafi keypt allt
upplagið. Þetta mun hins vegar ekki
vera satt.
Séð og heyrt skrifaði aldrei um
skilnað Skúla í blaðið af áðurnefndri
ástæðu og þar af leiðandi rataði um
fjöllunin aldrei á prent: Skýr fyrir
mæli komu um það innan Birtíngs
að ekki yrði fjallað um skilnað Skúla.
Gaf út blað fyrir Iceland Express
Áður en Birtíngur byrjaði að gefa út
blaðið fyrir WOW air gaf útgáfufélagið
út flugblað fyrir ferðaskrifstofu Pálma
Haraldssonar, Iceland Express. Það
hét FlyExpress. Þegar WOW air keypti
hluta af starfsemi Iceland Express
í október fyrra, og Iceland Express
lagði upp laupana, gerði ferðaskrif
stofan samning við Birtíng um útgáfu
Wow blaðsins.
Þögn Bjarkar Eiðsdóttur um starfs
lok sín hjá Birtíngi þýðir að ekki ligg
ur fyrir af hverju hún ákvað að hætta
sem ritstjóri Séð og heyrt og hvort af
skiptin af hugsanlegum fréttaflutn
ingi af Skúla Mogensen hafi spilað
þar inn í. Þá er heldur ekki hægt að
fullyrða neitt um hvort afskiptin af rit
stjórnarstefnu Séð og heyrt hafi verið
meiri og tíðari en hér um ræðir. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Mátti ekki fjalla um Skúla
Skýr fyrirmæli voru um að Séð
og heyrt mætti ekki fjalla um
Skúla Mogensen. Útgáfufélag
Séð og heyrt gefur út flugblað
fyrir WOW air.
Neitar að tjá sig Björk Eiðsdóttir neitar
að tjá sig um starfslokin hjá Birtíngi. Hermt
er að henni hafi verið bannað að fjalla um
Skúla Mogensen í Séð og heyrt.
„Jú, það
passar
Breska útrásin Jón Ásgeir Jóhannesson var einn aðaleigenda Baugs og Jón Sigurðs son,
forstjóri FL Group. Sá síðarnefndi var stjórnarmaður í Unity Investments sem skilur eftir sig
tugmilljarða gjaldþrot.
Nefnd rannsaki
læknamistök
Fimm þingmenn hafa lagt fram
frumvarp á Alþingi um að sér
stök nefnd rannsaki mistök sem
verða í heilbrigðisþjónustu.
Landlæknir annast nú athugun
slíkra mála. Fimm þingmenn
standa að frumvarpinu; Álf
heiður Ingadóttir, Siv Friðleifs
dóttir, Valgerður Bjarnadóttir,
Margrét Tryggvadóttir og Þur
íður Backman en fram kemur í
tilkynningu frá þingmönnunum
að hugmyndina megi rekja til
blaðagreinar Auðbjargar Reynis
dóttur, hjúkrunarfræðings og
eins stofnanda Viljaspors, fé
lags fólks um öryggi sjúklinga
og úrvinnslu atvika í heilbrigð
isþjónustu. „Megintilgangur
frumvarpsins er að sjálfstæð og
óháð rannsóknanefnd leiði í ljós
hvort mistök hafa orðið innan
heilbrigðiskerfisins og um leið
orsakir atvika, þ.á.m. vanrækslu
og mistök.“
„Slá met í
vanhæfni“
„Við erum sennilega að fara
að slá met í vanhæfni og lítill
sómi af þessu þingi okkar sem
ég batt svo miklar vonir við að
yrði þingið sem endurvann
traust og trúnað þjóðar,“ sagði
Birgitta Jónsdóttir, þingkona
Hreyfingarinnar, á þriðjudaginn
þegar rætt var um breytingar á
stjórnarskránni á Alþingi. Benti
hún á að þingsköpum hafi ekki
enn verið breytt til að koma í
veg fyrir málþóf auk þess sem
þingið hefur ekki enn sett sér
siðareglur. Önnur umræða um
frumvarp formanna Samfylk
ingarinnar, Vinstri grænna og
Bjartrar framtíðar um breyting
arákvæði stjórnarskrár stóð yfir
til miðnættis á mánudag og
fram til klukkan átta á þriðju
dag. Frumvarpið hefur verið
tekið af dagskrá og verður geymt
þar til síðar en óvíst er hvenær
þingstörfum lýkur.
Birgitta Jónsdóttir hefur
kvartað undan samráðsleysi við
Hreyfinguna. Um helgina skrif
aði hún á Facebooksíðu sína
að það væri einfaldlega enginn
vilji meðal stjórnarflokkanna til
að finna lausn á málinu. „Ég hef
reynt að fá ÁPÁ til að koma til
móts við t.d. þá kröfu að þingið
afgreiði mannréttindakaflann
og þau ákvæði sem spurt var
sérstaklega um í þjóðaratkvæða
greiðslu. Hans svar er að tala
ekki við mig heldur bara silfur
skeiðarbandalagið. Þá hefur
Katrín ekki heldur haft sam
band til að reyna að finna flöt á
samvinnu. Það finnst mér bera
vott um enn meiri rörsýni en
Jóhanna var jafnan sögð hafa,“
skrifaði hún.