Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2013, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2013, Blaðsíða 8
8 Fréttir 20. mars 2013 Miðvikudagur S vo virðist sem skuldamál ís­ lenskra heimila verði eitt stærsta kosningamálið í kom­ andi alþingiskosningum. Há­ vær krafa er um að höfuð­ stóll verðtryggðra íbúðalána verði leiðréttur vegna forsendubrests sem varð í íslensku efnahagslífi í kjölfar bankahrunsins í október 2008. Flest­ ir eru með verðtryggð íbúðalán hjá Íbúðalánasjóði og því verður að telj­ ast líklegt að krafan um leiðréttingu verðtryggðra íbúðalána snúi fyrst og fremst að þeim hópi. En hvað myndu slíkar aðgerðir kosta? Samkvæmt ársreikningi Íbúða­ lánasjóðs fyrir árið 2011 námu útlán sjóðsins til heimila um 630 milljörð­ um króna í árslok 2011. Má telja lík­ legt að uppsafnaðar verð bætur þeirra heimila sem eru með lán hjá sjóðnum hafi hækkað um nálægt 210 milljörð­ um króna frá upphafi árs 2008. Margir hafa komið fram með tillögur um að færa vísitölu neysluverðs á lánum aft­ ur til 1. janúar 2008 og myndi slík að­ gerð fyrir heimilin kosta 210 milljarða króna fyrir Íbúðalánasjóð. Lífeyrissjóðir eiga 70% skuldabréfanna Áður hefur komið fram að mismunur á bókfærðu virði og gangvirði á eign­ um og skuldum sjóðsins nam um 200 milljörðum króna í árslok 2011. Sá vandi hefur ekki enn verið leystur. Mikið fjaðrafok varð í lok nóvember á síðasta ári þegar Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingar­ innar, lét þau ummæli falla í sam­ tali við fréttaveituna Bloomberg að Íbúðalánasjóður þyrfti að endur­ semja um skuldir sína við eigendur íbúðabréfa eða svokallaðra HFF­ bréfa. Talið er að íslenskir lífeyris­ sjóðir eigi um 70 prósent af útgefnum verðbréfum Íbúðalánasjóðs. Sú að­ gerð að ná jafnvægi á milli virði eigna og skulda sjóðsins myndi því kosta líf­ eyrissjóðina um 140 milljarða króna. Ef Íbúðalánasjóður ætlar líka að gefa eftir verðbætur aftur til 1. janúar 2008 myndi slík aðgerð kosta lífeyrissjóði um 150 milljarða króna til viðbótar. Þessar tvær aðgerðir gætu því kostað lífeyrissjóðina nærri 300 milljörðum króna. Stjórnarandstaðan vill leiðréttingu Nokkrar útfærslur hafa verið nefndar til að koma til móts við heimili með vertryggð íbúðalán. Hafa þær flestar komið frá stjórnmálaflokkum sem nú eru í stjórnarandstöðu á Al­ þingi og nýjum framboðum sem nú bjóða sig fram vegna alþingiskosn­ inganna sem fram fara 27. apríl næstkomandi. Má þar nefna þings­ ályktunartillögu Hreyfingarinnar um að allar verðbætur af verðtryggðum íbúðalánum umfram 2,5 prósenta verðbólgumarkmið Seðlabankans verði færðar inn í sérstakan afskrifta­ sjóð. Alls færu verðbætur upp á um 275 milljarða króna inn í sjóðinn og yrðu endurgreiddar á 20 árum. Hægri grænir hafa lagt fram svip­ aða tillögu en eitt helsta stefnumál framboðsins er 45 prósenta leið­ rétting verðtryggðra lána. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, hefur nefnt leiðréttingu verðtryggðra íbúðalána sem myndi kosta 240 milljarða króna sem er nokkurn veginn 20 prósenta leiðrétting á öllum verðtryggðum íbúðalánum á Íslandi sem nema um 1.200 milljörðum króna. Samkvæmt frétt á RÚV nú nýlega er síðan talið að tillaga Sjálfstæðisflokksins um að veita skattaafslátt vegna húsnæðis­ lána myndi kosta 16 milljarða króna fyrsta árið í framkvæmd. Eiga 2.000 íbúðir Staða Íbúðalánasjóðs í dag er hins vegar verulega slæm á margan hátt. Talið er að sá vandi muni líklega aukast á næstu árum. Auk þess sem áður kom fram í greininni má bæta við að Íbúðalánasjóður á í dag rúm­ lega 2.000 íbúðir. Það er mikil fjölg­ un frá því sem áður var en árið 2009 átti Íbúðalánasjóður um 350 íbúðir. Einungis 20 prósent þeirra eru á höf­ uðborgarsvæðinu en stór hluti eigna er á svæðum á landsbyggðinni þar sem illa hefur gengið að selja fast­ eignir. Talið er að þeim muni fjölga um meira en eitt þúsund á næstu árum. Nýlega stofnaði Íbúðalána­ sjóður leigufélagið Klett ehf. en inn í það félag fóru um 500 fasteignir í eigu sjóðsins sem voru í útleigu. Um 200 þeirra eru á höfuðborgarsvæð­ inu. 45 prósent í yfirveðsettum eignum Þá má nefna að um 370 milljarðar króna eða nærri 45 prósent af út­ lánum sjóðsins hvíla á fasteignum þar sem lánin eru hærri en fast­ eignamat eignarinnar. Ekki liggur ljóst fyrir hvernig þau útlán dreif­ ast yfir landið en eins og fram kemur í töflu með frétt eru þær eignir sem Íbúðalánasjóður hef­ ur yfirtekið dreifðar víðs vegar um landið. Líklega hafa margir sem eru með lán hjá sjóðnum fundið illi­ lega fyrir hækkun lána frá upphafi árs 2008 vegna verðbólgu á meðan að íbúðaverð hefur ekki hækkað í samræmi við það. Má þar nefna að vísitala neysluverðs hefur hækkað um 45 prósent frá 1. janúar 2008 á sama tíma og vísitala íbúðaverðs á höfuð borgarsvæðinu sem dæmi hefur lækkað um tvö prósent fyrir sama tímabil. Sögulega má nefna að á árunum 1988 til 1996 varð 20 prósent raunlækkun á fasteigna­ verði á Íslandi. Á árunum 1997 til 2007 varð hins vegar 180 prósenta raunhækkun. n n Kostar 210 milljarða króna að færa verðbætur ÍLS til 1. janúar 2008 Annas Sigmundsson blaðamaður skrifar annas@dv.is Veðsetningarhlutföll á útlánum Íbúðalánasjóðs Veðsetningarhlutfall Uppreiknaðar eftirstöðvar Hlutfall <=50 131 milljarður 16% 50-70 110 milljarðar 13% 70-90 142 milljarðar 17% 90-100 73 milljarðar 9% 100-110 72 milljarðar 9% >110 299 milljarðar 36% Alls 827 milljarðar *ALLAr töfLUr byggjA á SkýrSLU IfS grEInIngAr fyrIr ÍbúðALánASjóð, nóVEMbEr 2012. Fullnustueignir í eigu Íbúðalánasjóðs ár fjöldi Í útleigu bókfært virði 2009 347 - - 2010 1.069 346 15 milljarðar 2011 1.606 642 22 milljarðar 2012 2.049 846 29 milljarðar Nær helmiNgur allra íbúða yfirveðsettur Yfirteknar eignir Íbúðalánasjóðs og lán í vanskilum Austurland 14% Norðurland 7% Suðurland 16% Vestfirðir 2% Vesturland 15% Suðurnes 25% Höfuðborgar- svæðið 21% Höfuðborgarsvæðið 52% Lán einstaklinga í vanskilum Landsbyggðin 48% Lán einstaklinga í vanskilum Yfirteknar eignir eftir landshlutum Lán einstaklinga í vanskilum g r A fÍk Pá LL SV A n SS o n Vinnuvikan verði stytt Í ályktun sem samþykkt var á að­ alfundi SFR þann 14. mars síð­ astliðinn er þess meðal annars krafist að vinnuvikan verði stytt niður í 36 stundir. Þess er einnig krafist að stjórn­ völd, verkalýðshreyfingin og at­ vinnurekendur taki höndum saman um leiðréttingu kynbund­ ins launamunar. „Tími rann­ sókna og skýrslugerðar er löngu liðinn. Fjármagna þarf raun hæfar aðgerðir til að útrýma þessum svarta bletti í lýðræðissamfélagi okkar og hafa ber sjónarmið beggja kynja að leiðarljósi í allri ákvörðunartöku,“ segir í ályktun­ inni. Aðalfundurinn krefst þess jafnframt að hugað verði að launajafnrétti í víðasta skilningi orðsins. SFR krefst þess að vinnu­ tími vaktavinnufólks verði aldrei lengri en 80 prósent af vinnutíma dagvinnufólks. Bent er að lýð­ heilsufræðilegar rannsóknir hafi sýnt fram á skaðleg áhrif vakta­ vinnu án þess að stjórnvöld hafi brugðist við. „Vinnutími sem fellur að mestu á kvöld, helgar og nætur gerir fólki illmögulegt að sinna þörfum fjölskyldunnar. Jafna þarf tækifæri beggja foreldra til þátt­ töku í uppeldi barna sinna og stuðla að fjölskylduvænna sam­ félagi.“ Aðalfundur SFR krefst þessi einnig að vinna sem miðar að skilgreiningu vinnu­ og vinnu­ aðstöðu vaktavinnufólks verði kláruð. Loks er þess krafist að ríkissjóður hefji nú þegar að greiða inn á skuldbindingar sínar við lífeyrissjóð opin berra starfs­ manna og að áætlun verði gerð um það hvernig staðið verði að greiðslum til frambúðar. Götur rykbundnar Styrkur svifryks fór langt yfir heilsuverndarmörk í Reykjavík á þriðjudag. Þetta kemur fram á vef Reykjavíkurborgar en þar segir að hálftímagildi svifryks við mælistöðina á Grensásvegi hafi verið 295,4 míkrógrömm á rúmmetra klukkan tíu á þriðju­ dagsmorgun en sólarhrings­ heilsuverndarmörkin eru 50 míkrógrömm á rúmmetra. Svifrykið fór því nær sexfalt yfir mörkin. Búist er við að svifryk verði áfram mikið næstu daga enda er spáð þurrviðri. Til að sporna við því freistar Reykjavíkurborg þess að rykbinda götur eftir getu. Saltpækli verður úðað á götur borgarinnar eftir því sem þurfa þykir en heilbrigðiseftirlitið mun fylgjast náið með loft­ gæðum í borginni. Á vef Reykja­ víkurborgar má fylgjast með mælingum svifryks en rykið á upptök sín á svæðinu í kringum Grímsvötn – og barst hingað í óveðrinu á dögunum. Borgin boðar almenna vorhreinsun á götum borgarinnar um páska. til skýringar: Þetta þýðir að fjórðungur allra eigna sem Íbúðalánasjóður hefur yfirtekið er á Suðurnesjum. til skýringar: Næstum helm- ingur þeirra lána Íbúðalánasjóðs sem eru í vanskilum er tilkominn vegna eigna á landsbyggðinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.