Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2013, Qupperneq 6
6 Fréttir 20. mars 2013 Miðvikudagur
Carl Bildt fékk íslenska lopapeysu
n „Mögnuð upplifun“ að fljúga yfir Ísland
A
ð fljúga inn yfir strendur Ís-
lands á svona björtum degi er
mögnuð upplifun, segir Carl
Bildt, utanríkisráðherra Sví-
þjóðar, á bloggsíðu sinni en hann
fundaði með Össuri Skarphéðinssyni,
utanríkisráðherra Íslands, á skrifstofu
utanríkisráðuneytisins á mánudaginn.
Borðaði Bildt hádegismat með Össuri
sem hann kallar vin sinn og kollega.
„Við höfum í gegnum tíðina styrkt
tengsl, sem þegar voru góð, við Ísland
og í okkar augum hefur það ætíð verið
mikilvægt að geta liðsinnt Íslending-
um, fyrst í gegnum fjármálakrepp-
una og ekki síður nú, í samningum Ís-
lands við Evrópusambandið. Við þetta
bætast svo hin aðkallandi álitamál
norður skautsins,“ skrifar Bildt sem
situr í forsæti Norðurskautsráðsins um
þessar mundir. Bendir Bildt á að fjár-
málakreppan hafi dregið fram áleitnar
spurningar um hvort lítið hagkerfi eins
og Ísland geti staðið eitt og sér í al-
þjóðavæddum heimi.
Peysan sem Bildt klæðist á
myndinni er gjöf frá ráðuneytinu
og keypt keypt frá Handprjónasam-
bandinu. Öðru máli gegnir um peysu
Össurar: „Mín er hundgömul, prjónuð
af gamalli frænku minni á Suðurnesj-
um,“ sagði hann.
Þeir Össur og Bildt fóru ljúfum orð-
um hvor um annan í ræðum sem þeir
héldu á ráðstefnu um norðurslóða-
mál. Sagði Össur að enginn vissi það
betur en hann sjálfur hve Bildt væri
góður vinur Íslands.
Bildt gerði komandi þingkosningar
að umtalsefni í bloggfærslu sinni. „Ís-
lendingar ganga að kjörborðinu þann
27. apríl og jafnvel þótt spurningar
um aðild að Evrópusambandinu séu
ekki beinlínis uppi á borðinu í þess-
um kosningum, þá geta niðurstöður
kosninganna haft bein og nærtæk
áhrif á framhald viðræðna Íslands við
Evrópusambandið,“ skrifar hann. n
É
g get sagt þér alveg eins og er
að ég var tekinn þarna eins og
hryðjuverkamaður. Ég skil ekki
af hverju ríkisstofnun vinnur
svona,“ segir Jóhann Rúnar
Kristinsson, útgerðarmaður á Rifi
á Snæfellsnesi, um aðgerðir Fiski-
stofu í þorpinu. Stofnunin fann fyrir
skömmu ýsu – þrjú tonn að því er
sagt er – í húsnæði sem er í eigu út-
gerðar Jóhanns Rúnars, Melness,
sem gerir út línubátinn Særif SH-25.
Fiskistofa mun vera að skoða tilkomu
aflans sem mögulegt kvótasvindl.
Í samtali við DV segir Eyþór
Björnsson fiskistofustjóri að um hafi
verið að ræða hefðbundið eftirlit
Fiskistofu á Rifi. Hann segir að mál-
ið sé til skoðunar en að hann geti
ekki veitt upplýsingar um eðli rann-
sóknarinnar.
Ætlaði að búa til harðfisk
Jóhann Rúnar segir að vissulega
hafi Fiskistofa fundið ýsu í húsa-
kynnum Melness en það hafi verið
fiskur sem hann keypti af sjálfum
sér. „Það var fiskur þarna. En ég
keypti hann af sjálfum mér. Ég
keypti hann en hann var skalað-
ur á bílavoginni á Rifi. Svona var
þetta og það er alveg sama hvað
þið þvælið um þetta. Ég ætlaði að
gera harðfisk úr honum. Má ég
það ekki? Af hverju er þá gengið að
manni eins og ég sé hryðjuverka-
maður?“ spyr Jóhann Rúnar.
Samkvæmt því sem Jóhann
Rúnar segir keypti hann fiskinn því
af Særifi SH-25 með það fyrir aug-
um að herða hann. „Ég keypti bara
ýsu af Særifinu til að herða fyrir
sjálfan mig. Ég hlýt að mega það
sem íslenskur ríkisborgari. Ég hef
oft gert þetta; það er ekkert hægt
að banna þetta. Fiskistofa hafði
ekki hugmynd um þetta þegar hún
kom til mín. Ég þurfti að sýna þeim
nótuna fyrir viðskiptunum,“ segir
Jóhann Rúnar.
Magnið liggur ekki fyrir
Aðspurður segir Jóhann Rúnar að
ekki liggi fyrir hversu mikið magn
af fiski Fiskistofa rannsakaði. „Ég
ætla ekkert að segja þér það; Fiski-
stofa segir þér það. Það er ekkert
einu sinni á hreinu. […] Þetta er
bara helvítis kjaftæði eins og Ís-
land er orðið í dag. Það er bara
þannig. Þetta voru engin þrjú tonn
þetta voru nokkur kíló af harð-
fiski,“ segir Jóhann Rúnar.
Jóhann Rúnar segir aðspurður
að hann viti „ekkert um það“ hvort
aflinn hafi verið veiddur og land-
að með löglegum hætti. „Það veit
ég ekkert um. Spurðu Fiskistofu
að þessu. Þeir hljóta að vera starfi
sínu vaxnir fyrst þeir „tríta“ mann
eins og hryðjuverkamann,“ segir
Jóhann Rúnar. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
„Ég keypti fiskinn
af sjálfum mér“
n Útgerðarmaður á Rifi ósáttur vegna aðgerða Fiskistofu n Rannsaka ýsu
Ósáttur Jóhann Rúnar er ósáttur við
aðgerðir Fiskistofu. Hann sést hér um
borð í línubátnum Særifi SH-25.
„Ég var
tekinn
þarna eins og
hryðjuverka-
maður
Hagræðing
hjá RÚV
Hagræðingaraðgerðir standa
yfir hjá Ríkisútvarpinu þessa
dagana og hefur starfshlutfall
fjögurra dagskrárgerðarmanna
verið lækkað umtalsvert. Starfs-
hlutfall tveggja var lækkað nið-
ur í 70 prósent af því sem fyrir
var en hinir tveir urðu fyrir 20
prósenta skerðingu. Sagði einn
þeirra upp í kjölfarið. „Það eru
bara ekki til nægir peningar til
að reka Rás 1 og þá verða ein-
hverjir að fá minna,“ sagði einn
þeirra starfsmanna sem lækkun-
in bitnaði á. Samkvæmt heim-
ildum DV ríkir talsverð óánægja
á vinnustaðnum vegna þessa.
Kvaddi
þingheim
Þuríður Backman, þingkona
Vinstri grænna til 14 ára, hélt
sína síðustu þingræðu á þriðju-
dag. Lýsti hún yfir áhyggjum af
umræðuhefðinni á þingi. „Þriðj-
ungur þingmanna er nýr hér á
þingi,“ sagði hún. „Hann hefur
ekki kynnst neinu öðru en því
starfsumhverfi sem að nú hefur
skapast. Og mér finnst áhyggju-
efni að horfa til næsta kjör-
tímabils þegar það koma nýir
þingmenn og læra það sem fyrir
þeim er haft.“ Þá hvatti hún til
þess að komið yrði á siðareglum
og lokið yrði við endurskoðun á
þingsköpum.
Útboð hjá
Seðlabankanum
Seðlabanki Íslands hélt ann-
að gjaldeyrisútboð ársins á
þriðjudaginn og bauðst til að
kaupa evrur í skiptum fyrir ís-
lenskar krónur til fjárfestingar
í íslensku atvinnulífi eða gegn
greiðslu í ríkisverðbréfum. Er
þetta liður í áætlun um losun á
gjaldeyrishöftum og með svip-
uðu sniði og önnur útboð sem
haldin hafa verið. Fram kemur í
Morgunkorni greiningardeildar
Íslandsbanka að talsverður
titringur hafi verið á markaði að
undanförnu vegna vangaveltna
um hvort til standi að þrengja
að fjárfestingarmöguleikum
aflandskrónueigenda á næst-
unni. Þá hafi útboðsgengið farið
lækkandi.
Vinir og kollegar
Utanríkisráðuneytið gaf
Carl Bildt, utanríkis-
ráðherra Svíþjóðar,
íslenska lopapeysu.