Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2013, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2013, Qupperneq 12
T ugþúsundir hneykslaðra borgara hafa skrifað nafn sitt á undirskriftalista þar sem bandaríska fréttastofan CNN er krafin um opinbera afsök- unarbeiðni fyrir að sýna nauðgurun- um í Steubenville-málinu svokallaða samúð. Reiði aðgerðasinna gegn CNN beinist að því að í umfjöllun stöðvar- innar um sakfellingu tveggja unglings- pilta voru kallaðir fyrir þrír álitsgjaf- ar sem virtust allir sammála um að niðurstaða dómsins væri skelfileg tíð- indi fyrir piltana og þeirra líf. Enginn þeirra minntist einu orði á þolandann í málinu sem piltarnir byrluðu nauðg- unarlyf, nauðguðu, höfðu þvaglát yfir og tóku síðan myndir af. Samúðin virt- ist öll þeirra megin og hversu sorglegt það væri að sjá líf svo „efnilegra ungra manna“ eyðilagt. Á sunnudag voru íþróttamennirnir Trent Mays (17 ára) og Ma‘Lik Richmond (16 ára) dæmdir fyrir að nauðga skólasystur sinni í Steuben- ville í Ohio í Bandaríkjunum síðast- liðið haust. Piltarnir byrluðu stúlk- unni nauðgunarlyf í samkvæmi og nauðguðu henni meðan hópur fólks horfði á, drengirnir meðal annars pissuðu yfir hana meðvitundarlausa. Þeir tóku myndir af glæp sínum og birtu á Instagram auk þess sem nán- ast bein textalýsing var af ódæðinu á samfélagsmiðlum meðan á því stóð og þá var tekið myndband af því. Málið vakti gríðarlegan óhug og reiði. Eftir- mál þessarar árásar hafa einnig vakið athygli. Málið hefur nefnilega klofið bæjarfélagið í Steubenville í fylkingar þar sem hópur fólks hefur annars vegar fylkt sér að baki nauðgurunum og hins vegar þolandanum. Piltarnir voru vinsælir ungir íþróttamenn í ruðningsliði framhaldsskóla Steuben- ville en síðan málið kom upp hefur verið dregin upp dökk mynd af nauð- gunarmenningunni í Ohio og víðar í Bandaríkjunum þar sem fórnarlömb- um hefur verið gert að sitja uppi með alla ábyrgð og skömm í sambærilegum málum. Þrátt fyrir að Mays og Richmond hafi haldið fram sakleysi sínu voru þeir dæmdir til afplánunar í unglingafang- elsi þar sem þeir mega dúsa, hugsan- lega þar til þeir ná 21 árs aldri. Mays fékk að auki eitt ár aukalega fyrir að dreifa nektarmyndum af stúlku undir lögaldri. Þá kveður dómurinn á um að þeir megi ekki hafa nokkurt samband við stúlkuna á þessum tíma og loks verða þeir að skrá sig sem unga kyn- ferðisbrotamenn. Femínistar og aðrir aðgerðasinnar eru hins vegar verulega ósáttir við umfjöllun CNN um málið þar sem álitsgjafarnir Candy Crowley, Poppy Harlow og Paul Callan voru kallaðir til í beinni útsendingu til að tjá sig um niðurstöðuna. „Ég get ekki ímyndað mér hversu tilfinningaþrungin stund dómsupp- kvaðningin hefur verið fyrir 16 ára stráka, að sitja grátandi í dómsal, burt- séð frá því hversu stórir ruðningsmenn þeir eru. Hverjar verða afleiðingarnar fyrir tvo unga menn að vera dæmdir sekir um nauðgun? Maður spyr sig?“ sagði Crowley. Önnur kona, Poppy Harlow, sagði: „Það var ótrúlega erfitt að horfa á þessa tvo ungu menn, sem áttu svo bjarta framtíð fyrir sér – stjörnuleikmenn í ruðningi, góðir nemendur – láta horfa á sig meðan líf þeirra hrundi.“ Paul Callan bætti síðan við: „Líf eru eyðilögð. En hvað næstu skref varðar þá er það alvarlegasta sem ger- ist hjá þessum ungu mönnum núna er að verða titlaðir sem kynferðisbrota- menn. Réttarkerfið í Ohio hefur nú sett þann merkimiða á þá. Það mun ásækja þá það sem eftir er.“ Enginn álitsgjafanna minntist einu orði á þolanda árásarinnar sem fyrr segir. Enginn þeirra velti fyrir sér af- leiðingunum sem árás piltanna hafði á hana. Þessa umfjöllun segja gagn- rýnendur skammarlega og brjóta í bága við siðareglur fréttamennsk- unnar. „Það er ekkert annað en við- bjóðslegt að þarna skuli þrír álitsgjaf- ar ykkar skammlaust gera nauðgar- ana að fórnarlömbum í málinu, án þess að þolandinn sé virtur viðlits eða minnst á það sem hún hefur mátt þola – morðhótanir og andúð íþróttaóðs samfélags,“ segir í bréfinu sem fylgir undirskriftalistanum sem tugþús- undir hneykslaðra áhorfenda og net- verja hafa skrifað nafn sitt undir. Þar er þess krafist að CNN biðjist afsökunar í beinni útsendingu, oftar en einu sinni næstu vikuna, í upphafi hvers klukku- tíma, og stöðin hreinlega látin hafa það óþvegið, þó á yfirvegaðan og mál- efnalegan hátt. „Sú menning að sýna nauðgur- um samkennd og hvetja til þess að fórnar lömb nauðgana burðist með alla skömmina getur ekki lengur talist ásættanleg og breyting þar á verður að byrja hjá ykkur. Sem fréttamenn hjá stórri sjónvarpskeðju, er þetta á ábyrgð ykkar. Gangist við henni.“ n 12 Erlent 20. mars 2013 Miðvikudagur Stökk af svölum á annarri hæð n Hélt að hóteleigandinn ætlaði að nauðga henni B resk kona sem var ferðamaður á Indlandi flúði af hótel- herbergi sínu á dögunum því hún taldi að hóteleigandinn ætlaði að nauðga henni. Konan, sem er um þrítugt, stökk af svölum her- bergis síns á annarri hæð og fótbrotn- aði við fallið. Konan var á hóteli í borginni Agra, rétt hjá Taj Mahal, og hafði beðið um að vera vakin klukkan fjögur um morguninn. Í stað þess að fá sím- hringingu á þeim tíma, líkt og hún gerði ráð fyrir, birtist hóteleigandinn inni í herberginu hjá henni. Hann hafði þá brotist inn til konunnar, bauðst til að nudda hana og neitaði að yfirgefa herbergið. Konan sá því ekki annan kost í stöðunni en að flýja. Hún hafði samband við lögregluna sem handtók eiganda hótelsins. Ofbeldi gegn konum er alvarlegt vandamál á Indlandi, en skemmst er að minnast hörmulegs atburðar sem átti sér stað í desember í fyrra. Þá var 23 ára indverskri konu hópnauðgað í strætisvagni og hlaut hún svo alvarlega áverka að hún lést af sárum sínum. Leiddi atburðurinn til þess að al- menningur reis upp og mótmælti á götum úti. Var þess krafist að refsingar í kynferðisbrotamálum yrðu þyngdar og farið yrði í fyrirbyggjandi aðgerðir til að koma í veg fyrir slíka ofbeldis- glæpi. Ríkisstjórn Indlands hefur nú brugðist við með því að kynna nýja löggjöf í kynferðisbrotamálum. Þar er lágmarksrefsing fyrir nauðgun 20 ár og ef ofbeldið leiðir til dauða fórnar- lambsins þá varðar það við dauða- refsingu. Mál bresku konunnar í Agra hef- ur vakið hræðslu og óhug í ljósi þess að það átti sér stað á vinsælum ferða- mannastað sem milljónir vestrænna ferðamanna heimsækja á ári hverju. Málið er þó ekki einsdæmi á svæð- inu því í síðustu viku var ráðist á sviss- neska konu á svipuðum slóðum og henni hópnauðgað. Eiginmaður hennar var bundinn á meðan og lát- inn fylgjast með ódæðisverkinu. solrun@dv.is Þau vorkenna nauðgurunum n Tugþúsundir segja CNN að skammast sín n Álitsgjafar fordæmdir Í dómssal Trent Mays (t.v.) og Ma‘Lik Richmond voru dæmdir fyrir nauðgun á 16 ára skóla- systur sinni. Hún hefur mátt þola líflátshótanir og útskúfun. Þeir fá samúð hjá CNN. Mynd: ReuteRs Sigurður Mikael Jónsson blaðamaður skrifar mikael@dv.is Reiðibylgja Þessi mynd með samantekt á ummælum álitsgjafa CNN varð kveikjan að undirskriftalistanum eftir að hún fór sem eldur í sinu um netheima. Kim eignaðist dóttur Norðurkóreski einræðisherrann Kim Jong-un eignaðist dóttur ný- verið. Þetta staðfesti körfubolta- kappinn Dennis Rodman í viðtali við breska blaðið The Sun. Áður hafði engin eiginleg staðfesting borist hvað varðar kyn barnsins en stjórnvöld í Suður-Kóreu höfðu ljóstrað upp að leiðtogi ná- grannanna í norðri hefði eignast barn. Í viðtalinu sagði Rodman að eiginkona Kim hafi talað um lítið annað en dótturina. „Hún talaði stanslaust um fallegu litlu dóttur þeirra,“ sagði hann. Hótelið Atvikið átti sér stað á vinsælum ferðamannastað og hefur vakið óhug. Ekki eins og Saddam Hussein Körfuboltamaðurinn Dennis Rodman heldur ótrauður áfram að segja frá kynnum sínum af Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu. Í viðtali við breska dagblaðið The Sun segir Rod- man frá því að hann hafi dans- að við tónlist Michael Jackson með norðurkóreska harðstjór- anum. „Hann er ekki ein af þess- um Saddam Hussein-týpum sem dreymir um heimsyfirráð,“ sagði hann. Þá bætti hann því við að Kim Jong-un hefði ekki í hyggju að drepa eða sprengja einn né neinn heldur vildi hann bara að Obama hringdi í hann. Dennis Rodman varð tíðrætt um eigin- konu þjóðhöfðingjans sem hann sagði að væri gullfalleg, gáfuð og hávaxnari en gengur og gerist í landinu. Sagði hann frá barni þeirra hjóna en tilvist þess er rík- isleyndarmál í Norður-Kóreu. Á línu yfir Miklagljúfur Ofurhuginn Nik Wallenda hyggst ganga á línu yfir Miklagljúfur í Colorado í Bandaríkjunum án ör- yggisnets næsta sumar. Að sögn Wallenda er Miklagljúfur ofarlega á verkefnalista hans og verður gangan sýnd í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Discovery. „Það eina sem mun skilja mig og botninn á gljúfrinu að er ör- þunn lína,“ sagði Wallenda í við- tali við Los Angeles Times, en hann mun ganga í 500 metra hæð yfir Colorado-fljóti. „Ég hlakka til að gefa áhorfendum nýja sýn á Miklagljúfur,“ sagði ofur- huginn sem segir að gangan sé til heiðurs langalangafa sínum sem beið bana þegar hann féll af línu í Puerto Rico árið 1978 þá 74 ára að aldri. Nik Wallenda er fyrsti línudansarinn sem tekist hefur að ganga yfir Niagara-fossana.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.