Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2013, Blaðsíða 20
20 Sport 20. mars 2013 Miðvikudagur
Þ
að er með miklu stolti sem
ég tilkynni áform mín um
að hætta sem atvinnumaður
í knattspyrnu í lok tímabils,“
skrifar hinn 33 ára Michael
Owen á heimasíðu sína á þriðjudag.
Tilkynningin vakti mikla athygli en
kom líklega fæstum á óvart. Owen fór
frá því að vera ungstirni í Liverpool
í að verða besti leikmaður verald
ar. Hann var einn skæðasti framherji
heims og þrátt fyrir um margt glæstan
feril þá er hann einnig tragískur og
ætti að vera öðrum víti til varnaðar.
DV rifjar upp feril þessa meiðslum
hrjáða markahróks sem skaust ungur
upp á stjörnuhimin knattspyrnunnar.
Undir smásjá stórliða sjö ára
Michael James Owen er fæddur 14.
desember 1979 í Chester á Englandi.
Fljótt varð ljóst að þar fór mikið efni í
knattspyrnumann og voru útsendar
ar ensku liðanna farnir að fylgjast
með honum strax við sjö ára aldur.
Þegar Owen var tólf ára voru Liver
pool, Manchester United, Chelsea
og Arsenal öll á höttunum eftir hon
um. Svo fór að það var persónulegt
bréf frá Steve Heighway, yfirmanni
unglingaþróunarstarfs Liverpool,
sem tryggði að Owen skrifaði
undir unglingasamning við fé
lagið. Það var ekki alveg sjálfgef
ið enda hafði Owen sjálfur verið
stuðningsmaður Everton alla tíð.
Þetta hefur verið eitt þrusugott
bréf hjá Heighway.
Owen var fljótt kallaður upp
í unglingalandslið Englendinga
þar sem hann setti fjölmörg
met. Meðal annars skoraði hann
28 mörk í 20 leikjum fyrir U15 og
U16 ára lið Englands.
Árið 1996, þá aðeins 17 ára,
skrifaði Owen undir sinn fyrsta
atvinnumannssamning við
Liverpool. Altalað var hversu
góður þessi piltur væri og lét
Ted Powell, þjálfari U18 lands
liðs Englands, hafa það eftir sér
að Owen væri „besti leikmaður
sinnar kynslóðar“ og voru þó
nöfn eins og David Beckham, Paul
Scholes og Robbie Fowler nefndir í
sömu andrá.
Það var Roy Evans, þáverandi
stjóri Liverpool, sem gaf Owen
fyrsta tækifærið í aðalliði félagsins
þegar hann kom inn á sem vara
maður í síðari hálfleik næstsíð
asta leiks tímabilsins 1996/97 gegn
Wimbledon þann 6. maí 1997. Owen
skoraði að sjálfsögðu í sínum fyrsta
leik sem því miður reyndist tap
leikur og varð til þess að Manchest
er United tryggði sér titilinn það ár.
Stjarna er fædd
Tímabilið 1997/98 varð Owen fyrsti
valkostur í framherjastöðu Liver
pool þegar Robbie Fowler meiddist.
Stjarna var fædd. Hinn átján ára
framherji endaði sem markahæsti
leikmaður deildarinnar með 18
mörk í 36 leikjum. Hann var kjör
inn besti ungi leikmaður ársins af
leikmannasamtökum ensku úrvals
deildarinnar og varð þriðji í kjöri
samtakanna á leikmanni ársins.
Owen skrifaði undir nýjan fimm ára
samning við Liverpool, sem metinn
var á 2,5 milljónir punda á ári. Með
honum varð hann hæst launaði ung
lingur í sögu breskrar knattspyrnu.
Frammistaða Owens varð til
þess að hið virta tímarit World
Soccer valdi hann næstbesta leik
mann heims á eftir sjálfum Zinedi
ne Zidane. Þá varð hann fjórði í kjöri
FIFA á besta leikmanni veraldar og
sömuleiðis besta leikmanni Evrópu.
Tímabilið 1998/99 varð Owen
aftur markahæsti leikmaður ensku
úrvalsdeildarinnar, ásamt þremur
öðrum, með 18 mörk. Owen lék að
eins 30 leiki það tímabil enda lauk
tímabili hans þann 12. apríl eftir
að hann meiddist gegn Leeds. Þau
meiðsli voru á hnésbótarsin og áttu
slík meiðsl, auk þrálátra tognana
eftir að gera Owen lífið leitt það sem
eftir lifði ferilsins.
Of mikið fyrir ungan mann
Helsta vopn framherjans magnaða
var ótrúlegur hraði hans og sprengi
kraftur sem aftur setti mikið álag á
unga og óharðnaða fótleggi hans.
Hann átti síðar á ævinni eftir að
gagnrýna hvernig hann var ofnotað
ur, þá meðferð sem hann fékk og það
mikla álag sem sett var á hann svo
ungan. Owen talaði opinskátt um
það að ferill hans hefði án nokkurs
vafa orðið öðruvísi, og hann hefði
enst betur í fremstu röð, hefði hann
ekki þurft að spila rúmlega 80 leiki
á ári fyrstu árin sín með tilheyrandi
álagi. Þetta var of mikið fyrir ungan
mann.
Það sem líka spilaði inn í var að
Owen var orðinn stjarna og efnileg
asti leikmaður Englands. Þannig að
þegar tímabilinu lauk fór hann ekki
í hvíld og frí eins og aðrir ungir leik
menn heldur þurfti hann að fljúga
út í heim að sinna landsliðsskyldum.
Árið 1998 varð hann yngsti leikmaður
í sögu Englands til að leika aðallands
leik, 18 ára og 59 daga gamall, í 2–0
tapi í vináttulandsleik gegn Chile.
Owen sló einnig í gegn á sinni
fyrstu heimsmeistarakeppni, HM
1998, þar sem frammistaða hans
vakti heimsathygli. Landsliðsþjálf
arinn Glenn Hoddle hafði notað
hann sem varamann í fyrstu tveimur
leikjum riðlakeppninnar en eftir að
Owen kom inn á og skoraði í öðrum
leiknum, gegn Rúmeníu, gat Hoddle
ekki litið framhjá honum. Í 16 liða
úrslitunum gegn Argentínu skoraði
Owen ógleymanlegt mark þegar
hann sólaði vörn Argentínumanna
upp úr skónum og skoraði með hnit
miðuðu skoti. Öllum var ljóst að
þarna fór einstakur ungur leikmaður.
Í 89 landsleikjum sínum fyrir Eng
land skoraði Owen 40 mörk.
Bestur í heimi
Tímabilið 2000/01 var án nokkurs
vafa besta ár Owens bæði
persónulega og með Liverpool. Fé
lagið vann deildarbikarinn, enska
bikarinn og UEFAbikarinn auk þess
sem Owen var kjörinn besti leik
maður veraldar og besti leikmaður
Evrópu. Fyrsti enski leikmaðurinn til
þess í áratugi.
Þrátt fyrir að hafa alltaf verið
markahæsti leikmaður Liverpool
frá árinu 1998 og þó hann hafi skor
að 179 mörk í 306 leikjum fyrir liðið
var Owen seldur til Real Madrid árið
2004 á aðeins átta milljónir punda.
Hjá Galacticosliði Real Madrid
fékk Owen sjaldnast tækifæri í byrj
unarliðinu. Hann var í byrjunarliði
í 15 leikjum en náði þó að skora 19
mörk í þeim 43 leikjum sem hann
kom við sögu í – sem var besta hlut
fall skoraðra marka per leiknar mín
útur í spænsku deildinni. Dvöl hans
á Spáni var stutt. Real þurfti að rýma
fyrir nýjum brasilísku stjörnum á
borð við Robinho og Julio Baptista og
var Owen seldur, með ágætis hagn
aði og nokkuð óvænt, á 16,8 milljónir
punda til Newcastle United.
Hrunið
Owen var aðeins 25 ára og átti að eiga
sín bestu ár framundan. En á árun
um 2005–2009 náði hann aðeins að
leika 71 leik fyrir Newcastle sökum
mikilla meiðsla. Í þeim skoraði hann
30 mörk. Sumarið 2009 rann samn
ingur hans út og Newcastle féll
um deild svo Owen ákvað að fara á
frjálsri sölu til Manchester United.
Vakti sú ákvörðun Alex Ferguson að
semja við Owen furðu margra, enda
var enginn skortur á framherjum
hjá liðinu og Owen verið meiddur
nánast samfellt um árabil. Owen var
þó á Old Trafford í þrjú ár. Skoraði 17
mörk í 49 leikjum, þar af eitt í sínum
fyrsta leik og svo ógleymanlegt sigur
mark gegn erkifjendum United í City
20. september 2009 á 6. mínútu upp
bótartíma. Hann átti erfitt uppdrátt
ar hjá liðinu og var meira eða minna
meiddur allan tímann.
United lét Owen fara sumarið
2012 og samdi hann nokkuð óvænt
við Stoke City af öllum liðum í sept
ember. Var flestum sparkspekingum
ljóst að Owen myndi aldrei fá marga
leiki í leikskipulagi Stoke og sú varð
raunin. Ekki hjálpaði til að Owen
var mikið meiddur að vanda. Hann
hefur aðeins leikið fimm leiki fyrir
Stoke og skoraði sitt fyrsta og eina
mark í 3–1 tapi gegn Swansea í jan
úar síðastliðnum. Hans fyrsta mark
síðan 25. október 2011. Með mark
inu varð hann sjöundi leikmaður
inn í sögunni til að skora 150 úrvals
deildarmörk.
Tragíska undrabarnið
Saga Owens er um margt tragísk saga
undrabarnsins sem flaug of nærri
sólinni og brann út á fluginu. Langt
fyrir aldur fram, knattspyrnulega séð.
„Eftir að hafa komið upp í gegn
um unglingastarfið hjá Liverpool
og leika minn fyrsta leik með aðal
liðinu 17 ára, leikið með Real Ma
drid, Manchester United og Stoke
City – svo ekki sé minnst á að leika
fyrir þjóð mína 89 sinnum – þá tel ég
að nú sé rétti tíminn til að segja þetta
gott.
Ég hef verið afar gæfusamur að
því leytinu til að ferill minn hefur
tekið mig á ferðalag sem mig hefði
aðeins getað dreymt um líkt og svo
margir ungir leikmenn gera þegar
þeir byrja,“ segir Owen í yfirlýs
ingunni þar sem hann kveður stóra
sviðið. n
Óheppna undrabarnið
n Michael Owen hættir eftir tímabilið n Meiðslum hrjáður markahrókur
Sigurður Mikael Jónsson
blaðamaður skrifar mikael@dv.is
Ferillinn
Ár Félag Leikir Mörk
1996–2004 Liverpool 306 179
2004–2005 Real Madrid 43 19
2005–2009 Newcastle 74 30
2009–2012 Man. Utd 49 17
2012–2013 Stoke City 5 1
HeiMiLd: OpinBer HeiMaSíða MicHaeL Owen
Undrabarn í Liverpool
Owen fagnar hér þrennu gegn
Sheffield Wednesday þann
14. febrúar 1998. Flestir munu
minnast hans fyrir afrek hans
hjá Liverpool. Mynd reUTerS
Ógleymanlegt mark
Owen skorar hér magnað
mark gegn Argentínu í 16
liða úrslitum HM 1998.
Og fagnar innilega með
David Beckham. Mynd reUTerS
Fjögurra ára kvöl Owen var meira eða
minna meiddur hjá Newcastle. Mynd reUTerS