Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2014, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2014, Qupperneq 2
Vikublað 18.–20. febrúar 20142 Fréttir Sagði af sér eftir gróf myndskilaboð n Framkvæmdastjóri leikfélags sendi stelpu Snapchat n Kynferðisbrot annars manns bíða dóms B irkir Thór Högnason, fram- kvæmdastjóri Leikfélags Vestmannaeyja, hefur viðurkennt að hafa sent Snapchat-mynd af getnað- arlim sínum til stúlku undir lögaldri, sem tekið hefur þátt í uppsetning- um leikfélagsins. Hann sagði af sér á fundi með leikfélagsmeðlimum í síðustu viku þar sem hann viður- kenndi brot sitt. Birkir sendi myndina í nóvember og sagði hann af sér í kjölfar sam- tals við blaðamann DV. Félagið er áhugamannaleikhús og taka fyrst og fremst unglingar undir lögaldri þátt í uppsetningum þess. Birkir segist sjálfur vera í sambúð og eiga í ást- arsambandi við aðra stúlku, líka 17 ára, sem hann segist hafa kynnst í leikhúsinu. Sviðsstjóri hjá Barnaverndar- stofu telur þörf á að rannsaka mál- ið. Faðir stúlkunnar sem fékk skila- boðin segist í samtali við DV ekki ætla að kæra málið. Meðan á þessu gengur er beðið eftir niðurstöðu í dómsmáli þar sem annar maður er sakaður um að hafa brotið á ungum stúlkum innan veggja leikfélagsins. „Hún vildi ekkert gera úr þessu“ Faðir stúlkunnar sem fékk myndina senda sagði fyrst við blaðamann DV að um misskilning væri að ræða en eftir að Birkir viðurkenndi brot sitt staðfesti hann að Birkir hefði sent umrædda mynd. Faðir stúlkunn- ar segir þetta leiðindamál og að ósk dóttur sinnar vildi hann ekki gera mál úr myndsendingunni. „Hún hlaut nú engan skaða af þessu. Hún vildi ekkert gera úr þessu,“ segir faðirinn og tekur fram að um ein- angrað tilvik hafi verið að ræða. Sagði málið lið í ófrægingarherferð Framkvæmdastjórinn sagði fyrst, þegar DV hafði samband, að mál- ið væri liður í ófrægingarherferð gegn sér. „Það mál eitt og sér hefur aldrei verið altalað í Eyjum heldur verið rekið áfram af litlum einangr- uðum hópi fólks og er eingöngu liður í áralangri valdabaráttu inn- an félagsins og er til þess gert að reyna að koma höggi á mig og sitj- andi stjórn,“ sagði Birkir í tölvu- pósti til DV. Að hans sögn átti sér stað alvarlegt bókhaldssvikamál sem og eineltismál undir stjórn þeirra sem hann segir nú reyna koma höggi á hann. Athygli vekur að fyrir Héraðs- dómi Suðurlands er nú rekið meint kynferðisbrotamál sem tengist leikfélaginu. Í því máli er meðlim- ur leikfélagsins sakaður um að hafa brotið gegn ungum stúlkum innan veggja félagsins árin 2010 og 2011. Fjórar stelpur áreittar innan leikfélagsins Tryggvi Kr. Ólafsson, lögreglufull- trúi hjá lögreglunni í Vestmanna- eyjum, staðfestir að kynferðisbrot hafi verið rannsökuð sem áttu sér stað innan veggja Leikfélags Vest- mannaeyja. „Þetta er mál sem var tekið fyrir dóm núna í janúar í Hér- aðsdómi Suðurlands. Þetta gerðist 2011 og var kært í byrjun árs 2012 ef ég mann það rétt. Það er ekki kom- in niðurstaða í því en fyrirtaka var um daginn. Það eru engar nýlegar kærur hvað varðar leikfélagið,“ seg- ir Tryggvi. Birkir, segir aðspurður um máls- atvik, að ungur maður leikhússins hafi áreitt fjórar stelpur innan leik- félagsins. Hann hafi verið látinn fara eftir að ein stúlkan greindi honum frá málinu. „Hann var látinn fara úr leikfélaginu, félagsmiðstöðinni og lúðrasveitinni. Ég var vitni í dóms- málinu núna í janúar,“ segir Birkir, fráfarandi framkvæmdastjóri. Hann segir ábendingar um kyn- ferðisbrot hafa verið hundsaðar af því sama fólki og dreifir sögum um hann nú. Sama dag og hann sendi tölvu- póstinn viðurkenndi hann brot sitt og sagði af sér. Á ekki að vinna með unglingum Heimildarmaður DV innan leikfé- lagsins segir að Birkir hafi haldið fund sama kvöld og blaðamaður DV ræddi fyrst við hann. „Það var fundur í gær sem hann kallaði sjálf- ur til, þrjátíu manna fundur. Þar stóð hann upp og viðurkenndi sjálfur að hafa í nóvember síðastliðnum sent óviðeigandi mynd á meðlim leikfé- lagsins, sem var undir aldri. Svo nafngreindi hann aðila sem hann vildi meina að hefði brotið trúnað með því að hringja í DV og gert mál úr þessu og koma óorði á hann,“ segir hann. Birkir hafi viljað gera meira mál úr meintu trúnaðarbroti en eigin framferði. „Menn sem gera svona eiga ekkert að vera að vinna með unglingum,“ segir heimildarmaður- inn. Hann vildi þó leggja áherslu á að innan leikfélagsins færi fram geysigott starf og að slæmt væri að menn eins og Birkir kæmu óorði á félagið. „Ég hef heyrt sögur um að það eigi að fá hann aftur en ég held að við munum flest innan leikfélags- ins sjá til þess að úr því verði ekki,“ segir leikfélagsmeðlimurinn. Segir aldur sambýliskonu notaðan gegn sér Birkir segir þá sem séu óvinveittir sér nýta sér þá staðreynd að sam- býliskona hans sé sautján ára. „Við erum búin að búa sama í hálft ár án nokkurra athugasemda frá ein- um eða neinum. Þetta samband byrjaði ekkert á neinum annarleg- um forsendum. Auðvitað lítur þetta mjög sérstakt út í augum margra að ég sé þrjátíu og hún sautján þegar við byrjum saman. Það er ekki eins og ég hafi pikkað hana upp á einhverju fylleríi,“ segir hann í samtali við DV. Hann segir ástæðuna fyrir því að reynt sé að gera hann tortryggilegan þá að aðilar vilji „reyna að ná aftur völdum í vel stæðu félagi og hylma yfir hörmuleg mistök þess hóps sem aftur vill komast að.“ Unnur Guðgeirsdóttir, formaður leikfélagsins, segir í samtali við DV ekki kannast við neinar deilur innan félagsins. Sambandið á gráu svæði Páll Ólafsson, sviðsstjóri hjá ráð- gjafarsviði Barnaverndarstofu, seg- ir það að sambýliskona Birkis sé sautján ára vera á gráu svæði. Að hans sögn geti það verið lögbrot ef samband þeirra hófst meðan hann var umsjónarmaður hennar í leik- húsinu. Samræðisaldur sé fimmtán ár nema þegar um er að ræða um- sjónarmann barna, þá sé miðað við átján ára aldur. „Þetta er á einhverju gráu svæði, Sagði af sér Birkir Thór Högnason, fram- kvæmdastjóri Leikfélags Vestmannaeyja, sagði af sér eftir að hafa sent klámfenga mynd á sautján ára stúlku. Hjálmar Friðriksson hjalmar@dv.is „Það er ekki eins og ég hafi pikkað hana upp á einhverju fylleríi „Eins og smáhundur“ „Gísli Marteinn var eins og smá- hundur sem geltir skrækum rómi og glefsar í ökkla í viðtalinu við forsætisráðherra,“ skrifaði Ólafur Arnarson hagfræðingur á Facebook-síðu sína en hann, líkt og flestir sem á horfðu, tjáði sig um viðtalið við Sigmund Davíð Gunnlaugsson í þættinum Sunnudagsmorgni á sunnudag. Þó margir hafi stigið fram og hrósað Gísla Marteini fyrir fram- göngu hans í viðtalinu sem var býsna strembið fyrir ýmsar sakir þá hafa framsóknarmenn komið formanni sínum til varnar. Ólafur veltir fyrir sér hvort Gísli Marteinn hafi talið sig vera að flytja skilaboð frá frjálshyggju- armi Sjálfstæðisflokksins. „Sá armur er stundum kenndur við eitt- hvað líflausara en frjálshyggju. Þegar smáhund- ur hamast á ökkla manns end- ar það með því að maður hristir löppina og sparkar kvikindinu af sér. Það gerði forsætisráðherra. Gísli Marteinn getur mun bet- ur en hann gerði í dag. Hann hefur stundum átt góða spretti í sjónvarpi. Ekki í dag. Hann þarf að skýra út hvers vegna hann sýndi umtalaða auðmýkt gagn- vart sínum eigin flokksformann- ni, fjármálaráðherranum, fyrir viku en réðst eins og óður chiu- ahua hundur á forsætisráðherra í dag. Ef hann getur ekki losað sig við flokkspólitíkina ætti hann kannski ekki að stjórna svona þætti á RÚV.“ Eygló boðar breytingar Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, vill ráð- ast í gagngerar kerfisbreytingar til að tryggja börnum og ung- mennum sem glíma við geðrask- anir, fíkniefnavanda eða fjölþætt vandamál viðeigandi úrræði. Eygló hefur af þessum sökum ákveðið að framkvæmdaáætlun í barnavernd verði hluti nýrrar fjölskyldustefnu. Eygló segir flækjustig stofn- anakerfisins eins og það er upp- byggt allt of mikið sem standi þjónustu við þau börn og ung- menni sem hennar þurfa með fyrir þrifum og valdi einnig vanda hjá þeim sem starfa innan kerf- isins. Ráðherra segir umræðu um úrræði, kerfið sjálft og gagn- rýni á það snúast mjög mikið um vanda barma og ungmenna sem eru í neyslu. Mat ráðherrans er að þetta sé oft og tíðum aðeins hluti af vandanum og geti hvort heldur verið afleiðing eða orsök. Geðraskanir, félagsleg vanda- mál, brotin heimili eða erfiðleik- ar í skóla komi oft einnig við sögu og því sé um að ræða fjölþættan vanda. Til að leysa hann þurfi að samþætta vinnuna milli stofnana og félagasamtaka sem gera á með fjölskyldustefnunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.