Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2014, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2014, Síða 3
Fréttir 3Vikublað 18.–20. febrúar 2014 Sagði af sér eftir gróf myndskilaboð n Framkvæmdastjóri leikfélags sendi stelpu Snapchat n Kynferðisbrot annars manns bíða dóms „Menn sem gera svona eiga ekkert að vera að vinna með unglingum. raunar þyrfti einhver hjá lögreglunni eða saksóknara að skoða þetta. Þarna reynir á hvað er hvað. Kynntu- st þau í leikhúsinu? Var hún þar sem barn undir hans verndarvæng sem hann svo misnotar?“ spyr Páll, en Birkir segir sjálfur að þau hafi kynnst í leikhúsinu. „Þetta er ekkert mál“ Unnur Guðgeirsdóttir staðfestir í samtali við DV að Birkir hafi sagt af sér á fundi félagsins og viðurkennt að hafa sent umrædd Snapchat- skilboð. „Þetta mál er ekkert mál. Ég átta mig ekki á þessu. Ég er ekki að skilja þetta. Það að senda svona skilaboð er ekkert mál. Það er fullt af öðrum málum til að skoða. Þið eigið að leita einhvers staðar annars stað- ar að einhverju til að skrifa um,“ seg- ir Unnur. Kristín Jóhannsdóttir, menn- ingarfulltrúi Vestmannaeyja, gerði tilraun til að þagga málið niður. Blaðamaður DV fékk hringingu frá henni stuttu eftir að hann ræddi fyrst við Birki. „Hann Birkir er einn sá mesti prýðisdrengur sem ég hef haft með að gera hér. Það er engin ástæða til að setja þetta mál af stað. Þetta er bara stormur í vatnsglasi,“ segir Kristín. DV ræddi við Kristínu aftur eftir að Birkir sagði af sér og sagði hún þá að myndsendingin hafi ekki ver- ið kærð og væri því ekki lögbrot. „Ég er bara nýbúin að frétta þetta og ég kallaði hann strax fyrir hjá mér þegar ég heyrði þetta. Hann sagði mér hvað hefði komið upp og að hann væri búinn að biðja þá sem málið varðar afsökunar. Hann er bú- inn að viðurkenna að þetta sé „no- good“ framkoma sem kemur ekki fyrir aftur,“ segir Kristín. „Verður einhver að rannsaka málið“ Páll Ólafsson hjá Barnaverndar- stofu telur fulla ástæðu til að myndsending Birkis verði tekin til rannsóknar af réttum aðilum. Hann segir erfitt fyrir sig að meta málið þar sem hann viti ekki öll málsat- riði en miðað við það sem hann hafi heyrt þá hljómi það eins og lögbrot. „Varðandi þessa mynd þá er í hegn- ingarlögum ýmislegt sem tengist þessu. Að særa blygðunarkennd, ef þú ert með klám, það eru ýmsar lagagreinar í 200. kafla sem segja til um svona hegðun. Þetta er þó alltaf matsatriði, en gagnvart barni þá er það spurning hvort þetta sé orðið brot gegn barni hreinlega. Hún er náttúrlega sautján ára og því barn. Þá er spurning hvort að þetta sé eitthvað sem barnavernd þyrfti að skoða,“ segir Páll. Hann segir þó ljóst að þetta sé mjög óviðeigandi framkoma af starfsmanni gagnvart barni. „Ef þetta væri skólastjóri eða kennari sem myndi senda mynd af sér til nemenda þá væri hægt að nota 35. grein barnaverndarlaga sem fjallar um óviðeigandi framkomu starfs- manns. Þá gætu yfirmenn þessa aðila eða yfirvöld hafið rannsókn. Ef þetta er þannig að þetta félag sé hálfrekið af sveitarfélaginu þá verð- ur einhver að rannsaka málið,“ seg- ir Páll. n Leikfélag Vestmannaeyja Deilur skekja félagið og ganga alvar- legar ásakanir á víxl. Er nú beðið eftir niðurstöðu í dómsmáli þar sem maður er ásakaður um að áreita fjórar stúlkur innan veggja félagsins. Flottar kökur í afmælið • Dóra og Diego • Skylanders • Bratz • Spiderman • Star Wars • Hulk • Disney prinsessur • Monster High • Tísku Barbie • Litla hafmeyjan • Strumparnir og margt fleira Skoðið úrvalið! Iðnbúð 2 Garðabæ 565 8070 okkarbakari.is facebook.com/okkarbakarí E ignarhaldið á stærsta hluthafa Vefpressunnar, fyrirtækisins sem heldur úti vefmiðlinun- um Eyjunni og Pressunni, ligg- ur ekki fyrir ef marka má opinberar upplýsingar um það. Stærsti hluthafi félagsins heitir AB11 ehf. Í nýjasta ársreikningi Vef- pressunnar ehf., fyrir árið 2012, kem- ur fram að félagið eigi 64 prósenta hlut í fyrirtækinu. Aðrir hluthafar eru Björn Ingi Hrafnsson, Arnar Ægisson, eignarhaldsfélag sem þeir eru skráð- ir fyrir, og eignarhaldsfélag Róberts Wessmann, Salt Investments. Þegar eignarhaldið á AB11 ehf. er skoðað samkvæmt upplýsingum frá ríkisskattstjóra kemur fram að Vef- pressan á sjálf rúm 14 prósent í fé- laginu en óþekktir hluthafar eiga tæp 86 prósent. Þessar upplýsingar eru frá því í apríl í fyrra. Samkvæmt árs- reikningi AB11 ehf. fyrir árið 2012 átti Björn Ingi Hrafnsson hins vegar 100 prósent í félaginu í lok þess árs. Eignarhaldið á stærsta hluthafa Vef- pressunnar breyttist því á fyrstu fjór- um mánuðum ársins í fyrra. Mið- að við opinberar upplýsingar er hins vegar ekki hægt að sjá hverjir stærstu hluthafarnir eru. Eigendur Vefpressunnar afskrif- uðu 52 milljóna króna lán til félagsins árið 2012 og hefur félagið síðan verið endurfjármagnað. Eignarhaldsfélag- ið AB11 ehf. kom inn sem langstærsti hluthafinn í félaginu árið 2012 og á sama tíma lækkaði hlutafjáreign annarra hluthafa í félaginu verulega og fór Björn Ingi Hrafnsson meðal annars úr 18 prósenta hlut og niður í 10 og Arnar Ægisson úr 14 prósentum og niður í 8 prósent. Hverjir það eru sem standa á bak við þennan stóra hlut AB 11 ehf. í Vefpressunni er hins vegar á huldu. Vefpressan komst í umræðuna um helgina í frægu viðtali Gísla Marteins Baldurssonar við Sigmund Davíð Gunnlaugsson en þar hélt fjöl- miðlamaðurinn því fram að Eyjan birti gjarnan fréttir sem virtust koma úr innstu röðum Framsóknarflokks- ins. Gerði Gísli Marteinn því skóna að svo virtist sem góð tengsl væru á milli miðilsins og Framsóknarflokksins en Björn Ingi er fyrrverandi borgar- fulltrúi flokksins. Ekki náðist í Björn Inga til að bera undir hann orð Gísla Marteins. n ingi@dv.is n Óljóst hverjir eiga stærsta hlutinn í Vefpressunni Ógagnsætt eignarhald

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.