Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2014, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2014, Qupperneq 6
Vikublað 18.–20. febrúar 20146 Fréttir Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Hitablásarar Rafmagnshita- blásari 2Kw 1 fasa 6.990 Rafmagnshita- blásari 3Kw 1 fasa 8.990 Rafmagnshita- blásari 5Kw 3 fasa 12.990 Rafmagnshita- blásari 2Kw 1.890 Rafmagnshitablásari 15Kw 3 fasa 28.890 15 metra rafmagnssnúra 2.995 Rafmagnshitablásari 9Kw 3 fasa 17.990 Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ Akureyri Vestmannaeyjum Fórnarlömb vígbúast Stofnað hefur verið sérstakt mál- sóknarfélag til að sækja skaða- bótamál á hendur Vodafone vegna gagnaleka á vef fjarskipta- fyrirtækisins í nóvember síðast- liðnum. Sem kunnugt er varð vefsíða Vodafone fyrir árás tölvu- þrjóta sem komust yfir og láku á netið gríðarlegu magni persónu- upplýsinga á borð við persónu- leg SMS-skilaboð. Málsóknarfé- lagið er með heilsíðuauglýsingu í Fréttablaðinu í dag þar sem aug- lýst er eftir fólki sem telur sig hafa orðið fyrir tjóni vegna lekans eða telur sig hafa orðið fyrir barðinu á lekanum. Eru þessir einstaklingar hvattir til að sækja um aðild að félaginu sem hefur þann tilgang að höfða dómsmál til að fá bætt tjón félagsmanna. Dómsmálið verður rekið í nafni félagsins og verða nöfn fé- lagsmanna því ekki birt í dóms- niðurstöðu. Hefur félagið ráðið lögmannsstofuna Lögvernd ehf. og Skúla Sveinsson hdl. sem lög- mann félagsins. Félagið virðist til í slaginn því auk þess að vera með heilsíðuauglýsingu í Frétta- blaðinu á mánudaginn í leit að fé- lagsmönnum hefur verið búin til nokkuð yfirgripsmikil heimasíða, malsoknarfelag.is, þar sem allar helstu upplýsingar er að finna. Segir ásakanir fráleitar Vísar ásökunum formanns Samtaka meðlagsgreiðenda á bug I nnheimtustofnun hefur vísað ásökunum Gunnars Kristins Þórðarsonar, formanns Samtaka meðlagsgreiðenda, alfarið á bug. Í helgarblaði DV kom það fram að samtökin hafi lagt fram kæru á hend- ur Innheimtustofnun sveitarfélaga til sérstaks saksóknara, eftir að þeim bárust ársreikningar stofnunarinnar. Gunnar Kristinn sagði að við lestur þeirra hefðu vaknað ýmsar spurn- ingar og að útlit væri fyrir að stofnun- in hefði fengið mun meira fé frá Jöfn- unarsjóði sveitarfélaga en þörf var á. Í kærunni er óskað eftir opinberri rannsókn á því hvort refsiverð hátt- semi hafi átt sér stað í fjársýslu Jöfn- unarsjóðs og Innheimtustofnunar, og að í ársreikningnum séu „alvar- legar bókhaldsskekkjur.“ Ríkisendur- skoðandi hefur nú sent frá sér álit vegna málsins, þar sem þeim spurn- ingum sem m.a. eru lagðar fram í kærunni og birtust á heimasíðu sam- takanna, er svarað. Þar kemur fram að endurskoðandi Innheimtustofn- unar hafi upplýst ríkisendurskoðun um að engin bókhaldsóreiða sé hjá stofnuninni, en það sé hins vegar ekki auðvelt fyrir óvana að lesa ársreikn- inga stofnunarinnar til að fá skýra mynd af starfsemi hennar. Þá kem- ur fram í álitinu að skrif samtakanna á heimasíðu þeirra séu byggð á al- gjörum misskilningi á eðli reiknings- skila stofnunarinnar, og að ekkert óeðlilegt sé að finna í ársreikningum hennar. Samtökin birtu einnig tölvupóst- samskipti við lögfræðing Innheimt- ustofnunar á heimasíðu sinni, en þar kemur fram að stofnunin fagni því að fá að svara fráleitum ásök- unum samtakanna á eðlilegum og faglegum grundvelli hjá sérstökum saksóknara, ef hann kysi að hafa samband vegna kærunnar. n Gunnar Kristinn Innheimtustofnun hefur vísað ásökun- um Gunnars á bug og segir þær fráleitar. Of seinn í vinnu og ók á bíl Ökumaður, sem ók í veg fyrir bifreið á gatnamótum í Grinda- vík um helgina og olli þar með árekstri reyndist vera réttinda- laus að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum. Engin slys urðu á fólki en bifreiðirnar skemmd- ust töluvert. Umferðin gekk erfiðlega í umdæminu þessa helgi, en þar urðu þrjú um- ferðaróhöpp til viðbótar, þar af tveir árekstrar. Engin slys urðu á fólki, en talsvert tjón á bifreið- um. Þá ók ökumaður af vett- vangi eftir að hafa ekið á kyrr- stæða og mannlausa bifreið. Lögregla hafði fljótlega upp á honum, en hann kvaðst þá hafa verið að flýta sér til vinnu. Hann verður kærður fyrir að hafa ekki tilkynnt um óhappið. M ikill viðbúnaður var á Keflavíkurflugvelli í síðustu viku þegar þjónustuveri WOW Air barst tilkynning um að sprengja væri um borð í flugvél flugfélagsins sem var á leið frá Gatwick í London. Það voru þó ekki sprengjusérfræðingar Land- helgisgæslunnar sem fóru fyrstir inn í farangursrými flugvélarinnar til þess að framkvæma sprengjuleit heldur voru tveir flugvallarstarfsmenn send- ir til þess að ná í töskurnar. Á meðan beið lögregla, slökkvilið, sérsveit ríkis lögreglustjóra og sprengjusér- fræðingar Landhelgisgæslunnar fyrir utan flugvélina. Skipað að tæma vélina Tveir starfsmenn Airport Associates á Keflavíkurflugvelli voru sendir að vélinni þegar hún lenti. Þeir keyrðu upp að henni búnað sem þeir héldu að viðbragðsaðilar myndu nota. Það kom þeim því á óvart þegar sérsveit- armenn ríkislögreglustjóra skipuðu þeim að tæma vélina. En það kom ekki bara þeim á óvart heldur líka yfirmönnum þeirra sem vissu ekki að starfsmenn fyrirtækisins hefðu verið sendir inn í vélina. Sigþór Kristinn Skúlason, fram- kvæmdastjóri Airport Associates, er mjög ósáttur við verklagið og þá stað- reynd að starfsmönnum hans hafi verið skipað að afferma vélina. „Já, ég er ósáttur. Við erum ekki til- búnir að setja okkar menn í hættu að nokkru leyti og við gerum þá kröfu í kjölfar þessa atviks að lögregluyfir- völd, sem eru við stjórnvölinn þegar svona kemur upp, höndli þessi mál betur.“ „Við hefðum aldrei gefið leyfi“ „Þá skal það líka tryggt að starfsmönn- um og almennum borgurum sé ekki blandað inn í svona aðgerð, annað- hvort er um sprengjuhótun að ræða og vettvangur meðhöndlaður sem slíkur eða ekki. Í mínum huga er ekk- ert þarna á milli. Það er stóri lær- dómurinn sem þarf að draga af þessu atviki,“ segir Sigþór Kristinn og tek- ur fram að allir málsaðilar séu að vinna saman að betra verklagi í kjöl- far atviksins. Þá segir hann einnig að starfsmönnum sínum hafi verið boðin áfallahjálp eftir atvikið en þeir hafa nú snúið aftur til vinnu. Samskiptaleysi Atvikið er allt hið furðulegasta en við- bragðsaðilar hafa fundað um málið. Samskiptaleysi er sögð ástæðan fyrir þessari undarlegu uppákomu en samkvæmt heimildum DV voru það starfsmenn ríkislögreglustjóra sem tóku stjórn á vettvangi með fyrr- greindum afleiðingum. Mikil reiði ríkir meðal flugvallar- starfsmanna vegna málsins en svo virðist sem þeir hafi ekki verið látnir vita að starfsmenn ríkislögreglustjóra mætu sprengjuhótunina sem óraun- verulega hættu og að þeir hafi verið komnir á slóð þess sem hringdi hinn gabbið. Málið minnir á lásasmiðinn Starfsmönnum Airport Associates var boðið á fund með viðbragðsaðilum til þess að fara yfir málið. Þar voru þeir beðnir afsökunar á því hvernig fór en eftir því sem DV kemst næst munu all- ir hlutaðeigandi hittast aftur með það fyrir augum að komið verði í veg fyrir að svona uppákoma eigi sér stað aftur. „Sú vinna er nú í fullum gangi,“ segir Sigþór Kristinn. Atvikið er þó ekki bara furðulegt heldur grafalvarlegt og þykir óneitan- lega svipa til þess máls þegar lása- smiður var sendur, óvarinn, til þess að opna íbúð í Hraunbæ í Reykjavík þar sem umsátursástand ríkti. Þar var sérsveit ríkislögreglustjóra líka með stjórn á vettvangi. Haft var samband við lögreglu- stjórann á Suðurnesjum vegna máls- ins en þar fengust þær upplýsingar að sá sem með málið færi væri ekki við. n Óbreyttir starfsmenn sendir í sprengjuleit n Sprengjuhótun á Keflavíkurflugvelli n Mjög ósáttur við verklagið Atli Már Gylfason atli@dv.is Sprengjuhótun Um það bil 150 farþegar voru um borð í vélinni sem var að koma frá Gatwick. Mynd AirplAne-pictureS.net Sérsveit ríkislögreglustjóra Skipuðu flugvallarstarfsmönnum að afferma vélina. Mynd róbert reyniSSon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.