Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2014, Page 7
Tilkynning um undirbúning
HÓPMÁLSÓKNAR
Málsóknarfélagið heitir:
Málsóknarfélag vegna leka af vef Vodafone þann
30. nóvember 2013
Félagið hefur þann tilgang að höfða dómsmál til að fá bætt tjón félagsmanna
vegna leka af vef Vodafone þann 30. nóvember 2013. Dómsmál skal félagið
reka í eigin nafni fyrir hönd félagsmanna og í umboði þeirra.
Málsóknarfélagið hefur ráðið lögmannsstofuna Lögvernd ehf. og Skúla Sveinsson
hdl. sem lögmann félagsins og til að annast fyrirhugaðan málarekstur á hendur
Vodafone.
Málsóknarfélagið hefur látið rita lögfræðilega álistgerð vegna lekans. Tilgangur
álitsgerðarinnar er að varpa ljósi á hvort Vodafone beri skaðabótaábyrgð á tjóni
vegna lekans þann 30. nóvember 2013. Álitsgerðin stendur umsækjendum og
félagsmönnum til boða til að gera þeim kleift að meta réttarstöðu sína.
Allir þeir sem telja sig hafa orðið fyrir tjóni vegna lekans eða hafa ástæðu til að
ætla að gögn um þá hafi lekið út af vef Vodafone þann 30. nóvember 2013 eru
hvattir til að sækja um aðild að málsóknarfélaginu.
Vefsíða málsóknarfélagsins er: www.malsoknarfelag.is
Allar nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu félagsins, þar með talin
umsóknareyðublöð.
á hendur Vodafone (Fjarskiptum hf., kt. 470905-1740) vegna
upplýsingaleka af vef félagsins þann 30. nóvember 2013.
Þann 14. febrúar 2014 var stofnað, á grundvelli 19. gr. a. laga
um meðferð einkamála nr. 19/1991, málsóknarfélag til að
sækja sameiginlega skaðabætur á hendur Vodafone vegna
upplýsingaleka af vef félagsins þann 30. nóvember 2013.