Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2014, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2014, Blaðsíða 7
Tilkynning um undirbúning HÓPMÁLSÓKNAR Málsóknarfélagið heitir: Málsóknarfélag vegna leka af vef Vodafone þann 30. nóvember 2013 Félagið hefur þann tilgang að höfða dómsmál til að fá bætt tjón félagsmanna vegna leka af vef Vodafone þann 30. nóvember 2013. Dómsmál skal félagið reka í eigin nafni fyrir hönd félagsmanna og í umboði þeirra. Málsóknarfélagið hefur ráðið lögmannsstofuna Lögvernd ehf. og Skúla Sveinsson hdl. sem lögmann félagsins og til að annast fyrirhugaðan málarekstur á hendur Vodafone. Málsóknarfélagið hefur látið rita lögfræðilega álistgerð vegna lekans. Tilgangur álitsgerðarinnar er að varpa ljósi á hvort Vodafone beri skaðabótaábyrgð á tjóni vegna lekans þann 30. nóvember 2013. Álitsgerðin stendur umsækjendum og félagsmönnum til boða til að gera þeim kleift að meta réttarstöðu sína. Allir þeir sem telja sig hafa orðið fyrir tjóni vegna lekans eða hafa ástæðu til að ætla að gögn um þá hafi lekið út af vef Vodafone þann 30. nóvember 2013 eru hvattir til að sækja um aðild að málsóknarfélaginu. Vefsíða málsóknarfélagsins er: www.malsoknarfelag.is Allar nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu félagsins, þar með talin umsóknareyðublöð. á hendur Vodafone (Fjarskiptum hf., kt. 470905-1740) vegna upplýsingaleka af vef félagsins þann 30. nóvember 2013. Þann 14. febrúar 2014 var stofnað, á grundvelli 19. gr. a. laga um meðferð einkamála nr. 19/1991, málsóknarfélag til að sækja sameiginlega skaðabætur á hendur Vodafone vegna upplýsingaleka af vef félagsins þann 30. nóvember 2013.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.