Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2014, Blaðsíða 8
Vikublað 18.–20. febrúar 20148 Fréttir
14. mars 2012
Elmax ehf. gegn Kára
Gerði kröfu um 1,1 milljón króna
vegna raflagna
Kári fól Elmax ehf. að athuga hvort allar
lagnaleiðir fyrir rafmagn væru opnar og
óskemmdar í húsinu við Fagraþing. Félagið
gaf út tvo reikninga sem Kári taldi of háa
og mótmælti hann þeim. Sagði hann enn
fremur að ágallar væru á verkinu, draga
hefði þurft aftur meirihluta röra fyrir raf-
lagnir þar sem verktakinn hafi ekki merkt
þær skilmerkilega.
Kári greiddi rafvirkjunum 310 þúsund
krónur fyrir verkið, og byggði þá greiðslu á
álitsgerð matstæknis sem hann lagði fyrir
dóminn. Matsgerðinni var hafnað fyrir dómi
þar sem ósannað var að samkomulag hafi
verið gert á milli verktakans og hans um að
notast við álit matsmanna við verðlagningu.
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi
hann til að greiða 1,1 milljón króna. Kári
áfrýjaði til Hæstaréttar sem ómerkti dóm-
inn á þeim forsendum að héraðsdómur
hefði átt að kalla til sérfróða meðdóms-
menn, sem gætu lagt mat á staðreyndir
í málinu. Það er því aftur til meðferðar í
Héraðsdómi Reykjavíkur.
25. janúar 2012
Fonsi ehf. gegn Kára
Gerði kröfu um 10,7 milljónir
vegna steypu
Fonsi efh. gerði kröfu um að Kári greiddi
10,7 milljónir króna vegna vangreiddra
reikninga. Fonsi ehf. var fengið til að steypa
húsið í Fagraþingi en Kári sagðist hafa
sest niður með verktakanum og rætt verð
fyrirfram. Eftir að reikningar hafi borist
taldi hann upphæðirnar of háar.
Fyrir dómi var meðal annars deilt um
ágalla á verkinu og það hvernig verkið hafi
dregist. Framkvæmdirnar töfðust meðal
annars vegna þess að teikningar höfðu ekki
borist á réttum tíma. Dómurinn féllst á að
í einhverjum tilfellum hafi tekist að sýna
fram á ágalla. En Héraðsdómur Reykjavíkur
varð að mestu leyti við kröfum Fonsa ehf.;
Kári var dæmdur til að greiða félaginu 8,7
milljónir króna. Þá þarf hann einnig að
greiða 700 þúsund krónur í málskostnað.
19. júní 2009
Hreinsibílar ehf. gegn Kára
Vildi fá greiddar 96 þúsund krónur
Hreinsibílar ehf. reyndi að sækja tæplega
hundrað þúsund króna reikning til Kára
fyrir dómstólum. Félagið sérhæfir sig í
hreinsun, viðhaldi og endurgerð lagna án
uppgraftar og býður upp á myndbands-
tökubíla með búnaði til að skoða lagnir
áður en farið er út í viðgerðir.
Verktakinn sá um að hreinsa rotþrót
við sumarbústað Kára í Skorradal. Félagið
sendi Kára reikning í júlí 2008 sem hann
greiddi. Síðan fékk hann annan reikning
í september sama ár og þann reikning
vildi hann ekki greiða og sagði kröfuna
tilhæfulausa með öllu. Taldi hann líklegt að
verið væri að rukka fyrir sama verk tvisvar. Á
reikninginn vantaði staðfestingu verkkaupa
og því var hann sýknaður af kröfu fyrir-
tækisins. Var Hreinsibílum gert að greiða
málskostnað Kára, 96 þúsund krónur.
n Viðskipti við lögmenn og verktaka fyrir dóm n „Snýst ekki um peninga“
F
yrir mér er þetta ekki spurning
um peninga, heldur er þetta
spurning um heiður. Að menn
standi við það sem þeir semja
um. Það hefði verið miklu ein
faldara og miklu ódýrara fyrir mig að
greiða þetta bara. En þá hefði mér ein
hvern veginn fundist eins og ég hefði
tapað leiknum,“ segir Kári Stefánsson,
forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar,
um dómsmál sem hann höfðar nú
gegn Karli Axelssyni, lögmanni og
dósent við Háskóla Íslands.
Karl tekur að sér mál fyrir lög
mannsstofu Lex og er einn eigenda
stofunnar. Kári hefur stefnt bæði
lögmannsstofunni og Karli sjálfum
vegna reikninga en Kári telur að hann
hafi verið ofrukkaður fyrir þjónustu
lögmannsstofunnar, í raun sé um
vörusvik að ræða.
„Þetta er ekki stórmál“
Þetta er ekki eina dómsmálið sem
Kári hefur staðið í að undanförnu því
nýlega greindi Viðskiptablaðið frá því
að nær allir verktakar sem hafi unnið
fyrir hann við byggingu húss hans við
Fagraþing í Kópavogi hafi stefnt hon
um. Í samtali við DV segir Kári að í
ýmsum stéttum þyki það sniðugt að
rukka efnaðri menn meira fyrir þjón
ustu. „Eins og ég segi, fyrir mér snýst
þetta ekki um peninga.“
Þrjú mál gegn Kára eru á dóma
skrá dómstólanna. Þar að auki eru
málin tvö sem Kári höfðar gegn Lex
og Karli, auk annarra sem ekki hefur
verið dæmt í.
„Pirringsmál“
Kári segir málin alls ekki persónuleg.
„Ég ber engan kala til þessara manna.
Þetta eru fínir menn, en þetta er bara
spurning um mismunandi skilning á
þeim samningum sem menn gera sín
á milli og til þess höfum við dómstóla,
til þess að skera úr um hluti þegar
menn ná ekki að semja um þá. En
þetta er ekki stórmál, í mínum huga
er þetta miklu frekar svona pirrings
mál heldur nokkuð annað,“ segir Kári
í samtali við DV um málið.
Kári lýsir viðskiptum sínum við Lex
og segir að frá sínum sjónarhóli séð séu
þau einfaldlega vörusvik. Hann sóttist
eftir þjónustu lögmannsstofunnar
vegna máls Fonsa hf. gegn honum árið
2012. „Ég settist niður með Karli Ax
elssyni, á lögmannastofu Lex, sem er í
glæsilegum hýbýlum, skreyttum mjög
fallegum málverkum. Karl hefur mjög
góðan orðstír sem lögmaður. Einn af
þungavigtarmönnum í íslenskri lög
fræði og fyrrverandi hjúkrunarfræði
nemi. Með honum var ungur maður,
sem mér skilst að sé mun betri píanó
leikari heldur en Karl, en ungur mað
ur sem ég hafði aldrei heyrt getið áður.
Ég spyr hvað hann sé að gera hérna og
Karl segir: „Hann ætlar að aðstoða mig
pínulítið“,“ segir Kári.
Vildi Porsche en fékk Trabant
Lex vann í kjölfarið greinargerð um
málið fyrir Kára. „Nú maður bíður og
bíður og það er búin til greinargerð um
málið og ég fæ sendan reikning upp á
þrjár milljónir króna, 160 klukkutím
ar í vinnu, og af þessum tímum voru
yfir 150 skráðir á þennan unga mann,
sem ég hafði ekki ráðið til þess að verja
mig,“ segir Kári. „Ég hafði ráðið Karl
Axelsson af því að hann er þungavigt
armaður í lögfræði, og þess vegna fór
ég til hans. Ekki til þess að fá ungan
óreyndan mann til að verja mig.“
„Ég hringdi í Karl og sagði í fyrsta
lagi að mér fyndust þetta ansi margir
klukkutímar, og hann sagði jú, honum
fyndist þetta vera svona fjórum sinn
um meira heldur en eðlilegt væri með
svona greinargerð,“ segir Kári. „Síðan
nokkrum dögum seinna sagði Karl
mér að hann væri hættur að flytja mál
í héraði þannig að þessi ungi mað
ur yrði að flytja það. Þannig að fyrir
mér er þetta eins og ég hefði pantað
Porsche, hefði greitt fjórum sinnum
markaðsverð fyrir hann og þegar ég
færi að ná í hann þá hefði ég fengið
Trabant. Þannig að ég lít á þetta sem
vörusvik.“
Telur að um ólögleg
samningsslit sé að ræða
Þá segir Kári að málið sé einnig
höfðað vegna þess að Karl hafi slitið
samningum við hann: „Það sem
meira er, að Karl sagði sig síðan frá
málinu, sleit samningnum við mig,
á fyrirvaralausan og að ég held ólög
legan hátt,“ segir Kári. „Þannig að
þetta mál er ekki svo að Karl hafi
unnið fyrir mig vinnu sem ég hafi
neitað að borga fyrir, heldur vann
Karl ekki vinnu fyrir mig og ætlast til
þess að ég greiði einhverjum öðrum
manni laun sem ég vildi ekkert hafa
með að gera, fyrir að vinna þá vinnu.
Þannig horfir málið frá mínum
bæjar dyrum séð.“
Tók veð í húsinu
Vegna þessa máls fékk lögmanns
stofan því framgengt að hún fengi veð
í húsi Kára, eftir að úrskurðarnefnd
lögmála tók ákvörðun um málið og
taldi reikningana eðlilega. Þykir Kára
undarlegt að úrskurðarnefndin – sem
hann segir vera stéttarfélag lögmanna
– geti tekið ákvörðun um svona hluti.
„Hún tók náttúrlega afstöðu með
sínum manni,“ segir Kári. „Það er
gjörsamlega fyrir neðan allar hellur
að stéttarfélag mannsins, ef það kveð
ur upp úrskurð þá hefur það svona
einhvers konar vigt dómstóls.“
Málin gegni Karli og Lex eru nú
fyrir dómstólum en fyrirtaka var í
málinu gegn Karli á föstudaginn
síðast liðinn. n
„Þennan mann
verður að stoppa“
Framkvæmdastjóri Fonsa beryrtur
Ekki líta allir á dómsmálin sömu augum. Í
samtali við DV á sínum tíma sagði Sigur-
finnur Sigurjónsson, framkvæmdastjóri
Fonsa ehf., að Kári skilji menn „eftir í sár-
um“. „Ég segi bara þennan mann verður
að stoppa,“ sagði Sigurfinnur.
Alls höfðu fimm byggingarstjórar
yfir byggingu á húsi Kára við Fagraþing
hrökklast úr starfi á undan Sigurfinni.
Sagði hann Kára gera skrautlegar kröfur.
„Ég held að það kæmist nálægt því, að
ef það yrði fallist á allar hans kröfur,
dagsektarkröfur, kröfur vegna galla og
allar aðrar kröfur sem hann setur fram,
sem eru vægast sagt skrautlegar, þá væri
hann búinn að fá fyrir öllum kostnaði
hússins og rúmlega það.“
Taldi Sigurfinnur að Kári væri sá sem
væri að valda deilum í sínum viðskiptum.
„Það er alveg ljóst að það er ekki það að
Kári hafi verið svona ótrúlega óheppinn
með iðnaðarmenn.“
Þessir dómar hafa fallið
Mýmörg
dómsmál Kára
„Fyrir mér er þetta
eins og ég hefði
pantað Porsche, hefði
greitt fjórum sinnum
markaðsverð fyrir hann
og þegar ég færi að ná í
hann þá hefði ég fengið
Trabant.
„Ég ber
engan
kala til þessara
manna. Þetta
eru fínir menn.
Spurning um heiður Kári
Stefánsson segir að dómsmálin
snúist ekki um peninga. Einfaldara
og ódýrara hefði verið fyrir hann
að greiða einfaldlega reikningana.
„Fyrir mér er þetta ekki spurning
um peninga, heldur er þetta spurn-
ing um heiður.“ Mynd SigTryggur Ari
Símon Örn reynisson
simon@dv.is