Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2014, Page 11
Vikublað 18.–20. febrúar 2014 Fréttir 11
virkir í athugasemdum
n Fólkið á bak við skjáinn sem lætur ekkert fram hjá sér fara n Nauðsynlegt að geta tjáð sig um málefni líðandi stundar n Frægir láta ekki sitt eftir liggja
Nafn: Friðgeir Sveinsson
Aldur: 40 ára
Starf: Fiskvinnsla
Búseta: Reykjavík
É
g reyni að vera málefnalegur í
staðinn fyrir að vera með skít-
kast,“ segir Friðgeir Sveins-
son í samtali við DV, en hann
skrifar reglulega athugasemdir á
vef DV. En hvenær heimsækir Frið-
geir helst vefinn?
„Ég er vinnandi allan sólar-
hringinn þannig að það er upp
og ofan hvenær það er,“ útskýrir
hann. „Þegar ég næ að setjast nið-
ur með kaffibollann og eða fæ mér
matarbita þá renni ég yfir miðlana.
Ég geri það yfirleitt í símanum,“ en
Friðgeir skilur eftir athugasemdir
þegar hann telur að þurfi að leið-
rétta blaðamann eða þegar „upp-
hrópunarkórinn er að missa sig í
einhverri þvælu. Upphrópunar-
kórinn talar út frá tilfinningum, en
ekki staðreyndum.“
Friðgeir segist vanda til verka
þegar hann skrifar athugasemd
og reyna að vera kurteis. „Mark-
miðið með skrifunum er leið-
rétting á ófaglegri umfjöllun
blaðamanns eða að þagga niður í
upphrópunarkórnum. Mér hefur
verið hótað lögsóknum, meiðyrða-
málum og öllu mögulegu fyrir að
benda á augljósar staðreyndir.“
Mannréttindi eru stór ástæða
þess að Friðgeir tekur þátt í um-
ræðum á veraldarvefnum. Honum
er mikið í mun að einstaklingur-
inn sé virtur og að réttindi séu fyr-
ir alla, en ekki suma.
„Upplýst umræða
þykir mér afskaplega
skemmtileg.“
Friðgeir er
óskólagenginn og
hefur unnið eins og skepna alla
sína hunds- og kattartíð. „Ég tek
virkan þátt í atvinnulífi og upp-
byggingu á grunnatvinnugrein
þjóðarinnar, fiskvinnslu,“ segir
Friðgeir. Þar hefur hann í nógu að
snúast og kemur að öllum verkefn-
um sem þarf að vinna.
„Ég hef gætt þess að nota ekki
alhæfingar og legg hlutina fram
sem mínar skoðanir,“ segir Friðge-
ir. „Ég passa mig á því að gæta hófs
og spyrja frekar áleitinna spurn-
inga með vísun í staðreyndir,
frekar en að skjóta einhverju fram.
Það er hin upplýsta umræða.“
Nafn: Einar Steingrímsson
Aldur: 58 ára
Starf: Rannsóknir og kennsla
Búseta: Skotland
A
f því mig langar til þess. Af
hverju mig langar til þess er
ég ekkert viss um að ég viti.
En ég sé lítinn mun á þessari
umræðu og því að taka þátt í sam-
ræðum við fólk í fermingarveislu,“
segir Einar Steingrímsson, spurður
hvers vegna hann taki þátt í umræð-
um á athugasemdakerfum sem hann
tekur virkan þátt í og segir mikil-
væga.
„Samfélagið breytist varla án
mikillar umræðu og þau eru mý-
mörg dæmin þar sem umræðan
virðist beinlínis hafa breytt viðhorf-
um til hins betra, svo sem í jafn-
réttismálum, stöðu samkynhneigðra
og nú síðast varðandi refsistefnuna í
fíkniefnamálum,“ segir hann.
„Umræðan í athugasemda-
kerfum hefur varla minni áhrif á
afstöðu almennings en önnur um-
ræða. Ég held að fíkniefnastefn-
an sé gleggsta dæmið um það, því
ég man ekki til að hafa séð mikið
fjallað um hana af fjölmiðlum al-
mennt, hvað þá af valdafólki, fyrr en
alveg upp á síðkastið, en þessi um-
ræða hefur verið talsvert áberandi í
athugasemdakerfum og á Facebook
í langan tíma.“
Einar segist helst tjá sig um yfir-
gang yfirvalda í garð borgaranna.
„Yfirgang yfirvalda og virðingar-
leysi þeirra fyrir réttindum borgar-
anna, til dæmis í málefnum flótta-
manna og í ýmissi framgöngu
lögreglu. Skeytingarleysi yfirvalda
gagnvart hagsmunum almennings,
í þágu auð- og valdaklíkna landsins.
Spillinguna og fúskið sem gegnsýr-
ir stjórnsýsluna, samtryggingu fjór-/
fimmflokksins fyrir eigin völdum
gegn hagsmunum almennings. Og
svo ruglið í háskólunum sem þykjast
ætla að verða framúrskarandi á al-
þjóðavettvangi en gera allt þveröfugt
við þá yfirlýstu stefnu.“
En hvað finnst Einari um
umræðuna sem fer fram á
athugasemdakerfunum?
„Hún er eins og önnur umræða
í samfélaginu – hvort sem er í fjöl-
miðlum, á þingi eða öðrum manna-
mótum – bæði
mikið af mjög
góðum hlutum
og mikið af rugli.“
Nafn: Óskar Guðmundsson
Aldur: 39 ára
Starf: Fulltrúi
Búseta: Mosfellsbær
É
g get eiginlega sagt að ég hafi
mikið til þessa notað fólk, mál-
staði og málefni til að æfa rök-
ræðu, rökvísi, málfar, fram-
setningu og þó ekki minnst
sjálfstraust fyrir skoðunum mínum,“
segir Óskar Guðmundsson, spurður
hvers vegna hann taki þátt í umræð-
um á athugasemdakerfum. „Ég bið
allt það ágæta fólk innilegrar afsök-
unar á framferði mínu, hvað ég hafði
frammi í „æðri tilgangi“.“
Óskar segist gjarnan verja sína
eigin sannfæringu á netmiðlunum.
„Ég hef tekið til varna fyrir slæma
sem góða málstaði, sett mig í spor
málstaða, félaga, málefna, persóna
og einstaklinga og reynt með gögn-
um, rökum, böðli og orðum að koma
mínu sjónarhorni fram og skoðað
viðbrögð fólks. Stundum hef ég verið
að verja mína eigin sannfæringu en
oftar en ekki að sjá hvaða varnir eða
sóknir virka þá, sem og hvað fólk vill
heyra og hvað því þykir mikilvægt.
Þannig hef ég öðlast meiri og betri
tilfinningu fyrir því hvað það er sem
fólki finnst þess virði að berjast fyrir.“
En hvað finnst Óskari um um-
ræðuna á athugasemdakerfunum?
„Umræðan er mörg hver bæði
skrýtin og skemmtileg og það er eins
og fólk gleymi því stundum að það
mæli í „opinni málstofu netsins“. Öll
erum við, sem borgarar landsins,
hugsandi einstaklingar með skoðan-
ir. Við höfum þrá fyrir umræðu, um-
hyggju, velferð og þróun okkar sjálfra
sem og samfélags okkar, bæði í nær-
mynd sem og heild. Sjálfstæð skoðun
er jú eins og rassgat. Eitthvað sem
allir hafa en gefur okkur sem einstak-
lingum þó ekki leyfi til þess að skíta
út um allt.“
Óskar segist viss um að umræð-
ur í netheimunum geti breytt sam-
félaginu.
„Umræður og þó helst upplýs-
ingar er menn skiptast á á víðfeðmu
netinu, hvort sem er með tilvitnun-
um eða hlekkjum, eru valdamikið tól
og getur hæglega breytt öllu
frá skoðunum á einstaka
málefni til þess að hreinlega
að „umpóla“ skoðunum
fólks á umhverfinu og sam-
tímanum. Upplýsingar og reynsla
fólks er jú það dýrmætasta sem við
sem samfélag eigum. Upplýsingar
eru jú það sem fólk upplifir frá sínu
sjónarhorni og reynsla lítið annað en
hæfileikinn til að læra af mistökum
sínum og misgjörðum.“
Aðspurður segist Óskar eyða
miklum tíma í að skrifa athugasemd-
ir í netheimunum.
„Verulega miklum, sennilega of
miklum (það finnst konunni minni
allavega). Ég er reyndar þessa dag-
ana að taka meðvitaða ákvörðun um
að skipta um stíl og hætta öllu „trolli“
og reyna að vera meira ég sjálfur,“
segir hann.
„Það má eiginlega segja að ég
sé tilbúinn, enda hef ég undanfar-
in ár unnið og þróað, meðal annars
í umræðu á netinu, örfáar markviss-
ar hugmyndir sem ég hef nú borið á
borð, meðal annars innan verka-
lýðshreyfingarinnar, sem ég tel mig
nú tilbúinn til að kynna og fylgja eft-
ir á stærri vettvangi og er
í þeim tilgangi að bjóða
mig fram til stjórnarsetu
fyrir eitt stóru verkalýðs-
félaganna, VR. Því bið ég.
Almættið gefi mér æðruleysi til að
sætta mig við það sem ég fæ ekki
breytt, kjark til að breyta því sem ég
get breytt og vit til að greina þar á
milli. Ég þakka fyrir mig.“
Þykir upplýst umræða skemmtileg
Eins og hver önnur
samfélagsumræða
Frægir í athugasemdum
Biðst afsökunar á framferði sínu
Þekktir Íslendingar láta ekki
sitt eftir liggja þegar kemur að
því að blanda sér í umræðuna í
athugasemdakerfinu.