Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2014, Síða 13
Fréttir 13Vikublað 18.–20. febrúar 2014
Fæst í apótekum, heilsubúðum, Krónunni og Celsus, Ægisíðu 121
Algjört orku- og næringarskot
„ Með því að taka Lifestream Spirulina og AstaZan
eykst krafturinn yfir daginn í vinnunni og æfingar
seinni part dags eru ekkert mál. Vöðvarnir eru
fljótari að ná sér eftir æfingar. Það að taka auka
Spirulina sem er lífrænt fjölvítamín, fyrir leik
er algjört orku- og næringarskot. Spirulina er
líka frábær vörn gegn kvefi og flensum.“
Steinunn Erla Sigurgeirsdóttir
leikskólakennari og landsliðskona í íshokkí.
lífræn bætiefni fyrir alla - heilsa til framtíðar
TREYSTI Á
LIFESTREAM
BÆTIEFNIN!
Apótek, heilsubúðir, Krónan, Hagkaup, Viðir, N ttó og Fríhöfnin.
Auðmenn Hafnarfjarðar
9 Benedikt Steingrímsson 63 ára
Eignir: 393 milljónir kr.
n Benedikt er húsasmíðameist-
ari og einn eigenda Fjarðarmót
ehf. Maki hans er Kolbrún
Sigurðardóttir. Samkvæmt
þjóðskrá eru þau flutt frá
Hafnarfirði til Búðardals.
1 Hinrik Kristjánsson 59 ára
Eignir: 1.344 milljónir kr.
n Útgerðarmaðurinn Hin-
rik Kristjánsson komst í
fréttirnar fyrir nokkrum
árum þegar hann seldi
kvóta sinn á Flateyri og
flutti til Hafnarfjarðar.
Hann hagnaðist mjög á
þeirri sölu. Hann var og er aðaleig-
andi fiskvinnslunnar Kambs í Hafnarfirði,
þar sem fimmtán manns starfa. Í dag
gerir Hinrik út tvo krókaaflamarksbáta,
Steinunni HF og Kristján HF. Maki Hinriks
er Ingibjörg Kristjánsdóttir.
11 Reynir Eyjólfsson 76 ára
Eignir: 339 milljónir
n Reynir Eyjólfsson,
lyfjafræðingur, starfaði
um árabil hjá lyfja-
fyrirtækinu Actavis
við lyfjaþróun. Hann
er doktor í efnafræði.
„Dugnaður og góð menntun
er það sem hefur skilað mér þessum
árangri. Hann hefur ekki breytt neinu
í mínu lífi, nema þá kannski að hann
hefur fært öryggistilfinningu.“ Rekja má
auð fjölmarga Íslendinga til Actavis og
forvera þess Pharmaco.
12 Guðmunda Inga
Veturliðadóttir 64 ára
Eignir: 363 milljónir kr.
n Guðmunda er
ekkja Þóris Sturlu
Kristjánssonar sem
stofnaði byggingar-
félagið Kristjánssyni,
ásamt bróður sínum,
árið 1970. Þórir lést
fyrr á árinu. Fyrirtækið einbeittir sér að
nýsmíði íbúðarhúsnæðis og á Guðmunda
helmingshlut í því í dag.
13 Bent Scheving
Thorsteinsson 91 árs
Eignir: 348 milljónir kr.
n Bent hefur verið
umsvifamikill í ís-
lensku viðskiptalífi
um áratugaskeið
og hefur hann setið
í stjórnum ýmissa
fyrirtækja. Hann var
meðal annars stærsti hluthafinn í
gamla Verslunarbankanum og átti hlut
í Íslandsbanka. Í seinni tíð hefur hann
helgað sig góðgerðastarfi. Maki hans er
Margaret Scheving Thorsteinsson
14 Magnús Jóhannsson 66 ára
Eignir: 324 milljónir kr.
n Magnús er húsasmiður. Hann er
stofnandi og framkvæmdastjóri FM-hús
ehf., fyrirtækis sem snýr að
byggingu og leigu íbúðar-
og atvinnuhúsnæðis.
Maki hans er Særún
Garðarsdóttir.
15 Finnur Árna-
son 52 ára
Eignir: 321 milljón kr.
n Finnur Árnason er forstjóri Haga og
hefur verið það frá árinu 2005. Hann
hefur hagnast vel á því og var með tæpar
sjötíu milljónir í árslaun árið
2011. Eiginkona hans er
Anna María Urbancic sem
starfar hjá Listasafni
Íslands.
16 Magnús I.
Óskarsson 53 ára
Eignir: 307 milljónir kr.
n Magnús er stofnandi og fram-
kvæmdastjóri hugbúnaðarfyrirtækisins
Calidris ehf. Hann var um tíma fram-
kvæmdastjóri Oz hf. er það var og hét.
Hann er menntaður tölvunarfræðingur
og er kvæntur Signýju Jóhannesdóttur.
17 Halldór Einarsson 74 ára
Eignir: 297 milljónir kr.
n Halldór er húsasmíðameistari og er
kvæntur Unni Ingibjörgu Jónsdóttur. Ekki
er með öllu ljóst hvers vegna þau eru svo
auðug.
18 Pétur Einarsson 57 ára
Eignir: 296 milljónir kr.
n Pétur er sonur Elísabetar Jóhannes-
dóttur Reykdal heitinnar. Faðir hans
er Einar Ísfeld Halldórsson sem lést
árið 1978. Eiginkona Péturs er Guðrún
Harðardóttir.
DV fékk verðlaun
Blaðamenn og ljósmyndarar verðlaunaðir á uppskeruhátíð BÍ
T
veir blaðamenn DV, þeir Jón
Bjarki Magnússon og Jó-
hann Páll Jóhannsson, hlutu
á laugardag verðlaun fyrir
rannsóknarblaðamennsku
ársins 2013. Blaðamannafélag Ís-
lands, BÍ, veitti verðlaunin við hátíð-
lega athöfn í Gerðubergi.
Sýna fram á brotalamir
Í rökstuðningi dómnefndar fyrir
valinu segir að Jón Bjarki og Jóhann
Páll hafi varpað ljósi á aðstæður
fólks hér á landi sem fæstir láta sig
varða. „Þeir leiða lesendur sína inn
í skúmaskotin, gefa röddum hæl-
isleitenda vægi, benda á neikvæð og
niðurlægjandi viðhorf, sýna fram á
brotalamir í kerfinu og síðast en ekki
síst fylgja mörgum þráðum vel eftir.
Með umfjölluninni í heild er vakin
verðskulduð athygli á aðbúnaði og
aðstæðum hælisleitenda á Íslandi
og þá um leið á málaflokki sem hef-
ur vaxið að umfangi í íslensku sam-
félagi síðustu misserin.“
Blaðamennirnir hafa allt frá því
í sumar fjallað með ítarlegum hætti
um málefni hælisleitenda, ekki
síst lekamálið svokallaða, þar sem
persónulegum upplýsingum úr inn-
anríkisráðuneytinu virðist hafa verið
lekið til valinna fjölmiðla.
DV fékk fleiri verðlaun við sama
tilefni því Sigtryggur Ari Jóhanns-
son, ljósmyndari DV, tók fréttamynd
ársins; mynd af Karli Vigni Þor-
steinssyni í lögreglufylgd, en hann
játaði á sig kynferðisbrot snemma á
síðasta ári.
Afhjúpa spillingarmál
Skemmst er að minnast þess að í
könnun sem MMR framkvæmdi í
janúar kom fram að DV er sá fjölmið-
ill sem fólk telur stunda öflugustu
rannsóknarblaðamennskuna. 29,5
prósent nefndu DV en 28,6 prósent
RÚV. Aðrir miðlar komu þar langt á
eftir. Í sömu könnum kom fram að
Íslendingar telja DV líklegasta prent-
miðilinn á Íslandi til að afhjúpa spill-
ingarmál. Raunar munaði heilu 71
prósentustigi á DV og næsta fjölmiðli.
Loks kom fram að DV væri sá
innlendi fjölmiðill sem minnst væri
háður valdablokkum.
Könnunin var gerð í gegnum
netið og voru Íslendingar á aldr-
inum 18 ára og eldri valdir handa-
hófskennt úr hópi álitsgjafa MMR í
úrtakinu.
Verðlaun fyrir umfjöllun ársins
fékk ritstjórn Kastljóss fyrir umfjöll-
un um kynferðisbrotamál. Berg-
ljót Baldursdóttir á RÚV fékk
blaðamannaverðlaun ársins fyrir
umfjöllun um vísindastörf og rann-
sóknir. Stígur Helgason á Fréttablað-
inu tók viðtal ársins, að mati dóm-
nefndar. n
Fréttamynd ársins Sigtryggur Ari, ljósmyndari DV, var verðlaunaður fyrir þessa mynd
af Karli Vigni. Mynd Sigtryggur Ari
Verðlaunablaðamenn Frá vinstri: Bergljót Baldursdóttir, Sigmar Guðmundsson, Helgi Seljan, Jóhannes Kr. Kristjánsson, Jóhann Páll
Jóhannsson, Jón Bjarki Magnússon og Stígur Helgason. Mynd Sigtryggur Ari