Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2014, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2014, Blaðsíða 14
Vikublað 18.–20. febrúar 201414 Fréttir „Aldrei stóðst neitt sem hann sagði“ n Sigurður Kárason er sakaður um hundrað milljóna svik n Vildi vernda dætur sínar H ann sveik mig trekk í trekk,“ sagði vitni fyrir Héraðs- dómi Reykjavíkur á mánu- dag þegar aðalmeðferð í fjársvikamáli lögreglustjór- ans á höfuðborgarsvæðinu gegn Sig- urði Kárasyni fór fram. Viðkomandi greindi frá því hvernig hann lét Sig- urði sparifé sitt í té, alls þrettán millj- ónir króna, og beið eftir ávöxtun sem aldrei barst. „En aldrei stóðst neitt sem hann sagði,“ sagði vitnið. 200 milljónir Sigurður hefur verið ákærður fyrir að svíkja rúmlega hundrað millj- ónir króna af sextán einstakling- um. Brotin sem Sigurður er ákærður fyrir eru flest vegna gjaldeyrisvið- skipta en hann fékk fólk til að leggja inn á reikning sinn fé og skrifa ávís- anir sem hann notaði síðan í eigin þágu. Þá er hann sagður hafa vísvit- andi leynt bágri fjárhagsstöðu sinni. Hin meintu brot voru flest framin á árunum 2006 til 2010. Hann sat í gæsluvarðhaldi vegna málsins um tíma árið 2010 en þau brot sem hann er sakaður um geta varðað allt að sex ára fangelsi. Sagðist hafa sambönd Þrátt fyrir að langt sé um liðið frá meintum brotum Sigurðar voru flest vitnin með samskipti sín við Sigurð á hreinu, þó smáatriði í samskipt- um þeirra væru kannski ekki eins skýr. Lýsingar vitnanna fyrir héraðs- dómi voru margar ótrúlegar. Sam- kvæmt vitnisburði sem fram kom í vitnaleiðslunum í dag tókst Sigurði að svíkja ótrúlega háar upphæðir af einstaklingum. Dæmi eru um að honum hafi verið lagðar til allt frá tveimur milljónum króna og upp í rúmar sextán. Sigurður mun hafa sagt fólki að hann hefði góð sambönd í banka- kerfinu. Hann fékk það til að af- henda sér reiðufé, leggja inn á sig greiðslur og jafnvel skrifa út ávísan- ir. Þegar fólk gekk á hann og heimt- aði endurgreiðslu bað hann fólk oft um að leggja út meiri upphæðir, það myndi liðka fyrir því að hann gæti greitt þeim til baka. Oftar en ekki fékk hann það í gegn ef marka má vitnisburðinn. Það er sameiginlegt með mörg- um þeim vitnum sem komu fyrir dóminn á mánudag að þau gerðu sér grein fyrir sögu Sigurðar, sem hér er rakin til hliðar, varðandi fjármál. Sig- urður virðist af framburði vitnanna að dæma, hafa verið afar trúverðug- ur og ávann sér traust fólksins hratt og örugglega. Í mörgum tilfellum var hann fastagestur á vinnustöðum þeirra og ræddi opinskátt við þau um ábatasöm gjaldeyris viðskipti. Vitnin sögðu flest að Sigurð- ur hefði verið mjög sannfærandi og sögðu hann hafa lofað öllu fögru. Fæst hefði þó staðist á endanum. Svo virðist sem að hluti þeirra sem áttu í viðskiptum við Sigurð hefði fengið endurgreitt að hluta eða öllu leyti þá upphæð sem viðkomandi lögðu fram en fæstir sáu raunveru- lega ávöxtun af peningunum sínum. Alltaf við bjargbrún „Sigurður hafði sérstakt lag á því að vera alltaf við bjargbrúnina, hann sagði að bankinn væri að loka á að hann gæti klárað viðskiptin. Þó mig hefði grunað að ekki væri allt með felldu þá tókst honum að halda þessum samskiptum áfram,“ sagði eitt vitnið. Maðurinn viðurkenndi að hafa þekkt bakgrunn Sigurðar. „En ég lét til leiðast. Ég tel mig hafa ver- ið blekktan og að ég hafi sjálfur gert mistök,“ segir maðurinn. Stóðst ekki „Ég lét til leiðast, lét hann fá spari- fé sem ég átti. Það stóðst aldrei neitt. Svo þegar kom að greiðslu stóðst það ekki. Hann lagði til að ég bætti við peningum og þá yrði ávöxtun- in meiri. En aldrei stóðst neitt sem hann sagði,“ sagði eitt vitnið á mánudag. Sá hinn sami sagðist nokkrum sinnum hafa lánað Sigurði minni fjármuni þar sem Sigurður hefði verið blankur og slegið lán fyr- ir bensíni eða tóbaki. Eitt vitnið lagði ekki fram bótakröfu í málinu. Þegar verjandi spurði hverju sætti svaraði vitnið: „Ég hef ekki efni á því að hafa svona menn eins og ykkur í vinnu.“ Í hópi þeirra sem voru svikn- ir eru meðal annars landsþekktur prestur og bifreiðarverkstæðiseig- andi. Ljóst er að margir þeirra fengu ekki endurgreitt nema að litlu leyti. Einn þeirra sem kom fyrir dóm- inn á mánudag sagðist hafa hitt Sigurð á vinnustað sínum og sagði Sigurð hafa vanið komur sínar þang- að. Sigurður mun hafa fengið hann með sér í gjaldeyrisviðskipti. „Ég byrjaði á því að leggja til lága upp- hæð, sem hann skilaði til baka með ávöxtun. Í kjölfarið afhenti ég hon- um 1.400 þúsund gegn loforði um að fá vikulega til baka ávöxtun auk peninginn sem hann lagði til. Það var ljóst fljótlega að þetta var ekki að ganga eftir,“ sagði viðkomandi og segist í kjölfarið hafa gengið „hressilega“ á Sigurð til þess að fá peningana sína til baka. Hann leit- aði á endanum til sonar síns og fékk hann til að ganga í málið. „Það vildi til að sonur minn þekkir son Sigurð- ar. Hann lýsti því yfir að ef Sigurður myndi ekki greiða þetta til baka myndum við upplýsa son Sigurðar um stöðuna. Það kom smá kraftur í málið og ég náði til baka þessu sem ég lagði til í upphafi,“ sagði vitnið. Engar kvittanir „Mér fannst ég fastur í gildru,“ sagði eitt vitnið fyrir dómi. Sigurður bað vitnið, eins og marga aðra, um meiri peninga. Hann útskýrði þó viðskipt- in ekki nákvæmlega fyrir þeim sem áttu í viðskiptum við hann. Flest- ir virðast hafa skilið að um fléttu væri að ræða og sagðist Sigurður þurfa meira fé til að losa um hina fyrri. Í þessu tilfelli hélt vitnið ná- kvæma dagbók utan um viðskipti sín og Sigurðar. Hann gaf Sigurði þó ekki kvittanir fyrir þeim peningum sem hann afhenti honum. Þeir sem báru vitni á mánudag höfðu sömu sögu að segja að engar kvittanir hafi verið skrifaðar vegna viðskiptanna. Sjaldnast var hægt að rekja samn- inga nema þegar um millifærslur var að ræða. Karaktervitni Einn einstaklingur kom fyrir dóm- inn og átti að bera vitni um karakt- er Sigurðar og var vitni verjanda. Sá sagðist hafa átt í viðskiptum við hann og ætlaði Sigurður að kaupa gull á Grænlandi fyrir manninn, en hann hefur starfað við kaup og sölu á gulli um nokkurt skeið. Eitt- hvað gekk illa hjá Sigurði að komast yfir gullið sagði maðurinn en sagði að auki að hann hefði þó sýnt því skilning. Erfitt væri oft að koma slík- um viðskiptum á. Svo fór að hann óskaði eftir peningunum til baka. Hann fékk þá að einhverju leyti til baka, eða um áttatíu prósent. Bið var eftir restinni sem þó skilaði sér. Saksóknari spurði manninn hvort það gæti verið að hann hefði hót- að Sigurði því að hafa samband við Geira á Goldfinger, Ásgeir Þór Dav- íðsson, til þess að fá peningana til baka. Maðurinn sagði svo ekki vera, en sagðist hafa sagt Sigurði að hann myndi hafa samband við Geira heit- inn. Hann kvaðst þó ekki hafa hót- að Sigurði. Vildi vernda dæturnar Á miðvikudag fer fram munnlegur málflutningur í málinu og í kjölfar- ið mun Sigurður ávarpa dóminn og setja fram yfirlýsingu sína. Sigurður mætti ekki við aðalmeðferðina á mánudag fyrr en undir lok henn- ar. Þá höfðu öll vitni verið leidd fyr- ir dóminn sem komust þann dag og það eina sem Sigurður sagði var að hann ætlaði ekki að gefa skýrslu fyrir dómi. Lögmaður hans boðaði hins vegar að Sigurður ætlaði sér að ávarpa dóminn að loknum munn- legum málflutningi á miðvikudag. Samkvæmt því að fram kemur á vef mbl.is kom fram að dómari sagði það í sjálfu sér gott og blessað að Sigurður ætlaði ekki að tjá sig um sakarefnin, en benti á að honum væri skylt að sitja aðalmeðferðina. Það gerði Sigurður hins vegar ekki nema í mýflugumynd. Sigurður hefur mótmælt því harðlega að þinghaldið sé opið fjöl- miðlum. Verjandi Sigurðar, Björn Ólafur Hallgrímsson, óskaði eftir því í september að þinghaldið yrði lokað. Sagði Björn að dætur Sigurð- ar hefðu liðið mjög fyrir það þegar hann var saksóttur síðast. Því var hafnað og þinghaldið er opið. Sig- urður hefur neitað sök og hafnaði bótakröfum að því að RÚV greindi frá í haust. n Sigurður Kárason var aðeins tvítugur þegar hann byrjaði í rekstri, og sett upp leik- tækjasal í Breiðholti. Hann eignaðist Hótel Borg um þrítugt og hóf rekstur Tívolísins í Hveragerði, sem raunar glímdi alla tíð við rekstrarvanda. Í samtali við DV árið 1988 sagði einn af eigendum Tívolísins, Ólafur Ragnarsson, að Sigurður hefði blekkt hann til samstarfs, meðal annars með því að sýna honum rangan skuldalista. Sigurður hlaut fyrst dóm árið 1989 vegna fjársvika í tengslum við rekstur Hót- els Borgar og Tívolísins. Hann hlaut fimm mánaða skilorðsbundinn dóm fyrir að hafa, ásamt félaga sínum Pálma Magnússyni, haldið eftir vörslufé af launum starfsmanna bæði hótelsins og Tívolísins. Árið 1991 hlaut hann svo annan dóm fyrir fjársvik og var þá dæmdur í sjö mánaða skilorðsbundið fangelsi. Fáir skildu hvaðan Sigurður hafði fengið peninga til þess að kaupa Hótel Borg um miðjan níunda áratug síðustu aldar. Sagði hann í viðtali að leiktækjasalurinn hefði gefið ágætlega af sér og að afgangur af rekstri hans hefði verið nýttur til að fjárfesta. Síðar kom þó í ljós að þetta var ekki satt, því Sigurður var dæmdur í tuttugu mánaða fangelsi fyrir að hafa haft fé af Ásrúnu Einarsdóttur, sem var ekkja Arons Guðbrandssonar, stofnanda Kauphallar- innar. Hann sat þó þann dóm aldrei af sér því svokölluð náðunarnefnd tók mál hans til skoðunar og náðaði hann. Samkvæmt heimildum DV var það mat sálfræðings að Sigurður myndi ekki þola fangelsisvist. Náð- unin er á valdi innanríkisráðherra, sem þá var kallaður dóms- og kirkjumálaráðherra, og forseta Íslands. DV fjallaði ítarlega um málið árið 1997, sem kallað var „Millifærslumálið,“ en rannsókn lögreglu beindist þá að því hvað hefði orðið um peninga sem höfðu verið í dánarbúi Arons. Rannsóknin beindist fljótlega að Sigurði, sem hafði sinnt viðhaldi við hús þeirra hjóna og hélt því áfram eftir andlát hans. Hann aðstoðaði ekkjuna Ásrúnu og „var henni hand- genginn“, eins og segir í einni greininni. Í dómi Hæstaréttar frá árinu 1999 sagði að Sigurður hefði nýtt sér bágindi Ásrúnar til að hafa af henni fé. Hún glímdi við heila- rýrnun og minnisskerðingu, Alzheimers, og var háð Sigurði að nokkru leyti. rognvaldur@dv.is Ásta Sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is „Ég tel mig hafa verið blekktan og að ég hafi sjálfur gert mistök. Fór út bakdyra megin Sigurður stakk sér út bakdyra megin úr dómsal á mánudag. Hann tók á rás þegar ljósmyndari DV nálgaðist hann. Mynd RögnVAlduR MÁR HElgASon Var náðaður Svona er svikasagan

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.