Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2014, Side 19

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2014, Side 19
Vikublað 18.–20. febrúar 2014 Skrýtið 19 Það sem sumir óttast Þ að eru yfir fjögur hund- ruð skráðar fóbíur sem læknar samþykkja. Margir eiga í erfiðleikum með að skilja þessa hræðslu sumra við hluti sem þykja alla jafna ofur- eðlilegir. Þessa hræðslu er oftast hægt að rekja til einhvers áfalls í fortíðinni og venjulega hægt að takast á við hana með hjálp sér- fræðinga. Hér eru nokkrar fóbí- ur sem mörgum þykja vera sér- kennilegar. birgir@dv.is n Yfir fjögur hundruð fóbíur sem læknar samþykkja n Þetta eru þær sérkennilegustu Öndin fylgist með þér Anatidaephobia er hræðslan við að einhvers staðar sé önd að fylgjast með þér. Það skiptir þann engu máli sem haldinn er þessari hræðslu hvar hann er staddur eða hvað hann er að gera, hann er sann- færður um að einhvers staðar sé önd að fylgjast með honum. Tómt bjórglas Ef þú verður órólegur lesandi góður þegar bjórglasið þitt tæmist þá gætir þú verið haldinn Cenosillicaphobíu, ótta við tómt bjórglas. Óttinn við fallegar konur Caligynephobia er óttinn við fallegar konur. Þeir sem haldnir e ru þessum ótta verða and- stuttir í návist fallegra kvenna. Þeir svitna óhóflega og finna fyrir ógleði. Líkt og með flestar fóbíur verður þessi ótti við fallegar konur líklegast til í undirmeðvitundinni vegna áfalls í fortíðinn i sem tengdist fallegri konu. Hræðsla við hræðslu Phobophobia er hræðslan við að vera hræddur við eitthvað. Oftast orsakast þessi hræðsla af einhvers konar áfalli og er nátengd kvíðarösk- un. Það sem gerir þá sem eru haldnir Phobophobiu hrædda við fóbíu er að þeir muna oftast ekki hvað það var sem gerði þá hrædda í upphafi og eru því hræddir við allar fóbíur. Hræðsla við að sýna tilfinningar Cerophobia er óttinn við að gleðjast því eitthvað skelfilegt gæti komið fyrir. Þeir sem eru haldnir þessum ótta bæla oft tilfinningar sem tengjast gleði þegar eitthvað stórfenglegt gerist. Hræðast farsímaleysi Nomophobia er óttinn við að vera án farsíma eða úr farsímasambandi. Þetta hugtak er f engið úr No-Mobile-Phone phobia sem var ð til eftir rannsókn bresku póstþjónustunnar þar sem kannaður var kvíði á meðal farsímanotend a. Þar kom í ljós að 53 prósent farsímanotenda ve rða óróleg ef þau týna farsímanum, ef fars íminn verður rafmagnslaus eða farsímasamband næst ekki. Talan 666 Hexakosioihexekonta- hexaphobia er hræðsla við töluna 666. Hexakosioi- hexekontahexa er latína yfir sexhundruð sextíu og sex. Í Biblíunni er velþekkt að talan 666 er tala dýrsins og oftast tengd við Kölska eða andkrist. Ronald Reagan, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, var haldinn þessari fóbíu ásamt eiginkonu sinni Nancy. Þegar þau yfirgáfu Hvíta húsið árið 1989 og fluttu á heimili sitt í Bel Air- hverfinu í Los Angeles létu þau breyta heimilisfanginu úr 666 St. Cloud Road í 668 St. Cloud Road. Ástarótti Philophobia er óttinn við ástina. Þeir sem eru haldnir þessum ótta eru hræddir við að vera ástfangnir eða verða ástfangnir. Líkt og gengur og gerist tengist þetta einhvers konar áfalli í fortíð-inni tengdu slæmri reynslu af ástarsambandi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.