Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2014, Side 21

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2014, Side 21
Umræða 21Vikublað 18.–20. febrúar 2014 Ég er algjör óhemja Hún er aðalfyrirmyndin í mínu lífi Framboðið náði reyndar litlu flugi Guðrún Dís Emilsdóttir gengst við göllum sínum. – DV Könnun Hvernig stóð for- sætisráðherra sig hjá Gísla Marteini? n Mjög vel n Vel n Illa n Mjög illa 1754 atkvæði 77,7% 13,4% 4,2 % 4,8% Myndin Fjölmenn hátíð Tónlistarhátíðin Sónar Reykjavík fór fram um helgina í Hörpu. Margt fólk var þar samankomið til að hlusta á góða tónlist og skemmta sér. MynD Davíð Þór R eykjavík var á við meðal­ stórt forngrískt borgríki þegar faðir minn flutti hingað árið 1940. Um 40 þúsund íbúar bjuggu þétt, á svæði sem afmarkaðist af Hring­ braut og Snorrabraut, og hér voru, þá sem nú, 15 borgarfulltrúar eins og allar götur síðan 1908. Einn þeirra, borgarstjórinn, var atvinnupólitíkus, en hinir unnu ýmis störf í samfélagi þar sem all­ ir þekktu alla. Aðgengi íbúanna að kjörnum fulltrúum sínum var að þessu leyti gott. Síðan þá hefur íbúafjöldinn þrefaldast og byggðin teygt sig upp á Norðlingaholt og Kjalarnes. Ennþá eru borgarfulltrúarnir 15, flestir Vesturbæingar og all­ ir atvinnupólitíkusar. Þeir hafa skrifstofur í Kvosinni og eru svo uppteknir við að ræða við embætt­ ismenn og hver við annan að lítill tími er fyrir persónuleg samskipti við aðra íbúa. tíu prósenta hagræðing Fyrir síðustu aldamót breytti Ósló stjórnskipulagi sínu þannig að þessu 500.000 manna samfélagi var skipt upp í 22 hverfi. Í hvert þeirra komu þjónustumiðstöðvar, sem virkuðu að mörgu leyti eins og ráðhús. Stór hluti teknanna rann í gegnum jöfnunarsjóð beint til íbúa hverfanna, sem kusu sér 15 manna hverfisráð til að stjórna veigamikl­ um þáttum nærsamfélagsins. Þegar ég hitti ráðamenn í Ósló árið 2009 sögðu þeir mér að þess­ ar stjórnkerfisbreytingar hefðu haft í för með sér 10% hagræðingu, sem einkum mætti þakka því að nærumhverfisstjórn fer betur með fé. Árið 2005 var sett í gang vinna við hverfavæðingu Reykjavíkur­ borgar og fyrirmyndin var ekki síst stjórnskipulagið í Ósló. Settar voru upp sex hverfamiðstöðvar og til stóð að flytja stóran hluta þjón­ ustunnar þangað, en það var ekki gert nema að litlu leyti. Ástæð­ an var andstaða æðstu embættis­ manna og sú staðreynd að sjálf­ stæðismenn, sem voru að mörgu leyti andvígir breytingunum, tóku við stjórn borgarinnar árið 2006. Ekki staðið við gefin fyrirheit Strax voru skipuð fimm manna hverfisráð í tíu hverfi borgarinnar sem alla tíð hafa haft lítil völd og nánast engin fjárráð. Hverfisráðin eru skipuð af flokknum í borgar­ stjórn, án nokkurra kvaða um að viðkomandi búi í hverfinu. Þannig varð tilraun sem gerð var til að auka „dreifstýringu“ á kostnað miðstýringar að óskapn­ aði sem skildi borgina eftir úti í miðri á þar sem kostnaðurinn af dreifstýringunni bættist við út­ bólgna miðstýringu í Borgartúni og Ráðhúsinu. Núverandi meirihluti setti hverfavæðinguna og dreifstýr­ inguna í samstarfssamning sinn en hefur ekki staðið við gefin fyr­ irheit og raunar aukið á miðstýr­ inguna, meðal annars með því að setja nýverið mikla fjármuni í yfir­ stjórn velferðarsviðs í stað þess að styrkja beina þjónustu við íbúana í vanmönnuðum þjónustumið­ stöðvum. Vafalaust er hér ekki síst um kenna undirlægjuhætti meirihlutans, og þá sérstaklega fulltrúa Besta flokksins, gagnvart æðstu embættismönnum borgar­ innar, en embættismönnunum er að sjálfsögðu annt um völd sín. Nú nálgast kosningar. Enn einu sinni þurfa íbúarnir að taka afstöðu til þess hvernig stjórn­ skipulag á að vera í borginni og það þarf að taka af skarið. Beint lýðræði Að færa völdin nær íbúum er ákjósanlegur kostur og með því að færa alla þjónustu sem tilheyr­ ir nærumhverfinu til þjónustu­ miðstöðva, sem að miklu leyti er stjórnað af valdamiklum hverfis­ ráðum, kosnum af íbúum viðkom­ andi hverfa, er því markmiði þjón­ að. Hverfisráðin gætu síðan átt sína fulltrúa í borgarstjórn og hún jafn­ vel mönnuð alfarið af þeim. Fulltrúalýðræðið, þar sem kos­ ið er á fjögurra ára fresti, svarar þó ekki kröfu sem hljómað hefur allt frá tíð Forn­Grikkja um að íbúarn­ ir stjórni með beinu lýðræði. Til þess að svo megi verða þarf bæði auðvelt aðgengi að öllum upplýs­ ingum sem finna má í borgarkerf­ inu og verkfæri til að nýta þær til stjórnunar almennings á borginni. Um þetta verður fjallað í annarri grein. n Miðstýring eða dreifstýring? Þorleifur Gunnlaugsson skrifar Kjallari „Vafalaust er hér ekki síst um kenna undirlægjuhætti meirihlutans. MynD SiGtryGGur ari JóHannSSon 1 „Af hverju kemur faðirinn ekki að sækja börnin sín?“ Dætur Hjördísar Svan og Kims Grams Laursen eru enn hér á landi, þrátt fyrir að foreldrarnir séu báðir í Danmörku. 28.960 hafa lesið 2 Ástríður á von á barni Fjöl-miðlakonan Ástríður Viðarsdóttir á von á sínu fyrsta barni. 25.134 hafa lesið 3 „Gísli Marteinn var eins og smáhundur“ Ólafur Arnarson hagfræðingur tjáði sig um við- talið við Sigmund Davíð Gunnlaugsson. 26.340 hafa lesið 4 „Ekki jafnrétti í mínum augum“ Ívar Örn Hauksson er einstæður tveggja barna faðir og finnst kerfið óréttlátt. 15.852 hafa lesið 5 Bíl handboltastjörnu stolið Sigurður Eggertsson leit- ar að bílnum sínum, sem svarar kallinu „Thunderpussy“ að hans sögn. 9.317 hafa lesið Mest lesið á DV.is valný Lára Jónsdóttir, sonardóttir Bergþóru Árnadóttur, söng á minningartónleikum. – DV adda María Jóhannsdóttir segir Dúkkulísurnar allar hafa ætlað bjóða sig fram til forseta. – DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.