Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2014, Page 23
Umræða Stjórnmál 23Vikublað 18.–20. febrúar 2014
Sandkorn
Hvaða viðtal?
Flestum kom viðtal Gísla Mart
eins Baldurssonar við Sigmund
Davíð Gunnlaugsson forsætis-
ráðherra um helgina nokk-
uð á óvart. Menn greinir á um
hvor hafi verið dónalegur í við-
talinu þó að flestir virðist vera
gáttaðir á framkomu ráðherr-
ans. Umræðan á samfélagsmið-
lunum var óvægin og áberandi
eftir að viðtalið átti sér stað og
fram eftir sunnudeginum. Það
voru þó ekki allir sem veltu við-
talinu fyrir sér. „Hey Facebook,
var eitthvað viðtal eða þannig í
morgun?“ spurði aðstoðarmað-
ur forsætisráðherra, Jóhannes
Þór Skúlason, og bætti svo við:
„Þið eruð hress eins og alltaf
elsku fólk. Ég taldi heila fimm
statusa á facebook í dag sem
fjölluðu ekki um viðtal. þrír
þeirra fjölluðu um morfís.“
Gunnar Axel
bæjarstjóraefnið
Sveitarstjórnarmaðurinn
Gunnar Axel Axelsson vann í
flokksvali Samfylkingarinnar
í Hafnarfirði nokkuð öruggt.
Hann var efstur strax eft-
ir fyrstu tölur og hélt þeirri
forystu þangað til búið var
að telja öll þrjú hundruð at-
kvæðin í valinu.
Hann tókst á
við Margréti
Gauju Magnús
dóttur, sem er
líka bæjarfull-
trúi í Hafnarfirði,
en hún hafnaði í
öðru sætinu. Dúkkulísan Adda
María Jóhannsdóttir kom ný
inn á listann í þriðja sæti. Hún
og Gunnar Axel fengu talsvert
fleiri atkvæði í heild en aðrir
frambjóðendur. Gunnar Axel
fékk 628 atkvæði í eitthvert sæti
á listanum og Adda María 604
atkvæði. Næst á eftir þeim kom
Margrét Gauja með 577 at-
kvæði en svo var það bæjarfull-
trúinn Eyjólfur Sæmundsson
með 448 atkvæði.
Þrítalið
Tilfinningaþrunginn valfund-
ur var hjá Vinstri grænum um
helgina þegar Sóley Tómas dóttir
rétt marði sigur
í baráttunni um
fyrsta sætið.
Einu atkvæði
munaði á henni
og Líf Magneu
dóttur sem skor-
aði oddvitann
á hólm. Telja þurfti atkvæðin
þrisvar sinnum til að staðfesta
niðurstöðu atkvæðagreiðsl-
unnar. Ekki minni læti urðu
þegar beita þurfti kynjakvóta-
reglum til að færa karlmann
upp í þriðja sæti listans en
niðurstöður atkvæðagreiðslu
um listann settu konur í fyrstu
þrjú sætin. Það er breyting frá
flokksvali Vinstri grænna frá
því fyrir alþingiskosningarnar
þegar blaðamaðurinn Ingimar
Karl Helgason fór ekki upp um
sæti vegna kynjakvótareglu þar
sem hann var karl en reglurn-
ar þá leiðréttu bara kynjahalla
gagnvart konum.
S
igmundur Davíð Gunn-
laugsson forsætisráðherra
fullyrti í sjónvarpsviðtali
í Sunnudagsmorgni með
Gísla Marteini um helgina
að nóg væri af tollkvóta á innflutn-
ingi á ostum. Sagði hann kröfu Haga
um að fá niðurfellda verndartolla
á ýmsar gerðir osta sem ekki eru
framleiddir hér setta fram í öðrum
tilgangi en að fá að flytja bara inn
ost. „Getur það ekki verið að þetta
sér liður í því að brjóta þetta kerfi
á bak aftur? Menn hafa farið ýms-
ar aðferðir í því að brjóta þetta á
bak aftur til að geta stýrt markaðn-
um, þeir sem eru að selja matvælin,“
sagði hann.
Lítill hluti af ostaneyslu
„Þeir hafa heilmikla kvóta til að flytja
inn hvaða ost úr hvaða dýri sem þeir
vilja og þeir geta gert það,“ sagði
Sigmundur Davíð í viðtalinu. „Þeir
hefðu ekki einu sinni þurft að sækja
um þetta, þeir hafa nægan kvóta.“
En hvað eru miklir tollkvótar á inn-
flutningi á osti? Árlega seljast um
það bil 5.700 tonn af íslenskum ost-
um hér á landi, samkvæmt upplýs-
ingum frá Samtökum afurðastöðva
í mjólkuriðnaði. Samhliða þessu er
gefinn út tollkvóti sem heimilar inn-
flutning á um 219 tonnum af ostum
frá erlendum ríkjum. Allur annar
innflutningur á ostum ber gríðarháa
verndartolla.
Innflutningskvótarnir eru
ákveðnir í alþjóðasamningum sem
Ísland á aðild að. 119 tonn af ostum
eru flutt inn í tengslum við alþjóð-
legan tollasamning WTO og hund-
rað tonn eru flutt inn frá Evrópu í
tengslum við samning við Evrópu-
sambandið. Af þeim hundrað tonn-
um eru tuttugu tonn ætluð ostum af
ákveðnum svæðum. Samtals nema
tollkvótarnir því um 3,9 prósentum
af heildarsölu á íslenskum ostum.
MS fær kvóta
Samkvæmt auglýsingu atvinnu-
vega- og nýsköpunarráðuneytis-
ins um úthlutun ostakvótans eru
átta fyrirtæki sem geta flutt inn ost
undanþeginn verndartollum núna.
Stærsta kvóta fær Innnes ehf., eða
47,9 tonn. Athygli vekur að Mjólkur-
samsalan, sem er stærsti framleið-
andi á íslenskum mjólkurvörum,
hefur leyfi til að flytja inn um tíu
tonn af osti. Ekki náðist í Mjólkur-
samsöluna til að fá upplýsingar um
hvaða osta fyrirtækið flytur inn. n
Ostakvótinn dugir skammt
Tollkvóti á osta aðeins lítill hluti af heildarsölu osta á Íslandi
Aðalsteinn Kjartansson
adalsteinn@dv.is
„Þeir hefðu ekki
einu sinni þurft að
sækja um þetta, þeir hafa
nægan kvóta.
MynD SIGTryGGur ArI
Fækkuðu sjálfir bankastjórum
F
ramsóknarflokkurinn tók virk-
an þátt í að fækka bankastjór-
um í Seðlabanka Íslands úr
þremur í einn. Málið var af-
greitt á Alþingi í febrúar árið 2009 en
það var minnihlutastjórn Samfylk-
ingar og Vinstri grænna sem lagði
frumvarpið fram en hún sat með
stuðningi Framsóknarflokksins. Nú
er það hins vegar til skoðunar að
fjölga þeim aftur í þrjá. Þingmenn
Framsóknarflokksins greiddu at-
kvæði með fækkun bankastjóranna
þegar það kom til atkvæðagreiðslu
í þinginu. Sjálfstæðismenn sátu hjá
þrátt fyrir að mótmæla ekki fækkun
seðlabankastjóranna sérstaklega.
Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son forsætisráðherra var á þeim tíma
ekki þingmaður og tók þar af leiðandi
ekki þátt í atkvæðagreiðslunni um
málið. Hann var hins vegar formaður
Framsóknarflokksins og var í stöðu
til að hafa talsverð áhrif á stefnu
flokksins. Eyjan.is greindi frá því í
síðustu viku að samkvæmt heimild-
um hefðu stjórnarflokkarnir náð sátt
um að fjölga seðlabankastjórum að
nýju í þrjá. Málið var til umfjöllun-
ar í Sunnudagsmorgni um helgina
en þá vildi Sigmundur ekki stað-
festa annað en að endurskoðun laga
um Seðlabanka Íslands væri í fullum
gangi í stjórnarráðinu.
Einn þeirra sem hafa tjáð sig
um fjölgun seðlabankastjóra er
Jón Sigurðsson, fyrrverandi seðla-
bankastjóri og formaður Fram-
sóknarflokksins. „Fjölgun seðla-
bankastjóra nú hefur þann augljósa
galla að málið blandast beint við
flokkapólitík – alveg eins og var um
síðustu lagabreytingar fyrir fáum
árum. Slíkt er ákaflega óheppilegt
fyrir alla aðila,“ segir hann á blogg-
síðu sinni á Pressunni. „Vera má að
ákvæði í nýjum lögum nú um langan
skipunartíma bankastjóra, t.d. til sjö
ára, gæti komið þar eitthvað á móti,
– þ.e.a.s. ef pólitísku róti um stofnun-
ina linnir þá.“ n
adalsteinn@dv.is
Þingmenn Framsóknar greiddu atkvæði með fækkun
Pólitík? Fyrrver-
andi seðlbankastjóri
óttast að flokkapólitík
blandist í málið verði
ákveðið að fjölga seðla-
bankastjórum núna.
MynD SIGTryGGur ArI
Hundrað mál á þremur mánuðum
Enn bólar ekki á þingmálum stjórnarinnar
Þ
rátt fyrir að 207 mál séu á
þingmálaskrá ríkisstjórn-
arinnar er lítið að gera í
þinginu. Stjórnarandstöðu-
þingmenn kvörtuðu yfir því í síð-
ustu viku að lítið væri að gera fyrir
þá og að tíminn nýttist illa. Á vef
Alþingis er hægt að fylgjast nokk-
uð nákvæmlega með gangi mála
og kemur í ljós við skoðun á gögn-
um þar að 62 mál eru ýmist í þing-
nefndum eða bíða umræðu. Búið
er að samþykkja 41 mál.
Katrín Jakobsdóttir, formaður
Vinstri grænna, gerði þetta að um-
talsefni á þingfundi á fimmtudag
og sagðist óttast holskeflu þing-
mála á síðasta degi. „Mér sýnist
ríkisstjórnin hafa aðeins ætlað
sér um of við gerð þessarar þing-
málaskrár en það þarf líka hugsan-
lega að kanna hvernig fara á með
starfsáætlun Alþingis í ljósi þess
að nefndir eru, að minnsta kosti
margar hverjar, mjög ásetnar með
stór og mikil verkefni,“ sagði hún
og vísaði til þess að enn ættu eft-
ir að koma fram hundrað mál frá
ríkis stjórninni.
Reiknað er með því að fresta
þingfundum Alþingis 16. maí
næstkomandi samkvæmt starfs-
áætlun þingsins. Þrjátíu hefð-
bundnir þingfundir eru eftir þang-
að til, samkvæmt áætluninni. Þar
að auki á eftir að funda í nefnd-
um. Samkvæmt heimildum inn-
an úr stjórnarráðinu er ekki að
vænta allra þessara mála fyrr en í
fyrsta lagi eftir mánaðamót og því
óljóst hversu margir fundir nýt-
ast í að tala um málin. Afgreiða
þarf að jafnaði þrjú til fjögur mál á
hverjum fundi til að hægt verði af
afgreiða öll málin, að því gefnu að
engin fleiri mál komi fram, hvorki
frá stjórninni eða öðrum. n
adalsteinn@dv.is
ræddi málið Katrín
gerði þingmálaskrá
stjórnarinnar að um-
talsefni á þingfundi fyrir
helgi. MynD SIGTryGGur ArI