Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2014, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2014, Side 26
Vikublað 18.–20. febrúar 201426 Lífsstíll n Lilja hætti með eldri dótturina á brjósti eftir 51 mánuð n Með bæði börnin á brjósti í tvö ár Þ að stóð ekki til að vera með hana á brjósti svona lengi en vegna aðstæðna varð þetta svona,“ segir Lilja Helga­ dóttir sem nýlega hætti með dóttur sína, Kolbrúnu Elvi, á brjósti eftir 51 mánuð. Sjálf var Lilja á brjósti til 19 mánaða aldurs og hafði ákveðið að vera með Kolbrúnu Elvi á brjósti í jafn langan tíma. Ekki allt með felldu „Þegar við höfðum náð 19 mánuðum vildi ég ná tveimur árum en þegar von var á Katrínu Lilju vildi ég ekki taka brjóstið af Kolbrúnu Elvi strax. Mér fannst nógu mikil breyting fyrir hana að fá lítið systkini. Þegar Katrín Lilja fæddist kom í ljós að ekki var allt með felldu. Nokkrum dögum eftir fæðingu henn­ ar kom svo í ljós að barnið var mun veikara en læknar höfðu talið,“ segir Lilja en Katrín Lilja dvaldi á sjúkra­ húsi fyrstu sjö mánuði ævi sinnar. Hjálpaði allri fjölskyldunni Lilja vill ekki fara ítarlega í sjúkra­ sögu Katrínar Lilju en segir að sér hafi fundist það eina rétta að halda áfram með Kolbrúnu Elvi á brjósti því það hafi hjálpað Kolbrúnu Elvi að kom­ ast í gegnum þetta erfiða tímabil. „Og auðvitað hjálpaði það svakalega til við að halda mjólkurframleiðslunni í gangi fyrir Katrínu Lilju. Svo að það er hægt að segja að þetta hafi hjálpað allri fjölskyldunni. Mér fannst mjög mikilvægt að barnið fengi móður­ mjólkina og ennþá mikilvægara af því að hún var svo veik. Kolbrún Elvur hjálpaði mér að halda mjólkinni því Katrínu Lilju var lengi haldið sofandi í öndunarvél. Stundum datt mjólk­ in alveg niður, eins og gerðist dagana eftir að Katrín Lilja fór í hjartastopp, en ég var þrjósk og þetta tókst með hjálp mjaltavélar og Kolbrúnar Elvar.“ Barnshafandi með barn á brjósti Í dag er Katrín Lilja rúmlega tveggja ára og líðan hennar mun betri þótt hún sé enn veik. Lilja stefnir á að vera með hana á brjósti í svipaðan tíma og eldri systurina eða í rúmlega fjögur ár. Hún segir ótrúlegasta fólk hafa skoðun á brjóstagjöf hennar en eftir viðtal í DV fyrir rúmum tveimur árum, þar sem fram kom að Lilja væri barnshafandi með barn á brjósti, hafi kommentakerfið sem og umræðan á bland.is orðið gríðarleg. „Ég afritaði að gamni alla umfjöllun um greinina af bland.is og það voru 87 blaðsíður. Flestir voru að hneykslast á mér en á milli tóku aðrar mæður, doulur og ljósmæður upp hanskann fyrir mig, sem mér þótti vænt um. Ég skil bara ekki af hverju einhver á að hafa skoðun á þessu hjá okk­ ur. Brjóstagjöf er eitthvað sem móð­ ir og barn ákveða. Við vorum í gífur­ lega erfiðri stöðu, höfðum eignast langveikt barn sem varð til þess að ég gat ekki verið hjá eldri dótturinni tímunum og upp í vikum saman. Það hjálpaði henni gífurlega mikið að fá þessar stundir hjá mömmu. Hugs­ ið ykkur. Mamma hennar og pabbi þurftu að vera mikið í burtu til að vera á spítalanum hjá litlu systur hennar. Stundum vorum við þar dag og nótt í margar vikur í röð. Þess vegna, og vegna þess að hún hjálpaði til við að halda mjólkurframleiðsl­ unni gangandi, gat ég ekki hugsað mér að taka þetta út.“ Snerti streng í mömmuhjarta Lilja segist hafa trappað brjóstagjöfina hjá Kolbrúnu Elvi hægt niður. „Síð­ asta árið var hún bara kvölds og morgna og svo ákváðum við saman að hún fengi aðeins einu sinni á dag eftir fjögurra ára afmælið. Ef hún fengi að ráða væri hún örugglega enn á brjósti. Það tók nokkra daga að venja hana af. Hún bað mig oft um í fyrstu og það munaði litlu að ég byrj­ aði aftur enda var hún smá sár þegar hún sá mig gefa litlu systur hennar. Hún fór samt aldrei að gráta en það snerti streng í mömmuhjartanu. Hún er bara orðin svo stór að ég gat talað um þetta við hana.“ Fyndin viðbrögð Lilja segist alltaf hafa fengið góðan stuðning frá sínu nánasta fólki. „Fólk­ ið næst mér hefur stutt mig þótt kannski einhver hafi þurft að bíta í tunguna á sér. Ég hef því gefið stelp­ unum brjóst fyrir framan fjölskyldu og vini en ég geri það ekki í sófa í Kringlunni. Ég hef samt aldrei falið þetta og ef einhver spyr mig út í þetta stend ég örugg á mínu. Ég er sannfærð um að ég sé að gera rétt. Það er samt al­ veg ótrúlegt að sjá viðbrögð hjá fólki. Það mætti halda að ég væri með 14 ára dreng á brjósti. Viðbrögðin geta verið fyndin,“ segir Lilja en bætir við að hún hafi einnig fengið ljótar athugasemdir. „Fyrstu mánuðina eft­ ir að Katrín Lilja fæddist fékk ég að heyra að hún væri veik af því að ég hefði verið með barn á brjósti þegar ég var barnshafandi. Það var ekki skemmtilegt að heyra en það þarf ekki að hugsa þetta lengra en til Afríku og ekki eru öll börnin þar langveik. Ég hef rætt þetta við barnalæknir sem sagði mér að næringin færi fyrst til fóstursins, svo til brjóstanna og af­ gangurinn til mín. En svona lagað er ekki gott að heyra þegar maður er ný­ búinn að eignast veikt barn.“ Hjálpaði í erfiðum aðstæðum Lilja samþykkti viðtal í þeirri von að hennar saga verði til þess að fólk dæmi ekki aðra enda séu ávallt ástæður fyrir öllu. „Þetta er búið að vera skrítið ferli og ég hef lært ansi margt. Hver og ein fjölskylda hefur sínar ástæður fyrir þeim ákvörðunum sem hún tekur og mér finnst sorglegt þegar fólk skiptir sér af eða þarf að koma skoðunum sínum um þetta og hitt á framfæri. Auðvitað hafa allir rétt á því að hafa skoðanir en stund­ um eru þessar skoðanir byggðar á fá­ fræði. Fólk mætti stundum lesa sér aðeins til áður en það byrjar að skjóta á aðra. Ekki dettur mér í hug að fara að ræða stjórnmál opinberlega eða á netinu því ég hef hreinlega ekki nægilega þekkingu til þess. Að mínu mati höfðum við augljósar ástæður til að halda brjóstagjöfinni áfram. Þetta hjálpaði okkur í mjög erfiðum aðstæðum,“ segir Lilja sem segist al­ veg gera sér grein fyrir að stundum gangi brjóstagjöf ekki upp. Brjóstið er huggun Aðspurð segir Lilja brjóstagjöfina skapa dýrmæta stund. „Það er þessi stund sem maður á með barninu. Ég finn hvað þær elska mig út af líf­ inu. Svo þegar þær detta og meiða sig vilja þær fá bobbann sinn. Brjóstið er þeirra huggun líka. Þetta er bara náttúran. Okkur er ætlað að gera þetta. Ég veit að ég er ekkert að fara breyta heiminum en ef einhver þarna úti sem langar að vera með barnið sitt lengur á brjósti les þetta viðtal og ákveður að gera það í fram­ haldinu þá er ég sátt. Það er allt í lagi að vera barnshafandi með barn á brjósti og það er líka allt í lagi að vera með barn á brjósti lengur en í sjö mánuði. Jafnvel til fjögurra ára aldurs.“ n Indíana Ása Hreinsdóttir indiana@dv.is Með bobbann sinn Myndin var tekin í september 2011 þegar Lilja var ófrísk að yngri stelpunni. Mynd AnnA douglAS / Stúdíó douglAS Barnshafandi með barn á brjósti Viðtal í DV fyrir tveimur árum þar sem fram kom að Lilja væri barnshafandi með barn á brjósti vakti mikla athygli. Mynd AnnA douglAS / Stúdíó douglAS „Fólkið næst mér hefur stutt mig þótt kannski einhver hafi þurft að bíta í tunguna á sér. Mæðgur Lilja með Kolbrúnu Elvi og Katrínu Lilju. Brjóstagjöfin hjálpaði í erfiðum aðstæðum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.