Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2014, Side 27
Vikublað 18.–20. febrúar 2014 Lífsstíll 27
Hlíðasmári 10, 201, Kópavogi
Sími 568 3868
matarfikn@mfm.is
www.matarfikn.is
Stjórnar át og þyngdarvandi lífi þínu?
Nýtt líf:
5 vikna námskeið fyrir
byrjendur hefst 20.02.14.
Fráhald í forgang:
Framhaldshópur hefst 26.02.14.
n Lilja hætti með eldri dótturina á brjósti eftir 51 mánuð n Með bæði börnin á brjósti í tvö ár
100 daga hamingja
n Taka þátt í hamingjuáskorun n Finna eitthvað á hverjum degi sem gleður þau
M
ér fannst þetta alveg „bil-
aðslega“ heillandi og eigin-
lega hikaði ekki við að taka
þátt. Mér finnst svo ótrúlega
heillandi að sjá hamingjuna
í lífinu sínu á hverjum degi. Og nú eftir
að ég hef tekið þátt, þá virkilega hugs-
ar maður út í það, svo þetta skilar líka
ótrúlega góðum árangri,“ segir Helgi
Ómarsson, ljósmyndari og bloggari,
á Trendnet. Hann er einn þeirra sem
taka þátt í 100 daga hamingjuáskorun
sem fjölmargir taka nú þátt í.
Ein hamingjumynd á dag
Átakið ber nafnið 100 hamingju-
dagar (e.100 happy days) og felur í
sér að finna eitthvað á hverjum degi í
100 daga sem hefur glatt mann þann
daginn, taka af því mynd og merkja
myndina með merkinu #100happyda-
ys og birta myndina á samfélagsmiðl-
um. Flestir styðjast við Instagram,
Facebook eða Twitter í áskoruninni. Á
heimasíðunni 100happydays.com er
farið yfir tilganginn. Þar kemur fram
að ætli fólk að taka þátt þá eigi það að
birta eina mynd á dag af einhverju sem
geri það hamingjusamt. Það geti verið
allt frá því að vera mynd af ljúffengri
kökusneið yfir í mynd af því hvað það
sé gott að vera komin/n heim eftir erf-
iðan dag. Í rauninni er eina reglan
sú að myndin sé af einhverju sem
hafi gert viðkomandi hamingjusam-
a/n þann daginn. Í nútímaþjóðfélagi
er mikið stress í gangi og oft erfitt að
finna tíma til að njóta litlu hlutanna.
100 daga hamingjuáskorunin er því
ágætis leið til þess að gefa litlu hlutun-
um sem gleðja okkur gaum.
Margt sem vekur hamingju
DV ræddi við þrjá sem hafa tekið þátt
í áskoruninni en árangurinn hefur
verið misjafn og greinilega ekki öll-
um sem finnst jafn auðvelt að finna
litlu hlutina sem gleðja á hverjum
degi. Það er í takt við það sem fjallað er
um á síðu átaksins en þar segir að um
71% þeirra sem byrji hætti áður en 100
dagar séu liðnir og flestir beri fyrir sig
tímaleysi. „Mér finnst eitthvað svo fal-
legt við þetta og ákvað þess vegna að
taka þátt,“ segir Theodóra Mjöll Skúla-
dóttir Jack, hárgreiðslukona og rithöf-
undur, en hún hefur tekið þátt í áskor-
uninni í nokkra daga og haft gaman af.
Gleðjast yfir litlu hlutunum
„Ég er nú reyndar bara búin að setja
inn mynd af syni mínum og svo mér
að gleðjast yfir að vera með í þessu,“
segir hún hlæjandi aðspurð hverju
hún hefði tekið myndir af. Theo-
dóra setur sínar myndir á Instagram
og finnst lítið mál að finna eitthvað á
hverjum degi sem gleður hana. „Ég
hugsaði fyrst að það væri örugglega
mjög erfitt að gera þetta í 100 daga en
svo hugsaði ég með mér að vera ham-
ingjusöm í 100 daga er nú ekki mikið.
Það er svo margt sem ég er veitir mér
hamingju,“ segir hún en tekur þó fram
að eitt af því góða við átakið sé að ekki
sé um að ræða einhverja montkeppni
þar sem fólk er að metast um hvað það
sé hamingjusamt. Frekar snúist þetta
um jákvætt viðhorf og að gleðjast yfir
litlu hlutunum sem maður er ánægður
með. „Mér finnst ekkert mál að finna
hluti sem ég er hamingjusöm með
en það er kannski aðeins erfiðara að
opin bera það á Instagram.“
Margt fallegt og jákvætt
Helgi tekur í sama streng – honum
finnst lítið mál að finna eitthvað á
hverjum degi sem gleður hann. „Það
er svo margt fallegt og jákvætt sem
veitir manni orku alls staðar í kringum
mann svo mér hefur ekki enn fundist
erfitt að finna eitthvað til að setja inn
á Instagram.
Tilgangur lífsins er að vera ham-
ingjusamur og finna hamingjuna og
þetta er bara punkturinn yfir i-ið.“
Guðrún Veiga, mannfræðingur
og bloggari, er ekki á sama máli og
þau Helgi og Theodóra. Hún reyndi
við hamingjuáskorunina í fimm daga
en gafst svo upp. „Ég hætti af því mér
finnst þetta yfirborðskennt, kjána-
legt og væmið. Sumt sleppur en yfir
öðru gubba ég einfaldlega. Það er bara
engin hamingja í brauðsneið með osti
eða fallegum ávexti. Bara alls ekki,“
segir Guðrún Veiga. „100 óhamingju-
dagar – það er aftur á móti áskorun
sem ég gæti unnið stórsigur í,“ segir
hún á léttu nótunum. „Eftir fimm daga
þá bugaðist ég undan álaginu. Þetta
var hræðilegt. Ég „panikkaði“ hérna
á kvöldin ef ég var ekki búin að finna
einhverja tryllingslega hamingju yfir
daginn,“ segir hún hlæjandi.
Gubbandi hamingjusamur í lokin
Helgi ætlar sér að reyna halda út alla
dagana en Theodóra segir það ekki
skipta öllu máli hvort maður nái 100
dögum. „Það er mjög líklegt að ég detti
út en það er þá bara allt í lagi. Ég á líka
örugglega eftir að missa nokkra daga
úr en það skiptir ekki öllu. Hamingja
á ekki að vera kvöð heldur á þetta að
vera gaman. Þó maður gleymi einum
degi þá skiptir það ekki máli, maður
heldur bara áfram,“ segir Theodóra.
„Ég ætla að vinna hart að því klára
alla 100 dagana, ég er með bullandi
athyglisbrest svo ég er oft gleyminn
og úti um allt, það gæti kannski bitið
mig í rassinn, ég vona ekki, ég ætla
gera mitt allra besta í að klára þetta
og vera springandi og gubbandi ham-
ingjusamur í lokin!“ segir Helgi í gam-
ansömum tón.
Ekki skilyrði að deila myndunum
Á samskiptasíðum eins og
Instagram, Twitter og Facebook
undir merkinu #100happydays má
finna myndir sem fólk hefur sett
inn og er þar margt spennandi að
sjá. Það er þó ekki skilyrði að deila
myndunum á þennan hátt því
einnig er hægt að senda stjórnend-
um síðunnar myndir en þá birtast
þær hvergi á netinu. n
Tekur þátt Theodóra
Mjöll segir lítið mál að finna
eitthvað á hverjum degi sem
gerir hana hamingjusama.
Gubbandi
hamingjusamur
Helgi hefur gaman
af áskoruninni og
stefnir að því að verða
gubbandi hamingju-
samur í lok hennar.
Gafst upp Guðrún Veiga segist hafa bugast undan álagi við að finna eitthvað sem gleddi
hana á hverjum degi. Hún gafst upp á áskoruninni eftir fimm daga.
Ekki
montkeppni
Samkvæmt heimasíðu áskor-
unarinnar 100happydays.com þá
er þetta ekki keppni í því hver sé
hamingjusamastur eða sýndar-
keppni. Tilgangurinn er að finna
eitthvað á hverjum degi sem gleð-
ur þig og taka mynd af því. Ef sá
sem tekur þátt gerir það til að sýn-
ast fyrir öðrum eða þá til að geðj-
ast öðrum þá misskilur viðkom-
andi tilganginn. Eins ef það er
svindlað með því að birta myndir
af einhverju sem veitti þér ekki
hamingju. Á síðunni segir einnig
að 71% þeirra sem hafi reynt við
áskorunina hafi gefist upp og
sagst ekki hafa tíma fyrir hana.
Hamingja Getur þú tekið mynd af ein-
hverju sem gleður þig á hverjum degi í 100
daga? Mynd skjáskoT/wallpapErswidE.coM
„Það er svo margt
sem ég er ham-
ingjusöm yfir.
Theodóra
Viktoría Hermannsdóttir
viktoria@dv.is