Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2014, Side 31

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2014, Side 31
Vikublað 18.–20. febrúar 2014 Sport 31 Viðsnúningur Liverpool n Breytingin á Liverpool-liðinu síðan í fyrra n Fleiri stungusendingar, tæklingar og eitraðar skyndisóknir Eitraðir Luis Suarez og Daniel Sturridge hafa skorað 39 mörk fyrir Liverpool í deildinni í vetur, eða 59 prósent af mörkum liðsins. batamerki á varnarleik Liverpool í vetur frá tímabilinu í fyrra. Á þessari leiktíð hefur liðið fengið á sig fleiri markskot en í fyrra og auk þess fengið á sig fleiri mörk að meðaltali, eða 1,23 í saman- burði við 1,13. Þó Liverpool hafi spilað glimrandi knattspyrnu hefur liðið átt í basli á útivelli þar sem vörnin hefur lekið mörkum. Þannig hefur liðið fengið á sig tvö mörk eða fleiri í 8 af síðustu 10 útileikjum sínum í deildinni. Framúrskarandi sóknarleikur hefur oftar en ekki komið liðinu til bjargar og skilað stigum. Sterkur heimavöllur Hvort Liverpool-liðið nái að halda sjó og gera atlögu að Eng- landsmeistaratitlinum skal ósagt látið. Langt er liðið síðan liðið var í baráttunni um titilinn. Nái liðið að spila jafn vel og það hefur gert að undanförnu skyldi enginn útiloka það. Bæði Chelsea og Manchester City eiga eftir að heimsækja Anfield á næstu vik- um sem eru góðar fréttir fyrir Liverpool enda liðið aðeins tap- að einum heimaleik af þrettán í vetur. Sjálfur er Brendan Rodgers hógværðin uppmáluð og vildi eftir sigurleikinn gegn Fulham í síðustu viku ekki láta draga sinn inn í umræðu um titilvonir Liver- pool. „Jose (Mourinho) er góður í þeirri umræðu. Hjá okkur snýst þetta um að bæta sig í hverjum leik.“ n Liverpool Swansea (h) Southampton (ú) Sunderland (h) Manchester United (ú) Cardiff (ú) Tottenham (h) West Ham (ú) Manchester City (h) Norwich (ú) Chelsea (h) Crystal Palace (ú) Newcastle (h) Arsenal Sunderland (h) Stoke (ú) Swansea (h) Tottenham (ú) Chelsea (ú) Manchester City (h) Everton (ú) West Ham (h) Hull (ú) Newcastle (h) WBA (h) Norwich (ú) Chelsea Everton (h) Fulham (ú) Tottenham (h) Aston Villa (ú) Arsenal (h) Crystal Palace (ú) Stoke (h) Swansea (ú) Sunderland (h) Liverpool (ú) Norwich (h) Cardiff (ú) Man. City Sunderland (h) Stoke (h) Aston Villa (h) Hull (ú) Fulham (h) Manchester United (ú) Arsenal (ú) Southampton (h) Liverpool (ú) WBA (h) Crystal Palace (ú) Everton (ú) West Ham (h) Leikirnir sem toppliðin eiga eftir Hvaða lið á þægilegasta leikjaprógrammið? Gleði og tár í Sochi Skemmtileg augnablik á Vetrarólympíuleikunum í Sochi  Bretti Það er gaman að fylgjast með keppni í svoköll- uðu brettaati á Vetrar- ólympíuleikunum.  Tár á hvarmi Skíðagarpurinn Bodie Miller, sem nýverið missti bróður sinn, brast í grát eftir keppni í risasvigi á sunnudag. Hann vann til bronsverðlauna en um er að ræða síðustu ólympíuleika þessa mikla afreksmanns.  Pútín glaður Vladimír Putín Rússlandsforseti fylgist með keppni í skíðagöngu á Vetrarólympíuleikunum í Sochi. Ekki er annað að sjá en að hann sé afar ánægður með gang mála.  Þoka Veðrið hefur gert keppendum í Sochi erfitt fyrir. Það er enginn hægðarleikur að skjóta örþreyttur í mark af 50 metra færi. Það hlýtur að vera nánast ómögulegt í skyggni sem þessu.  Rennir sér Frakkinn Robin Duvillard fagnar eftir verðlauna- afhendingu í fjórum sinnum tíu kílómetra skíðagöngu karla.  Gleði Dominique Maltais (nær) frá Kanada og Eva Samkova (fjær) frá Tékklandi bregða á leik eftir að hafa hafnað í efstu tveimur sætunum í brettaati í Sochi. Eva vann gullið.  Kælir sig Sjónvarpsþulurinn Lana Prince flaggar rússneska fánanum, þar sem hún stendur úti í sjó skammt frá Ólympíugarðinum í Sochi. Hitinn á svæðinu hefur farið upp í 18 gráð- ur og keppendum hefur stundum þótt nóg um. baldur@dv.is Myndir rEutErS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.