Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2014, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2014, Qupperneq 32
32 Menning Þ að var kominn tími til að Martin Scorsese gerði bíó­ mynd um verðbréfamiðlara á Wall Street, því fáir gera jafn góðar glæpamyndir og hann. En einmitt í því er vandinn fólginn. Hér er nefnilega komin glæpamynd í anda Martins Scorsese. Líklega hafa fáir aðrir en Scorsese og vinur hans Coppola gert meira til að rómantísera mafíuna. Hver get­ ur horft á Goodfellas og ekki viljað vera Goodfellas, að minnsta kosti meðan á sýningu stendur? Við fáum þó lítið að sjá fórnarlömb snilling­ anna, þau eru utan myndar eða í besta falli „props“ til að berja eða láta hanga utan af byggingum. Í stað­ inn þeysumst við áfram með hinum glæsilegu söguhetjum sem leggja heiminn að fótum sér og halda partí sem jafnvel harðsvíruðustu útrásarvíkingar hefðu orðið stoltir af. Og ein og ein öfundsjúk lögga reynir að skakka leikinn. Og jafnvel þótt illa fari að lokum verður það sem eftir stendur að betra sé að lifa hátt um stund en að vera venjulegur. Myndin bendir sjálf á að eftir að gagnrýnin grein um svindlarann Belford var birt í blað­ inu Forbes jukust vinsældir hans um allan helming. Mynd Scorsese fellur sjálf í sömu gryfju, hefur það til skýj­ anna sem hún telur sig vera að gagn­ rýna. Þrátt fyrir þriggja tíma lengd veitir myndin litla innsýn í fjármálakerfið, ólíkt hinni upprunalegu Wall Street eða hinni nýlegu Margin Call. Þegar DiCaprio byrjar að útskýra hætt­ ir hann skyndilega og segir: „En þið hafið engan áhuga á þessu,“ og sýnir og okkur í staðinn enn eina partísen­ una með kókaíni, vændiskonum og dvergaköstum. Svo virðist sem myndin hafi ekki meira álit á áhorf­ endum en verðbréfamiðlarinn á kúnnunum. Myndin er þó alls ekki leiðinleg, enda Scorsese meistari formsins. En einhvern veginn fær hún mann til að missa álit á honum samt. Hann sýn­ ir okkur þá sem vinna sig upp, hvort sem það eru mafíósar eða bisness­ menn eins og Howard Hughes eða Jordan Belford, en minna fer fyrir þeim sem þeir traðka á. Kannski er ekki að undra að einmitt hann sé talinn fremstur kvikmyndagerðar­ manna í Bandaríkjunum. Hinn raunverulegi Belford heldur áfram að græða, bæði á höfundar­ launum og athygli myndarinnar. En vilji menn sjá störf hans frá öðr­ um sjónarhóli mæli ég með að þeir finni sér Boiler Room á Aðalvídeó­ leigunni, sem betur sýnir hvernig fór fyrir öðrum í fæðukeðju hans. n Vikublað 18.–20. febrúar 2014 Valur Gunnarsson valurgunnars@gmail.com Dómur The Wolf of Wall Street IMDb 8,5 RottenTomatoes 77% Metacritic 75 Leikstjóri: Martin Scorsese Aðalhlutverk: Leonardo DiCaprio og Jonah Hill Byggð á sjálfsævisögu Jordans Belford 180 mínútur Partí í anda útrásarvíkinga„Myndin er alls ekki leiðinleg, enda Scorsese meistari formsins. Rafmögnuð stemming n Major Lazer hápunktur tónlistarhátíðarinnar Sónar um helgina n GusGus slöpp R aftónlistarhátíðin Sónar sem fór fram í Hörpunni um helgina stóð fyrir sínu líkt og fyrri daginn. Gott framtak sem lífgar upp á annars leiðin­ legan mánuð. Þrátt fyrir tal hátíðar­ haldara um annað þá er nokkuð ljóst að nöfnin voru stærri í fyrra. Ekki bætti úr skák að eitt aðalnúmerið sem hafði boðað komu sína á hátíðina, Þjóðverj­ inn Paul Kalkbrenner, þurfti að afboða sig. Samkvæmt Facebook­síðu hans gat hann ekki flogið til Íslands vegna slæmrar augnsýkingar. Vonandi verð­ ur reynt að fá stærri nöfn innan raftón­ listarheimsins á næsta ári. Flestir gestir hátíðarinnar hljóta að geta sammælst um að hápunktur há­ tíðarinnar hafi verið brjálæðislegir og óvenjulangir tónleikar Major Lazer sem tróð upp í Silfurbergi laust eftir miðnætti á laugardeginum. Tónlistar­ mennirnir fengu áhorfendur til að taka virkan þátt meðal annars með því að fara úr að ofan og fleygja yfir­ höfnunum í átt að sviðinu. Sýndu þeir tónleikar þó það sem marga hafði grunað; Íslendingar kunna ekki að „twerka“. Á einum tímapunkti voru unglingsstúlkur úr salnum dregnar upp á svið og látnar „twerka“ og höfðu þær ekki erindi sem erfiði. Frábærir tónleikar að öðru leyti. Næstbestu tónleikarnir hafi senni­ lega verið með íslensku hljómsveitinni sem kennir sig við dansvöðvann Glut­ eus maximus. Líktist sviðsframkoma þeirra einna helst sirkussýn­ ingu þar sem kraftlyftinga­ menn og fimleikakonur sýndu listir sínar. Raunar fékk áhorf­ andi það á tilfinninguna að hér væri komin nýrri og betri útgáfa af GusGus þar sem bæði Daníel Ágúst og Högni Egilsson tóku lagið með for­ sprökkum hljómsveitarinnar. Var það sérstaklega augljóst þar sem GusGus­ tónleikarnir sem haldnir voru á fimmtu­ deginum voru óvenjuslappir. Athygli vakti að plötusnúðurinn President Bongo var hvergi sjáanlegur á græj­ unum, en Maggi Lego leysti hann af hólmi. Nýstirni hátíðarinnar voru dansk­ ir rafpopparar, When Saints Go Machine, sem komu á óvart. Kölsch og Jon Hopkins þóttu líka góðir. n hjalmar@dv.is Glæpamynd Svo virðist sem myndin hafi ekki meira álit á áhorfendum en verðbréfa- miðlarinn á kúnnunum. Major Lazer Gerðu allt vitlaust og fengu áhorfendur til að fleygja yfir- höfnum sínum upp í loft. MynDIR DAVíð þóR Gluteus maximus When Saints Go Machine FM Belfast

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.