Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2014, Síða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2014, Síða 33
Menning Sjónvarp 33 Þ órdís Elva Þorvaldsdóttir er bæði höfundur og leik- stjóri að leiksýningunni Fyrirgefðu ehf sem nú er sýnd í Tjarnarbíói af Mála- myndahópnum. Leikhópurinn samanstendur af fjórum leikur- um og þeir leika öll hlutverk sýn- ingarinnar sem eru fjölmörg enda er viðfangsefni höfundarins ekkert smáræði, nefnilega fyrirgefningin sjálf í öllu sínu veldi eins og titill- inn segir til um. En fyrirgefningin er ekkert lamb að leika sér við, hún er margþætt, margræð, trúarlegs og heimspekilegs eðlis og spurn- ing hvort alltaf sé hægt að fyrirgefa framkomu, hegðun eða glæp sem framinn er í einkalífi eða gagnvart samfélaginu öllu af hálfu valdhafa eða annarra opinberra aðila. Færist fullmikið í fang Þórdís Elva blandar hér saman margs konar sögum um tilgang og merkingu fyrirgefningarinn- ar í samfélagi manna, sögum sem hún og leikhópurinn hafa safn- að frá ólíkum einstaklingum og byggja á rannsóknar- og heim- ildavinnu um fyrirgefningar- og sáttaferli. Til að ná utan um þess- ar sögur hefur Þórdís Elva búið til fyrirtækið Fyrirgefðu ehf sem birt- ist okkur á leiksviðinu strax í upp- hafi leiks í glæsilegri leikmynd Rebekku A. Ingimundardóttur. Leikmyndin gefur okkur mynd af hugsanlegri framtíðarveröld fyrir- tækja sem í æ ríkari mæli gera út á beyglað til finningalíf borgaranna með aðstoð tölvuvæddra upplýs- inga um persónulega einkahagi. Rebekka notar háa færanlega veggi sem hægt er að lýsa að inn- anverðu og snúa á alla kanta og mynda nýjar sviðsmyndir þegar líða tekur á verkið, ekki síst mis- munandi heimili og vistarverur persónanna. Allt er þetta vel gert og lof- ar góðu framan af, en vandi höf- undarins og sýningarinnar byrjar þó fyrst fyrir alvöru þegar tvinna á saman sögu fyrirtækisins og eigenda þess, persónulegri sögu nýja starfsmannsins Evu og sjálf- stæðum sögum viðskiptavina fyrir tækisins af m.a. framhjáhaldi, kynferðislegu ofbeldi og sjálfs- vígum. Þegar svo stjórnmálin og hið opinbera líf bætist líka við er eins og höfundurinn hafi færst fullmikið í fang. Hér hefði góður dramadurgur ef til vill getað greitt úr flækjunni og aðstoðað höfund- inn við að velja bestu leiðina með áleitið efnið sem verkaði eins og ákall til áhorfenda um að gera gagnger reikningsskil í eigin lífi. Misvægi í leiknum Það er mikið lagt á leikarana fjóra sem skipta ört um hlutverk en fá ekki alltaf að njóta sín til fulls, þar sem sum atriðin eru svo stutt að þau líkjast sketsum úr pólitískri revíu (Pólitíkus Stjórnmálason) eða ýja að persónum og atburða- rás sem hefðu þurft meira rými til að vaxa. Það gætir því ákveðins misvægis í leiknum og allri fram- vindu sýningarinnar. Eftirminni- legust er saga gömlu hjónanna sem eru komin að fótum fram með elli- glöpin yfirvofandi en þar áttu þau Árni Pétur Guðjónsson og Ragn- heiður Steindórsdóttir stórglæsi- legan leik sem var bæði sannur og átakanlegur. Saga þeirra verkaði þó eins og sjálfstæður einþáttungur og fyrir bragðið varð atriðið full lang- dregið í samhengi heildarverksins þar sem oft er reynt að vekja hlát- ur með kaldhæðnislegum tilsvör- um til að létta á alvarleika og boð- skap höfundarins. Það heppnast best í sögu ungu hjónanna þar sem framhjáhald er viðfangsefnið en þar tókst þeim Þóru Karitas Árna- dóttur og Víði Guðmundssyni best upp en Þóra Karitas og Árni Pétur áttu líka góðan samleik í uppgjörs- atriði feðginanna. Sérsamin tónlist, hljóðmynd og vídeólist er orðin ófrávíkjanleg regla í leiksýningum á okkar dög- um og gegnir æ mikilvægra hlut- verki í heildaráferð þeirra. Hér hef- ur tekist vel að fella músík bæði að leikmynd og allri hreyfingu sýn- ingarinnar en heiðurinn af henni á Jarþrúður Karlsdóttir. Lýsing Arnars Ingvarssonar átti einnig stóran þátt í að sýna okkur alla möguleikana í leikmynd Rebekku og skapa ný rými í leiknum. Fjólu- blár litur í upplýstum skjalaskáp- um fyrirtæksins sem gerir út á fyrir gefninguna, ásamt svarhvít- um og fjólubláum lit í búningum starfsfólksins minnti okkur á þá staðreynd, að markaðsvæðing sál- arlífsins er ekkert annað en fram- hald af vafasamri sáluhjálparstarf- semi kirkjunnar í gegnum aldirnar. Að selja fyrirgefningarferli er líkt og sala á aflátsbréfum hér í eina tíð. Fyrirgefðu ehf er metnaðarfullt fyrirtæki hjá Málamyndahópnum, sem veit þó ekki alveg hvernig á að koma innihaldi verksins á fram- færi enda hefur það reynst mann- kyninu erfitt hingað til að fyrirgefa. Höfundi og leikstjóra er mikið niðri fyrir en hann nær ekki að afmarka efnið og finna því heppilegan far- veg þrátt fyrir góðan ásetning og því verða áhrifin ekki jafn mögn- uð og stefnt er að. Spurningin sem eftir stendur hjá gagnrýnandan- um er hvort honum verði fyrirgefið að hafa sínar efasemdir um ágæti verksins. Það er nefnilega vandi að fyrirgefa. n Vikublað 18.–20. febrúar 2014 Sjónvarpsdagskrá RÚV Stöð 2 SkjárEinn Stöð 2 Sport Þriðjudagur 18. febrúar 06.55 Vetrarólympíuleikar – Alpagreinar B 10.25 Vetrarólympíuleikar – Alpagreinar B 12.30 Vetrarólympíuleikar – Íshokkí Bein útsending frá umspilsleik í íshokkí karla. B 15.05 Brautryðjendur (2:8) (Ingibjörg Þorbergs) 888 e 15.35 Vetrarólympíuleikar – Skíðafimi í pípu 17.25 Vetrarólympíuleikar – Skíðafimi í pípu B 18.25 Táknmálsfréttir 18.35 Viðtalið (Dr. Andreas Hensel) 888 e 19.00 Fréttir 19.25 Veðurfréttir 19.30 Íþróttir 19.40 Kastljós 20.05 Trúður á átakasvæði (Klovn i en krigzone) Í Dan- mörku stundar hún nám í mannfræði. Í Afríku vinnur hún sem trúður. Markmið Marie Louise Villemoes er að nálgast börn stríðs- hrjáðra ríkja og fá þau til að brosa og gleyma sér. Hjart- næmur heimildarþáttur um hugsjónamanneskju án landamæra. 20.40 Castle (7:23) 21.25 Djöflaeyjan Þáttur um leiklist, kvikmyndir, mynd- list og hönnun. 888 22.00 Tíufréttir 22.10 Veðurfréttir 22.15 Íþróttir (6:8) 22.25 Hafinn yfir grun 7,0 (1:3) (Above Suspicion IV) Bresk sakamálamynd í þremur hlutum. Þekkt kvikmyndastjarna finnst látin á heimili sínu og rann- sóknarlögreglukonan Anna Travis og félagi hennar James Langton rannsaka málið. Aðalhlutverk: Kelly Reilly, Ciarán Hinds, Shaun Dingwall. Atriði í myndinni eru ekki við hæfi barna. 23.10 Spilaborg (1:13) (House of Cards II) Bandarísk þátta- röð um klækjastjórnmál og pólitískan refskap þar sem einskis er svifist í baráttunni um völdin. Meðal leikenda eru Kevin Spacey, Michael Gill, Robin Wright og Sakina Jaffrey. Atriði í þáttunum er ekki við hæfi ungra barna. e 00.00 Kastljós 00.20 Fréttir Endursýndar Tíufréttir. 00.30 Íþróttir (5:7) 00.40 Dagskrárlok Stöð 2 Sport 2 Bíóstöðin Gullstöðin Stöð 3 ÍNN 09:00 Ólympíuleikarnir - Samantekt 09:30 Ólympíuleikarnir - Norræn tvíkeppni B 10:30 Ólympíuleikarnir - Alpagreinar B 12:05 Ensku bikarmörkin 2014 12:30 Ólypmíuleikarnir - Íshokkí karla B 15:00 Ólympíuleikarnir - Skautaspretthlaup 17:00 Ólypmíuleikarnir - Íshokkí karla B 19:10 Meistarad. - upphitun 19:30 Meistaradeild Evrópu (Man. City - Barcelona) B 21:45 Meistarad. - meistaram. 22:15 Ólympíuleikarnir - Samantekt 22:45 Þýsku mörkin 23:15 Meistarad. Evrópu (B. Leverkusen - PSG) 00:55 Meistaradeild Evrópu (Man. City - Barcelona) 06:55 Ólympíuleikarnir - Alpagreinar B 12:50 Hull - Southampton) 14:30 Premier League World 15:00 Aston Villa - West Ham) 16:40 Enska B-deildin (QPR - Reading) 18:20 Arsenal - West Ham 20:00 PL Bestu leikirnir (Chelsea - Arsenal ) 20:30 Arsenal - Blackburn 22:15 Ensku mörkin - neðri d. 22:50 Cardiff - Aston Villa 20:00 Hrafnaþing 21:00 Stjórnarráðið 21:30 Skuggaráðuneytið 18:45 Seinfeld (16:22) 19:10 Modern Family 19:35 Two and a Half Men (1:16) 20:00 Grey's Anatomy (3:24) 20:45 Hannað fyrir Ísland (6:7) 21:30 Veggfóður (13:20) 22:10 Nikolaj og Julie (17:22) 22:55 Anna Pihl (7:10) 23:40 Cold Feet 5 (6:6) 00:35 The Fixer (2:6) 01:25 Hannað fyrir Ísland (6:7) 02:10 Veggfóður (13:20) 02:55 Nikolaj og Julie (17:22) 03:40 Anna Pihl (7:10) 11:20 Diary of a Wimpy Kid 13:00 The Jewel of the Nile 14:45 Bright Star 16:40 Diary of a Wimpy Kid 18:20 The Jewel of the Nile 20:05 Bright Star 22:00 A Few Good Men 00:15 Source Code 01:50 Diary of the Dead 03:25 A Few Good Men 16:45 Junior Masterchef Australia (7:22) 17:30 Baby Daddy (6:10) 17:50 The Carrie Diaries (13:13) 18:35 American Dad 19:00 Extreme Makeover 19:45 Hart Of Dixie (1:22) 20:30 Pretty Little Liars (24:24) 21:15 Þriðjudagskv. m. Frikka D. 21:45 Nikita (1:22) 22:25 Justified (11:13) 23:10 Revolution (15:20) 23:55 Arrow (13:24) 00:40 Sleepy Hollow (13:13) 01:20 Extreme Makeover 02:05 Hart Of Dixie (1:22) 02:50 Pretty Little Liars (24:24) 03:35 Þriðjudagskv. m. Frikka D. 04:05 Nikita (1:22) 04:50 Justified (11:13) 05:35 Tónlistarmyndb. Popptíví 06:00 Pepsi MAX tónlist 08:00 Cheers (7:26) 08:25 Dr. Phil 09:05 Pepsi MAX tónlist 16:55 Got to Dance (6:20) 17:45 Dr. Phil 18:25 Top Chef (11:15) 19:10 Cheers (8:26) 19:35 Sean Saves the World 20:00 The Millers (6:13) Bandarísk gamanþáttaröð um Nathan, nýfráskilinn sjónvarpsfréttamann sem lendir í því að móðir hans flytur inn til hans, honum til mikillar óhamingju. Aðalhlutverk er í höndum Will Arnett. Systkinin reyna að koma foreldrum sínum saman á nýjan leik til þess að bjarga eigin skinni. 20:25 Parenthood (7:15) 21:10 The Good Wife (2:22) Þessir margverðlaunuðu þættir njóta mikilla vinsælda meðal áhorfenda SkjásEins. Það er þokkadís- in Julianna Marguilies sem fer með aðalhlutverk í þátt- unum sem hin geðþekka eiginkona Alicia sem nú hefur ákveðið að yfirgefa sína gömlu lögfræðistofu og stofna nýja ásamt fyrr- um samstarfsmanni sínum. 22:00 Elementary (7:22) Sher- lock Holmes og Dr. Watson leysa flókin sakamál í New York borg nútímans. Síðustu þáttaröð lauk með því að unnusta Sherlocks, Irine Adler var engin önnur en Moriarty prófessor. Mycroft er bróðir Sherlocks en þeir hafa eldað grátt silfur saman lengi. Sherlock ákveður þó að aðstoða hann við sérstætt sakamál. 22:50 The Tonight Show - NÝTT Spjallþáttasnill- ingurinn Jimmy Fallon hefur tekið við keflinu af Jay Lenno og stýrir nú hinum geysivinsælu Tonight show sem áhorfendur SkjásEins þekkja frá fyrri tíð. Jimmy Fallon steig sín fyrstu spor í sjónvarpi í Saturday Night Live og hlaut Emmy-verð- laun fyrir frammistöðu sína þar. Hann hefur notið yfirburðaáhorfs í Bandaríkj- unum fyrir persónulega og lifandi framkomu. Í þessum fyrsta þætti Jimmy‘s stíga á stokk ekki minni meistara en U2 og Will Smith. 23:35 The Bridge (7:13) 00:15 Scandal (5:22) 01:00 Elementary (7:22) 01:50 Mad Dogs (1:4) 02:35 The Tonight Show 03:20 Pepsi MAX tónlist 07:00 Barnatími Stöðvar 2 08:05 Malcolm in the Middle 08:30 Ellen (142:170) 09:10 Bold and the Beautiful 09:30 Doctors (120:175) 10:15 Wonder Years (19:23) 10:40 The Middle (13:24) 11:05 White Collar (9:16) 11:50 Flipping Out (5:10) 12:35 Nágrannar 13:00 The X-Factor (19:27) 13:40 In Treatment (12:28) 14:10 Sjáðu 14:40 Lois and Clark (18:22) 15:25 Ozzy & Drix 15:45 Scooby-Doo! Leynifélagið 16:05 Tommi og Jenni 16:30 Ellen (143:170) 17:10 Bold and the Beautiful 17:32 Nágrannar 17:57 Simpson-fjölskyldan 18:23 Veður 18:30 Fréttir Stöðvar 2 18:47 Íþróttir 18:54 Ísland í dag 19:11 Veður 19:20 Um land allt Kristján Már Unnarsson leggur land undir fót og heimsækir áhugavert fólk. 19:45 New Girl (13:23) Þriðja þáttaröðin um Jess og sambýlinga hennar. 20:10 Geggjaðar græjur Skemmtilegur þáttur þar sem fjallað er um nýjustu græjur og afrek á sviði vísinda. 20:25 The Big Bang Theory (13:24) Sjöunda þáttaröðin um félagana Leonard og Sheldon sem eru afburða- snjallir eðlisfræðingar sem vita nákvæmlega hvernig alheimurinn virkar. 20:45 The Mentalist (10:22) Sjötta þáttaröðin um Patrick Jane sem er sjálf- stætt starfandi ráðgjafa rannsóknarlögreglunnar í Kaliforníu. 21:30 Rake 6,7 (4:13) Frábærir þættir með Greg Kinnear í aðalhlutverki og fjalla um lögfræðinginn Keegan Deane sem er bráðsnjall í réttarsalnum og tekur að sér mál sem aðrir lög- fræðingar reyna að forðast. Keegan er mikill syndaselur. 22:15 Bones (16:24) Áttunda þáttaröðin af þessum stór- skemmtilegu þáttum þar sem fylgst er með störfum Dr. Temperance Brennan, réttarmeinafræðings, sem kölluð er til ráðgjafar í allra flóknustu morðmálum. 23:00 Girls (7:12) Þriðja gaman- þáttaröðin um vinkvenna- hóp á þrítugsaldri sem búa í draumaborginni New York. 23:30 Daily Show: Global Edition 23:55 The Face (6:8) Glæný og skemmtileg þáttaröð þar sem ungar og efnilegar stúlkur keppast um að verða næsta ofurfyrirsæta. 00:40 Lærkevej (9:12) 01:25 Touch (11:14) 02:10 It's Alive 03:35 Breaking Bad (5:8) 04:20 Breaking Bad (6:8) 05:10 Burn Notice (3:18) 05:55 Fréttir og Ísland í dag B iðin eftir seríu tvö af vinsælu þátt- unum House of Cards er loks á enda en hægt er að nálgast alla 13 þættina á Netflix. Fyrri serían af House of Cards sló ræki- lega í gegn og nú hafa forsvarsmenn Netflix til- kynnt að þriðja serían sé væntanleg. Velgengni þáttanna kom aðalleikaranum Kevin Spacey á óvart. „Ég er alltaf jafn hissa yfir þessu. Í fyrsta lagi er ég alltaf steinhissa þegar eitthvað sem ég tel vera drasl slær í gegn en þegar eitthvað sem ég tek þátt í gengur vel verð ég enn meira hissa. Þetta er ótrú- legt.“ Fyrsta þáttaröðin af House of Cards vann til fjögurra Golden Globe- tilnefninga og níu Emmy- tilnefninga. Kevin Spacey leikur sem fyrr slæga stjórnmálamanninn Francis Underwood og Robin Wright leikur eigin- konu hans, Claire. Spacey er einnig framleiðandi þáttanna, ásamt kvik- myndagerðarmanninum David Fincher. Í upphafi annarrar þáttaraðar gengur Under- wood-hjónunum vel að mjaka sér upp metorða- stigann en serían hefst á því að Francis er orðinn varaforseti Bandaríkjanna. Hér verður ekki farið út í nánari lýsingu á sögu- þræðinum en ljóst er að áhorfendur eiga von á miklu strax í upphafi þátt- anna. n Biðin á enda Francis er orðinn varaforseti RÚV Íþróttir 17.00 Vetrarólympíuleikar – Íshokkí B 19.20 Olísdeildin í handbolta (Valur - Fram) B 21.00 Vetrarólympíuleikar – Alpagreinar 22.00 Vetrarólympíuleikar – Alpagreinar SkjárGolf 06:00 Eurosport 2 12:00 Eurosport 2 20:00 Dutch League - Highlights 2014 (1:25) 21:00 Dutch League - Highlights 2014 (1:25) 22:00 Dutch League - Highlights 2014 (1:25) 23:00 Eurosport 2 Slægur Búast má við öllu af pólitíkusnum. Vandinn við að fyrirgefa Fyrirgefðu ehf Leikstjórn: Þórdís Elva Þorvaldsdóttir. Höfundur: Þórdís Elva Þorvaldsdóttir. Sviðsmynd: Rebekka A. Ingimundardóttir. Leikarar: Árni Pétur Guðjónsson, Ragn­ heiður Steindórsdóttir, Víðir Guðmundsson og Þóra Karítas Árnadóttir. Sýnt í Tjarnabíói Hlín Agnarsdóttir ritstjorn@dv.is Dómur Höfundi og leikstjóra er mikið niðri fyrir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.