Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2014, Side 37
Vikublað 18.–20. febrúar 2014 Fólk 37
L
íkt og flestum er kunnugt um
verða félagarnir í Pollapönki
fulltrúar Íslands í Söngva-
keppni evrópskra sjónvarps-
stöðva að þessu sinni, en
úrslitakvöld Söngvakeppni Sjón-
varpsins fór fram á laugardag. Mikil
gleði ríkti í herbúðum Pollanna en
þeir munu á næstu dögum setj-
ast niður og skipuleggja ferð sína
til Kaupmannahafnar. Umboðs-
maður hljómsveitarinnar er Valgeir
Magnússon, betur þekktur sem Valli
sport, en þetta er í þriðja sinn á fjór-
um árum sem atriði á hans vegum
sigrar í Söngvakeppni Sjónvarpsins.
Hefur reynslu af Eurovision
Valgeir Magnússon er umboðs-
maður Pollapönks, en þetta er ekki
í fyrsta sinn sem tónlistarmenn á
hans vegum komast í Eurovision.
Valli var nefnilega maðurinn á bak
við Heru Björk, sem keppti fyrir Ís-
lands hönd árið 2010 með laginu
Je ne sais quoi, og Eyþór Inga, sem
keppti í fyrra með laginu Ég á líf.
Framganga Valla í Eurovision árið
2010 vakti talsverða athygli en þá
hélt hann hlífðarskildi yfir Heru
Björk og lét erlenda fjölmiðla bíða
í röðum eftir því að ná tali af söng-
konunni.
„Því miður fá ekki fleiri viðtal við
hana í dag. Það er sama hvað þeir
eru stórir eða frá hvaða landi,“ sagði
Valli meðal annars í sjónvarpsvið-
tali við Vísi á sínum tíma.
Vinsæll umboðsmaður
Valli hefur þó ekki einbeitt sér að
Eurovision-keppendum því hann
hefur undanfarin ár verið
einn af atkvæða-
mestu um-
boðsmönnum
landsins og
getið sér gott
orð sem
slíkur. Með-
al hljóm-
sveita og
tónlistar-
manna
sem eru
eða hafa
verið á
hans
snærum
eru þau
Íris Hólm,
Brynjar Már
Valdimarsson
og stúlknasveitin
Elektra auk þess
sem Valli var um-
boðsmaður Haffa
Haff um tveggja
og hálfs árs skeið.
Þá var Valli einnig
umboðsmaður
Merzedes Club
frá stofnun og kom
hljómsveitinni vel á
framfæri, en hún tók
eftirminnilega þátt
í Söngvakeppni Sjónvarpsins árið
2008 með laginu Ho, Ho, Ho, We
say Hey, Hey, Hey. Einnig er Valli
umboðsmaður leikarans Ásgeirs
Þórðarsonar, sem er betur þekktur
sem Damon Younger,
en þrátt fyrir að vera
vinsæll umboðs-
maður starfar
Valli fyrst og
fremst sem fram-
kvæmdastjóri
auglýsingastof-
unnar Pipars, en
hann rekur hana
ásamt sjónvarps-
manninum Sigurði
Hlöðverssyni,
betur
þekktum sem Sigga Hlö.
Mikil hamingja
Að sögn Heiðars Arnar, eins með-
lima Pollapönks, ríkti mikil gleði á
laugardaginn.
„Það var alveg frábært. Það var
mikil hamingja í herbúðum Poll-
anna og þessu var fagnað vel og inni-
lega. Við skelltum okkur öll, Pollar
og frúr, á Tapas barinn og það var
alveg yndislegt,“ segir hann í sam-
tali við DV. Heiðar segir leynitromp
hljómsveitarinnar hafa skilað sér, en
á úrslitakvöldinu klæddust hljóm-
sveitarmeðlimir litríkum jakkaföt-
um í stað íþróttagallanna sem vöktu
mikla athygli í undankeppninni.
Auk þess fengu Pollarnir liðsauka
frá Snæbirni Ragnarssyni, Bibba,
úr Skálmöld og alþingismanninum
Óttari Proppé úr Ham sem sungu
bakraddir. Meðlimir Pollapönks
eru, auk Heiðars Arnar, Haraldur
Freyr Gíslason, Guðni Finnsson og
Arnar Gíslason. Hljómsveitin var
stofnuð árið 2006 og hefur sent frá
sér þrjár plötur.
Ekkert ákveðið
„Við ætlum að hittast í dag [mánu-
dag, innsk. blm.] og fara yfir spil-
in. Það er ekki búið að ákveða neitt
en núna verður farið yfir þetta og
sett upp í sameiningu eitthvað plan
fram að keppni svo þetta skýrist á
næstu dögum,“ segir Heiðar, spurð-
ur hvernig prógrammið verði hjá
hljómsveitinni fram að aðalkeppn-
inni. Hann segir spennandi tíma
framundan.
„Já, það verður nóg að gera hjá
okkur. Við vorum alveg í fríi í gær
[sunnudag, innsk. blm.] en setju-
mst niður í dag og förum yfir hvern-
ig þetta verður.“
En býst Heiðar Örn við einhverj-
um breytingum fyrir keppnina í
Danmörku?
„Við erum ekkert búnir að taka
neinar ákvarðanir með neitt. Þetta
verður bara að koma í ljós.“
Fyrra undankvöldið verður
þriðjudaginn 6. maí, það síðara
tveimur dögum seinna og laugar-
daginn 10. maí verður svo sjálft
úrslitakvöldið. Ekki hefur verið
tilkynnt á hvoru undankvöldinu Ís-
land mun koma til með að keppa,
en flestar þátttökuþjóðir eru nú í
óða önn við að velja sína fulltrúa
fyrir keppnina. n
María Birta lent
í Los Angeles
Leikkonan, fyrirsætan og verslun-
areigandinn María Birta er stödd
í Los Angeles með kærasta sínum
Ella Egilssyni í Steed Lord. Hún
unir sér að sögn heimildarmanna
DV einstaklega vel og hefur farið
í nokkrar myndatökur þar ytra.
Hún nýtur sólarblíðunnar með fé-
lögum Ella í Steed Lord og getur
víst varla hugsað sér að snúa aftur
á kaldan klakann. Leikkonan
hefur hins vegar oftsinnis dvalið
langdvölum ytra bæði í Los Ang-
eles og í Flórída þar sem hún hef-
ur stundað fallhlífarstökk.
Margrét Erla í
hálskirtlatöku
Sjónvarps- og athafnakonan Mar-
grét Erla Maack fór nýverið í háls-
kirtlatöku og hefur haldið dagbók
á Facebook um raunir sínar í kjöl-
far aðgerðarinnar.
„Dagur 7. Verkirnir versna og
versna. Ég get ekki fundið possi-
sjón að sofa í. Í hvert sinn sem ég
sofna vakna ég verri. Verkirnir eru
komnir út í eyrun og ég get varla
kyngt verkjalyfjunum. Verkjalyfin
eru búin, Vigdís hefur það mun
verra en ég,“ skrifar Margrét, en
hún fór í aðgerðina ásamt systur
sinni, Vigdísi Perlu. Margrét segist
helst hlakka til að mega borða á
ný og telur meðal annars upp að
eftir aðgerðina ætli hún að fá sér
amerískar pönnukökur, KFC, ind-
verskan mat og nachos.
Dýrasti
kaffibollinn í
New York
Kvikmyndagerðarkonan og fagur-
kerinn Rut Hermannsdóttir opnaði
Búðina í New York fyrir helgi ásamt
tveimur viðskiptafélögum sínum.
Í Búðinni er hægt að setjast
niður og fá sér kaffisopa og kaupa
norræna hönnun. Opnun búðar-
innar hefur vakið eftirtekt en hún
er staðsett í Greenpoint í Brooklyn
þar sem allt sem er norrænt þykir
afskaplega fínt. Um opnunina hef-
ur verið fjallað í fjölmörgum blöð-
um, þar á meðal í New York Times.
Brooklyn Paper fannst tilval-
ið að segja frá því að í Búðinni
fengist ekki bara svöl hönnun og
gott kaffi, heldur hvorki meira né
minna en dýrasti kaffibollinn í
New York. Forláta lattébolli með
lakkrísdufti gerður úr hágæða fá-
gætri kaffiblöndu. Bollinn frétt-
næmi kostar sjö dollara. Rut er
skemmt yfir fréttunum. „Þarna er
fólk dead serious sannfært um að
ég sé hipster sem eigi ríka foreldra
í miðvesturríkjum Bandaríkjanna.
Ég læt lífið af skemmtanagildi
þessara skrifa. Ef þau bara vissu
hvað ég er mikill lúði,“ segir hún í
gamni á Facebook.
Þriðji sigur
Valla sport
n Pollapönkarar ánægðir með sigurinn n Ekkert ákveðið með framhaldið
Hörn Heiðarsdóttir
horn@dv.is
Sáttir Meðlimir
Pollapönks voru
að vonum ánægðir
með sigurinn.
Kát saman Valli ásamt Heru Björk, sem söng fyrir Íslands hönd í Eurovision árið 2010.
Vinsæll Valli hefur verið
umboðsmaður fjölmargra
tónlistarmanna á Íslandi og
náð góðum árangri í Eurovision.
Mynd Björn Blöndal