Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2014, Qupperneq 35
Garðrækt og sumarhús 7Helgarblað 16.–19. maí 2014
NÚ ER RÉTTI TÍMINN
TIL AÐ LEITA TILBOÐA
Lífgaðu upp
á garðinn
Að setja tjörn í garðinn er skemmtilegt verkefni
A
ð setja tjörn í garðinn er
skemmtileg og tiltölulega
auðveld leið til að lífga upp
á umhverfið í kringum hús-
ið. Það er jafnvel auðveldara en
margur heldur og þarf ekki að kosta
mjög mikið, sé miðað við hversu
mikið falleg tjörn getur gert fyrir
ásýnd garðsins.
Tjarnir er hægt að gera á marga
vegu. Mögulegt er að steypa tjörn en
einfaldast og algengast er að kaupa
tjarnarbakka úr plasti og grafa nið-
ur, eða þá að grafa fyrir tjarnardúki.
Seinni valkosturinn býður líka upp
á meiri möguleika til að stjórna
stærð og lögun tjarnarinnar.
Hægt er að fá tjarnarbakka
frá 10.000 krónum og upp úr og
tjarnardúkar eru á svipuðu verði.
Einnig er vinsælt að hafa gos-
brunna eða dælur í tjörnunum sem
líkja eftir lækjum og rennandi upp-
sprettuvatni.
Vinsælt er að hafa fiska í tjörn-
um og eru koi-fiskar mjög vinsælir
og henta vel fyrir garðtjarnir. Passa
þarf þó að hafa tjörnina það djúpa
að hún frjósi ekki til botns á veturna
og þarf vatnið þá að vera um hálfur
til einn metri á dýpt. Einnig er gott
að hafa hitara í tjörninni til að fisk-
unum líði betur yfir vetrartímann.
Það er því um að gera að nýta
sumarið í skemmtilegt verkefni og
lífga upp á garðinn. n
Garðtjörn Tjarnir er
hægt að gera af öllum
stærðum og gerðum.
Á
vaxtatré hafa verið ræktuð á
Íslandi í langan tíma. Til eru
heimildir um peru- og epla-
tré allt aftur til ársins 1777.
Árið 1899 voru gerðar til-
raunir á Norðurlandi með síberísk
eplatré sem lifðu í þó nokkurn tíma
en uppskeran lét bíða eftir sér. Síð-
an þá hafa fjölmörg ávaxtatré verið
gróðursett hér á landi bæði í gróður-
húsum sem og utandyra. Á Akranesi
er til að mynda 38 ára gamalt eplatré
utandyra, sem hefur gefið af sér allt
að 800 eplum á einu ári.
Við val á yrki þarf að huga vel að
því hvar tréð á að vera. Á Facebook-
síðu Ávaxtaklúbbs Garðyrkjufé-
lags Íslands er að finna lista yfir þau
eplayrki sem dafnað hafa hvað best.
Huga þarf að því hvort eplið eigi að
vera í potti á svölum, gróðurhúsi
eða í garðinum. Síðan þarf að hugsa
vel um skjól og hvernig sólin skín
á tréð og auk þess hvernig plantan
mun fá vatn.
Þurfa mikla umhirðu
Samkvæmt heimasíðunni plant-
an.is þurfa ávaxtatré góðan jarðveg
fyrstu árin. Eigi tréð að fara í jörð
þarf holan að vera tvöfalt breiðari en
rótarmassinn og einnig örlítið dýpri.
Í botninn er svo settur nýr jarðveg-
ur. Ræturnar þola illa beint sólarljós
og því þarf að fara varlega, sé verið
að gróðursetja í sólskini. Þegar tréð
hefur verið gróðursett og farið að
dafna vel þarf að huga að umhirðu
þess. Ávaxtatré þarf að klippa reglu-
lega, en mælt er með því að einhver
vanur sé fenginn til þess eða þá að
sótt séu námskeið um hvernig best
sé að hugsa um tréð.
Þrjár ræktunaraðferðir eru
algeng astar. Til að planta þétt og
nýta pláss eru trén klippt í hallandi
snúru og eru þá kölluð snúrutré.
Þannig fara trén að blómstra fyrr og
gæði þeirra verða mikil. Önnur að-
ferð felur í sér að trén eru ræktuð
upp við veggi, til dæmis kirsuberja-
tré. Þannig nýtur tréð sólar allan
daginn og einnig hvert aldin. Þessi
tré eru gjarna kölluð geislatré. Að
lokum eru óformuð tré, sem fá að
vaxa óbundin og frjáls. n
Trjárækt sem ber ávöxt
Rögnvaldur Már Helgason
rognvaldur@dv.is
n Ræktun ávaxtatrjáa á sér langa sögu á Íslandi n Þrjár góðar leiðir til að rækta tré
Eplatré Á
Akranesi er
eplatré sem
hefur gefið af
sér allt að 800
eplum á ári.