Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2014, Blaðsíða 50
Helgarblað 16.–19. maí 201442 Sport
Góðir leikmenn sem stóðu ekki undir væntingum í ensku úrvalsdeildinni í vetur
Vonbrigðalið tímabilsins
Framherji:
Roberto Soldado
Aldur: 28 ára
Félag: Tottenham
n Spánverjinn var frábær í
spænsku úrvalsdeildinni með
Valencia áður en Tottenham
keypti hann síðasta sumar
fyrir 26 milljónir punda. Margir
bjuggust við því að hann myndi
raða inn mörkunum en raunin
varð önnur. Hann skoraði 6 mörk
í 28 leikjum í úrvalsdeildinni og
11 mörk í það heila í 36 leikjum.
Soldado var ekki eins góður og
menn bjuggust við.
Markmaður:
Maarten Stekelenburg
Aldur: 31 árs
Félag: Fulham
n Fulham endaði í 19. sæti ensku úrvalsdeildar-
innar og það varð ljóst fljótlega eftir áramót að
liðið myndi að líkindum falla um deild. Miklar
vonir voru bundnar við Stekelenburg sem kom frá
Roma síðasta sumar. Það var ekki skrýtið, enda
landsliðsmarkvörður Hollands. Meiðsli héldu
honum þó nokkuð frá keppni í vetur en þegar
hann spilaði virkaði hann ósköp venjulegur.
Hægri bakvörður:
Rafael
Aldur: 23 ára
Félag: Manchester United
n Á góðum degi er Rafael í hópi
bestu bakvarða úrvalsdeildarinnar
en honum hefur samt sem áður
aldrei tekist að springa almennilega
út. Margir töldu að nú væri loksins
komið að því enda var hann nokkuð
heill á þar síðustu leiktíð – ólíkt leik-
tíðunum þar á undan. Því miður fyrir
Rafael var hann mikið frá á þessu
tímabili og allt í allt spilaði hann
eingöngu 28 leiki í öllum keppnum.
Vinstri bakvörður:
Sascha Riether
Aldur: 31 árs
Félag: Fulham
n Þó að Sascha Riether sé hægri
bakvörður fær hann stöðu vinstri
bakvarðar í þessu liði. Riether kom
eins og stormsveipur inn í úrvals-
deildina fyrir þar síðasta tímabil þar
sem hann skoraði eitt mark og lagði
upp sex. Á þessari leiktíð var Riether
skugginn af sjálfum sér, bæði í varn-
ar- og sóknarleik Fulham. Þá gerðist
hann sekur um óíþróttamannslega
hegðun þegar hann traðkaði viljandi
ofan á Adnan Januzaj, leikmanni
Manchester United, og uppskar
þriggja leikja bann fyrir vikið.
Miðvörður:
Sebastian Bassong
Aldur: 27 ára
Félag: Norwich
n Þökk sé frábærri samvinnu
Sebastians Bassong og
Michaels Turner hélt Norwich
sæti sínu í úrvalsdeildinni
fyrir leiktíðina. Samvinna
þeirra í vetur gekk ekki jafn
vel enda mun Norwich spila
í Championship-deildinni á
næstu leiktíð. Bassong hefur
margoft sýnt það að hann
er góður varnarmaður en í
vetur spilaði hann einfaldlega illa og var ótt og títt út úr stöðu í
varnarleik Norwich.
Miðvörður:
Jan Verthongen
Aldur: 27 ára
Félag: Tottenham
n Jan Verthongen var frábær á
sínu fyrsta tímabili hjá Totten-
ham en eins og oft vill verða
reyndist annað tímabilið erf-
iðara. Verthongen var að öðrum
ólöstuðum einn besti varnar-
maður ensku úrvalsdeildarinnar
í fyrra. Hann varðist vel en var
einnig mjög ógnandi í sóknarleik
Tottenham og skoraði kappinn
fjögur mörk og lagði upp þrjú í
deildinni. Verthongen komst aldrei á flug í vetur og komst ekki á
blað í þeim 23 leikjum sem hann spilaði. Nú er staðan sú að ekki er
loku fyrir það skotið að Belginn verði seldur frá Tottenham í sumar.
Vinstri kantmaður
Erik Lamela
Aldur: 22 ára
Félag: Tottenham
n Erik Lamela var keyptur fyrir stórfé
frá Roma til Tottenham í sumar. Það
er óhætt að segja að miklar vonir
hafi verið bundnar við kappann og
var honum í raun falið það risastóra
verkefni að fylla skarðið sem Gareth
Bale skildi eftir sig. Það er skemmst
frá því að segja að Lamela náði sér
engan veginn á strik í vetur – skoraði
1 mark í 19 leikjum. Meiðsli settu
vissulega strik í reikninginn hjá þess-
um hæfileikaríka Argentínumanni
sem spilaði lítið eftir áramót.
Hægri kantmaður
Antonio Valencia
Aldur: 28 ára
Félag: Manchester United
n Þessi eldfljóti og nautsterki
vængmaður átti slaka leiktíð hjá
Manchester United. Í 29 leikjum í
deildinni skoraði Ekvadorinn tvö
mörk og lagði upp þrjú sem er allt
of lítið fyrir vængmann hjá félagi
á stærð við Manchester United. Til
samanburðar lagði Valencia upp
13 mörk og skoraði fjögur tímabilið
2011/2012. Það er ljóst að Valencia
þarf að bæta sig verulega ætli hann
sér að eiga framtíð hjá nýjum stjóra á
Old Trafford.
Miðjumaður
Marouane Fellaini
Aldur: 26 ára
Félag: Manchester United
n Það er í raun sama hvernig á
það er litið, Marouane Fellaini
olli gríðarlegum vonbrigðum
í vetur. Þessi stóri og hárprúði
Belgi átti glimrandi tímabil
með Everton 2012/2013 og fór
svo að David Moyes fékk hann
yfir til Rauðu djöflanna fyrir
tímabilið. Fellaini til varnar var
hann látinn spila aftar á vellin-
um hjá United en hjá Everton og það virtist einfaldlega ekki henta
honum. Þegar öllu er á botninn hvolft var Fellaini einfaldlega ekki
27 milljóna punda virði.
Miðjumaður
Michael Carrick
Aldur: 32 ára
Félag: Manchester United
n Þessi frábæri leikmaður
hefur þjónað United-liðinu vel
undanfarin ár. Í ár virtist hann
hins vegar áhugalaus og skrefi
á eftir bestu miðjumönnum
deildarinnar – svo einfalt er það.
Fleiri miðjumenn komu til greina
en Carrick er einfaldlega miklu
betri leikmaður en hann sýndi
í vetur.
Framherji:
Ricky van
Wolfswinkel
Aldur: 25 ára
Félag: Norwich
n Þessi stóri og stæðilegi
Hollendingur skoraði eins og
enginn væri morgundagurinn
í Hollandi og í Portúgal. Á
Englandi virtist honum fyrir-
munað að skora, en hann var
keyptur frá Sporting í Lissabon
fyrir 8,5 milljónir punda. Margir
bjuggust við því að hann
yrði iðinn við kolann í vetur
en raunin varð önnur. Hann
skoraði eitt mark á tímabilinu í
27 leikjum.
einar@dv.is
„Ég tók séns í næstsíðustu umferðinni“
n Sævar Þór Ásgeirsson vann DV deildina í Fantasy n Fékk glæsilegt sjónvarp frá Sjónvarpsmiðstöðinni að launum
Þ
etta var smá heppni,“ segir sig-
urvegari DV-deildar í Fanta-
sy. Sævar Þór Ásgeirsson var
í þriðja sæti fyrir síðustu um-
ferðina og var nokkrum stigum á
eftir tveimur efstu mönnunum;
þeim Inga Rafnssyni og Ágústi Guð-
mundssyni. Sævar fékk 61 stig í síð-
ustu umferðinni, sem nægði honum
til að skjótast fram úr hinum tveimur.
Sævar Þór, sem er sjómaður í
Noregi, vann því glæsilegt 42 tomma
sjónvarp frá Sjónvarpsmiðstöðinni.
Tækið kostar um 170 þúsund krón-
ur. Sævar hafði betur en 1.669 aðr-
ir spilarar. Hann lauk keppni með
2.517 stig, fimm stigum meira en
næsti maður.
Sævar Þór segir að hann hafi ver-
ið 30 stigum á eftir efstu mönnum
þegar tvær umferðir voru eftir. Hann
hafi þá gert Yaya Toure að fyrirliða
og það hafi reynst dýrmætt. Þá hafi
Edin Dzeko einnig gefið allmörg stig.
En var hann með eitthvert leyni-
vopn? „Já, ég tók séns í næstsíðustu
umferðinni og valdi Markos Alonso
hjá Sunderland. Hann hafði lítið
spilað en fékk 17 stig því Sunderland
átti tvo leiki í þeirri umferð. Hann
var svo ekki í hóp í síðustu um-
ferðinni en þá kom Leighton Baines
inn af bekknum og fékk sex stig. Það
var svolítið heppni.“
Spurður hvort síðasta umferðin
hafi verið taugatrekkjandi segir
Sævar að hann hafi ekki haft mikla
trú á þessu fyrr en Steven Gerrard
hafi gefið tvær stoðsendingar á einni
og sömu mínútunni. Þar hafi komið
sex stig á einu bretti. Sævar er stuðn-
ingsmaður Liverpool og viðurkenn-
ir að sjónvarpið sé ákveðin uppbót.
Hann geti þó líklega ekki horft mikið
á það meðan á HM stendur því hann
verði líklega mestmegnis í Noregi í
sumar. „Konan getur allavega horft
á HM,“ sagði hann glaður í bragði,
þegar hann tók á móti tækinu í versl-
un Sjónvarpsmiðstöðvarinnar í Ár-
múla á miðvikudag. n
baldur@dv.is
Vann nýtt Panasonic-sjón-
varpstæki Sævar (t.h.) ásamt
dóttur sinni. Með honum á myndinni
eru Einar Þór Sigurðsson, vaktstjóri
á DV, og Ómar Smith, (t.v.) starfs-
maður í versluninni. MynD Sigtryggur Ari