Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1955, Blaðsíða 10
8*
Verzlunarskýrslur 1953
Frá 1. júlí 1949 liefur, auk ofangreinds, verið tekið %% hlutatryggingasjóðs-
gjald (sbr. lög nr. 48/1949) af öllum útfluttum sjávarafurðum, öðrum en þeim, sem
koma frá togurum, hvalveiðum og selveiðum. — Af útfluttri beitusíld var á árinu
1953 innheimt 8% framleiðslugjald, miðað við fob-verð, en ekki var um að ræða
framleiðslugjald af öðrum sjávarvörum, sbr. Verzlunarskýrslur 1950, bls. 6*. Af
saltsíld, öllum tegundum, var reiknað matsgjald 1953, 1 kr. á tunnu, ef síldin
var metin.
Almenna útflutningsgjaldið rennur að 6/7 blutum (þ. e. 1%%) til Fiskveiða-
sjóðs, en J/7 hluti þess (þ. e. %%) rennur til Landssambands ísl. útvegsmanna og
til byggingar fiskirannsóknarstöðvar, að hálfu til hvors. Almenna útflutnings-
gjaldið á saltfiski (%%) rennur á sama bátt til þessara tveggja síðastnefndu aðila.
— Vísast hér til laga nr. 81/1947, sem breytt var með lögum nr. 38/1948. Gjöldin
eru miðuð við fob-verð, eða, ef svo ber undir, við cif-verð að frádregnu flutnings-
og ábyrgðargjaldi til útlanda og umboðslaunum til erlendra aðila.
í ársbyrjun 1951 gengu í gildi ákvæði um innflutningsfríðindi bátaút-
vegsmanna, og voru þau framlengd btið breytt 1952 og 1953. Samkvæmt þeim
fá bátaútvegsmenn og vinnslustöðvar bátafísks umráð yfir helmingi af söluandvirði
útfluttra bátaafurða, annarra en þorskalýsis, síldar og síldarafurða. Má ráðstafa
þessum gjaldeyri til kaupa erlendis frá á vörum, sem eru á sérstökum „skilorðs-
bundnum frílista“. Dollarar og E.P.U.-gjaldeyrir, sem útflytjendur hafa þannig
fengið til ráðstöfunar, hefur verið seldur með 61% álagi, en vöruskiptagjaldeyrir
með 26% álagi, þar af leyfisgjald 1% fyrir sltrifstofukostnaði og öðrum útgjöldum
vegna framkvæmdar þessara mála. Þetta samsvarar því, að útflytjendur bátaafurða
fái sem svarar 30% eða 12%% viðbót við fob-verðið eins og það er talið í útflutn-
ingsskýrslum. Þessi viðbót er m. ö. o. ekki innifalin í fob-verði afurða í verzlunar-
skýrslum.
Yið ákvörðun á útflutningsverðmæti ísfisks í verzlunarskýrslum gilda
sérstakar reglur, sem gerð er grein fyrir í kaflanum um útfluttar vörur síðar í inn-
gangi þessum.
Nokkuð kveður að því, að útflutningsverðmæti sé áætlað í skýrslunum,
þ. e. að reiknað sé með því verðmæti, sem tilgreint er í útflutningsleyíi viðskipta-
deildar Utanríkisráðuneytisins. Er farið þannig að, þegar látið er uppi af hálfu
útflytjanda, að varan sé flutt út óseld. Eru ekki tök á að lagfæra þetta síðar, og er
hér um að ræða ónákvæmni, sem getur munað allmiklu.
Það segir sig sjálft, að í verzlunarskýrslurnar koma aðeins vörur, sem afgreiddar
eru af tollyfirvöldunum á venjulegan bátt. Kaup íslenzkra skipa og flugvéla erlendis
á vörum til eigin nota koma að sjálfsögðu ekki í verzlunarskýrslum, og ef slíkar
vörur eru fluttar inn í landið, koma þær ekki á skýrslu, nema að svo miklu leyti
sem þær kunna að vera teknar til tollmeðferðar.
Fram að 1951 hefur þyngd vöru í verzlunarskýrslum, bæði í útflutningi
og innflutningi, verið nettóþyngd, og svo er einnig í Verzlunarskýrslum 1951 og
síðar að því er snertir útfluttar vörur. Innfluttar vörur eru hins vegar frá
og með árinu 1951 taldar með brúttóþyngd, þ. e. með ytri umbúðum.
Mælir margt með því að miða við brúttóþyngd í stað nettóþyngdar að því er snertir
innfluttar vörur. í fyrsta lagi er yfirleitt brúttóþyngdin einvörðungu gefin upp í
skýrslum innflytjenda eins og Hagstofan fær þær frá tollyfirvöldum, þar eð vöru-
magnstollur er í flestum tilfellum miðaður við brúttóþyngd. Séu innfluttar vörur
gefnar upp með nettóþyngd í verzlunarskýrslum, er það því ávallt samkvæmt útreikn-
ingi eftir ákveðnum umreikningsblutföllum,sem hljóta að verameiraeðaminnaóáreið-