Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1955, Side 19
Verzlunarskýrslur 1953
17*
Engar stórar flugvélar voru fluttar inn 1953, en tvær smáar einkaflugvélar,
önnur frá Bretlandi, innkaupsverð 115 þús. kr., hin frá Bandaríkjunum, innkaups-
verð 54 þús. kr.
í 3. yfirliti er sýnd árleg neyzla nokkurra vara á hverju 5 ára skeiði,
síðan um 1880 og á hverju ári síðustu 5 árin, bæði í heild og á hvern einstakling.
Að því er snertir kaffi, sykur og tóbak er miðað við innflutt magn og talið, að
það jafngildi neyzlunni. Sama er að segja um ölið framan af þessu tímabili, en
eftir að komið var á fót reglulegri ölframleiðslu í landinu er hér miðað við innlent
framleiðslumagn. — Tölurnar, er sýna áfengisneyzluna, eru nú aðrar en þær,
sem hafa áður verið birtar í verzlunarskýrslum. Fyrir árin 1881—1935 er að vísu,
eins og áður, miðað við innflutt áfengismagn, en létt vín hafa nú verið umreiknuð
í vínanda eftir áfengisinnihaldi. Þá liefur og umreikningur sterkra drykkja í vín-
anda verið endurskoðaður og er nú nær sanni. Fram til 1935 er allur innfluttur
vínandi tahnn áfengisneyzla, þó að hluti hans hafi farið til annarra nota. Upp-
lýsingar eru ekki fyrir hendi um, hve stór sá hluti hefur verið, en hins vegar má
gera ráð fyrir, að meginliluti vínandans hafi á þessu tímal)ili farið til drykkjar.
— Frá árinu 1935 er miðað við sölu Áfengisverzlunar ríkisins á sterkum drykkjum
og léttum vínum og hún talin jafngilda neyzlunni, en vínandainnflutningurinn
er ekki meðtalinn, enda er sá liluti hans, sem farið hefir til framleiðslu brennivíns
og ákavitis lijá Áfengisverzluninni, talinn í sölu bennar á brenndum drykkjum.
Þó að eittlivað af vínandainnflutningi hennar kunni að hafa farið til neyzlu þar
fram yfir, er ekki reiknað með því í töflunni, þar sem ógerlegt er að áætla, hversu
mikið það magn muni vera. Hins vegar má gera ráð fyrir, að það sé mjög lítið
hlutfallslega. — Innflutningur vínanda síðan 1935 er sýndur í töflunni, en hafður
í sviga, þar sem hann er elcki með i neyzlunni. — Mannfjöldatalan, sem notuð er
til þess að finna neyzluna hvert ár, er meðaltal fólksfjölda í ársbyrjim og árslok.
Fólkstala fyrir 1953, sem við er miðað, er 153 858.
Hluti kaffibætis af kaffineyzlunni samkvæmt yfirlitinu var sem hér segir síðustu
5 árin (100 kg): 1949: 2 272, 1950: 2 588, 1951: 2 321, 1952: 1 541, 1953: 2 163.
4. yfirlit sýnir verðmæti innfluttrar vöru eftir mánuðum og vöru-
flokkum. Skip eru, eins og fyrr greinir, tekin á skýrslu hálfsárslega, með inn-
flutningi mánaðanna júní og desember, en að þessu sinni eru öll skipin (sjá bls. 16*)
talin með innflutningi desemhermánaðar.
4. Útfluttar vörur.
Exports.
í töflu IV B (bls. 71—77) er skýrt frá útflutningi á hverri einstakri
vörutegund frá landinu í lieild sinni. Eru vörurnar þar flokkaðar eftir skyldleika
á sama hátt sem innfluttu vörurnar, og eru yfirlit yfir þá flokkaskiptingu í töflu I og
II (bls. 1—3).
Eins og greint var frá í 1. kafla inngangsins, er útflutningurinn í verzlunar-
skýrslum talinn á söluverði afurða með umbúðum, fluttur um borð í skip (fob) á
þeirri höfn, er þær fara fyrst frá, samkvæmt sölureikningi útflytjanda. Þessi regla
getur ekki átt við ísfisk, sem íslenzk skip selja í erlendum höfnum,
og gilda því um verðákvörðim hans í verzlunarskýrslum sérstakar reglur, er nú
skal gerð grein fyrir. Um langt skeið hafa verið dregin 20% frá brúttósöluverði
ísfisks til Bretlands samkvæmt upplýsingum Fiskifélagsins, fyrir sölukostnaði og
tolli. Af þessum 20% eru 9,1% innflutningstollur. Af söluverði ísfisksins til Þýzka-