Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1955, Qupperneq 33
Verzlunarskýrslur 1953
31*
í 8. yfirliti er samanburður á vörumagnstolltekjum ríkissjóðs af hinum gömlu
tollvörum 5 síðustu árin og fjögur 5 ára tímabil þar áður, og jafnframt eru til-
greindar þar vörumagnstolltekjur af öðrum vörum og heildarupphæð verðtollsins
þessi sömu ár.
Hér fer á eftir yfirht um hundraðshluta tolltekna ríkissj óðs af heildar-
verðmæti innflutningsins. í því sambandi verður að hafa í huga, að innflutn-
ingsgjaldið af bensíni ásamt viðbótargjöldum á innflutningsleyfi, svo og söluskattur
innfluttum vörum, er hér ekki meðtalið í tolltekjunum, eins og fyrr var j
1931—35 meðaltal 13,4 % 1949 19,3 %
1936—40 — 16,2 „ 1950 14,7 „
1941—45 — 18,6 „ 1951 15,4 „
1946—50 — 17,4 „ 1952 14,3 „
1953 15,5 „
í 1. kafla inngangsins er greint frá hinum ýmsu gjöldum á útflutnings-
vörum, sem voru í gildi á árinu 1953. Eins og þar kemur fram eru gjöld þessi,
að útflutningsleyfisgjaldinu fráteknu,innheimt af ríkissjóði fyrir aðra aðila samkvæmt
lagaákvæðum þar að lútandi. Tekjur ríkissjóðs af útflutningsleyfisgjaldinu 1953
námu 707 þús. kr.
8. Tala fastra verzlana.
Number of Commercial Establishments.
Skýrsla um tölu fastra verzlana árið 1953 í hverju lögsagnarumdæmi á landinu
er í töflu IX (bls. 134—135). Síðan 1943 er skýrsla þessi töluvert meira sundur-
liðuð heldur en áður, þar sem reynt hefur verið að skipta smásöluverzlununum
eftir þvi, með hvaða vörur þær verzla. Taldar eru hér með verzlunum fisk-, brauð-
og mjólkurbúðir, þótt ekki þurfi verzlunarleyfi til að reka þær, en þær hafa ekki
verið taldar með áður en forminu var breytt 1943. Útibú og aðskildar verzlunar-
deildir eru taldar hver í sínu lagi sem sérstakar verzlanir.
Frá 1952 til 1953 fjölgaði verzlunum á öllu landinu úr 1 662 í 1 725, en í
Reykjavík varð fjölgun úr 1 049 í 1 086.
Utan Reykjavíkur fjölgaði verzlunum úr 613 í 639, þ. e. úr 382 í 392 í kaup-
stöðum og úr 231 í 247 í sýslum. í Reykjavík fjölgaði heild- og umboðssöluverzl-
unum úr 233 í 245, en smásöluverzlunum úr 826 í 841. í sumum greinum smá-
söluverzlunar varð dálítil fjölgun, en fækkun í öðrum.
Á undanförnum árum hafa fastar verzlanir verið taldar svo sem hér segir:
Heild- Smásölu- Fisk-, brauð-
verzlanir verzlanir og mjólkurbúðir Samtals
1916—20 meðaltal 36 691 727
1921—25 — 50 789 839
1926—30 — 68 897 965
1931—35 — 78 1 032 1 110
1936—40 — 84 1 034 1 118
1941—45 — 148 1 114 1 262
1946—50 — 208 T 173 164 1 545
1947 207 1 165 151 1 523
1948 208 1 180 158 1 546
1949 210 1 186 176 1 572
1950 216 1 209 176 1 601
1951 220 1 218 186 1 624
1952 239 1 239 184 1 662
19S3 261 1 276 188 1 725