Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1961, Blaðsíða 16
14*
Verzlunarskýrslur 1960
verðsins, þannig að viss þungi af dýrri vöru (með háu verðlagi á kg), svo sem
vefnaðarvöru, vegur meira í vörumagninu heldur en sami þungi af þungavöru
(með lágu meðalverði á kg), svo sem kolum og salti. Vörumagnið getur því aukizt,
þótt þyngdin vaxi ekki, ef magn dýru vörunnar vex, en þungavörunnar minnk-
ar. Lítil aukning á þungavöru hleypir þyngdinni miklu meira fram heldur en
8tórmikil aukning á dýrum vörum, svo sem vefnaðarvöru. Skýringin á þessu
ósamræmi er því sú, að þungavörunnar gætir miklu minna á móts við hinar
dýrari í innflutningnum nú heldur en áður. í útflutningnum er aftur á móti
minni munur á vörumagnsvísitölu og þyngdarvísitölu.
1. yíirlit. Verð innflutnings og útflutnings eftir mánuðum.
Value of imports and exports, by months.
Innflutningur imports Útflutningur exports
1958 1959 1960 1958 1959 1960
months 1000 kr. 1000 kr. 1000 kr. 1000 kr. 1000 kr. 1000 kr.
Janúar 81 362 84 463 262 564 51 819 63 408 183 117
Febrúar 96 039 104 324 302 319 58 041 110 488 287 488
Marz 128 352 96 306 267 148 83 496 72 894 171 863
Apríl 147 575 118 238 222 056 70 787 80 315 205 669
Maí 126 692 146 395 209 106 99 172 101 300 185 695
Júní 95 763 147 328 379 142 104 229 111 276 177 647
júií 89 012 125 516 218 822 62 655 54 631 136 929
Ágúst 88 397 98 673 184 506 98 050 82 940 207 256
September 118 386 111 534 201 899 129 933 75 298 175 310
Október 115 935 128 199 231 601 105 946 110 252 295 421
Nóvember 99 398 113 034 269 806 104 107 79 028 247 828
Desember 210 681 267 509 590 117 101 962 117 672 267 262
Samtals 1397 592 1 541 519 3 339 086 1070 197 1 059 502 2541 485
1. yfirlit sýnir innflutning og útflutning í hverjum mánuði 1958—
1960 samkvæmt verzlunarskýrslum, en síðar í innganginum er yfirlit um mánað-
arlega skiptingu innflutnings (3. kafli) og útflutnings (4. kafli) eftir vörudeildum.
3. Innfluttar vörur.
Imports.
Tafla IV A (bls. 12—73) sýnir, hve mikið hefur verið flutt til landsins af
hverri vörutegund árið 1960. Eru vörurnar þar flokkaðar eftir vöruskrá Sameinuðu
þjóðanna. Fremst í innganginum er gerð nánari grein fyrir þessari vöruskrá og
notkun hennar í verzlunarskýrslum, og vísast til þess. í töflum I og II (bls. 1—3)
er yfirlit um skiptingu vöruskrárinnar.
Þyngd hverrar einstakrar vörutegundar í töflu IV A er brúttóþyngd, og
er í því sambandi vísað til 1. kafla inngangsins, þar sem gerð er grein fyrir ástæð-
unum fyrir því, að frá og með árinu 1951 er magn innflutningsins gefið upp með
brúttóþyngd. Annar töludálkur töflu IV A sýnir hundraðshluta nettóþyngdar af