Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2011, Síða 19
Erlent | 19Miðvikudagur 6. júlí 2011
Reynt á mannréttindabrot Bandaríkjanna:
Vilja rétta yfir Bandaríkjamönnum
Írönsk stjórnvöld hafa í hyggju
að rétta yfir 26 bandarískum emb-
ættismönnum fyrir mannréttinda-
brot að sakborningum fjarstöddum.
Meðal þeirra sem rétta á yfir er Do-
nald Rumsfeld, fyrrverandi varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna. Þá á
einnig að rétta yfir herforingjum við
Abu Graib-fangelsið í Írak og Guan-
tanamo-fangabúðunum á Kúbu.
Frumvarp um réttarhöldin var ný-
lega lagt fyrir þingið í Íran.
Frumvarpið kom í kjölfar þess að
Mannréttindaráð Sameinuðu þjóð-
anna skipaði sérstakan rannsakanda
til að rannsaka mannréttindabrot í
Íran. Íranir neita hins vegar öllum
ásökunum um mannréttindabrot og
sömuleiðis ásökunum um að hafa
bælt niður mótmæli með hörku eft-
ir forsetakosningarnar 2009 þeg-
ar Mahmoud Ahmadinedjad var
endurkjörinn forseti.
Frá því að klerkastjórnin komst
til valda í Íran hafa Bandaríkin oft
beitt refsiaðgerðum gegn Íran. Á síð-
ustu árum hafa refsiaðgerðirnar, fyr-
ir tilstuðlan Öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna beinst gegn kjarnorku-
áætlunum Írana.
Nú hafa írönsk stjórnvöld ákveð-
ið að svara í sömu mynt með því
að halda sín eigin réttarhöld. Verði
mennirnir fundnir sekir liggur í aug-
um uppi að þeir muni ekki taka út
refsingu sína enda eiga bandarískir
embættismenn almennt lítið erindi
til Íran. Þá hafa Bandaríkjamenn
aldrei sætt refsingum fyrir mannrétt-
indabrot eða stríðsglæpi.
Þess má geta að hvorki Banda-
ríkin né Íran viðurkenna lögsögu Al-
þjóðastríðsglæpadómstólsins í Haag
svo dæmi séu tekin. Rumsfeld Íranar ætla að rétta yfir fyrrverandi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna.
Sprengjuárásir Írak:
35 fórust í árásum
Að minnsta kosti 35 manns fórust í
tveimur sprengjuárásum á stjórn-
sýslubyggingu í bænum Taji, 20 kíló-
metra norður af
Bagdad. Seinni
sprengjan var
sprengd úr fjar-
lægð skömmu
eftir þá fyrri
þegar fjöldi
manns hraðaði
sér á vettvang.
Írösk yfirvöld
hafa kennt al-Kaída um hryðju-
verkin en bandarískir herforingjar
segja hins vegar að hersveit, sem
njóti stuðnings Írans, sé ábyrg fyrir
ódæðinu. Þær hersveitir lýstu drápi
á 14 bandarískum hermönnum í
síðasta mánuði á hendur sér. Áður
höfðu fimm manns, þrjár konur og
tvö börn, farist í eldflaugaárás á yfir-
ráðasvæði bandaríska hersins en þar
voru menn að fagna þjóðhátíðardegi
Bandaríkjanna.
Margt bendir nú til þess að stóra
málið á hendur Dominique Strauss-
Kahn, fyrrverandi framkvæmda-
stjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins,
verði fellt niður. Strauss-Kahn er
ákærður fyrir kynferðislega áreitni
og tilraun til nauðgunar en málið er
nú í uppnámi þar sem saksóknar-
ar eru hættir að trúa hótelþernunni
þrátt fyrir að sönnunargögn sýni að
Strauss-Kahn átti í kynferðislegum
samskiptum við þernuna á hótelher-
berginu.
Í kjölfar ásakananna grófu lög-
fræðingar Strauss-Kahns upp ýmis-
legt vafasamt um hana. Meðal ann-
ars á hún að hafa logið í umsókn
sinni um landvistarleyfi. Hún hefur
verið bendluð við glæpastarfsemi
sem tengist peningaþvætti og sölu
á fíkniefnum og loks er hún sögð
stunda vændi á hótelinu samhliða
þrifunum. Þá á konan að hafa talað
við fanga í síma um þann möguleika
að hagnast á því að lögsækja Strauss-
Kahn.
Lögmaður þernunnar vildi hins
vegar ekki gefa málið eftir og sagði
það staðreynd að Strauss-Kahn hefði
áreitt þernuna kynferðislega. Eftir
standa því orð fátækrar hótelþernu
gegn orðum valdamikils embætt-
ismanns og erfitt að fullyrða hvað
gerðist í raun og veru á hótelinu.
Kæra bíður Strauss-Kahns í
Frakklandi
Strauss-Kahn mun væntanlega fara
úr öskunni í eldinn en rithöfund-
urinn Tristane Banon hefur ákveð-
ið að leggja fram kæru hjá saksókn-
ara í París vegna kynferðislegs áreitis
Strauss-Kahns þegar hún tók við-
tal við hann árið 2003. Hún hugðist
gera það strax eftir atvikið en móðir
hennar, Anne Mansouret, flokkssyst-
ir Strauss-Kahns, sannfærði hana um
að gera það ekki. Mansouret segist
hins vegar sjá eftir því núna þar sem
augljóst sé að vandamál Strauss-
Kahns varðandi konur væru veik-
leiki.
Banon tjáði sig um málið í við-
tali við franska vikublaðið L’express.
Þar sagði hún að allir hefðu sagt sér
að henni yrði ekkert ágengt ef hún
myndi sækja Strauss-Kahn til saka en
málið í New York hefði gefði henni
hugrekki til að leggja fram kæru til
saksóknara. Hún sagðist vera orðin
þreytt á að þurfa að bera þetta mál
ein á herðum sér enda hafi hún með-
al annars verið sökuð um lygar.
Lögfræðingur Banon sagði við
sama blað að kærurnar yrðu lagðar
fram seinna, en hann vildi ekki að
málið yrði tengt við mál hótelþern-
unnar.
Lögfræðingar Strauss-Kahns í
Frakklandi sögðust hafa fengið skip-
anir um að leggja inn kæru á hendur
Banon fyrir að ljúga til um „ímynd-
aða“ atburði. Þá hefur Strauss-Kahn
einnig talað um samæri gegn Sósíal-
istaflokknum í þessu samhengi.
„Þannig er það nú bara“
Mál Strauss-Kahns hefur haft víð-
tæk áhrif í Frakklandi. Þerna á hóteli
í París kom fram og tjáði sig um kyn-
ferðislega misnotkun sem hún sætti
af hálfu manns sem tengist furstan-
um í Katar. Hún leitaði til lögregl-
unnar sem vildi ekkert gera í málinu
og sagði henni að falla frá því. Hún
sagði þá í kjölfarið að það væri ekki
réttlátt því maðurinn væri ríkur og
mikilvægur og gæti komið fram við
fólk eins og hann vildi. „Þannig er
það nú bara,“ svaraði lögreglan um
hæl.
Talsmaður samtaka gegn kvenna-
ofbeldi sagði málið hafa verið tek-
ið fyrir á ný þrátt fyrir að konan sjálf
hefði ekki verið látin vita. Talsmað-
urinn sagði jafnframt að tilkynningar
um kynferðislegt áreiti hefðu aukist
svo áberandi væri. Konur hefðu nú
hugrekki til að koma fram.
Lögreglan í Frakklandi rannsak-
ar nú einnig mál Georges Tron sem
þurfti að segja af sér sem ráðherra í
síðasta mánuði eftir að tvær embætt-
iskonur komu fram og ásökuðu hann
um kynferðislega áreitni fyrir fjórum
árum.
Vonast eftir breyttu hugarfari í
Frakklandi
Franskir femínistar binda vonir við
að mál Strauss-Kahns muni hafa í
för með sér breytt hugarfar í Frakk-
landi. Ritjóri Le Monde bindur vonir
við að málið marki endalok „gamal-
dags karlrembustjórnmála“ í Frakk-
landi en tilhneiging hefur verið til að
láta sem ekkert hafi í skorist í málum
sem varða kynferðislega áreitni. Þá
kallaði ritstjóri Elle Magazine eftir
hugarfarsbreytingu hjá konum sem
sæju sér ekki annað fært en að láta
karlrembu og kynferðislegt áreiti við-
gangast.
Svo virðist þó sem að barátta fem-
ínista fyrir breyttu hugarfari eigi enn
töluvert í land en samkvæmt nýlegri
könnun getur tæplega helmingur
Frakka hugsað sér að sjá Strauss-
Kahn aftur í frönskum stjórnmálum
og umræðum. Þykir það jafnframt
móðgun við konur að Strauss-Kahn
er enn orðaður við forsetaframboð í
Frakklandi.
Dominique Strauss-Kahn Gengur úr réttarsal eftir að hafa verið látinn laus án tryggingargjalds.
Vafasöm fortíð þernunnar
sem kærði Strauss-Kahn
n Saksóknarar draga trúverðugleika þernunnar í efa n Franskur rithöf-
undur leggur fram kæru n Femínistar berjast fyrir breyttu hugarfari
Björn Reynir Halldórsson
blaðamaður skrifar bjornreynir@dv.is
Tristane Banon
Franskur rithöfundur
ætlar að leggja
fram kæru á hendur
Strauss-Kahn.