Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2011, Qupperneq 24
24 | Sport Umsjón: Tómas Þór Þórðarson tomas@dv.is 6. júlí Miðvikudagur
Cardiff og AEK hafa mikinn áhuga:
Aron Einar eftirsóttur
Aron Einar Gunnarsson, landsliðs-
maður í fótbolta, mun væntanlega í
dag eða á morgun skrifa undir samn-
ing við nýtt félag af marka má orð
umboðsmanns hans, Jerrys de Kon-
ing, á þriðjudag. „Það eru mörg fé-
lög á höttunum eftir Aroni og Cardiff
City er eitt þeirra liða,“ sagði hann
en Aron er nú sterklega orðaður við
velska liðið Cardiff City sem leikur í
Championship-deildinni.
„Það hefur ekki verið gengið frá
neinu en þetta ætti að verða klárt eft-
ir einn til tvo klukkutíma. Það sem
mest liggur á að ganga frá eru bóta-
greiðslur til Coventry,“ segir Koning
en þar sem Aron hefur verið hjá fé-
laginu í þrjú ár en ekki enn náð 24
ára aldri hefur Coventry rétt á bóta-
greiðslum. Aron hefur lengi staðið í
stappi við Coventry yfir nýjum samn-
ingi en liðið virðist ekki reiðubúið að
borga honum uppsett samningsverð.
Samkvæmt heimildum DV hefur
gríska liðið AEK einnig mikinn áhuga
á að fá Aron Einar en yfirmaður knatt-
spyrnumála þar er fyrrverandi lands-
liðsmaðurinn Arnar Grétarsson. AEK
getur þó aðeins boðið Aroni svipað-
an samning og hann er með hjá Co-
ventry í dag og er því gríska liðið ekki
inni í myndinni hjá landsliðsmannin-
um. AEK hefur frá því Arnar hóf störf
þar haft áhuga á að fá íslenska leik-
menn til liðs við sig. Er félagið nú á
höttunum eftir Elfari Frey Helgasyni,
miðverði Breiðabliks.
Samkvæmt umboðsmanni Arons
Einars hafa fleiri lið áhuga á honum.
„Mörg stórlið í stórum deildum hafa
sýnt honum áhuga. Fullt af félögum
í Championship-deildinni og nokkur
í ensku úrvalsdeildinni hafa einnig
sýnt áhuga. Auk þess hafa félög frá
Þýskalandi og Hollandi verið í sam-
bandi,“ segir Jerry de Koning, um-
boðsmaður Arons Einars Gunnars-
sonar. tomas@dv.is
Til hvers er góði
fótboltinn?
n Paul Scholes sem nýverið lagði
skóna á hilluna sér Chelsea og
Manchester City sem helstu ógn-
ina við Uni-
ted í titilbarátt-
unni á komandi
tímabili. Hann
tippar á að Arse-
nal dali og gefur
lítið fyrir þá stað-
reynd að oft spili
liðið besta bolt-
ann. „Arsenal
spilar stundum besta fótboltann
en hver er tilgangurinn með því ef
liðið vinnur ekkert? Svo er liðið að
missa sína bestu leikmenn. Ég sé
Arsenal því frekar fara niður en vera
í einhverri titilbaráttu,“ segir Paul
Scholes.
Downing kláraður
í vikunni
n Fátt ætti nú að geta komið í veg
fyrir að vængmaðurinn Stewart
Downing gangi í raðir Liverpool
frá Aston Villa
fyrir 20 milljónir
punda en búist
er við að gengið
verði frá samn-
ingum í vikunni.
Downing hefur
heimtað að fá
að fara frá Villa
þrátt fyrir beiðni
nýja knattspyrnustjórans, Alex
McLeish, um að hann verði áfram.
„Stewy er búinn að ákveða sig.
Hann vill fara til Liverpool,“ segir
heimildarmaður breska götublaðs-
ins The Sun.
Murray horfir
til Djokovic
n Breska tenniskappanum tókst
ekki að hafa sigur á Wimbledon-
mótinu sem lauk um síðustu helgi
en hann á enn
eftir að vinna
risamót. Í pistli
sem hann skrifar
í breska blaðið
The Guardi-
an segist hann
horfa upp til
nýja Wimble-
don-meistar-
ans, Novaks Djokovic. „Ég man eftir
Djokovic í undanúrslitum í fyrra og
í úrslitaleiknum. Hann hefur bætt
sig ótrúlega mikið frá því í fyrra og
það er eitthvað sem ég þarf að horfa
til,“ skrifar Murray.
Stórlið berjast
um Pastore
n Javier Pastore, miðjumaður ít-
alska liðsins Palermo, virðist mjög
eftirsóttur en Manchester United,
Manchester City og Chelsea eru
öll á höttunum eftir þessum 22 ára
gamla leikmanni. Palermo vill fá
44 milljónir punda fyrir Pastore en
ólíklegt þykir að nokkurt lið vilji
greiða svo mikið fyrir hann. Þrátt
fyrir áhuga þessara ensku liða segir
forseti félagsins í viðtali við ítalska
blaðið La Gazetta dello Sport að
líklegasti áfangastaður Pastore verði
Spánn.
Klitschko bestur í
heimi
n „Ég gat ekki hreyft mig almenni-
lega þar sem ég var tábrotinn en
það var ekki ástæðan fyrir því að ég
tapaði bardag-
anum,“ segir
David Haye um
tapið gegn Wla-
dimir Klitschko
um síðustu
helgi. „Klitschko
var betri en ég,
þannig er það
bara. Ég var klár-
lega næstbestur inni í hringum á
laugardagskvöldið og ég efast um
að ég hefði unnið þó ég hefði verið
heill. Wladimir er besti hnefaleika-
kappi heims um þessar mundir.“
Molar
Á
sunnudaginn fer fram ein
stærsta Formúlukeppni
hvers árs þegar ökuþórar lið-
anna geysast um Silverstone-
brautina í Bretlandi. Einn
maður verður þó tæplega að horfa,
fyrrverandi heimsmeistarinn í Fo-
múlu 1, Jacques Villeneuve. Kanada-
maðurinn fertugi sem síðast keyrði
fyrir Sauber árið 2006 hefur oft ver-
ið orðaður við endurkomu í Formúl-
una en miðað við orð hans í veislu
hjá Williams-liðinu um síðastliðna
helgi mun það seint gerast. „Ég horfi
ekki einu sinni á keppnirnar leng-
ur. Í fyrsta skipti frá því ég man eftir
mér nenni ég því ekki. Þegar mótin
eru hálfnuð er ég byrjaður að geispa.
Þetta er erfitt fyrir mig því ég verð
bara reiður að horfa á þetta,“ segir
Villeneuve.
Engin spenna
Það verður seint sagt að Formúlu-
tímabilið í ár hefur verið spennandi
en Sebastian Vettel á Red Bull hefur
unnið sex af átta fyrstu keppnunum.
Þá eru þetta nær alltaf sömu bílarn-
ir sem raða sér í efstu sætin. Mun-
urinn á gæðum bílanna er svo mik-
ill að góðir ökumenn geta illa varið
stöðu sína gegn þeim sem eru á betri
bílum. „Michael Schumacher hefði
með réttu átt að vera á palli í Kanada
um daginn. En það var ekki séns að
hann gæti varið stöðu sína. Ég verð
bara pirraður að horfa á þetta,“ seg-
ir Villeneuve sem er ekki hrifinn af
DRS-kerfinu, eða færanlega aftur-
vængnum, sem hjálpar ökumönnum
gríðarlega við framúrakstur.
„Mér finnst ekkert gaman að sjá
framúrakstur með DRS. Ég vil bara
sjá Lewis Hamilton brjálaðan eins
og hann hefur verið undanfarið og
reyna að strauja fram úr mönnum
á erfiðum stöðum. Það er gaman og
spennandi. Framúrakstur með DRS
er hundleiðinlegur. Ég bara sofna
þegar ég sé svoleiðis leiðindi. Ég
hreinlega skil ekki hvers vegna þetta
dót er á bílunum. Þegar menn sjá að
það er verið að taka fram úr þeim
reyna þeir ekki einu sinni að verja
sig. Þeir geta það ekki. Til hvers ættu
þeir að reyna það?“ segir Villeneuve.
Röngum mönnum refsað
„Dómarar eru líka að refsa mönn-
um fyrir að gera mistök frekar en
þeim sem keyra hættulega,“ hélt
Villeneuve áfram. „Það er algjör-
lega rangt. Það gerist alveg að menn
klessi á, þetta er nú kappakstur. Síð-
an sikk-sakka menn í brautinni og
gera alls kyns hættulega hluti en fá
ekki bágt fyrir það. Það finnst mér
ekki rétt stefna,“ segir Villeneuve sem
sjálfur lenti í því að Michael Schu-
macher keyrði viljandi á hann og var
Schumacher refsað með því að hann
missti ölll stigin í heimsmeistara-
keppninni það árið.
Ef einn ökuþór hefur verið grófari
en annar í brautinni í ár er það Lewis
Hamilton á McLaren en hann hefur
verið að gera ökumenn brjálaða með
látum í brautinni. „Lewis keyrir mjög
ákveðið í ár og gleymir sér stundum
þannig að hann endar á því að klessa
á aðra bíla. En það á ekkert að stöðva
það. Þetta er jú kappakstur! Þetta er
nákvæmlega það sem maður vill sjá.
Baráttu,“ segir Jacques Villeneuve.
Eftirsóttur Aron Einar á úr vöndu að ráða fyrir komandi tímabil. MyND ToMASz KoLoDziEJSKi
n Heimsmeistarinn fyrrverandi Jacques Villeneuve hættur að horfa á F1 n Aldrei spenna,
enginn getur varið stöðu sína og röngum mönnum refsað n Fann ánægjuna aftur í NASCAR
Tómas Þór Þórðarson
blaðamaður skrifar tomas@dv.is
Ákveðinn Villeneuve er ánægður
með lætin í LewisHamilton í ár.
MyND REuTERS
Geispar yfir Formúlu 1
Ekki spennandi lengur Jacques Villeneuve segir alla spennu vanta í F1. MyND REuTERS