Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2014, Qupperneq 6
Helgarblað 6.–9. desember 20136 Fréttir
Í
vikunni fjallaði DV um dóm sem
Anna Eiríksdóttir, sóknarprestur
vestur í Dölum, fékk síðastliðinn
febrúar fyrir ítrekaðan fjárdrátt
í starfi er hún var skrifstofustjóri
Jarðvísindastofnunar hjá Raunvís
indastofnun Háskólans. Hún var
dæmd í fjögurra mánaða skilorðs
bundið fangelsi. Í samtali við DV
þá sagði Anna að dómurinn væri
byggður á „fáránlegum sökum“
og gaf í skyn að réttarkerfið hefði
brugðist henni. „Mér finnst þetta
leitt gagnvart öllum, gagnvart kirkj
unni, sóknarbörnum og öllum að
þessi dómur og þetta mál skyldi
fara í þennan farveg og ná svona
langt. Ég hef djúpa samvisku fyrir
því,“ sagði Anna í samtali við DV.
Þessi orð Önnu stönguðust ber
sýnilega á við útskýringu Þorvalds
Víðissonar biskupsritara á hví hún
var ekki leyst frá störfum þrátt fyrir
að hafa ekki sagt frá að hún væri til
rannsóknar lögreglu er hún sótti
um prestakallið. Þorvaldur sagði
í samtali við DV að ein ástæðna
fyrir því að hún hafi ekki verið
leyst frá störfum hafi verið að hún
hafi sýnt iðrun vegna málsins. DV
sendi Þorvaldi fyrirspurn og spurði
meðal annars hvernig megi skýra
þetta misræmi á orðum biskups og
Önnu. „Það sem þú hefur eftir séra
Önnu er ekki í takt við þann mál
flutning sem hún hefur viðhaft við
biskupsembættið,“ var svar Þor
valdar. Hann hefur áður sagt DV
að kirkjan líti málið grafalvarlegum
augum og að Anna sé undir sér
stöku eftirliti kirkjunnar. n
Mótsagnakenndur sóknarprestur
Sýndi að sögn iðrun hjá biskupi, en ekki í samtali við DV
Anna Eiríksdóttir Misræmi er á orðum
hennar um dóm sinn ýmist gagnvart DV
annars vegar og biskupi hins vegar.
Sumarið á
Selfossi um
helgina
Stærsta bæjarhátíðin á Suður-
landi fer fram um helgina
Bæjarhátíðin Sumar á Selfossi
verður haldin í ár líkt og fyrri ár
og hófst hátíðin í gær, fimmtu
dag, og mun hún standa fram á
sunnudagskvöld. Mun þetta vera
stærsta bæjarhátíð sem haldin er
á Suðurlandi í sumar.
Á hátíðinni geta gestir séð
Sirkus Íslands leika listir sínar, en
búið er að setja upp hátíðartjöld
í bænum. Þá gefst fólki einnig
tækifæri til að renna fyrir fisk í
Ölfusá á sunnudeginum og mun
Stangveiðifélag Selfoss grilla fyrir
veiðimenn í hádeginu.
Svo eru það engir aðrir en
Helgi Björns og Reiðmenn vind
anna sem halda uppi stuði á
föstudagskvöldinu.
Heiðra minningu
góðrar vinkonu
n Vilja koma á framfæri ævarandi þakklæti til björgunarsveitanna
O
kkur langar til að halda
minningu Ástu á lofti,
vinna að hennar hugðar
efnum og styrkja jafn
framt björgunarsveitirnar,“
segir Helga Hauksdóttir, ein stofn
enda Ástusjóðs – minningarsjóðs
um Ástu Stefánsdóttur sem fannst
látin í Bleiksárgljúfri í Fljótshlíð
þann 15. júlí síðastliðinn. Að sjóðn
um standa vinkonur Ástu úr ýmsum
áttum, en hún var vinmörg. Flestar
þeirra sem standa að sjóðnum
kynntust henni þó í Menntaskólan
um við Hamrahlíð og lagadeild Há
skóla Íslands. Helga er ein þeirra.
„Við tókum meðal annars þátt í mál
flutningskeppnum saman og starfi
evrópskra laganema. Vinskapurinn
hélst alla tíð. Hún var svo ótrúlega
traust og góð vinkona,“ segir Helga
um vinkonu sína sem féll frá aðeins
35 ára gömul.
Vilja gefa dróna
Ástusjóður var formlega stofnaður
25. júlí og er stjórn hans enn að þróa
hugmyndir að verkefnum. Helga
segir að á þessu stigi málsins sé í
raun ekki búið að taka neinar fastar
ákvarðanir um það hvaða verkefni
sjóðurinn ræðst í, en ýmsar hug
myndir hafa komið upp. Efst á blaði
eru kaup á flygildum eða drónum
sem opna björgunarsveitum nýja
möguleika á því að leita að fólki
úr lofti. Ef allt gengur að óskum er
stefnt er að því að afhenda björg
unarsveitinni Dagrenningu á Hvols
velli og Flugbjörgunarsveitinni á
Hellu slík tæki snemma í haust.
„Þetta er allt gert í góðri samvinnu
við björgunarsveitirnar og fjölskyldu
Ástu,“ segir Helga.
Aðrar tillögur að verkefnum
sjóðsins næsta árið eru styrktartón
leikar, málþing um lögfræðileg mál
efni, minningarkort og umræða um
aðgerðir til að sporna við slysum í
náttúrunni
Ævarandi þakklát
björgunarsveitum
Á heimasíðu sjóðsins kemur meðal
annars fram hvaða málefni voru Ástu
hugleikin og þar segir: „Hugðar efni
Ástu innan lögfræðinnar voru um
hverfisréttur, refsiréttur, réttarfar
og mannréttindalöggjöf. Hún hafði
brennandi áhuga á jafnréttis og
menningarmálum. Gönguferðir og
hollt líferni voru henni eðlislæg en
hún greindist 25 ára með MS sjúk
dóm sem vel tókst að meðhöndla
– fyrir það var hún afar þakklát.“
Þá segir þar einnig að vinir og fjöl
skylda Ástu vilji með sjóðnum koma
á framfæri ævarandi þakklæti vegna
starfa björgunarsveita og lögreglu
eftir hvarf Ástu, en hennar var leitað
í rúman mánuð áður en hún fannst
látin.
Bjó yfir miklum styrk
Eins og áður sagði var Ásta vin
mörg og átti breiðan vinahóp.
Blaðamaður ræddi einnig við Ást
björgu Rut Jónsdóttur, sem er í vina
hópi Ástu úr menntaskóla og stjórn
Ástusjóðs. Hún segir það hafa verið
áberandi í minningargreinum um
Ástu hvað allir lýstu henni á svipað
an hátt. Segir Ástbjörg það endur
spegla hvað hún var fylgin sér og
hafi komið til dyranna eins og hún
var klædd. „Hún var róleg og prívat
manneskja, en hún var virkilega vin
ur vina sinna og alltaf rosalega já
kvæð,“ segir Ástbjörg. Helga tekur
undir orð Ástbjargar. „Maður sá það
í minningargreinunum hvað hún
var ofboðslega sönn manneskja,
fylgin sér og góður vinur.“ Helga var
ein þeirra sem skrifaði fallega minn
ingargrein um Ástu og sagði að þrátt
fyrir rólegt yfirbragð þá hafi hún átt
til mikinn styrk og ákveðni, sem kom
vel í ljós þegar henni fannst gengið
á rétt annarra. Sá styrkur kom henni
einnig vel í baráttu hennar við MS
sjúkdóminn.
Hlaupa fyrir Ástu
Helga og Ástbjörg eru í hópi nokkurra
vinkvenna Ástu sem hafa skráð sig til
þátttöku í Reykjavíkurmaraþoninu og
ætla að hlaupa tíu kílómetra í minn
ingu hennar og til styrktar sjóðnum.
Þær gera nú ekki mikið úr hlaupa
getu sinni en markmiðið er eingöngu
að komast í mark. Hægt er að heita á
þær inni á vefsíðunni hlaupastyrkur.
is. „Okkur finnst gaman að geta gert
þetta líka,“ segir Helga. n
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrun@dv.is
Ástusjóður
Fyrir þá sem vilja leggja sjóðnum lið er
reikningsnúmer hans 301-13-302339 og
kennitalan 630714-0440.
Hægt er að nálgast frekari upplýsingar
um Ástusjóð á heimasíðunni:
astusjodur.is.
„Maður sá það í
minningargreinun-
um hvað hún var ofboðs-
lega sönn manneskja,
fylgin sér og góður vinur.
Vinkonur á góðri
stundu Helga og Ásta
kynntust í Menntaskól-
anum í Hamrahlíð og fóru
svo saman í lagadeildina í
Háskóla Íslands.
Mikill út-
flutningur á
Austfjörðum
Austfirsk sjávarútvegsfyrirtæki
fluttu úr sjávarafurðir fyrir 46
milljarða árið 2012. Þetta er á
meðal þess sem kemur fram í
skýrslunni Umsvif sjávarútvegs
á Austfjörðum sem hagfræði
neminn Ásgeir Friðrik Heimis
son hefur unnið að í sumar fyrir
Austurbrú. Síldarvinnslan vekur
athygli á niðurstöðunum í frétta
tilkynningu, en upphæðin nemur
7,3 prósentum af útflutningsverð
mæti Íslendinga þetta árið. Fram
kemur einnig að sjávarútvegs
fyrirtækin á Austfjörðum hafi
greitt 9 prósent af tekjuskatti
fyrirtækja á Íslandi árið 2012.