Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2014, Blaðsíða 16
Helgarblað 8.–11. ágúst 201416 Fréttir
S
onur þeirra Evelyn Glory
Joseph og Tonys Omos heit-
ir Tarif og er orðinn hálfs
árs gamall. Mæðginin hafa
loksins fengið hæli á Ís-
landi og búa á Suðurnesjum. Tony
er hins vegar ennþá staddur á Ítal-
íu. Þegar DV slær á þráðinn til hans
hefur hann nýlokið Skype-spjalli við
Evelyn og heilsað upp á Tarif litla.
„Ég sakna þeirra og þetta er vont.
Það er vont að fá ekki að vera með
barninu mínu fyrstu mánuðina.
Þetta er fyrsta og eina barnið mitt,“
segir Tony. Hann býr hjá félaga sín-
um sem skaut yfir hann skjólshúsi
og bíður eftir því að mál hans gegn
Útlendingastofnun verði tekið fyrir á
Íslandi. „Fæ ég að hitta barnið mitt?
Hvað heldur þú?“ spyr hælisleit-
andinn í örvæntingu sinni og gerir
blaðamann kjaftstopp.
Bíður fyrirtöku
Mál Tonys Omos gegn Útlendinga-
stofnun verður tekið fyrir í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í október, en
Stefán Karl Kristjánsson, lögmað-
ur Tonys, fór fram á að málinu yrði
frestað þar til niðurstöður fengjust
úr rannsókn lögreglu og ríkissak-
sóknara á trúnaðarbrestinum gagn-
vart Tony og Eve lyn. Ríkissaksóknari
mun að öllum líkindum tilkynna
um næstu skref þess máls um miðj-
an ágúst. Báðir aðstoðarmenn ráð-
herra eru með réttarstöðu grunaðs
manns og hefur lögreglurannsókn-
in nú þegar leitt í ljós að trúnaðar-
upplýsingum um Tony og Evelyn var
lekið út úr innanríkisráðuneytinu í
nóvember. Lögregla telur að þetta
hafi beinlínis verið gert til að sverta
mannorð Tonys Omos.
„Ég skil ekki ennþá hvers vegna
ráðuneytið var að segja þessa hluti
um mig,“ segir Tony. „Mansal er
ólöglegt og ég hef aldrei komið ná-
lægt neinu slíku.“ Hann segir ætt-
menni sín í Nígeríu hafa haft veður
af mansalsásökunum eftir að minn-
isblaði innanríkisráðuneytisins var
lekið til fjölmiðla. „Ég er hræddur
um að ég yrði bara handtekinn strax
ef ég færi aftur til Nígeríu, þetta er
alvarlegur glæpur,“ segir Tony.
„Bara á Íslandi“
Líkt og DV hefur áður greint frá get-
ur það eitt að vera grunaður um glæp
haft í för með sér áralanga fangelsis-
vist í Nígeríu. Meira en helmingur
fanga þar í landi hefur aldrei verið
leiddur fyrir dómstóla að því er
fram kemur í gögnum á vef Amne-
sty International. Aðstæður í fang-
elsum landsins eru hörmulegar en
tæplega þúsund fangar týndu þar lífi
á fyrri helmingi þessa árs. Þá tíðkast
dauðarefsingar í Nígeríu.
„Það er hræðilegt að vera bendl-
aður við mansal. Það er eins og ein-
hver hafi viljað eyðileggja líf mitt, en
ég skil ekki hvers vegna,“ segir Tony
um trúnaðarbrest innanríkisráðu-
neytisins. Hann segist hvergi annars
staðar í heiminum hafa verið sak-
aður um slíka glæpi. „Það er bara á
Íslandi sem svona lagað er sagt um
mig. Þegar ég kom til Íslands var ég
með mikinn farangur, enda ætlaði ég
þá til Kanada. Lögreglan spurði hvar
ég hefði fengið það sem ég var með
og hélt kannski að ég hefði stolið ein-
hverju. En ég hef aldrei skilið hvers
vegna ég var sakaður um mansal.“
Ekki sætt áframhaldandi
rannsókn
Í tölvupósti sem fyrrverandi lögreglu-
stjóri á Suðurnesjum sendi DV í júlí
kemur fram að mansalsrannsókn-
inni sem Tony Omos flæktist inn í sé
lokið og málið bíði afgreiðslu hjá lög-
fræðingum embættisins. Þegar inn-
anríkisráðuneytið rökstuddi synjun
sína á endurupptöku úrskurðar um
að vísa Tony frá Íslandi var vísað sér-
staklega til þess að hann hefði „ekki
sætt áframhaldandi rannsókn lög-
reglu vegna málanna á Suðurnesj-
um“ og því væri „engin ástæða til að
fresta réttaráhrifum vegna þeirra.“
Haft hefur verið eftir lögmanni Tonys
að rannsóknin hafi ekki leitt til eins
eða neins og málið sé fráleitt í alla
staði.
Hugurinn hjá barninu
Tony gaf sig fram til lögreglu 13. des-
ember en þá hafði hann verið í felum
vegna yfirvofandi brottvísunar. Eve-
lyn og Queen, systir Tonys, brotnuðu
niður og grétu. Nokkrum dögum síð-
ar var hann sendur fyrirvaralaust úr
landi án þess að lögmaður hans væri
upplýstur um það. Fyrst um sinn
bjó Tony á götunni í Sviss, en svo
fór hann til Ítalíu þar sem hún dús-
ir enn.
Rauði krossinn á Íslandi hefur
varað sérstaklega við því að flótta-
menn séu sendir til Ítalíu og vegna
slæms aðbúnaðar hælisleitenda
þar í landi. Ítalska ríkið hefur verið
gagnrýnt harðlega fyrir að tryggja
ekki hælisleitendum aðgang að heil-
brigðisþjónustu og húsnæði sem
samræmist evrópskum lágmarksvið-
miðum.
Tony er ekki með heilbrigðis-
tryggingu. Hann er orðinn eirðar-
laus og langþreyttur á því að bíða í
óvissu. Hins vegar er hann þakklátur
fyrir að hafa fengið húsaskjól hjá fé-
laga sínum. „Ég hef ekkert að gera og
ég er ekki með atvinnuréttindi. Ég sit
bara og bíð,“ segir hælisleitandinn
og bætir því við að stundum spili
hann tölvuleiki til að drepa tímann.
„Nú hugsa ég bara um barnið mitt,
ég verð að fá að hitta það.“ n
Jóhann Páll Jóhannsson
johannp@dv.is
Á Ítalíu Tony er
staddur á Ítalíu.
Vísað burt Tony Omos var
handtekinn í desember og
fluttur úr landi í skjóli nætur.
Mynd Sigtryggur Ari
Vill að Tarif
hitti pabba sinn
Ráðuneytið bað hana aldrei afsökunar
„Við höfum það bara gott,“ segir Evelyn
Glory Joseph í samtali við DV. „Já, við töl-
um reglulega saman á Skype. Auðvitað,
Tarif verður að fá að hitta pabba sinn.“
Sveinbarnið kom í heiminn á fæðingar-
deild Landspítalans þann 3. febrúar.
Strax sama dag fékk Tony að sjá soninn
í gegnum tölvuskjá, en systir hans hefur
hjálpað Evelyn að annast barnið.
Innanríkisráðuneytið fullyrti á vef sínum
fyrr í sumar að Evelyn væri eftirlýst.
Lögreglan staðfesti við DV og RÚV að
svo væri ekki. Lögmaður Evelyn upplýsti
svo um að skjólstæðingi sínum
þætti óþægilegt að sitja
undir ósannindum og
ráðuneytið væri hugs-
anlega skaðabótaskylt.
Í kjölfarið breytti ráðu-
neytið tilkynningu sinni
en bað Evelyn ekki afsökunar.
Þetta er ekki eina skiptið sem ráðuneytið
leikur hana grátt. Báðir aðstoðarmenn
innanríkisráðherra eru grunaðir um að
hafa lekið trúnaðarupplýsingum um
Evelyn til fjölmiðla í fyrra, meðal annars
upplýsingum um bakgrunn hennar og að
hún væri fórnarlamb mansals. Þetta olli
henni óþægindum enda kærði hún sig
aldrei um að fjölmiðlar greindu frá þessu.
Lögmaður Evelyn kærði háttsemi
ráðuneytisins til ríkissaksóknara sem
fór fram á lögreglurannsókn. Hanna
Birna Kristjánsdóttir hefur ítrekað verið
staðin að ósannindum um málið, bæði í
fjölmiðlum og á Alþingi, en brugðist við
fréttaflutningi með því að kvarta undan
„ljótum pólitískum leik“.
„Fæ ég að hitta barnið
mitt, hvað heldur þú?“
n Tony saknar Evelyn og Tarif, sonar síns n Mæðgin fengu hæli en Tony bíður