Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2014, Side 17
Helgarblað 8.–11. ágúst 2014 Fréttir 17
Lögmenn kröfðust rannsóknar
n Óttuðust um starfsheiður sinn n Vonlaus starfsandi í ráðuneytinu
M
ikil óánægja hefur ríkt í
innanríkisráðuneytinu
mánuðum saman
vegna viðbragða Hönnu
Birnu Kristjánsdóttur
innanríkis ráðherra við trúnaðar-
brestinum gagnvart nígerísku hæl-
isleitendunum. Samskiptin urðu
strax stirð á fyrstu stigum máls-
ins. Um leið og lögmönnum í ráðu-
neytinu varð ljóst að skjal sem þeir
höfðu útbúið hafði ratað til fjölmiðla
fóru þeir fram á að upplýst yrði hver
hefði lekið því. Fáir höfðu komið
að gerð skjalsins, líkt og fram kem-
ur í greinargerð lögreglu, og töldu
lögmennirnir að það gæti beinlínis
skaðað starfsheiður þeirra ef lekinn
yrði ekki upplýstur tafarlaust. Þeir
óskuðu eftir því að utanaðkomandi
aðili sæi um rannsóknina.
Hulduathugun
Hanna Birna hefur margsinnis
haldið því fram að rekstrarfélag
stjórnarráðsins, félag sem meðal
annars sér um ræstingar og hefur
engu formlegu eftirlitshlutverki að
gegna, hafi annast athugun á lekan-
um. Framkvæmdastjóri þess hefur
ekki staðfest að slík athugun hafi far-
ið fram né hefur fjármála- og efna-
hagsráðuneytið svarað fyrirspurnum
DV um athugunina. Í tilkynningu
innanríkisráðuneytisins í byrjun árs
var fullyrt að „athugun ráðuneytis-
ins og rekstrarfélags stjórnarráðsins
staðfesti að trúnaðargögn vegna um-
rædds máls hafa einungis farið til
þeirra aðila sem samkvæmt lögum
eiga rétt á þeim“. Lögreglurannsókn-
in leiddi hins vegar í ljós að þessi
niðurstaða var röng.
Skömmustuleg tilkynning
Eftir að dómsúrskurðir höfðu varp-
að nýju ljósi á vinnubrögð ráðu-
neytisins í lekamálinu fyrr í sumar
var haldinn starfsmannafundur.
Þegar starfsmenn spurðu spurninga
skammaði Hanna Birna þá fyrir að
sýna ekki nægan liðsanda. Einn
þeirra fundarmanna sem DV ræddi
við sagði Hönnu Birnu hafa sett út á
að starfsmenn væru „með fýlusvip“.
Þegar innanríkisráðuneytið full-
yrti svo ranglega í tilkynningu á vef
sínum að Evelyn Glory Joseph væri
„eftirlýst“ vildi enginn gangast við
því að hafa skrifað tilkynninguna.
Þetta fór í taugarnar á starfsmönn-
um ráðuneytisins. Einn þeirra starfs-
manna sem DV ræddi við fullyrti að
vinnubrögðin væru „farsakennd“,
höfundur tilkynningarinnar hefði
„greinilega farið fram úr sér“ og tölu-
verðs pirrings gætti í garð ráðherra
og aðstoðarmanna, enda væri öllum
ljóst að eitthvert þeirra þriggja hefði
skrifað tilkynninguna.
Fram kom í samtali við upplýs-
ingafulltrúa innanríkisráðuneyt-
isins á dögunum að mjög þröngur
hópur komi nálægt tilkynningum
á vefnum. Tveir fyrrverandi starfs-
menn í stjórnarráðinu fullyrða að
tilkynningar á ráðuneytisvefjum séu
nær undantekningarlaust skrifaðar í
samráði við aðstoðarmenn eða ráð-
herra sjálfan. n
johannpall@dv.is
Slæmur starfsandi Starfsmenn pirraðir á ráðherra og aðstoðarmönnum. Mynd Sigtryggur Ari
Fékk ekki upplýsingar
sem óskað var eftir
H
anna Birna Kristjánsdóttir
innanríkisráðherra af-
henti ekki þau gögn um
samskipti sín við Stefán
Eiríksson, fráfarandi lög-
reglustjóra á höfuðborgarsvæðinu,
sem umboðsmaður Alþingis óskaði
eftir. Hún svaraði ekki hvenær
fundirnir hefðu farið fram, hvert til-
efni þeirra hefði verið og hver hefði
átt frumkvæði að þeim. Fyrir vikið
sendi umboðsmaður Alþingis ráð-
herranum annað bréf og ítrekaði
spurningar sínar.
Innanríkisráðherra átti að eigin
sögn fjóra „almenna fundi“ með
lögreglustjóranum meðan lög-
reglurannsóknin stóð yfir, en full-
yrðir í bréfi sínu til umboðsmanns
að enginn þeirra hafi verið „boðað-
ur til að ræða rannsóknina sérstak-
lega“. Þá hafi hún átt símtöl, en ekki
sé haldin skrá yfir samskiptin.
reglur um skráningu séu virtar
Líkt og umboðsmaður bendir á í
síðara bréfi sínu til innanríkisráð-
herra setti forsætisráðherra Íslands
reglur um skráningu formlegra
samskipta í stjórnarráðinu þann
20. desember í fyrra. Samkvæmt
þeim ber að skrá í málaskrá ráðu-
neytis formleg samskipti og form-
lega fundi milli ráðuneyta og við
aðila utan stjórnarráðsins.
Um símtöl segir í reglunum: „Að
lágmarki skal skrá upplýsingar um
að samskipti hafi átt sér stað. Sé
upplýsinga, sem hafa þýðingu við
meðferð og afgreiðslu formlegra
stjórnsýslumála, aflað með símtali
skal jafnframt skrá minnispunkta
um það í málaskrá að því marki sem
þörf þykir.“ Umboðsmaður gerir þá
kröfu til Hönnu Birnu að hún upp-
lýsi hann um það sem skráð var á
grundvelli þessara reglna og „ef
það var ekki gert hverjar hafi verið
ástæður þess“.
Veit ekki hvers vegna
Svör ráðherra líktust fremur frétta-
tilkynningu en formlegu svari
við upplýsingabeiðni frá eftirlits-
stofnun á borð við umboðsmann.
Spurningar umboðsmanns voru
skýrar. Hann óskaði eftir tiltækum
gögnum um samskipti ráðherra við
Stefán Eiríksson, þ.e. öllum þeim
gögnum sem til eru og unnt er að
afhenda, en varð ekki að ósk sinni.
Samt kom fram í kvöldfréttum RÚV
á miðvikudag að nánari upplýs-
ingar um fundina væri að finna í
dagbók ráðherra.
Hanna Birna og aðstoðarmenn
hennar vilja ekki tala við DV og láta
Jóhannes Tómasson, faglega skip-
aðan upplýsingafulltrúa í ráðu-
neytinu, svara fyrir sig. Hann segist
ekki vita hvers vegna Hanna Birna
svaraði ekki strax þeim spurning-
um sem umboðsmaður spurði.
Aðspurður hvers vegna Gísli og
Þórey vilji aldrei ræða við DV segist
Jóhannes ekki kunna neinar skýr-
ingar á því.
Lögfræðiráðgjöf til ráðherra
DV bíður nú eftir gögnum úr ráðu-
neytinu um þá lögfræðilegu ráð-
gjöf sem ráðherra segist hafa feng-
ið vegna samskipta sinna við Stefán
Eiríksson lögreglustjóra. Tveir lög-
fræðingar sem DV hefur rætt við
telja það mjög athyglisvert ef rétt
reynist að lögmenn innanríkis-
ráðuneytisins hafi ráðlagt Hönnu
Birnu að ræða við Stefán Eiríksson
um lögreglurannsókn lekamáls-
ins með óformlegum hætti og án
þess að vitna nyti við. Í ljósi þess
hve málið er viðkvæmt hljóti að
vera sérstaklega mikilvægt að skrifa
ítarlegar fundargerðir og hafa ráðu-
neytisstjóra með í ráðum.
Í ályktun þingmannanefndar-
innar sem fjallaði um skýrslu
rannsóknarnefndar Alþingis er
sérstaklega vikið að upplýsinga-
og skráningarskyldu ráðuneyta.
„Vegna smæðar samfélagsins
skiptir formfesta, skráning upp-
lýsinga, verkferlar, tímamörk og
skýr ábyrgðarsvið enn meira máli
en í stærri samfélögum,“ segir þar
auk þess sem þingmannanefndin
mælist til þess að „á fundum innan
stjórnarráðsins séu skráðar fundar-
gerðir, svo og þegar oddvitar ríkis-
stjórnar eða ráðherrar koma fram
gagnvart aðilum úr stjórnkerfinu
eða utanaðkomandi aðilum.“ Hver
einasti þingmaður á síðasta kjör-
tímabili greiddi þingsályktunar-
tillögunni atkvæði sitt. n
Umboðsmaður þurfti að ítreka spurningar sínar til ráðherra„Að lágmarki
skal skrá upplýs-
ingar um að samskipti
hafi átt sér stað.
Vill svör Tryggvi
Gunnarsson er umboðs-
maður Alþingis og kallar
eftir því að innanríkisráð-
herra svari spurningum
sínum. Mynd Sigtryggur Ari
Svarar bara sumu Hanna Birna svaraði
einungis sumum þeirra spurninga sem um-
boðsmaður Alþingis bar upp. Hann þurfti
að ítreka spurningar sínar og bíður enn eftir
svörum.
Jón Bjarki Magnússon
Jóhann Páll Jóhannsson
jonbjarki@dv.is / johannpall@dv.is