Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2014, Blaðsíða 28
Helgarblað 8.–11. ágúst 201428 Fólk Viðtal
É
g banka upp á hjá Sölva á sól-
ríkum eftirmiðdegi í miðri
viku. Hann býr ásamt með-
leigjanda sínum í látlausri
kjallaraíbúð í Hlíðahverfi í
Reykjavík og í tilefni sólarglætunnar
ákveðum við að freista gæfunnar og
setjast út á pall. Íslenska sumar-
ið setur svip sinn á viðtalið en líkt
og á viðburðaríkum fjölmiðlaferli
Sölva skiptast á skin og skúrir
þessa klukkustund sem við ræðum
saman.
Sölvi er fæddur og uppalinn í
Reykjavík, lengst af á Laugateign-
um, en á ættir að rekja til Vestfjarða.
Æskuminningarnar eru bjartar og
einkenndust af leik og gleði. Hann
tók ólíka stefnu en margir jafn-
aldrar hans og æfði aldrei þess-
ar hefðbundnu íþróttir, fótbolta
eða handbolta, en æfði hins vegar
japanskar skylmingar frá átta ára
aldri. Þær æfði hann með hléum
fram yfir tvítugt og keppti meðal
annars á heimsmeistaramóti í Jap-
an og Evrópumeistaramóti í Frakk-
landi. „Ég kynntist íþróttinni í gegn-
um pabba en hann kynntist bæði
japönskum bardagalistum og bog-
fimi þegar hann var við nám í Frakk-
landi. Þegar hann kom heim byrjaði
hann síðan að kenna bæði bogfimi
og japanskar skylmingar hér á Ís-
landi,“ segir Sölvi sem á greinilega
ekki langt að sækja forkólfsgen-
ið. Sölvi heldur draumi föður síns,
Tryggva Sigurðssonar barnasál-
fræðings, á lífi í dag og kennir jap-
anskar skylmingar samhliða öðrum
verkum en sjálfur hefur Tryggvi sagt
skilið við skylmingarnar. Hann æfir
hins vegar enn bogfimina af mikl-
um móð. Sölvi lítur augljóslega
mikið upp til föður síns en minnstu
munaði að hann fetaði í sömu fót-
spor og yrði sálfræðingur.
Varð næstum sálfræðingur
„Ég er ekki einn af þeim sem var
búinn að ákveða snemma hvað ég
ætlaði að verða,“ segir Sölvi um þá
ákvörðun að læra sálfræði í háskól-
anum að loknum menntaskóla.
Sálfræðin varð fyrir valinu bæði
vegna þess að faðir hans er mennt-
aður sálfræðingur en einnig vegna
þess að hann taldi námið góðan
grunn út í lífið. „Mér gekk mjög vel
í sálfræðinni, þó ég segi sjálfur frá,
var með góðar einkunnir og hafði
mjög gaman af náminu. Eftir sál-
fræðinámið var ég hins vegar frekar
óviss um hvað tæki við en sótti
samt um framhaldsnám í sálfræði
í tveimur skólum í Danmörku.“
Sölvi fékk inni í báðum skólunum
en þáverandi kærasta hans átti hins
vegar aðeins eitt ár eftir í hjúkr-
unarfræði hér á landi og ákvað
Sölvi að bíða eftir henni. Í milli-
tíðinni skráði hann sig í eins árs
diplómunám í hagnýtri fjölmiðlun,
námi sem í dag er meistaranám í
blaðamennsku. Eftir veturinn sótti
„Ég er algjörlega tilbúinn
til þess að eignast barn“
Þegar ég horfi tíu ár aftur í tímann líður mér eins og ég hafi lifað fleiri en eitt
æviskeið,“ segir Sölvi Tryggvason fjölmiðlamaður í samtali við blaðamann
DV. Sölvi stendur nú á ákveðnum tímamótum á sínum ferli. Tíu ár eru frá því
hann hóf störf í fjölmiðlum, þá í afleysingum á fréttastofu Stöðvar 2. Þá lauk
tökum á síðustu þáttaröðinni af Málinu nýlega, sem sýnd verður á Skjá Einum á
næstu vikum, og næstu skref óráðin. Hann segist vel geta hugsað sér að starfa
við eitthvað alveg ótengt fjölmiðlum. Áslaug Karen Jóhannsdóttir ræddi við
Sölva um litríkan fjölmiðlaferil hans, fyrirvaralausa uppsögn hans hjá Stöð 2,
einfaratímabilið á Skjá Einum og framtíðaráformin.
Áslaug Karen Jóhannsdóttir
aslaug@dv.is
„Ég var
við það að
fá taugaáfall
Skoðar alla möguleika Sölvi
er með mörg járn í eldinum og
getur vel hugsað sér að starfa við
eitthvað ótengt fjölmiðlum.
Myndir ÞorMar Vignir gunnarSSon