Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2014, Qupperneq 33
Helgarblað 8.–11. ágúst 2014 Fólk Viðtal 33
hvers vegna fjölmiðlar hafi orðið
fyrir valinu.
„Ég var rosalega feimið barn
og held ég hafi ekki sagt orð þang
að til ég var tólf ára. Ég var alltaf
alveg skelfingu lostin, ég var svo
hrædd við fólk. Þannig að það að
fara í fjölmiðla var ákveðin upp
reisn til að brjótast út úr feimninni.
Svo á ég líka eldri systur, sem bjó
þá úti á Möltu, og hún var mjög op
inn og kátur krakki og fékk auðvit
að mikla athygli þannig að ég hugsa
að ég hafi farið í fjölmiðla til að fólk
neyddist til að hlusta á mig; til að
komast úr skugganum,“ segir Linda
og hlær. Ljóst er að hún hefur fund
ið sína réttu braut því hún er afar
ánægð í starfi og vill starfa við fjöl
miðla sem lengst.
„Ég held að það sé orðið augljóst
að þetta er mín ástríða. Mér finnst
þetta svo gaman. Maður er alltaf
að hitta nýtt fólk og það er enginn
vinnudagur eins svo manni getur
ekki leiðst. Og maður lendir í að
stæðum og fer á staði sem maður
myndi annars aldrei fara á.“
Hafa þekkst alla ævi
Linda er í sambúð með Berki
Gunnarssyni, kvikmyndaleikstjóra,
rithöfundi og varaborgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins, en hann hef
ur hún þekkt nánast alla ævi. Þau
léku sér saman sem börn og bröll
uðu ýmislegt saman á unglingsár
unum en það var ekki fyrr en árið
2012, þegar Linda og Börkur hittust
á ný eftir langan aðskilnað, sem þau
hófu ástarsamband.
„Við vorum bestu vinir frá
fjögurra ára aldri og hann bjó meira
að segja heima hjá mér í smá tíma
þegar við vorum tólf ára. Hann svaf
inni í herberginu mínu því mamma
hans og pabbi voru í útlöndum,“ út
skýrir Linda.
„Við bjuggum í sömu blokk í
Leirubakkanum í Breiðholti og for
eldrar okkar voru vinir svo við Börk
ur urðum leikfélagar. Þannig að við
höfum þekkst alla ævi. Svo slitnaði
sambandið upp úr tvítugu og Börkur
fór til útlanda og bjó lengi þar. Hann
lærði kvikmyndagerð í Tékklandi og
fór svo til Íraks og Afganistan og lifði
mjög ævintýralegu lífi. Á meðan var
ég bara hérna heima og við heyrðu
mst ekkert í nokkur ár.“
„Það fór eitthvað í gang“
Fyrir tveimur árum fékk Linda svo
skilaboð frá sínum gamla vini og
þau ákváðu að hittast yfir drykk.
Tenging vinanna varð þó talsvert
frábrugðin því sem hún hafði verið
í æsku.
„Það fór eitthvað í gang, eitthvað
sem er erfitt að útskýra. En það var
samt svolítið eins og maður væri að
sofa hjá bróður sínum fyrst. Við fór
um heim fyrsta kvöldið og þá sváf
um við bara hlið við hlið. Við veltum
alveg fyrir okkur hvort við ættum að
fara yfir þessa línu,“ segir hún.
„Hann er besti vinur minn og ég
hef þekkt hann alla ævi. En þegar
við byrjuðum að vera saman kynnt
ist ég honum upp á nýtt sem full
orðnum manni. Það var alveg nýtt.“
Linda segir þó að æskuvinurinn
hafi lítið sem ekkert breyst í gegn
um árin.
„Hann er nákvæmlega eins og
hann var,“ segir hún og brosir.
„Þetta var mjög praktískt“
Aðspurð segir Linda að á yngri árum
hafi aldrei neinar tilfinningar verið í
spilinu.
„Það hvarflaði aldrei að mér
og var í raun gjörsamlega útilok
að í mínum huga að við myndum
nokkurn tímann byrja saman. Börk
ur sagði mér reyndar síðar að hann
hafi alltaf verið svolítið skotinn í
mér. Ég var aldrei skotin í honum
en honum fannst ég alltaf voða sæt.
Hann var samt ekkert að játa það,“
segir Linda og hlær.
„Við fæddumst með tuttugu daga
millibili og mömmur okkar sögðu
alltaf að við ættum að giftast. Fjöl
skyldunni fannst það náttúrlega
rosalega fyndið þegar við sögðum
þeim að við værum byrjuð saman.
Það voru allir mjög glaðir með þetta.
Og þetta var líka mjög praktískt;
við þurftum ekkert að byrja á því
að spyrja hvaðan við kæmum eða
hverra manna við værum. Við gát
um skautað yfir það allt og byrjað
strax að rífast,“ segir Linda og hlær.
Gefur frelsi að vera barnlaus
Linda og Börkur eru í sambúð, en
þrátt fyrir að vera orðin 44 ára eru
þau bæði barnlaus.
„Okkar líf er því mjög einfalt,“
segir Linda.
„En við erum ennþá að reyna
að ákveða hvað við ætlum að gera í
þessu barnleysi. Okkur langar alveg
í börn. Við erum bara alltaf að hugsa
um eitthvað annað og komum okk
ur ekki í að ákveða hvað við ætlum
að gera. Það kemur bara í ljós.“
En hvernig er að vera barnlaus á
þessum aldri?
„Það gefur ofboðslegt frelsi og ég
hef alltaf notið þess að vera svona
rosalega frjáls. Ég hef einhvern veg
inn alltaf séð mig svona. Það hefur
samt verið erfitt að reyna að útskýra
það fyrir fólki.“
Aðspurð segist Linda þó ekki
finna fyrir pressu frá öðrum þegar
kemur að barneignum.
„Nei, en ég finn að fólki finnst
þetta eitthvað skrýtið. Þetta er
greinilega svolítið feimnismál; ég er
aldrei spurð beint út í þetta og fólk
heldur líklegast að ég geti ekki átt
börn. Ég finn líka ákveðna fjarlægð á
milli mín og þeirra vina minna sem
eru í barnastússi, en það er náttúr
lega alveg eðlilegt.“
Fékk sinn skammt af börnum
Linda segist aldrei hafa hugsað mik
ið um barneignir í gegnum tíðina.
„Mig langaði alltaf að lifa ein
hverju ævintýri. Ég er að átta mig á
því fyrst núna að það að eiga börn er
ævintýri. En ég hef alltaf þráð frelsið
umfram það,“ segir hún.
„Systir mín eignaðist börn og var
með þau heima til að byrja með og
svo á ég yngri bróður sem fæddist
þegar ég var tólf ára svo það var
alltaf rosalega mikið af börnum
heima. Ég held ég hafi bara fengið
minn skammt. Ég vildi frelsi.“
„Algjör martröð“
Árið 2002 varð Linda fyrir erfiðu
áfalli þegar mikill bruni varð í
nokkrum húsum á Laugavegi. Íbúð
in hennar brann til kaldra kola
ásamt öllum hennar eigum, en
sjálfri tókst Lindu að bjarga sér úr
voðanum með því að stökkva fá
klædd fram af svölunum.
„Þetta var skelfilegt. Það brann
allt sem ég átti,“ segir Linda er hún
rifjar upp þetta erfiða atvik.
„Það brunnu fjögur hús á Lauga
veginum og ég bjó í risinu á einu
þeirra. Það kviknaði í öllu og það
brann bókstaflega allt. Ég var að
horfa á sjónvarpið og svo allt í einu
kom mikil birta inn. Ég leit niður og
þá var kviknað í öllu portinu á bak
við húsið. Ég henti úlpunni yfir mig,
setti gemsann í vasann og hljóp út. Ég
ætlaði niður stigaganginn en þar var
bara svartur mökkur svo ég hringdi í
Neyðarlínuna. Svo skall hurðin aftur
þegar ég var komin út á gang svo það
munaði litlu að ég hefði lokast inni
þar. En ég komst aftur inn í íbúðina,
hljóp berfætt út á svalirnar og hopp
aði niður. Þetta var algjör martröð.“
Enginn til að hjálpa
„Það var mikill vindur og slökkvi
liðið réð ekkert við eldinn. Svo
voru bakhús þarna sem voru ekk
ert á teikningum svo það myndað
ist algjört kaos. Lögreglan reyndi að
ráða við fólkið og vísa því í burtu því
vindurinn var að feykja öllu til og frá.
Ég var þarna hlaupandi um að reyna
að komast að einhverju, en það var
enginn til þess að hjálpa manni.
Rauði krossinn vildi til dæmis koma
um nóttina en það var afþakkað,“
segir Linda.
„Þetta var mjög mikið gagnrýnt.
Borgarráð ræddi þetta sérstaklega
og það var haldinn samráðsfundur
þeirra sem komu að málum og mér
skilst að verkferlum hafi verið breytt
eftir þetta. Ég var afar gagnrýnin og
kom í blöðin þar sem ég lýsti þessu
öllu. Ég var í algjöru adrenalínkasti.“
Sér eftir fjölmiðlafári
Bruninn reyndist Lindu mjög
erfiður.
„Ég svaf ekkert eftir þetta. Það
var mikið fjölmiðlafár í kringum
brunann og ég tók að mér að fara í
alla fjölmiðla og tala um þetta,“ seg
ir hún.
„Ég var mjög lengi að jafna mig.
Ég gat ekkert sofið og fékk einhvers
konar áfall. En ég er oft svo mikill
brjálæðingur og þarna stökk ég í alla
fjölmiðla og gaf þeim allt sem þeir
vildu. Ég sá eftir því að mörgu leyti.
Ég var ekki í neinu standi til að opin
bera mig svona. Var í algjöru áfalli
eftir þessa nótt og svaf ekki neitt,
þetta var bara alltof mikið. Ég var
heimilislaus; sofandi hér og þar hjá
vinum og ættingjum, fann hvergi
frið og ég missti hreinlega allan fók
us.“
Lenti á spítala
„Að opinbera sig svona þegar mað
ur er í áfalli, það er mjög varhuga
vert,“ segir Linda.
„Ég fór í viðtal í Kastljós þar
sem ég var að segja brandara og
vera rosalega sniðug. Svo var ég
komin upp á spítala daginn eft
ir. Ég var orðin svo rugluð af áfalli
og svefnleysi að ég var keyrð upp á
spítala og þar var ég látin sofa eina
nótt. Ég vaknaði meira að segja um
nóttina þrátt fyrir að hafa fengið
sterkar svefntöflur því adrenalínið
var svo mikið. Svo voru blaðamenn
að hringja og ég tók slaginn fyrir öll
fórnarlömbin. En ég var náttúrlega í
engu standi til þess.“
Linda segist hafa lært af þessari
erfiðu reynslu.
„Ég lærði að hugsa betur um
sjálfa mig. Ég verð aðeins að passa
upp á mig því ég á til að hlaupa
fram úr mér. Ég hef alltaf verið mjög
orkumikil og ör og svo langar mig að
þóknast öllum. Svo hef ég líka bara
rosalegan áhuga á fjölmiðlum og
vinnunni og maður getur orðið hel
tekinn af vissum málum. Þetta er
fjölmiðlaveikin,“ segir hún.
En hvernig er að missa allt sem
maður á?
„Það er rosalega skrýtið. Rauði
krossinn gaf okkur pening til að
kaupa þessa helstu hluti eins
og nærbuxur, en svo fer maður
ósjálfrátt að reyna að kaupa sér allt
eins og það sem maður átti. Þetta er
mjög óraunveruleg tilfinning. Það
fer einhvern veginn partur af þér.“
Ætlar að eiga blómabúð
Aðspurð segist Linda ekki vita hvað
framtíðin beri í skauti sér. Hana
langar að ferðast meira og starfa
áfram við fjölmiðla, en þessi öra og
orkumikla kona er staðráðin í að
hafa það rólegt í ellinni.
„Draumurinn er að eiga stórt og
fallegt hús með garði. Gamla Linda
ætlar að eiga blómabúð og lifa mjög
rólegu lífi. Það er framtíðarplanið.
Afi minn átti blómabúð og ég vann
þar þegar ég var yngri. Ég elska
blóm. Svo ætla ég að halda rosa
lega mikið af veislum og bjóða fullt
af skrýtnu fólki,“ segir hún og brosir.
„En annað er óráðið. Dags dag
lega er ég alveg skipulögð en ég er
rosalega óskipulögð með líf mitt.
Kannski er það barnleysið, maður
er einhvern veginn alltaf hálf kæru
laus. Svo það verður bara að koma
í ljós.“ n
Góðir vinir Linda og Börkur, 25 ára, í ferm-
ingarveislu litla bróður Lindu. Myndin er tekin
árið 1995. Börkur bjó þá í Berlín og Linda var
komin í stjórnmálafræði í háskólanum.
Mynd úr EinkASAFni
Æskuvinir Börkur (til hægri) og Linda (í miðjunni) ásamt Dóru, eldri systur Lindu. Myndin
er tekin árið 1979. Mynd úr EinkASAFni
Ástarsamband útilokað „Það hvarflaði aldrei að mér og var í raun gjörsamlega útilokað í mínum huga að við myndum nokkurn tímann
byrja saman,“ segir Linda um kærastann sinn og æskuvin, Börk Gunnarsson. Mynd SiGtryGGur Ari
Barnleysi er feimnis-
mál „Þetta er greinilega
svolítið feimnismál; ég
er aldrei spurð beint út
í þetta og fólk heldur
líklegast að ég geti ekki
átt börn,“ segir Linda
um barnleysið. Mynd
SiGtryGGur Ari
„Ég var
ekki í
neinu standi
til að opinbera
mig svona