Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2014, Síða 39
Helgarblað 8.–11. ágúst 2014 Lífsstíll 39
Vöðvafíkn
Vöðvafíkn hefur verið lýst sem öfugum einkennum lystarstols
og er ríkjandi meðal karlmanna sem stunda lyftingar.
Vöðvafíkn er jafnvel talin angi af líkamslýtaröskun (e. body
dysmorphic disorder) sem er sálfræðilegur kvilli sem einkenn-
ist af því að einstaklingur verður gríðarlega upptekinn af því
sem hann telur galla á útliti sínu. Einstaklingi með vöðvafíkn
finnst líkami hans aldrei nægjanlega magur og vöðvamassi
aldrei nógu mikill. Þetta veldur því að viðkomandi dvelur
löngum stundum við æfingar og þá er hann óhóflega upptek-
inn af mataræðinu. Þá forðast vöðvafíkillinn ítrekað félags-
legar athafnir og lokar á fjölskyldu sína og vini vegna æfinga.
Hann fyllist jafnvel kvíða og líður illa þegar hann er í öðrum
aðstæðum en tengjast lyftingum eða ströngu mataræði. Þá
viðheldur hann stífum æfingum, ströngu mataræði og jafnvel
steranotkun þrátt fyrir vitneskju um skaðleg áhrif.
Brúnkufíkn
Nátengd vöðvafíkninni er svokölluð brúnkufíkn. Eins og
nafnið gefur til kynna er um að ræða sjúklega áráttu í
sólbrúna húð og sækja brúnkufíklar í ljósabekki og sólböð í
miklu óhófi. Brúnkufíkn hefur stundum verið kölluð tanorexía
en rannsóknir hafa sýnt að þeir sem þjást af brúnkufíkn eru
einnig líklegri til þess að vera gríðarlega grannir. Þá hafa
rannsóknir einnig sýnt fram á að fólk fái vellíðunartilfinningu í
sólarljósi vegna aukinnar framleiðslu endorfíns. Brúnkufíklar
halda því áfram að sækja í sólarljósið og ljósabekkina þrátt
fyrir vitneskju um skaðleg áhrif á húðina.
Facebook-fíkn
Facebook-fíkn er af
sama meiði og snjall-
símafíkn enda nota
margir snjallsímana til
þess einmitt að kíkja á
Facebook. Gríðarlega
mikið hefur verið
skrifað um Facebook
á árunum eftir að
samskiptamiðillinn leit
dagsins ljós og ljóst
að fáar uppgötvanir
hafa valdið jafn
mikilli samfélagslegri byltingu á síðari árum. Í kjölfarið hafa
verið gerðar margar rannsóknir og skrifaðar margar greinar um
Facebook-fíkn og neikvæð áhrif Facebook á líf margra. Ætla
má að Facebook-fíkn hrjái marga Íslendinga en aðeins ein þjóð í
heiminum notar samskiptamiðilinn meira en Íslendingar – íbúar
Katar – en 72,4% landsmanna eru á Facebook. Sem dæmi þá
skrifaði Auður Jónsdóttir rithöfundur til að mynda eftirminni-
legan pistil í Kjarnanum um Facebook-fíkn sína fyrr á árinu og
vakti verðskulda athygli.
Sex atriði sem benda til þess
að þú sért haldinn Facebook-fíkn:
Fræðimenn við Háskólann í Bergen í Noregi voru með þeim
fyrstu til þess að rannsaka Facebook-fíkn og árið 2012 birtu
þeir eftirfarandi fíkniskala. Ef fjögur eða fleiri atriði eiga við um
þig ertu háður Facebook.
1. Þú hugsar stöðugt um Facebook og skipuleggur hvernig þú
ætlar að nota Facebook.
2. Löngun þín til þess að kíkja á Facebook verður stöðugt
sterkari og sterkari.
3. Þú notar Facebook til þess að gleyma persónulegum vandamálum.
4. Þú hefur reynt að minnka Facebook-notkun þína, án árangurs.
5. Þú verður eirðarlaus og áhyggjufullur ef þér er bannað að
fara á Facebook.
6. Facebook-notkun þín hefur neikvæð áhrif á störf þín og/eða nám.
Kynlífsfíkn
Kynlífsfíkn hefur löngum verið kvik-
myndagerðarmönnum innblástur.
Margir muna eftir bandarísku þáttunum
Californication sem fjalla um rithöfund-
inn Hank Moody sem þjáist allt í senn af
áfengis-, eiturlyfja- og kynlífsfíkn. Aðal-
leikari þáttanna, Dave Duchovny, steig
síðar fram í kastljósið og viðurkenndi
að hann væri haldinn sömu fíkn og
persónan. Þá fjallar kvikmyndin Thanks
for Sharing um hóp fólks sem glímir við
kynlífsfíkn að ógleymdum stórmyndum
Lars von Trier - Nymphomaniac I og II.
Kynlífsfíkn á sér margar birtingar-
myndir, allt frá þráhyggjukenndri
sjálfsfróun til kynferðisglæpa. Á vefsíð-
unni Lífssýn.is segir að kynlífsfíklar, sem ekki eru svo langt leiddir að þeir stundi beina
kynferðisglæpi, stundi gjarnan strippklúbba, skoði klámblöð og horfi á klámmyndir.
Þeir frói sér fram úr hófi, kaupi sér vændi, stundi margendurtekin skyndikynni og eigi
marga bólfélaga. Fíknin hefur þannig veruleg áhrif á daglegt líf viðkomandi.
Ástarfíkn
Nátengd kynlífsfíkninni er svokölluð ástarfíkn. Oft er talað um svokallaða ástarvímu
í byrjun sambands. Ástin verður að fíkn þegar þessi tilfinning sem á sér stað í upphafi
sambands verður að markmiði. Ástarfíklar lifa því örvæntingarfullu og tilfinninga-
þrungnu lífi þar sem óttinn við höfnun ræður ríkjum. Ástarfíklar eru því ekki sjúkir
í raunverulega ást, nánd og heilbrigð sambönd – heldur í tilfinninguna „að verða
ástfanginn“. Á heimasíðu Lífssýnar má finna könnun sem fólk getur tekið þátt í til
þess að athuga hvort það þjáist af kynlífs- eða ástarfíkn. Einnig eru þar leiðir til þess
að ná bata.
Varasalvafíkn
Húðsjúkdómalækna greinir á um hvort
varasalvafíkn sé læknisfræðilega réttmætt hug-
tak. Margir telja að varasalvaframleiðendur setji
efni í salvana sem valda því að þú verður að halda
áfram notkun þeirra. Fyrirtækin sem framleiða
varasalvana sem um ræðir, Labello til dæmis,
verjast því í lengstu lög og segja ekki mögulegt að
verða háður varasalva. Hins vegar má finna ýmsa
stuðningshópa fyrir varasalvafíkla á netinu, til að
mynda stuðningshópinn Lip Balm Anonymous.
Á heimasíðu hópsins segir meðal annars að
varasalvafíklar finni fyrir líkamlegum fráhvarfseinkennum reyni þeir að hætta notkun.
Varirnar verði þurrar og bólgnar svo dögum og jafnvel vikum skiptir. Á íslenskum vefsíðum,
á borð við Bland.is, má einnig finna líflegar umræður um varasalvafíkn og þar er meira að
segja, í hálfkæringi kannski, talað um að stofna íslenskt félag.
Þú veist að þú ert með varasalvafíkn ef:
n Þú brýtur upp daginn til þess að fara sér ferð út í búð að kaupa þér varasalva.
n Þú hugsar stöðugt um varasalvann í vasanum þínum.
n Þú berð á þig varasalva nánast ósjálfrátt mörgum sinnum á dag.
n Þér líður illa ef þú hefur ekki varasalva innan seilingar.
n Þú lætur athugasemdir annarra um varasalvafíkn þína fara í taugarnar á þér.
n Þú hefur nokkrum sinnum reynt að hætta að nota varasalva, án árangurs.
n Þú hefur logið til um hversu mikinn varasalva þú notar.
Selfie–fíkn
Þörfin fyrir að taka selfie, sjálfsmynd eða
„sjálfu“ getur verið raunverulegt vanda-
mál og hafa sálfræðingar viðurkennt að
þessi sjálfsmyndataka geti orðið að fíkn
meðal þeirra sem þegar þjást af ákveðnum
sálfræðilegum kvillum á borð við kvíða,
þunglyndi og lágt sjálfsálit. Þá eru gífurleg
tengsl á milli líkamslýtaröskunar (e. body
dysmorphic disorder) og sjálfsmyndafíknar.
Tilfelli hins 19 ára Dannys Bowman vakti
heimsathygli fyrr á þessu ári en hann þróaði
með sér gríðarlega selfie-fíkn og tók hátt
í tvö hundruð sjálfsmyndir af sér á dag.
Ástandið varð svo slæmt að hann reyndi að
lokum að fremja sjálfsvíg vegna áráttu sinn-
ar. Tilfelli Bowmans er vissulega öfgakennt
en samhliða örri tækniþróun og sífellt betri
myndavélasímum virðist þetta vandamál
vera að færast í aukana.
Verslunarfíkn
Flestir sem þjást af verslunarfíkn eru í verulegri
afneitun og gera sér ekki grein fyrir því að
hegðun þeirra er komin úr böndunum. Þörfin til
þess að versla verður hins vegar sífellt sterkari.
Eitt einkenni er að viðkomandi man ekki alltaf
hvað hann keypti. Þá fela verslunarfíklar hluti
sem þeir hafa keypt fyrir fjölskyldu og vinum,
þeim líður illa án greiðslukortsins og upplifa
sektarkennd og skömm eftir verslunarferðir.
Þráhyggjukennd kaup geta valdið gríðarlegu
fjárhagslegu tjóni ásamt því að valda einstak-
lingum töluverðu þunglyndi og streitu.
Svona nærðu stjórn á fíkninni:
n Í fyrsta lagi þarftu að gera þér grein fyrir
að þú hefur misst stjórn á hegðun þinni.
n Reyndu að koma auga á ástæðu þess að
þú færð þörf til þess að versla.
n Skiptu út verslunarleiðangrinum fyrir
aðrar tómstundir.
n Notaðu reiðufé í stað greiðslukorta.
n Búðu til vikulega eyðsluáætlun og fylgdu
henni.
n Hafðu með þér innkaupalista í búðina.
n Ekki fara ein/n að versla. Taktu með þér vin.
n Reyndu að forðast verslunarmiðstöðvar.
n Leitaðu þér sálfræðihjálpar ef þú finnur
fyrir þunglyndi eða kvíða.