Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2014, Síða 54
Helgarblað 8.–11. ágúst 201454 Fólk
Ristilskolunar-
hótel Jónínu
Atorkusemi Jónínu Ben ríður ekki
við einteyming. Detox-meðferð
hennar í Póllandi hefur sjaldan
verið vinsælli og rær hún nú að
því öllum árum að bæta aðstöð-
una. „Nýr samningur var gerð-
ur í dag við stórglæsilegt hótel
í Kartuzy fyrir þá sem fljúga til
Póllands einhverjum dögum
áður en meðferðirnar byrja eða
fara seinna. Nú er enginn í þörf
fyrir ykkur að leita að gististað,
við fundum hann svo um mun-
ar,“ skrifar Jónína á Facebook-
síðu sína og bætir við að gisting,
ristilskolun og matur sé ekki það
eina sem innifalið sé í verði. „Ég
hlakka til þess að kenna bowling
(leyni á mér).“
Svalar stelpuþorsta samfélagsins
Ilmur Kristjáns og Stelpurnar snúa aftur
G
rínþættirnir Stelpurnar
hefja göngu sína á ný í lok
september. Þættirnir verða
– sem fyrr – sýndir á Stöð 2.
„Tökur hefjast von bráðar og það
er bara gaman,“ segir Ilmur Krist-
jánsdóttir en hún sló í gegn í síð-
ustu þáttaröð í hinum ýmsu hlut-
verkum. Varaborgarfulltrúinn
nýkjörni endurtekur leikinn nú
auk þess sem hún skrifar handritið
í félagi við aðrar í leikhópnum.
„Þetta kom mjög skyndilega upp,
þannig að við þurftum að ganga
rösklega til verks en það hafðist.
Handritið er tilbúið.“
Svala þorsta
Ilmur segir að ákveðið hafi
verið að endurvekja grínteymið
vegna gríðarlegrar eftirspurnar
hvaðanæva að úr samfélaginu.
„Gömlu seríurnar eru ennþá vin-
sælar og fólk þyrstir greinilega í
meira,“ segir hún og bætir við að
þeim grínþorsta svali Stelpurn-
ar með ánægju. Auk Ilmar ætla
flestir leikarar úr fyrri seríum að
snúa aftur, þótt einhverjar manna-
breytingar verði. „Það verða ein-
hver ný andlit en ég veit ekki hvort
ég megi segja frá því, við erum enn-
þá að ganga frá „castinu“. Kjarninn
verður samt þarna: Brynhildur,
Katla, María Reyndal, Daddi, Mar-
íanna Klara Lútersdóttir, Gulla,
Edda, Nína og … já.“
Ilmur er þessa dagana í
fæðingarorlofi frá Borgarleik-
húsinu en hyggst ekki hefja störf
þar aftur að því loknu. Sem áður
greinir er hún varaborgarfulltrúi
Bjartrar framtíðar og tekur við for-
mennsku velferðarráðs Reykja-
víkurborgar á næsta ári. „Það verð-
ur fullt starf.“ n
Hinsegin sokka-
ásetning Braga
Ummerki Hinsegin daga umlykja
borgina en hátíðin stendur nú
sem hæst. Hver heldur uppi boð-
skapnum með sínum hætti, enda
þurfa ekki allir að mæta í Gleði-
gönguna á laugardaginn til þess
að taka þátt. „Í tilefni hinsegin
daga mun ég ganga í hægri sokk
á vinstri fæti næstu daga – og öf-
ugt,“ segir Bragi Valdimar Skúla-
son, sjónvarpsmaður og tónlist-
armaður, á Facebook-síðu sinni.
Í ljósi þess að Hinsegin dagar
eru til þess gerðir að fagna fjöl-
breytileikanum, ættu forsvars-
menn að taka sokkauppátæki
Braga fagnandi, enda ný og frum-
leg leið til þess að vera hinsegin.
Eftirsótt Ilmur Kristjáns mætir eftirspurn með framboði. Mynd SIgtryggur ArI
Ívar vel á verði
Ívar Guðmundsson, dagskrár-
gerðarmaður á Bylgjunni, varð
vitni að því þegar maður leiddi
grátandi stúlkubarn úr mann-
mergðinni á Þjóðhátíð í Vest-
mannaeyjum um síðustu helgi.
Gekk hann upp að stúlkunni
og spurði hana: „Er þetta pabbi
þinn?” Þegar hún svaraði játandi
leyfði hann þeim að halda áfram.
Frá þessu er sagt á Pressunni.
Móðir stúlkunnar segist afar
þakklát Ívari. „Ég lít mjög upp til
hans og þess að hann hafi látið
öryggi barnsins míns hann varða.
Það eru ekki allir sem hefðu
hugsað út í að eitthvað óeðlilegt
gæti hafa verið í gangi en Ívar var
greinilega með hausinn á réttum
stað,“ segir hún meðal annars.
Verslunarferð með
Tobbu á 200 þúsund
tobba Marinós fararstjóri í New York-ferð Icelandair
T
obba Marinósdóttir mun
í nóvember næstkomandi
leiða hóp Íslendinga um
verslunarfrumskóga New
York-borgar. „Ég fékk þessa
hugmynd og spurði Icelandair hvort
þeir væru með eitthvað svona. Svo
reyndist ekki vera þannig að við
ákváðum að henda upp einni ferð,“
segir Tobba en á heimasíðu flugfé-
lagsins getur hver sem er slegist í
verslunarförina með rithöfundinum.
„Við verðum í fjóra daga og pælingin
er að klára að kaupa allar jólagjafir.
Þarna er hægt, þekki menn til, að fá
merkjavöru á algerum spottprís og
gera sjúklega góð kaup. En til þess
þarf að vera með nokkuð mörk trikk
á hreinu.“
200 þúsund
Fyrir ferðina hyggst Tobba
halda lærðan fyrirlestur um
aðferðafræði sína, svo að
ferðalangarnir verði ekki
eins og beljur á svelli í
eplinu stóra. „Þar
fer ég yfir þetta
allt saman, þessi
trix. Hvað borgar sig að panta
á netinu áður og láta senda á hótel-
ið? Hvernig útvegar maður sér af-
sláttarmiða? Hvar getur maður not-
að þá? Hvaða verslanir er best að fara
í?“ Þessum spurningum, og fleirum,
mun Tobba svara og lofar öllum sem
fundinn sækja vænum teyg úr versl-
unarvísdómsbrunni sínum. En upp-
lýsingarnar, fararstjórnin og flug-
ferðin fást ekki endurgjaldslaust.
Öðru nær. Allur pakkinn kostar tæp-
ar 200 þúsund krónur íslenskar. En
borgar það sig? Sérstaklega með til-
liti til veikrar stöðu krónu gagnvart
dalnum?
„Það fer svolítið eftir því hvað
þú ert að versla. Sjálf á ég stóra fjöl-
skyldu og þarf að kaupa margar
jólagjafir. En svo er ég líka bara að
dressa fjölskylduna upp. Barnafötin
eru töluvert ódýrari þarna. Ég kaupi
svo heilu sjampóin og snyrtivörurn-
ar fyrir árið. Þetta kostar bara brot af
því sem þetta kostar á Íslandi. Þetta
borgar sig.“
Aðdráttarafl ferðarinnar felst ekki
einvörðungu í téðri hagkvæmni.
Tobba lofar stuði. „Þetta verður
rosalega upplifun. New York er stór-
kostleg borg.“
Karlaferð
Undanfarin ár hefur mikil vit-
undarvakning orðið í hinum vest-
ræna heimi um skaðsemi fyrirfram-
gefinna hugmynda samfélagsins um
hlutverk kynjanna, bæði hvað at-
vinnu og áhugamál áhrærir. Tobbu
er mikið mun að kveða niður bábilj-
una lífseigu um að verslunarferðir
séu einungis fyrir konur. „Þetta er
alls engin sérstök konuferð. Kalli
[Baggalútur, maður Tobbu, innsk.
blm.] fór með mér síðast þegar ég fór
og hann sat bara á barnum í „mall-
inu“, drakk bjór og horfði á fótbolta.
Þannig að honum leiddist ekk-
ert sérstaklega. Hann dressaði sig
líka upp. Kíkti í Nike-búðina. Þarna
er síðan hægt að kaupa alls konar
græjur og dót þannig að karlmenn
koma ekkert illa út úr svona ferð.“ n
Baldur Eiríksson
baldure@dv.is
Í new york „Ég fyrir utan húsið hennar
Carrie Bradshaw úr 6 and the city. Rétt
hjà er Magnolia bakaríið sem þær stöllur í
þáttunum stunduðu stíft. Red Velvet bolla-
kökurnar þar er „lifechanging“.“
góð kaup Þennan Calvin Klein-kjól keypti
Tobba á litlar 6.000 krónur í New York.
„Kalli fór
með mér síðast
þegar ég fór og hann sat
bara á barnum í „mall-
inu“, drakk bjór og horfði
á fótbolta.
nýbökuð móðir
Tobba segir hagkvæmt
að versla jólagjafirnar í
New York.