Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2014, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2014, Síða 4
Vikublað 1.–3. júlí 20144 Fréttir Var að koma til lendingar Samkvæmt vakthafandi lækni á gjörgæsludeild Landspítalans er líðan mannsins sem slasaðist við lendingu í fallhlíf á Helluflugvelli um helgina, stöðug. Honum er haldið sofandi í öndunarvél. Lögreglan á Selfossi fer með rannsókn málsins. Jón Hlöðver Hrafnsson rannsóknarlögreglu­ maður segir að rannsókn á slys­ inu sé langt á veg komin en að það eigi eftir að fara yfir ákveðna þætti sem geta gefið frekari vís­ bendingar um hvað hafi gerst. Jón Hlöðver segir að maður­ inn hafi ekki fallið úr mikilli hæð. Hann hafi verið að koma inn til lendingar á flugvellinum þegar eitthvað kom upp á með þeim af­ leiðingum að hann slasaðist. Jón Hlöðver segir að maðurinn sé vanur stökkvari. Að sögn Jóns var maðurinn með hópi fallhlífarstökkvara sem hafa aðstöðu á vellinum og stunda oft fallhlífarstökk þar um helgar. Hann segir að nokkur vitni hafi verið að slysinu og að rætt hafi verið við þau eftir slysið og þeim veitt áfallahjálp. Fólk fari varlega Almannavarnadeild ríkislög­ reglustjóra vekur athygli á veður­ spá næstu daga. Veðurstofa Ís­ lands gerir ráð fyrir óvenju öflugri lægð miðað við árstíma í dag, þriðjudag, sem fer yfir landið á miðvikudag. Almannavarna­ deildin biður fólk um að fara var­ lega á ferðum sínum og ganga vel frá öllum lausamunum utandyra. Þá er vakin athygli á því að Veð­ urstofan uppfæri veðurspár sínar reglulega og má finna þær á vefn­ um vedur.is. Auk þess má fylgjast með veðurmælingum og færð á vegum á vef Vegagerðarinnar, vegagerdin.is. Ákærður eftir kæru frá Jóni Ásgeiri n Fékk óvart tölvupóst um Iceland-keðjuna n Jón Ásgeir svaraði ekki Í slenskur karlmaður á sextugsaldri hefur verið ákærður af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu fyrir brot á lögum um fjarskipti á grundvelli kæru frá Jóni Ásgeiri Jóhannes­ syni, fjárfesti og fyrrverandi eiganda fjölmiðlafyrirtækisins 365. Maðurinn fékk óvart sendan tölvupóst frá Jóni Ásgeiri síðla árs 2012 og áframsendi póstinn á einhvern, eða einhverja, sem tengdust honum. Á endanum rataði tölvupósturinn til DV sem gerði frétt um efni hans. Maðurinn vill ekki koma fram undir nafni en honum hefur verið tjáð að hann hafi verið ákærður í málinu og þurfi að mæta fyrir dóm til að svara til saka fyrir að áframsenda tölvupóst­ inn. Pósturinn var sendur á nokkra einstaklinga sem tengdust Jóni Ásgeiri og rekstri Iceland­keðjunnar og virð­ ist tölvupóstfang þessa manns, sem hafði engin tengsl við Jón Ásgeir eða Iceland, hafa slæðst með fyrir slysni. Í 47. grein laga um fjarskipti segir, og má ætla að ákæran byggi á meintu broti á því lagaákvæði, að sá: „… sem fyrir tilviljun, mistök eða án sérstakr­ ar heimildar tekur við símskeytum, myndum eða öðrum fjarskiptamerkj­ um og táknum eða hlustar á símtöl má ekki skrá neitt slíkt hjá sér eða not­ færa sér það á nokkur hátt. Jafnframt ber honum að tilkynna sendanda að upplýsingar hafi ranglega borist sér. Skylt er að gæta fyllsta trúnaðar í slík­ um tilfellum.“ Tölvupóstur um rekstur Iceland Í tölvupóstinum ræðir Jón Ásgeir um fjármögnun matvöruverslunar­ innar Iceland en hún var stofnuð til höfuðs Bónus og Krónunni. Í opin­ berri umræðu kom fram að Jón Ásge­ ir kæmi ekki að rekstri Iceland­keðj­ unnar. Meðal annars sagði faðir hans, Jóhannes Jónsson, á Beinni línu DV.is: „Jón kemur ekki að rekstri Iceland.“ Í umræddum tölvupósti kemur skýrt fram að Jón Ásgeir stýrði hluta­ fjáraukningu keðjunnar og var hann í honum að gefa skipanir um hvern­ ig að aukningunni skyldi staðið. Með­ al þess sem Jón Ásgeir sagði í tölvu­ póstinum var að hann væri með „krosslagða fingur“ um að 160 millj­ ónir króna bærust frá eigendum Iceland í Bretlandi þann 10. nóvem­ ber 2013. Jón Ásgeir ræddi líka um að breyta þyrfti samþykktum Iceland­ keðjunnar á Íslandi til að gera ráð fyrir hinum nýju hluthöfum. Af þessum tölvupóstsamskiptum að dæma var alveg ljóst að Jón Ásgeir kom að rekstri Iceland­keðjunnar. Spurði en fékk ekki svar Í samtali við DV segir maðurinn að hann hafi fengið tölvupóstinn sendan og í kjölfarið hafi hann svarað og spurt Jón Ásgeir af hverju hann hefði feng­ ið þennan tölvupóst sendan. Mað­ urinn segir að hann hafi einnig spurt hvað hann ætti að gera við póstinn, hvort hann ætti að eyða honum og svo framvegis. Við þeirri spurningu fékk hann ekkert svar. Hann segir að honum hafi fundist dónaskapur að fá ekki svar við fyrirspurninni sem hann sendi Jóni Ásgeiri. Hann segir jafn­ framt að þegar hann sendi tölvupóst­ inn frá sér þá hafi markmið hans ekki verið að hann rataði til fjölmiðla. Maðurinn er einn ákærður en Jón Ásgeir kærði fleiri aðila í málinu, meðal annars Inga F. Vilhjálmsson, fréttastjóra DV, sem skrifaði fréttina um málið. Lögreglan felldi niður mál­ ið gegn Inga og öðrum manni sem til rannsóknar var. „Lítilsháttar mistök“ Í gegnum tíðina hafa komið upp sam­ bærileg mál á Íslandi þar sem ein­ hver sendir óvart tölvubréf á rangan, eða ranga, aðila. Þekktasta dæmið er sennilega af þáverandi þingmanni Framsóknarflokksins, Bjarna Harðar­ syni, sem óvart sendi póst um Valgerði Sverrisdóttur á alla fjölmiðla lands­ ins í nóvember árið 2008. Bjarni hafði ætlað að senda aðstoðarmanni sínum harðort bréf um Valgerði frá tveim­ ur framsóknarmönnum með það fyr­ ir augum að fá hann til að senda bréf­ ið nafnlaust á alla fjölmiðla landsins. Umræddur tölvupóstur Bjarna rataði hins vegar til helstu fjölmiðla lands­ ins. Bjarni reyndi að lagfæra mistök sín með því að senda eftirfarandi orð á fjölmiðla landsins: „Mér urðu á lítilsháttar mistök áðan við sendingu á bréfi til aðstoðar­ manns míns. Bréf þetta sem átti aðeins að fara milli okkar tveggja lenti óvart á hópsendingarlista fjölmiðla ég vil því vinsamlegast fara þess á leit við ykk­ ur að þið eyðið þessu bréfi og nýtið hvorki efni þess né þessi mistök mín sem urðu til þess að bréfið rataði rang­ lega í ykkar hendur á nokkurn hátt í miðlum ykkar.“ Fjölmiðlarnir urðu hins vegar ekki við þessari beiðni Bjarna og gerðu fréttir um málið. Bjarni sagði af sér þingmennsku í kjölfarið. Engir eftirmálar Öfugt við mál Jóns Ásgeirs Jóhannes­ sonar höfðu fréttaskrifin um mál Bjarna ekki þá eftirmála að lögð væri fram kæra hjá lögreglu á hendur til­ teknum fjölmiðlum og enn síður að einhver yrði ákærður fyrir brot á lög­ um um fjarskipti. Lögreglan tók mál Bjarna heldur ekki til rannsóknar hjá sér af sjálfsdáðum líkt og hún hefði sjálfsagt heldur ekki gert með mál Jóns Ásgeirs en ákæruvaldinu ber hins vegar að taka afstöðu til kæra sem því berast og er maðurinn þess vegna ákærður. n „Skylt er að gæta fyllsta trúnaðar í slíkum tilfellum. Engin kæra Bjarni Harðarson gerði þau mis- tök í nóvember 2010 að senda einkapóst um Valgerði Sverrisdóttur á fjölmiðla. Gerðar voru fréttir úr póstinum þrátt fyrir beiðni Bjarna um annað en hann aðhafðist ekkert í því. Mörg nauðgunarmál Fjölmörg kynferðisbrotamál koma upp í tengslum við útihátíðir á ári hverju. Mynd SrphoTo@frodI.IS Sýknaður af nauðgunarákæru Sakaður um kynferðisofbeldi í tjaldi á Þjóðhátíð H éraðsdómur Suðurlands hefur sýknað karlmann sem ákærður var fyrir nauðgun á Þjóðhátíð í Vestmanna­ eyjum árið 2012. Var hon­ um gefið að sök að hafa með ofbeldi þröngvað stúlku til samræðis, rifið í hár hennar, haldið höndum hennar niðri, bitið hana í neðri vör og reynt að setja getnaðarlim sinn í enda­ þarm hennar. Stúlkan lýsti málsatvikum þannig að maðurinn hefði löðrungað hana, elt hana inn í tjald, rifið niður buxur hennar, tekið harkalega í hár henn­ ar og nauðgað henni. Allan tímann hafi hún barist um og kallað á hjálp. Á meðal þeirra sem báru vitni í mál­ inu var læknir sem tók á móti stúlk­ unni á neyðarmóttöku umrædda nótt. Hann kvaðst ekki muna hvern­ ig andlegu ástandi stúlkunnar hefði verið háttað, en hún hefði grátið og verið reið. Líkamlegir áverkar hafi ekki verið sjáanlegir, en við þreifingu hafi þó fundist eymsli í hársverði. Ákærði neitaði sök og hefur allt frá því að málið kom upp staðið fast á því að gagnkvæmt samþykki hafi verið fyrir hendi, enda hafi stúlkan tekið þátt í samræðinu. Héraðsdóm­ ur Suðurlands taldi að skynsamleg­ ur vafi léki á að ákærði hefði með ofbeldi þröngvað brotaþola til sam­ ræðis, og sýknaði manninn. n Sendi óvart póst á rangan mann Jón Ásgeir Jóhannesson sendi óvart tölvupóst á rangan mann og hefur þessi maður nú verið ákærður fyrir að áframsenda póstinn. Mynd SIgTryggur ArI NÝ SENDING AF SÓFASETTUM Teg. Giulia 3 - 1 - 1 og 3 - 2 - l leður. Reykjavíkurveg 66 220 Hafnarfirði sími 565 4100

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.