Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2014, Page 6
6 Fréttir Vikublað 1.–3. júlí 2014
Byrsti sig á fundi
með starfsmönnum
n Ráðuneytisstjóri: „Ég vona að enginn hér sé með upptökutæki“
É
g vona að enginn hér sé með
upptökutæki,“ sagði Ragn
hildur Hjaltadóttir, ráðu
neytisstjóri innanríkisráðu
neytisins, á starfsmannafundi
í maí þar sem rætt var um leka
málið. Fundurinn var haldinn eftir
að úrskurður héraðsdóms, vegna
kröfu lögreglu gegn fréttastjóra,
hafði varpað nýju ljósi á vinnubrögð
ráðuneytisins í málinu.
Dómsskjölin staðfestu fréttaflutn
ing DV og sýndu að Hanna Birna
Kristjánsdóttir innanríkisráðherra
og aðstoðarmenn hennar, þau Þórey
Vilhjálmsdóttir og Gísli Freyr Val
dórsson, höfðu sagt ósatt þegar þau
fullyrtu að minnisblaðið um hælis
leitandann Tony Omos væri ekki
komið frá innanríkisráðuneytinu.
Líkt og DV hefur áður greint frá eru
aðstoðarmennirnir nú með réttar
stöðu grunaðs manns en ríkissak
sóknari mun taka ákvörðun um
það á næstunni hvort gefin verði út
ákæra.
Skammaðist í starfsmönnum
Á umræddum fundi kastaðist í
kekki á milli Hönnu Birnu og starfs
manna ráðuneytisins. DV hefur
rætt við starfsmenn sem voru á
fundinum, en þeir segja stemn
inguna hafa verið hálf vandræða
lega. Í upphafi hafi ráðherra farið
hörðum orðum um fjölmiðlaum
fjöllun af lekamálinu og hvatt
starfsmenn til að taka öllum frétt
um með fyrirvara. Því næst hafi
starfsmenn spurt ráðherra spurn
inga sem féllu í grýttan jarðveg.
Ráðherra hafi þá skammast í starfs
fólki ráðuneytisins fyrir að sýna
ekki nægan liðsanda. Einn þeirra
sem viðstaddur var fundinn seg
ir Hönnu Birnu hafa sett út á að
starfsmenn væru „með fýlusvip“.
Höfnuðu kröfu um rannsókn
DV hefur áður greint frá togstreitu
milli faglega skipaðra starfsmanna í
ráðuneytinu og þríeykisins, þ.e. ráð
herra og aðstoðarmanna. Þann 5.
desember birtist frétt um að starfs
menn hefðu farið fram á óháða
rannsókn á lekamálinu þegar kær
ur voru lagðar fram gegn ráðherra
og ráðuneytisstarfsmönnum. Farið
var fram á að aðili sem gegndi raun
verulegu eftirlitshlutverki væri lát
inn annast slíka rannsókn, til að
„klára málið“ eins og viðmælandi
orðaði það, en ráðherra lagðist gegn
því að þetta yrði gert.
Slæmur andi
Í ráðuneytinu hefur lengi ríkt
óánægja vegna málsins, en reiði
starfsmanna beinist aðallega gegn
ráðherra og aðstoðarmönnum.
„Mórallinn er frekar slæmur hérna,“
segir einn viðmælandi DV. Annar
segir að starfsmenn séu óánægðir
með að hafa verið bendlaðir við
hegningarlagabrot og grunur flestra
starfsmanna hafi lengi beinst að að
stoðarmönnum ráðherra. Sem áður
segir eru þeir nú báðir komnir með
réttarstöðu grunaðs manns. Stjórn
Félags háskólamenntaðra starfs
manna Stjórnarráðsins, fundaði um
lekamálið og hagsmuni ráðuneytis
starfsmanna þann 15. maí, og haft
var eftir formanni félagsins í frétt
um RÚV að erfitt væri fyrir starfsfólk
að sitja undir því að vera grunað um
lögbrot. n
Jóhann Páll Jóhannsson
johannp@dv.is
„Mórallinn
er frekar
slæmur hérna
Stendur með ráðherranum
Talaði gegn betri vitund
Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytisstjóri inn
anríkisráðuneytisins, hefur ekki viljað gang
ast við því að gögnum hafi verið lekið úr
innanríkisráðuneytinu þótt henni hafi lengi
mátt vera ljóst að sú væri raunin. Þann 13.
desember síðastliðinn ræddi Ragnhildur við
stuðningsmenn Tony Omos í anddyri innan
ríkisráðuneytisins. DV varð vitni að því þegar
hún þvertók fyrir að trúnaður ráðuneytis
ins við hælisleitandann hefði verið rofinn.
Greinargerðir lögreglu varpa ljósi á annað
og sýna meðal annars að Ragnhildur sjálf er á meðal þeirra fjögurra
starfsmanna sem fengu minnisblaðið um Tony Omos sent í tölvupósti
daginn áður en fréttir birtust sem skrifaðar voru upp úr því. Jóhanna
Vigdís Hjaltadóttir, systir Ragnhildar, flutti eina af fyrstu fréttum RÚV
um lekamálið, en RÚV hóf ekki umfjöllun um málið fyrr en í janúar.
Ósátt Hanna Birna Kristjáns-
dóttir innanríkisráðherra telur
að fjölmiðlaumfjöllun um leka-
málið hafi verið ósanngjörn.
Óánægður með Ragnar Fyrrverandi
dómsmálaráðherra telur hæstaréttarlög-
mann hafa beitt sér of harkalega fyrir
réttindum hælisleitenda.
Of öflug réttargæsla
Björn fúll út í mannréttindalögmann
B
jörn Bjarnason, fyrrverandi
dómsmálaráðherra, telur að
Ragnar Aðalsteinsson, einn
reyndasti mannréttindalög
maður Íslands, gangi of langt í rétt
argæslu sinni fyrir hælisleitendur
á Íslandi. Þetta kemur fram í blogg
færslu Björns þar sem hann fullyrð
ir að Ragnar óttist að „lögmenn missi
spón úr aski sínum vegna hins ný
gerða samnings við Rauða krossinn“.
Ragnar hefur gagnrýnt breytingarnar
á þeim grundvelli að þær miði fyrst
og fremst að sparnaði og kunni að
bitna á hælisleitendum og aðgengi
þeirra að lögmönnum.
Björn átti sjálfur þátt í mótun ís
lenskrar útlendingalöggjafar og
gegndi embætti dóms og kirkju
málaráðherra á árunum 2003 til
2009. Hann hefur margsinnis varað
við hælisleitendum og þeim vanda
málum sem hann telur þjóðir heims
glíma við vegna komu þeirra.
Ragnar er einn þeirra sem hafa
tekið upp hanskann fyrir þennan
minnihlutahóp af mikilli elju í gegn
um tíðina. Björn telur Ragnar hafa
gangið of langt. „Hann hefur oft
flutt hvassa gagnrýni á yfirvöld og
talið hana í þágu hælisleitenda. Mín
reynsla er að Ragnar hikaði ekki við
að ganga of langt í yfirlýsingum um
örlög einstaklinga sem vísað var úr
landi,“ segir Björn sem tvívegis full
yrðir að Ragnar óttist að „lögmenn
missi spón úr aski sínum“. Þannig
gefur fyrrverandi ráðherra í skyn að
Ragnari séu fjárhagslegir hagsmun
ir lögfræðinga efst í huga fremur en
kjör hælisleitenda. n
johannp@dv.is
Vilja ekki
flytja norður
„Starfsfólk Fiskistofu mótmælir
harðlega áformum ríkisstjórn
arinnar, sem sjávarútvegs og
landbúnaðarráðherra kunn
gjörði fyrirvaralaust s.l. föstu
dag, um flutning stofnunarinn
ar til Akureyrar.“ Þetta kemur
fram í yfirlýsingu sem barst frá
starfsfólki Fiskistofu á mánu
dag. Í henni kemur fram að ljóst
sé að ákvörðunin hafi alvarlegar
afleiðingar á afkomu fjölskyldna
að minnsta kosti 62 starfsmanna,
þar sem séu makar, börn og í
ýmsum tilvikum aðrir nákomn
ir ættingjar. „Því er um að ræða
bein áhrif á lífsviðurværi mörg
hundruð manns.“
Þá kemur fram að „óhætt
sé að gagnrýna vinnubrögð“
stjórnvalda við þá aðferðafræði
„leifturárásar“ sem beitt var við
kynningu ákvörðunarinnar sem
hafi birst starfsmönnum eins og
þruma úr heiðskíru lofti. „Í kjöl
farið upplifa margir í senn vanlíð
an og lítilsvirðingu við störf sín og
fagþekkingu. Engin rök eru enn
fram komin sem hníga til þess
að ná megi fram fjárhagslegum
ávinningi, eða hagræðingu með
flutningi stofnunarinnar.“
Þá segir í yfirlýsingunni að á
starfsmannafundi á mánudag
hafi komið fram að enginn starfs
maður hafi lýst því yfir að hann
hyggist flytjast búferlum og fylgja
stofnuninni norður. Því blasi
við að vonir ráðamanna þar um
séu þegar að engu orðnar. Loks
segir að komið hafi fram að vafi
kunni að leika á því hvort flutn
ingar stofnunarinnar megi verða,
án sérstakar heimildar í lögum.
„Þess er að vænta að ekki muni
standa á starfsmönnum stofn
unarinnar að verja sinn rétt í
þeim efnum.“
Hugo Boss söluaðilar:
Reykjavík:
Gilbert úrsmiður Laugavegi 62 s: 551-4100
Gullúrið–úra og skartgripaverslunv Mjódd s: 587-4100
Úra- og skartgripaverslun Heide Glæsibæ s: 581-3665
Meba Kringlunni s: 553-1199
Meba - Rhodium Smáralind s: 555-7711
Hafnarfjörður
Úr & Gull Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar s: 565-4666
Keflavík:
Georg V. Hannah, úrsmiður Hafnargötu 49 s: 421-5757
Selfoss:
Karl R. Guðmundsson, úrsmiður Austurvegi 11 s: 482-1433
Akureyri:
Halldór Ólafsson úrsmiður Glerártorgi s: 462-2509
Akranes:
Guðmundur B. Hannah, úrsmiður Suðurgötu 65 s: 431-1458
Egilsstaðir:
Klassík Selási 1 s:471-1886
Úra- o skartgripaversl n
Heide Glæsibæ - s: 581 36 5