Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2014, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2014, Page 16
Vikublað 1.–3. júlí 201416 Fréttir Erlent Alvarlega veikir eftir vinnu hjá Samsung n Rekja hvítblæði, krabbamein og MS til aðstæðna í verksmiðjum fyrirtækisins í Suður-Kóreu T æknifyrirtækið Samsung hefur um langt skeið verið stolt Suður-Kóreu og einn helsti drifkrafturinn að baki því öfluga hagkerfi sem landið státar af. Óveðurský eru þó á lofti því að undanförnu hafa fjöl- margir sem starfað hafa fyrir fyrir- tækið veikst og kenna þeir aðstæð- um í verksmiðjum Samsung um. Fékk heilaæxli Han Hye-kyung er ein þessara starfs- manna en hún byrjaði að vinna í verksmiðju Samsung Electronics árið 1995. Hún hafði alla tíð ver- ið heilsuhraust og var himinlifandi þegar hún fékk starfið strax eftir út- skrift úr menntaskóla. Washington Post fjallaði ítarlega um málið á dögunum og þar er haft eftir henni og móður hennar, Kim Shi-nyeo, að innan við tveimur árum eftir að hún hóf störf hjá fyrirtækinu hafi hún hætt að hafa tíðir. Nokkru síðar fór hún að eiga í erfiðleikum með gang. Hún hætti störfum hjá fyrirtækinu árið 2001 og fjórum árum síðar, árið 2005, greindist hún með heila- æxli. Mæðgurnar segjast ekki vera í nokkrum vafa um að nálægð við heilsuspillandi efni sem notuð eru í verksmiðjum Samsung séu ástæða veikindanna. Í dag er Han lömuð að hluta eftir aðgerð sem hún gekkst undir til að fjarlægja heilaæxlið. Fengu báðir hvítblæði Han Hye-kyung er langt því frá eini starfsmaðurinn sem tengir alvar- leg veikindi við störf í verksmiðjum Samsung. Sjö ár eru síðan áhyggjur af aðstæðum í verksmiðjum Sam- sung rötuðu fyrir alvöru á síður dagblaða í Suður-Kóreu. Það gerð- ist þegar tveir fyrrverandi starfs- menn, sem starfað höfðu hlið við hlið á framleiðslulínu í verksmiðju Samsung, létust með nokkurra mánaða millibili. Banamein beggja var hvítblæði. Á þessum sjö árum sem liðin eru hafa 200 aðrir fyrrver- andi starfsmenn stigið fram og full- yrt að veikindi þeirra megi rekja til starfa í verksmiðjum fyrirtækisins. Flestir þessara starfsmanna unnu í Giheung-verksmiðjunni skammt frá höfuðborginni Seúl þar sem fram- leiddir eru vökvakristalsskjáir, í dag- legu tali LCD-skjáir, og svokallaðir hálfleiðarar (e. semiconductors). Ekki óyggjandi sannanir Þó að fjöldi þeirra starfsmanna sem stigið hafa fram gefi tilefni til að ætla að eitthvað óeðlilegt sé í gangi í verk- smiðjum Samsung hefur ekki tekist að færa óyggjandi sannanir fyrir því. Bætur hafa þó verið greiddar út í fjór- um málum sem varða spilliefni sem starfsmenn komust í tæri við. Hvað sem því líður báðust forsvarsmenn fyrirtækisins afsökunar á því að hafa ekki veitt umkvörtunarefnum fyrr- verandi starfsmanna sinna nægilega athygli. Þá hafa suður-kóreskir þing- menn krafist þess að fyrirtækið veiti opinberar útskýringar á veikindun- um. Hafa einhverjir látið hafa eftir sér að fyrirtækið hafi hlaupið fram úr sér og sett gróðavonina ofar öryggi starfsmanna. Þá hafi þeir komið í veg fyrir stofnun verkalýðsfélags starfs- manna fyrirtækisins. Í svari til Washington Post segja forsvarsmenn Samsung að félagið hafi farið eftir öllum öryggisstöðlum – og jafnvel gert meira en krafist hef- ur verið. Sum efni hættuleg Í umfjöllun Washington Post kemur fram, sem fyrr segir, að ekki hafi reynst unnt að færa sannanir á að aðstæður í verksmiðjum Samsung séu hættulegar starfsmönnum. Þó er haft eftir fulltrúum í bandaríska heil- brigðisráðuneytinu að vinna með hættuleg efni sem notuð eru í fram- leiðslu á raftækjum fyrirtækisins geti aukið hættuna á alvarlegum sjúk- dómum eins og krabbameini; þar á meðal heilaæxli og hvítblæði. Dýrt að stöðva framleiðsluna Mál þessara 200 starfsmanna sem komið hafa upp varða öll einstak- linga sem unnu í verksmiðjum Sam- sung á tíunda áratug liðinnar aldar eða á fyrstu árunum eftir aldamót. Síðan þá hefur Giheung-verksmiðj- an verið endurnýjuð að miklu leyti. Starfsmenn þar kvörtuðu með- al annars undan því að þegar raf- magn fór af hafi slokknað á loftsíum. Í þeim tilvikum hafi starfsmenn yfir- gefið verksmiðjuna en skipað að fara fljótlega aftur inn, jafnvel þótt hættu- legar lofttegundir væru enn inni í verksmiðjunni. „Það er mjög dýrt að stöðva fram- leiðsluna í langan tíma,“ segir Ryu Ui- seok sem vann í Giheung-verksmiðj- unni frá 2004 til 2006. Þó að hann sé við góða heilsu í dag segir hann að fyrirtækið hefði getað gert betur til að tryggja öryggi starfsmanna verk- smiðjunnar. „Jafnvel þótt rafmagns- leysi hafi varað í mjög skamma stund fann maður mjög sterka lykt af efn- um þegar maður fór aftur inn,“ segir hann. Engin fræðsla um öryggismál Flestir af starfsmönnum Giheung- verksmiðjunnar voru konur, ný- komnar úr námi. Washington Post hefur eftir einni þeirra, Hong Sae- mi, að þær hafi fengið fræðslu um sögu fyrirtækisins og til hvers var ætlast af þeim í verksmiðjunni. Lítil sem engin fræðsla hafi þó verið um öryggismál eða þau efni sem notuð voru í framleiðslunni. Hong þjáist í dag af MS-sjúkdómnum sem hún rekur til vinnunnar í verksmiðjunni. „Allt sem við lærðum var hvernig við áttum að verða góðir starfskraftar.“ n Stórfyrirtæki Sam- sung er eitt stærsta tæknifyrirtæki heims og líklega best þekkt fyrir framleiðslu á sjón- vörpum og snjallsímum. Einar Þór Sigurðsson einar@dv.is Veiktist Han Hye-kyung fékk heilaæxli eftir að hafa starfað hjá Samsung. Hún rekur veikindin til aðstæðna í verksmiðjum fyrirtækisins þar sem hún vann um nokkurra ára skeið. Þjáðist ekki af geðröskun Oscar Pistorius, suðurafríski spretthlauparinn, þjáðist ekki af geðröskun þegar hann varð unn- ustu sinni, Reevu Steenkamp, að bana á heimili þeirra í fyrra. Þetta kemur fram í geðmati sem var lagt fyrir dómstólinn í Pretoríu þar sem ákæra á hendur honum er til meðferðar. Oscar er ákærður fyrir að skjóta unnustu sína til bana að yfirlögðu ráði en sjálfur segist hann hafa talið að um innbrots- þjóf hefði verið að ræða. Verjend- ur Oscars héldu því fram að hann hefði þjáðst af kvíðaröskun þegar hann varð Steenkamp að bana og væri þar af leiðandi ekki ábyrgur gjörða sinna. Geðmatið leiðir þó annað í ljós og þýðir niðurstaðan að Oscar sé sakhæfur. Tíu þúsund pólitískir fangar Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna hefur sett nefnd á lagg- irnar sem mun hafa það hlutverk að skoða stöðu mannréttinda- mála í Afríkuríkinu Erítreu. Ljóst er að þar er víða pottur brotinn og mun nefndin skila niðurstöðum sínum að ári liðnu. Amnesty International greindi frá því í fyrra að um tíu þúsund Erít- reumenn hefðu verið fangelsaðir af pólitískum ástæðum frá árinu 1993. Stjórnvöld neituðu þessum ásökunum staðfastlega í kjölfarið. Mannréttindaráðið hefur áður unnið viðlíka skýrslur, um mál- efni Sýrlands og Norður-Kóreu meðal annars. Reyndi að kveikja í könguló Þrjátíu og fjögurra ára kona í Kansas í Bandaríkjunum, Ginny Griffith, fylltist svo mikilli skelf- ingu þegar hún sá könguló að hún sá þann kost vænstan að bera eld að henni. Ekki fóru hlutirnir eins og hún ætlaði því eldurinn var fljótur að breiðast út. Hutchinson News greinir frá því að hún hafi notað kveikjara til að kveikja í handklæðum í íbúð sinni og ganga þannig frá köngu- lónni. Slökkvilið var kallað á vett- vang og gekk greiðlega að ráða niðurlögum eldsins. Griffith hef- ur verið ákærð fyrir íkveikjuna og gæti átt refsingu yfir höfði sér.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.